Alþýðublaðið - 29.05.1996, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 29.05.1996, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1996 ALÞYÐUBLAÐIÐ ó I i t í k MlÐV'KUfgAG 'u> r einhliða skert réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna sem og sett marg- vísleg höft á réttindabaráttu verkalýðs- hreyfingarinnar. Þá em á vinnsluborði ríkisstjórnarinnar ýmis skerðingar- frumvörp. Til dæmis býður nú síðusm daga þingsins frumvarp sem gengur undir vinnuheitinu fjármagnstekju- skattsfrumvarpið en er í raun frum- varp sem er ætlað að stórlækka skatta á hlutabréfaeigendum og stóreigna- fólki á íslandi. Þá er hér á vinnslu- borðinu frumvarp um að einkavæða Póst og síma. Mér virðist allt vera á sömu bókina lært. Skerðing á skerð- ingu ofan og á allan hátt reynt að bregða fæti fyrir þá vilja heyja hér lýðræðislega réttindabaráttu. Hafta- og skerðingarfrumvörpin gera ráð fyrir mikilli eignatilfærslu í gegnum skatta- kerfið. Búið er í haginn fyrir frekari samþjöppun á valdi og fjármagni og er ekki á bætandi.“ Ögmundi sýnist ljóst að fyrirheitin sem gefin voru í kosningabaráttunni séu orðin tóm. „Eitt það fyrsta sem þeir lýstu yfir var að gera ætti breyt- ingar á jaðarsköttum sem koma ættu til framkvæmda á árinu 1997. Það er sýnt að hún er með einhliða hroka og valdboði búin að skapa þann jarðveg að það verður mjög erfitt að ná fram einhveijum kjarasamningum." Merkilegar voru röksemdir stjómar- liða við stéttarfélagsfrumvörpin að mati Ögmundar. „Þeir voru að telja upp hve margir fundir höfðu verið haldnir og hve margar klukkustundir hafði verið talað en allt innihald skipti minna máli. Það finnst mér ekki gott. Þeir sem ekki taka gagnaðila sína al- varlega og rök þeirra þeir taka ekki heldur stjómarskránna alvarlega." Árni M. Mathiesen, Sjálfstæðisflokki r Oskemmtileg útganga stjórnarand- stöðunnar Ámi sagði þingið hafa gengið mjög vel fyrir sig þó aðeins hefði borið á smá óróleika og málþófi í lokin og vildi hann þar kenna stjómarandstöð- unni um. „Það atvik sem stendur upp úr er útganga stjórnarandstöðunnar til að reyna með brögðum að koma í veg fyrir að frumvarpið um stéttarfélög og vinnudeilur kæmi til annarrar umræðu og nefndar. Þetta vom ekki skemmti- leg vinnubrögð og ég vona að ég eigi ekki eftir að sjá þau oftar í þinginu. Það em þijú mál sem ég tel vera merkustu málin. Það er málefni Pósts og síma, frumvarp um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og frumvaipið um stéttarfélög og vinnu- deilur. Eg held að þessi frumvörp eigi eftir að hafa verulega jákvæð áhrif þegar til lengri tíma er litið.“ Kristín Ástgeirsdóttir, Kvennalista Yfirgangur stjórnarflokk- anna „Þingið fór rólega af stað en svo sauð upp úr fyrir jólin og eftir áramót hefur verið hiti í kolunum. Þarna standa upp úr þær miklu deilur sem hafa verið um frumvörpin um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og stéttarfélög og vinnudeilur. Fmmvörp- in voru árás á réttindi launafólks í landinu," segir Kristín. „En svo fara auðvitað hér í gegn mál sem allir em sammála um og það hafa verið mjög gagnlegar umræður um heilbrigðismál og fíkniefnavanda, svo ég nefni það sem kemur fyrst upp í hugann." Kristín segir ekkert eitt atvlk vera öðru minnisstæðara á þinginu. Hún gerði þó að umtalsefni að stjómarand- staðan hefði klofnað í afstöðu sinni til fjármagnstekjuskattsins og sagði þann klofning merkilegan miðað við þá miklu samstöðu sem verið hafi í stjómarandstöðunni Kristín sagði erfitt að nefna merk- asta mál þingsins. „Ætli ég nefni ekki ffumvarpið um ljárreiður ríkisins, sem ég held að muni breyta töluvert miklu í ffamtíðinni. Það sama má segja um staðfesta samvist sem er merkt mann- réttindamál." Þegar Kristín var spurð hvað henni þætti hafa farið miður í störfum þings- ins svaraði hún: „Það er yfirgangur í stjórnarflokkunum sem hafa keyrt í gegn mjög stór mál sem að öllu jöfnu ættu að fá tveggja þinga umfjöllun. Þá er ég til dæmis að tala um vinnustaða- frumvörpin og málefni Pósts og síma. Mér finnst það mjög miður að menn skuli beita valdi sínu með þessum hætti.“ Bryndís Hlöðversdótt- ir, Alþýðubandalagi - Stjórnarliði rifínn upp að kvölditil „Eftir áramót var þingið óneitanlega miklu fjörugra en þirigið í haust sem var laust við pólitíska umræðu. Þetta hefur breyst eftir áramót og kemur ekki til af góðu því þá voru lögð ffam hin svokölluðu skerðingarfrumvörp. Það var mjög miður hvemig staðið var að meðferð þeirra mála og af- greiðslu,“ sagði Bryndís. Eftirminni- legasta atvikið á þingi sagði hún snerta umræðuna um tæknifijóvgun. „Eg var á leið í ræðustól og ffamsögu- maður meirihlutans, Valgerður Sverr- isdóttir, neitaði að vera á staðnum til að veija álit neíridarinnar. Það endaði með því að við, þessar örfáu hræður sem vom í salnum til að tala fyrir af- námi nafnleyndar við frumugjöf, lét- um kalla á hana. Hún var rifin upp að kvöldi til, látin mæta hér og hlusta á umræðurnar, sem henni líkaði ekki mjög vel. Það þykir mér undarlegt því mér finnst sjálfsagt að þingmenn sem mæli fyrir máli mæti líka til að veija það.“ Bryndís sagði þau mál sem stæðu upp úr í huganum vera vinnumarkaðs- frumvörpin ásamt fjármagnstekju- skattinum. „En það sem mér hefur þótt dapurlegast að horfa upp á er af- greiðsla frumvarpa um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og stéttarfélög og vinnudeilur. Þau eiga eftir að hafa mjög afdrifaríkar afleið- ingar. Ætíð hefur verið haft i heiðri ákveðið samráð við samtök launa- fólks, en nú velur ríkisstjórnin að keyra yfir vilja þessara samtaka. Það þykir mér mjög miður og mér fmnst dapurlegt að horfa upp þær aðferðir ríkisstjómarinnar og stjómarliðanna, hvem á fætur öðrum, tilbúna að greiða þessum ffumvörpum atkvæði.“ Lúðvík Bergvinsson, Alþýðuflokki ÞegarJón Baldvin fór undir feld „Stjómin hefur verið sein ffam með sín mál sem gerir það að verkum að tíminn hefur ekki nýst vel,“ sagði Lúðvík þegar hann var spurður álits á störfum þingsins. Hann segir að það atvik sem honum þyki standa upp úr sé þegar Jón Bald- vin lagðist undir feld og íhugaði hvort hann ætti að gefa kost á sér í embætti forseta Islands. Þégar Lúðvík var spurður hvað honum þætti merkasta málið á dagskrá þingsins svaraði hann: „Það hlýtur að teljast mjög merkilegt að feta í sömu slóð og áður í landbúnaðarmálum. Þarna á ég við búvörusamninginn sem samþykktur var hér fyrir áramót, þrátt fýrir að all- flestir geri sér grein fyrir að sú stefna sem þar er fýlgt sé vita vonlaus." Árni M. Mathiesen: Það atvik sem stendur upp úr er út- ganga stjórnarandstöðunnar til að reyna með brögðum að koma í veg fyrir að frumvarp- ið um stéttarfélög og vinnu- deilur kæmi til annarrar um- ræðu og nefndar. Kristín Ástgeirsdóttir: Yf irgang- ur í stjórnarflokkunum sem hafa keyrt í gegn mjög stór mál sem að öllu jöfnu ættu að fá tveggja þinga umfjöll- un. Þá er ég til dæmis að tala um vinnustaðafrumvörpin og málefni Pósts og síma. Bryndís Hlöðversdóttir: Það sem mér hefur þótt dapur- legast að horfa upp á er afgreiðsla frumvarpa um rétt- indi og skyldur opinberra starfsmanna og stéttarfélög og vinnudeilur. Lúðvík Bergvinsson: Stjórnin hefur verið sein fram með sín mál sem gerir það að verkum að tíminn hefur ekki nýst vel =5.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.