Alþýðublaðið - 22.05.1996, Síða 4

Alþýðublaðið - 22.05.1996, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ k MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 3 Ó I í t í ■ Sighvatur Björgvinsson alþingismaður Alþýðuflokksins á Vestfjörðum skrifar um kosningarnarfyrir vestan og mismunandi túlkun manna á úrslitunum JT Kosið í Kosningaúrslitin í hinu nýja, sameinaða sveitarfélagi á norð- anverðum Vestfjörðum hafa að vonum vakið mikla athygli. E-listi framhaldsskólanema vann mikinn kosningasigur. Margir hafa lagt hönd á plóg við túlkun úrslitanna og sýnist sitt hveijum. Umfjöllunin hefur þó einkennst um of á þekk- Isafjarðarbæ \ A + Unga fólkið á Funk-listanum er ótvíræður sigurvegari kosninganna. Látið hefur verið í veðri vaka, að um hreint grínframboð hafi verið að ræða. Það er ekki rétt. ingarbresti á aðstæðum. Fáir hafa til dæmis gert sér grein fyrir því, hve miklar breytingar hafa orðið á kjörskrá í sveitarfélaginu á að- eins tveimur árum, sem liðið hafa frá því reglulegar sveitarstjómarkosning- ar fóra fram í þeim sveitarfélögum, sem nú mynda eitt sameinað sveitarfé- lag. fbúaskipti eru með ólíkindum mikil og hröð á þessu svæði. Sá tími er liðinn þegar meginkjami kjósenda á kjörskrá á norðanverðum Vestfjörðum er sá sami frá kosningum til kosninga. Búsetuflutningar að og frá svæðinu era orðnir mjög miklir og margir sem flytja inn á svæðið, hafa þar aðeins stuttan stanz. Hartnær 30 prósent kjós- enda á kjörskrá í ísafjarðarkaupstað núna voru þar ekki á kjörskrá fyrir að- eins tveimur árum; eru ýmist nýir, ungir kjósendur eða aðflutt fólk, sem komið hefur í stað brottfluttra. Þá hafa miklar hreyfingar verið á búsetu bæði á Súgandafirði og á Flateyri þannig að samanburður á úrslitum kosninga á milli er mjög vandmeðfarin, ekki síst ef horft er nokkur ár aftur í túnann. Alþýðuflokkurinn Kosningaúrslitin hafa verið túlkuð sem áfall fyrir Alþýðuflokkinn sér í lagi af þeim, sem lítið þekkja til. Þeirri túlkun er ég ekki sammála. ísafjarðarkaupstaður er og hefur verið höfuðvígi Alþýðuflokksins á norðanverðum Vestfjörðum. Gengi hans í sveitarstjómarkosningum hefur þó á síðari árum sveiflast frá því að eiga minnst einn bæjarfulltrúa af níu í mest þtjá. í síðustu bæjarstjómarkosn- ingunum 1994 fékk flokkurinn rúm 18 prósent atkvæða á ísafirði og tvo fulltrúa kjöma. í hinum sveitarfélögunum, sveita- hreppunum og kauptúnunum vestan heiða, sem nú mynda sameiginlegt sveitarfélag með Isafjarðarkaupstað, hefur fylgi flokksins verið hlutfalls- lega mun minna en á ísafirði og í engu þeirra bauð flokkurinn fram flokks- lista í sveitarstjórnarkosningunum 1993. Sterkast er fylgi flokksins á Flateyri, minna á Súgandafirði og á Þingeyri og næsta lítið í sveitahrepp- unum. Menn máttu því eiga von á minna fylgi hlutfallslega í hinu sam- einaða sveitarfélagi en flokkurinn fékk á ísafirði einum. Niðurstaðan í kosningunum var 13,5 prósent kjör- fylgi, sem er minna en hefði getað náðst við bestu aðstæður, en ekki áfall. Flokkinn skorti 35 atkvæði til þess að fá tvo menn kjöma og aðeins 18 atkvæði frá Sjálfstæðisflokknum til þess að fella firnmta mann hans. Svo mjótt var á mununum. Vikublaðið BB gerði reglulegar skoðanakannanir um fylgi framboða vikurnar fyrir kosningar. Síðasta könnunin var birt aðeins fjórum dög- um fyrir kjördag. Skoðanakannanimar mældu fylgi A-listans á bilinu 4,5 til innan við 7 prósent og að hann næði ekki kjömum fulltrúa. Úrslitin urðu þau, að flokkinn skorti 18-35 atkvæði til þess að fá tvo menn kjöma. Efsti maður á lista Alþýðubandalags, Kvennalista og óháðra, Smári Har- aldsson, sagði í viðtali við Vikublaðið, málgagn Alþýðubandalagsins, að ár- angur Alþýðuflokksins hafi komið sér mest á óvart. Kosningaúrslitin urðu Alþýðu- flokknum vonbrigði en ekki áfall. Hann tapaði eins og allir „gömlu flokkamir", en fékk þó mun betri út- komu, en flokknum hafði verið spáð. Sjálfstæðisflokkurinn I bæjarstjómarkosningunum fyrir tveimur árum hlaut Sjálfstæðisflokk- urinn 44 prósent atkvæða á ísafirði og hreinan meirihluta í hreppsnefnd Hat- eyrarhrepps. Þá á flokkurinn veraleg ítök bæði á Suðureyri, Þingeyri og sveitahreppunum þó Framsóknar- flokkurinn hafi þar haft sterkari stöðu. Flokkurinn barðist fyrir hreinum meirihluta í hinu nýja sveitarfélagi og fyrstu skoðanakannanir bentu til þess að svo myndi fara. Niðurstaðan var sú, að flokkurinn hreppti 37,5 prósent kjörfylgi og munaði ekki miklu, að flokkurinn fengi ekki haldið 5 bæjar- fulltrúum. Þó Sjálfstæðismenn hafi „sloppið með skrekkinn" urðu þeir fyrir mestu atkvæðatapi „gömlu flokk- anna“. Framsóknarflokkurinn Framsóknarflokkurinn hefur átt talsvert fylgi á ísafirði en hans sterk- ustu vígi hafa verið í þorpum og sveitahreppum vestan heiða. Fylgis- menn hans áttu því von á að geta bætt verulega sinn hlut í kosningum í sam- einuðu sveitarfélagi og töldu sig eiga tvo fulltrúa vísa. Skoðanakannanir BB bentu þó til þess, að flokkurinn ætti í erfiðleikum, en ávallt mældist þó fylgi hans mun meira en fylgi Alþýðu-. flokksins. Niðurstaðan varð hins vegar sú, að B-listinn fékk fæst atkvæði allra framboðslista, einn mann kjörinn, og lægra hlutfall atkvæða en í Isafjarðar- kaupstað einum tveimur áram áður. Alþýðubandalagið, Kvennalisti og óháðir Alþýðubandalagið og Kvennalisti fengu hvor um sig einn bæjarfulltrúa í bæjarstjómarkosningum á fsafirði árið 1994. Óháðir frambjóðendur, sem gengu til liðs við Alþýðubandalag og Kvennalista um framboð F-lista í hinu sameinaða sveitarfélagi, áttu aðild að sveitarstjómum í þorpum og minni sveitarfélögum vestan heiða. Aðstand- endur framboðslistans gerðu sér vonir um að geta náð fjórum fulltrúum kjömum og skoðanakannanir BB stað- festu það. Úrslitin urðu hins vegar þau, að listinn fékk rúm 18 prósent at- kvæða og tvo fulltrúa kjöma og langur vegur frá því að þriðji maður næði kjöri. Árið 1993 fengu Alþýðubanda- lag og Kvennalisti samtals 24 prósent atkvæða á ísafirði einum. Funk-listinn Unga fólkið á Funk-listanum er ótvíræður sigurvegari kosninganna. Látið hefur verið í veðri vaka, að um hreint grínframboð hafi verið að ræða. Það er ekki rétt. Unga fólkið var til dæmis ekki sátt við afstöðu ráðandi afla, ekki síst forystu Sjálfstæðis- manna í bæjarstjóm, í menntamálum og þá sérstaklega til Framhaldsskóla Vestfjarða, FVÍ. Sá málflutningur, sem unga fólkið hélt á loft í mennta- málum, var í fyllstu alvöra. Einnig hefur þetta unga fólk allt önnur við- horf til ýmissa viðfangsefna, svo sem í Evrópumálunum og í atvinnumálum, en eldri kynslóðin. Það finnur sig ekki í hefðbundinni, gamaldags flokka- skiptingu í vinstri og hægri, félags- hyggju og frjálshyggju. Er áhugi á Evrópusamskiptum hægri eða vinstri pólitík? Er einlægur vilji til þess að standa vörð um menntastofnun sína og vilja veg hennar sem mestan fé- lagshyggja eða frjálshyggja? Þessi gömlu, pólitísku landamæri era ekki viðurkennd af ungu kynslóðinni. Hún hugsar öðra vísi. Þá er unga fólkinu legið á hálsi fyrir reynsluleysi í félags- málum og stjórnmálum. Einnig það er ofsagt. Unga fólkið fylgist vel með og mótar sér sjálfstæðar skoðanir. Margt þeirra hefur tekið afstöðu í hefð- bundnum stjómmálum og látið þar til sín taka. Efsti maður listans skipaði sér til dæmis í raðir okkar jafnaðar- manna í síðustu þingkosningum og var bæði fylginn sér og ötull. Annað ungt fólk á framboðslistanum hefur lýst stuðningi við aðrar stjórnmála- stefnur og mótað afstöðu sína á eigin forsendum. Það er hins vegar liðin tíð að hægt sé að ganga að fylgi þess sem vísu. Unga fólkið tekur afstöðu eftir atvikum hverju sinni einmitt vegna þess, að það fylgist vel með, hefur sjálfstæðar skoðanir og fylgir þeim. Meirihlutamyndun Áhugi var á því fyrir kosningar að bjóða fram sameiginlega af hálfu „vinstri flokkanna" í þeirri von, að slíkt framboð næði hreinum meiri- hluta. Sú tilraun tókst ekki. Eftir kosn- ingar var rætt um hvort grandvöllur væri fyrir meirihlutamyndun „félags- hyggjuaflanna". Sá grundvöllur fannst ekki. Einfaldlega vegna þess, að „fé- lagshyggjuöflin" svokölluðu náðu ekki því fylgi í kosningunum að dygði til. Únga fólkið á Funk-listanum er hvorki „félagshyggjuafl" né „vinstri flokkur", heldur gengur þvert á allan slíkan dilkadrátt. Niðurstaðan var samstarf Sjálfstæð- isflokks og Alþýðuflokks, í fýrsta sinn í sögu ísafjarðar. Og enn kom unga fólkið á Funk- listanum á óvart. Odd- viti listans lýsti því yfir, að sú niður- staða væri harla góð. „Sú sterkasta, sem verið gat“. Vonandi tekst gott samstarf milli hins nýja meirihluta og unga fólksins í bæjarstjóm ísafjarðar. Það hefur ýmis- legt gott til málanna að leggja auk þess sem það hleypir örugglega lífi og léttleika í bæjarmálavafstrið. Það þarf nefnilega líka að vera gaman í pólitík- inni. Nóg er alvara lífsins. ■ Aðeins 950 Alþýðublaðið krónur á mánuði Hringdu eða sendu okkur línu eða símbréf Ég óska eftir að gerast áskrifandi að Alþýðublaðinu Nafn Heimilisfang_______________________________________ Bæjarféjag Kennitala Ég_ óska efti r að greiða með grejðslukorti _n_úmer: gíróseðli Gildir til:

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.