Alþýðublaðið - 29.05.1996, Side 4

Alþýðublaðið - 29.05.1996, Side 4
vag»yr 'AGU'1 28. MAI '936 r ALÞÝÐUBLAÐIÐ _____________________ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 ó I i t í k Yfirstandandi þing, sem nú fer senn að Ijúka, þótti með eindæmum dauflegt framan af en hasarinn lét ekki standa á sér undir lokin eins og heyra má á þeim þingmönnum sem Alþýðublaðid tók á púlsinn í gær Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Þjóðvaka Nefndarvinna hvílt á stjórn- arandstöð- unni Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir segir þingið hafa einkennst af því hver ríkisstjómin hefur stóran meirihluta á Alþingi. „Margir stjórnarþingmenn hafa ekki séð ástæðu til að sinna nefndavinnunni og oft hefur hún mætt á okkur stjómarandstöðunni og örfá- um stjómarliðum. Nú í lok þingsins mæta þessir stjómarliðar aftur á móti vel, þegar málin em keyrð úr nefndum oft í andstöðu minnihlutans. Ég kann illa við svona vinnubrögð." Það sem uppúr stendur í huga Ástu Ragnheiðar er ánægjulegt og gott samstarf í hennar litla þingflokki og mikil vinna. Og hún nefnir einnig nokkur merkileg mál sem verið hafa til umræðu á þinginu. „Til dæmis lög um tæknifijóvgun og lög um staðfesta sambúð. Aftur á móti hafa einnig ver- ið verulega ómerkileg má) á ferðinni, þar sem er árás ríkisstjórnarinnar á réttindi launafólks. Verst finnst mér hve niðurskurðurinn við fjárlagagerð- ina í vetur bitnaði illa á þeim sem síst skyldi Ásta telur þingstörfin í heild hafa verið sér persónulega mikilsverða reynslu. Kristinn H. Gunnars- son, Alþýðubandalagi Stjórnarand- staða á rass- inum Kristinn H. Gunnarsson Alþýðu- bandalagi segir þingið að mestu hafa verið með hefðbundnu sniði. „Við höfum verið að fást við frumvörp frá ríkisstjórninni sem hafa fjallað um svipuðu efni og á undangengnum ár- um svo sem skattalagabreytingar og fjárlög. Svo eru auðvitað einstök mál eins og frumvarpið um fjármagns- tekjuskatt, frumvörpin um stéttarfé- lögin og vinnudeilur og um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Þetta eru þau mál sem ber hæst og víkja helst frá þessari hefðbundnu færibanda- vinnu hér, segir Kristinn en hann er ekki að öllu leyti ánægður með frammistöðu félaga sinna í stjórnar- andstöðunni. „Frumvörp um þjónustusamninga ríkisins er nýtt mál sem fjallar um möguleikann á að fela öðrum að ann- ast málefni ríkisins en ríkinu sjálfu og stofnunum þess. Þá er hægt að semja við einhvem aðila um að sjá um að reka þennan spítala svo dæmi sé tekið eða annast einhveija tiltekna þjónustu hjá ríkinu. Þetta svipar til breytinga hjá sveitarfélögum sem fóru að bjóða út verkefni. Ríkisstjómin er greinilega farin að glíma við hallarekstur ríkis- sjóðs með því að endurskilgreina hlut- verk ríkisins og eðli þess. Þetta hófst reyndar í tíð síðustu ríkisstjómar. Mér hefur fundist vinstrimennirnir legið heldur eftir í þessari umræðu og ekki haft nein svör við þessari að sumu leyti óljósu stefnumörkun og ekki heldur neina klára afstöðu. Menn hafa flúið í það skjól að vera bara á móti öllu og vísa þeim ffá sem einhveijum vondum málum,“ segir Kristinn og jánkar því að þarna sé um fremur þumbaralega afstöðu að ræða. „Stjómarandstaðan kemst ekki hjá því að marka sér einhverja pólitíska afstöðu gagnvart þessu. Við höfum verið einu skrefi á eftir stjómarflokk- unum í pólitískri umræðu og þá aðal- lega Sjálfstæðisflokknum sem er prímusmótor í þessum breytingum.“ Kristinn segir þetta tengjast einkavæð- ingu, að breyta ríkisfyrirtækjum í hlutafélög og þeirri hugsun að fela einkaaðilum að vinna verkið. „Það er þó einhver stefha sem þeir hafa en við höfum setið eftir. Við höf- um engin skýr svör og þar með fá kjósendur engin svör. Því töpum við fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn vinnur fylgi. Við ættum að nota sumarið til að fara í pólitíska umræðu um ríkið og velferðarkerfið. Okkur hefur að mörgu leyti mistekist málatilbúnaðurinn í vetur." Kristinn segir að helst hafi örlað fyrir einhverri stefnumörkun hjá Al- þýðuflokknum og þá þegar Jón Bald- vin var frískur eins og hann orðar það. „En að öðru leyti hefur mér fundist hinir flokkamir setið á rassinum með- an Sjálfstæðismenn hafa klárlega pól- itískt frumkvæöi." Það sem fyrst kom upp í huga Kristins þegar hann var inntur eftir minnisstæðasta atvikinu voru deilur og orðaskipti Össurar Skarphéðins- sonar og Árna Johnsen þar sem Össur sneiddi illilega að Ama úr ræðustóli og sagðist geta heyrt þann síðamefnda hrista hausinn. „I fyrsta lagi er þetta ekki nýtt heldur var áður notað í þing- inu fyrir 20 ámm. Þá sagði Ólafur Jó- hannesson þetta um Sighvat Björg- vinsson í febrúar 1976 í fýrstu beinu sjónvarpssendingunni frá Alþingi. Þá verið að ræða Geirfinnsmáhð. Reynd- ar var það ekki frumsamið hjá Olafi heitnum heldur úr Breska þinginu. Mér mislíkaði við minn ágæta vin og félaga Össur af því að mér finnst að þingmenn eigi ekki að vega hver að öðmm með þessum hætti. Að gera lít- ið úr persónunni. Menn eiga að deila á grundvelli málefna en ekki persónu. Mér fannst þetta ljóður á ráði á míns annars ágæta félaga að detta ofan í þennan pytt.“ Ágúst Einarsson, Þjóðvaka Lágkúruleg afgreiðsla bú- vörusamn- ingsins „Störf þingsins í vetur hafa verið í hefðbundnum farvegi og einkennst af miklum meirihluta ríkisstjómarflokk- anna. Það er þó merkilegt að störf þingsins hafa ekki breyst þrátt fyrir mikinn fjölda nýrra þingmanna. Það sem að öðm leyti er markverðast við þingið er hin góða samvinna stjómar- andstöðuflokkanna í hverju málinu á fætur öðm,“ segir Þjóðvakaþingmað- urinn Ágúst Einarsson almennt um þingið í vetur. Hann segir vináttuna og skemmtilega vinnu í þingflokki Þjóð- vaka standa uppúr hvað sig snerti." Þegar Ágúst er spurður um merki- legustu málin nefnir hann þrjú. „Veiðileyfagjald sem var komið inn í þingið með þingsályktunartillögu Þjóðvaka og margir þingmenn tóku undir. I öðm lagi er merkileg hin lák- úmlega afgreiðsla á búvömsamningn- um á haustmánuðum. Það var neyt- endum mjög til tjóns. Þá hefur ekkert markvert gerst í menntamálum á þessu þingi þrátt fyrir miklar yfirlýs- ingar allra flokka í síðustu kosninga- baráttu." Það sem hefur farið miður að mati Ágústs er fyrst og ffemst stefha ríkis- stjómar í vinnumarkaðsmálum. „Þetta er óbilgjöm stefna og sýnir grímulaust hina raunvemlegu hagsmuni sem rík- isstjómin er að beijast fyrir. Það kem- ur einnig fram í þeirri atlögu að vel- ferðar og heilbrigðismálum sem sást vel í afgreiðslu fjárlaga síðastliðið haust.“ Ögmundur Jónasson, Alþýðubandalagi og óháðum Samþjöppun á valdi og peningum „Fyrir réttu ári lýsti ríkisstjómin því yfir að hún ætlaði að sjá til þess að ís- lenska þjóðin gengi stolt og hnarreist inm 21. öldina. Þar ætlaði ríkisstjómin að vera í fararbroddi. Það er ljóst að frá því að þessar yfirlýsingar voru gefnar er ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ekki líkleg til að veita slíka forystu," segir Ögmundur Jónasson sérdeilis ekki ánægður með gang mála á sínu fyrsta þingi. „Ríkisstjóminni hefur tekist," held- ur Ögmundur áfram, „á þeim stutta tíma sem liðinn er af stjómarsetunni, að koma öllu í bál og brand á vinnu- markaði. Með ffumvörpum hefur hún Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir: Verst finnst mér hve niður- skurðurinn við fjárlagagerð- ina í vetur bitnaði illa á þeim sem síst skyldi. Kristinn H. Gunnarsson: Við höfum engin skýr svör og þar með fá kjósendur engin svör. Því töpum við fylgi en Sjálf- stæðisflokkurinn vinnur fylgi. Ágúst Einarsson: Þá hef ur ekkert markvert gerst í menntamálum á þessu þingi þrátt fyrir miklar yfirlýsingar allra flokka í síðustu kosn- ingabaráttu. Ögmundur Jónasson: Búið er í haginn fyrir frekari sam- þjöppun á valdi og fjármagni og er ekki á bætandi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.