Alþýðublaðið - 19.04.1996, Side 4

Alþýðublaðið - 19.04.1996, Side 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 ■ Það er kannski ábyrgðarlaust að skrifa mannkynssögu í við- tengingarhætti, en einu sinni munaði sáralitlu að öflugur kín- verskur floti héldi til Evrópu. Þar hefði trúlega orðið fátt um varnir- og ekki ósennilegt að forfeður okkar hefðu orðið að læra kínversku. Hrafn Jökulsson segirfrá metnaðarfullum keisurum og knáum kínverskum flotaforingjum Flotinn sem fúnaði Flestir telja sjálfsagt að framvinda mannkynssögunnar sé ófrávíkjanleg og það sé því engin tilviljun að Vestur- landabúar hafi verið herrar heimsins öldum saman í krafti tækni sinnar og auðæfa. En fyrirtæpum 600 munaði ekki nema því sem munaði að kínverskur floti legði undirsig allan heiminn og Kínverjartækju afger- andi forystunni í mannkynssögunni. Siglingar Evrópumanna annað og lengra en með ströndum fram hófust á fimmtándu öld og framfarir urðu stór- stígar: rétt undir aldamótin 1500 voru tvö úthöf - Atlantshafið og Indlands- hafið - að velli lögð og skömmu síðar sigldu Evrópumenn yfir Kyrrahafið og öllum landabréfum varð að breyta. í kjölfar siglinganna og landafund- anna náðu Evrópumenn því frum- kvæði á flestöllum sviðum mannlegs lífs sem þeir hafa haldið fram á þenn- an dag, en fram að því hafði Evrópa alls ekki skarað að neinu ráði framúr Vasco da Gama, sá mikli landkönn- uður, hefði ekki getað fært Sjeng Hó neinar sérstakar fréttir um lönd við hafið. öðrum menningarsvæðum, hvorki veröld múslima í Miðausturlöndum né Indverja - og einkum stóðu Evrópu- menn þó að ýmsu leyti að baki Kín- verjum, hvað menningu og tækni snerti. Kína hafði öldum saman verið eitt helsta menningarriki í heimi en lengi búið við þá hættu að mongólskir hirð- ingjar kæmu úr norðri og legðu undir sig landið. Það gerðist alltaf öðru- hvoru og til dæmis fóru Mongólar með stjóm í Kína þegar Marco Polo kom þangað undir lok þrettándu aldar og var tuttugu ár við hirð Kúblæ Kahns og ýtti með skrifum sínum undir landafundina - því Kólumbus vildi fyrst og fremst finna sjóleiðina til þeirra auðugu rfkja sem Marco Polo lýsti. En undir lok fjórtándu aldar var oki Mongóla varpað af Kínveijum og ný og þróttmikil keisaraætt tók við völdum, sem kallaðist Ming. Ming-keisararnir smíða sér flota Fyrstur Ming-keisara var Sjú Júan- Tjang sem fæddist blásnauður og varð munkur, stigamannaleiðtogi og her- foringi áður en hann gerðist keisarinn í Kína. Sonur hans tók svo við af hon- um og styrkti mjög stöðu bæði Min- Styrkir til atvinnu- mála kvenna Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári 20 milljónir króna til ráðstöfunartil atvinnumála kvenna. Við ráðstöf- un fjárins er einkum tekið mið af þróunarverkefnum sem þykja líkleg til að fjölga atvinnutækifærum kvenna á viðkomandi atvinnusvæðum. Sérstök áhersla er lögð á að efla ráðgjöf til kvenna sem eru í atvinnurekstri eða hyggjast fara út á þá braut. Við skiptingu fjárins eru eft- irfarandi atriði höfð til hliðsjónar: • Verkefnin skulu vera vel skilgreind og fyrir liggja fram- kvæmda- og kostnaðaráætlun. • Ekki verða veittir beinir stofn- eða rekstrarstyrkir til einstakra fyrirtækja nema sérstakar ástæður mæli með. • Verkefnið skal koma sem flestum konum að notum. • Að öðru jöfnu skal fjármögnun af hálfu ríkisins ekki nema meir en 50% af kostnaði við verkefnið. • Ekki eru veittir styrkir til starfsemi ef fyrir liggur að hún er í beinni samkeppni við aðra aðila á sama vett- vangi. • Að öðru jöfnu eru ekki veittir styrkir til sama verkefnis oftar en tvisvar í senn, Umsóknareyðublöð fást í félagsmálaráðuneytinu, Hafn- arhúsi v/Tryggvagötu, Reykjavík og hjá atvinnu- og iðn- ráðgjöfum á landsbyggðinni. Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Félagsmálaráðuneytið gættarinnar og Kínaveldis í heild - hann treysti til dæmis vamir Kínverja gegn Mongólum í norðri og neyddi hina stoltu hirðingja til að gjalda sér skatt. Þessi annar Mingkeisari - sem þekktur varð undir nafninu Jung-Ló, er þýðir Eilíf sæla - reyndi líka að leggja undir sig Víetnam í suðri en Ví- etnamar virðast snemma hafa orðið glúrnir í skæruhernaði og Júng-Ló komst lítt áleiðis þar. En Jung-Ló horfði líka til sjávar og metnaðinn skorti svo sannarlega ekki. A fyrstu áratugum fimmtándu aldar - þegar Kólumbus var ekki einu sinni fæddur og skip Hinriks sæfara Portú- galsprins voru rétt að byrja að silast suður með Afríkuströndum - þá sendi Jung-Ló til hafs slíkar flotadeildir að margar aldir liðu uns þeirra líkar lögðu aftur á sjó. í gömlu höfuðborg- inni Nanking hófust meiri skipasmíðar en þekkst höfðu áður í veröldinni og sjö sinnum lögðu flotar af júnkum úr höfn og rannsökuðu ókunn lönd fyrir Kínakeisara. Fyrsti leiðangurinn var farinn árið 1405 og kann að hafa átt upptök sín í því að Jung-Ló vildi ganga úr skugga um hvort frændi hans, sem líka hafði viljað verða keisarinn í Kína, hefði sloppið úr landi og væri að brugga honum banaráð í útlöndum, en er fram liðu stundir verður ekki betur séð en eintóm forvitni og landkönnunarfýsn hafi ráðið skipasiglingum Kínverja. Sjálfur hélt Jung-Ló sig á þurru landi, rétt einsog Hinrik sæfari sem mun að- eins einu sinni hafa stigið á skipsfjöl, en aðmíráll hans og staðgengill í ferð- um um heimshöfin hét Sjeng Hó og það fylgir sögunni að hann hafi verið múslímatrúar og geldingur í ofanálag. 28 þúsund menn í flota Kínverja Flotadeildir Sjeng Hós voru sem fyrr greinir af stórfenglegra tagi og má nefna að fjórðu siglinguna - sem stóð á árunum 1413-1415 - fóru 63 stór- skip og áhöfnin taldi 28 þúsund menn. Til samanburðar sigldi Vasco da Gama inn á Indlandshaf tæpri öld síð- ar með fjögur skip og innan við 500 menn. Og Vasco da Gama hefði ekki getað fært Sjeng Hó neinar sérstakar fréttir um lönd við hafið því kínversku flotarnir höfðu rannsakað allar Suð- austur-Asíu niður til Súmötru og Jövu, þeir höfðu komið til Múskat og Óman og inná Persaflóa og siglt meðfram allri Arabíu og lengst inná Rauðahaf þarsem heitir Jedda og þeir höfðu far- ið suður með Afríku langleiðina til Sansíbar. Sem betur fór fyrir þær þjóðir sem Sjeng-Hó og tröllauknir flotar hans heimsóttu fóru þeir víðast með friði og létu sér nægja að skiptast á vamingi og heimta í mesta lagi þá viðurkenningu af heimamönnum að enginn keisari væri meiri í heimi en Jung-Ló af Ming-ættinni. Það segir sig sjálft að þegar 28 þúsund Kínverj- ar á meira en 60 skipum lágu fyrir ströndum var sú viðurkenning fúslega veitt, og kóngurinn á Sri Lanka var meira að segja fluttur í eigin persónu til hinnar nýju höfuðborgar Kína, Bej- ing, til þess að votta Jung-Ló virðingu sína. Jafnframt komu skip Sjeng-Hós með allskonar skemmtileg leikföng úr útlöndum handa keisaranum að skoða og dugir að nefna bæði ljón og gíraffa. En svo dó Jung-Ló árið 1424 og bless- unarlega fyrir Evrópumenn að minnsta kosti skorti arftaka hans allt í senn: metnað, dug og áhuga til að halda siglingunum áfram. Síðasta sigl- ing Sjeng-Hós var farin 1433 en síðan var kínverska flotanum blátt áfram lagt og hann fúnaði í höfninni í Nank- ing. Öll sú þekking og reynsla sem kínverskir sjómenn höfðu aflað fór fyrir lítið og orka ríkisins var öll lögð í að verjast Mongólum sem aftur voru famir að færa sig uppá skaftið á norð- urlandamærunum; þá var tjaslað svo rækilega uppá foma vamargarða að úr varð það eina mannvirkið sem sést ut- an úr geimnum og heitir Kínamúr. Verslun við útlönd var bönnuð og varla nokkur Kínverji meig í saltan sjó öldum saman nema smyglarar og bóf- ar. En ef menn gefa sér nú þær for- sendur að Kínveijar hefðu ekki verið alveg svo einrænir sem raun ber vitni, og ævintýragimi Jung-Lós og Sjeng- Hós hefði verið ívið ríkari þáttur í fari eftirmanna þeirra, og þeir hefðu verið þó ekki væri nema hálfdrættingar á

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.