Alþýðublaðið - 29.05.1996, Side 8
* *
\WRE 'ifíLL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Miðvikudagur 29. maí 1996
MMÐUBLMD
77. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Jón Steinar
framboðs
Telur
Gunnlaugsson víkur úr sæti sem formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík vegna
Ólafs Ragnars Grímssonar
kosningu Olafs hneisu fyrir þjóðina
Segir framgöngu hans óforsvaranlega í Hafskipsmálinu, máli MagnúsarThoroddsen og skattamáli Þýsk-íslenska. Fullyrðir
að Ólafur hafi logið að dómara um trúarskoðanir sínar.
■ AB til gjaldþrotaskipta
Vaka-Helgafell kaupir
bókaklúbba AB
Útgáfufyrirtækið
Vaka-Helg'afell hefur
keypt alla bókaklúbba
Almenna bókafélagsins
af þrotabúi félagsins. Þar
er um að ræða Bóka-
klúbb AB, Tónlistar-
klúbb AB, Matreiðslu-
kiúbb AB og Söguklúbb-
inn. Þá festi Vaka-Helga-
fell ennfremur kaup á
firmanafni AB.
Forráðamenn AB
hyggjast taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfið
er reksturinn stöðvaðist,
að minnsta kosti varð-
andi Bókaklúbb AB, sem
er elsti bókaklúbbur
landsins og hefur starfað
í 22 ár.
Vaka-Helgafell, sem í ár heldur uppá
15 ára afmæli sitt, hefur um árabil sér-
hæft sig í rekstri bóka- og áskriftar-
klúbba af ýmsu tagi. I tilkynningu frá
forlaginu segir að áhersla sé lögð á að
þjóna klúbbfélögum sem allra best, og
að sama máli muni gegna um Bóka-
klúbb AB. Kannanir verði
reglulega gerðar meðal
klúbbfélaga til þess að
bókaval verði í sem
mestu samræmi við óskir
þeirra.
Almenna bókafélagið
var tekið til gjaldþrota-
skipta fyrir skömmu, en í
tilkynningu frá Vöku-
Helgafelli er tekið fram
að málefni og skuldbind-
ingar þess félags sem rak
klúbbana séu Vöku-
Helgafelli óviðkomandi.
Almenna bókafélagið
var stofnað árið 1955,
einkum til að skapa mót-
vægí við Mál og menn-
ingu, sem þá var stjómað
af sósíalistum. Margir af
kunnustu rithöfundum og stjómmála-
mönnum landsins á síðustu áratugum
störfuðu fyrir AB eða sátu í stjóm fé-
lagsins. Fyrir nokkrum árum keypti
Friðrik Friðriksson AB, en saga félags-
ins er senn öll.
Friðrik Friðriksson. Fyrir-
tæki hans er nú til gjald-
þrotaskipta og Vaka-
Helgafell hefur keypt
bæði firmanafn og bóka-
klúbbana af þrotabúinu.
■ Götulífið
Dularfullt gangstéttarskáld
gengur laust
Vegfarendur sem eiga leið um
Hafnarstrætið hafa veitt athygli sér-
kennilegu og frumlegu gangstéttar-
kroti eða graffitíi eins og það kallast
útí hinum stóra heimi. Oþekkt skáld
hefur tekið saman sérkennilegar
dæmisögur og þá hefur þeim verið
þrykkt á gangstéttarhellur við stræt-
óstoppustöðina á homi Hafnarstrætis
og Lækjargötu.
Þorsteinn Halldórsson verslunar-
stjóri söluturnsins I leiðinni, sem
stendur við þessar dæmalausu gang-
stéttarhellur, hefur ekki grænan grun
um hver stendur að baki gemingnum.
,JÉg veit ekkert. Þetta var komið einn
morguninn fyrir um viku,“ segir Þor-
steinn en hann fór klukkan 23.00
kvöldið áður. Listamaðurinn hefur því
athafnað sig í skjóli myrkurs. „Þetta
vekur mikla athygli," segir Þorsteinn
við blaðamann Alþýðublaðsins meðan
hann afgreiðir pylsu með öllu nema
remólaði fyrir svangan sjoppugest.
„Fólk staldrar við og les textann. Það
er greinilega vandað til verksins því
þrátt fyrir rigningu og átroðning þá
endist þetta.“
Jón Steinar Gunnlaugsson formaður
yfirkjörstjórnar í Reykjavík hefur
ákveðið að víkja úr sæti vegna forseta-
framboðs Ólafs Ragnars Grímssonar.
Jón Steinar sendi í gær frá sér þriggja
síðna greinargerð vegna málsins, og
kveðst á undanfömum ámm hafa svo
oft fjallað opinberlega og fyrir dómi
„um ávirðingar Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forsetaframbjóðanda í opinber-
um störfum hans, að honum væri
óréttur gerður ef hann þyrfti að una
því að ég starfaði í yfirkjörstjórn
Reykjavíkur í forsetakosningum þeim
sem í hönd fara.“
Jón Steinar rekur afskipti Ólafs
Ragnars af Hafskipsmálinu, máli
Magnúsar Thoroddsen fyrmm forseta
Hæstaréttar og skattamálum Þýsk-ís-
lenska. Jón Steinar kveður framgöngu
Ólafs í þessum málum siðlausa og á
köflum löglausa.
Hann segir að Ólafur Ragnar hafi
farið „hamförum" í Hafskipsmálinu,
og í skjóli þinghelgi sakað forsvars-
menn fyrirtækisins um að hafa svikið
fé út úr Útvegsbankanum í gegnum
Hafskip í þágu sjálfra sín. Um þetta
segir Jón Steinar orðrétt: „Hef ég ekki
í annan tíma kynnst annarri eins fram-
göngu alþingismanns, þar sem úr
ræðustóli á Alþingi var veist að vam-
arlausum einstaklingum utan þings,
með ósönnum áburði um glæpsamlegt
athæfi.
Jón Steinar segir að það hafi komið
í sinn hlut að fjalla um fyrir dómi
framkomu Ólafs Ragnars, sem þá var
fjármálaráðherra, fyrst eftir að mál
Magnúsar Thoroddsen þáverandi for-
seta Hæstaréttar kom upp. Lögmaður-
inn segir að Ólafur hafi komið fram í
fjölmiðlum dag eftir dag með fullyrð-
ingar um brot Magnúsar á reglum,
sem engar voru til. „Attu þessar röngu
staðhæfingar ráðherrans þá ríkan þátt í
Forsetaskipti
Grétar Þorsteinsson nýr forseti Alþýðusambands íslands tók í gær við
lyklavöldum á skrifstofu ASÍ af Benedikt Davíðssyni. Með þeim á mynd-
inni eru varaforsetar sambandsins, Hervar Gunnarsson og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir.
að kalla yfir skjólstæðing minn al-
menna fordæmingu sem miklu réð um
framhaldið. Þá segir Jón Steinar:
„Taldi ég þessa framkomu ekki
sæmandi fyrir embættið, sem Ólafur
gegndi. Þurfti ég að sjálfsögðu að
fjalla um þetta fyrir dómi. Þegar Ólaf-
ur kom fyrir dóm í málinu og bar vitni
ákvað ég að krefjast þess að hann
staðfesti framburð sinn með eiði eða
drengskaparheiti. Var hann þá af
dómsformanni samkvæmt fyrirmæl-
um laga inntur eftir því, hvort hann
tryði á guð. Synjaði hann fyrir það og
fékk því að staðfesta framburð sinn
með drengskaparheiti. Skal tekið
fram, að samkvæmt lögum fengu
menn því aðeins að „velja“ dreng-
skaparheit, að þeir væru ekki í viður-
kenndu trúfélagi eða lýstu því fyrir
dómara að þeir tryðu ekki á guð. Við
þetta væri ekkert að athuga, þar sem
Ólafi er að sjálfsögðu fijálst að hafa
þær trúarskoðanir sem hann kýs, ef
ekki væri nú komið í ljós opinberlega
af hálfu Ólafs, að hann hafi sagt dóm-
aranum ósatt um trúarskoðanir sínar.
Vísast í því efni til viðtals við hann í
Alþýðublaðinu 22. maí síðastliðinn.
Liggur því íyrir nú, að krafa mín um
að Ólafur staðfesti framburð sinn,
leiddi til þess að hann skýrði rangt frá
fyrir dómi um atriði sem hafði beina
þýðingu að lögum.“
Þá rifjar Jón Steinar upp afskipti
Ólafs Ragnars, sem fjánnálaráðherra,
„Ólafur Ragnar er fjarri því að uppfylla þau skilyrði sem ég tel sæma þessu
virðulegasta embætti þjóðarinnar," segir Jón Steinar Gunnlaugsson.
af máli Þýsk-íslenska. Hafi Ólafur lát-
ið loka fyrirtækinu fyrirvaralaust með
lögregluvaldi 19. júní 1989, þótt áður
hafi náðst samkomulag fyrirtækisins
við embætti tollstjóra um greiðslur á
söluskatti. Með dómi Hæstaréttar
1994 var ríkissjóður dæmdur til að
greiða skaðabætur vegna ólögmætrar
lokunar fyrirtækisins. Jón Steinar seg-
ir: „Við málflutninginn kom það í
minn hlut að fjalla um þessa stjóm-
sýslu ráðherrans, meðal annars með
því að gera samanburð við afgreiðslu
hans nokkrum mánuðum áður á sölu-
skattsskuld fyrirtækisins Svart á hvítu
hf„ þar sem fyrrverandi kosningastjóri
hans í Alþýðubandalaginu var við
stjómvölinn. Hafði hann heimilað því
fyrirtæki að greiða söluskatt og álag,
sem nam tugum milljóna króna, með
veðskuldabréfi til átta ára, þar sem
veðið var í þokkabót ónýtt. Reyndist
skuldabréfið þegar til átti að taka
einskis virði og tapaði ríkissjóður
kröfu sinni."
Jón Steinar segir að framkoma Ól-
afs Ragnars í þessum þremur málum
sé „óforsvaranleg“ og það nálgist
„hneisu fyrir þjóðina að kjósa hann í
embættið, þar sem störf hans á opin-
bemm vettvangi undanfarin ár sýni að
hann sé íjarri því að uppfylla þau skil-
yrði sem ég tel sæma þessu virðuleg-
asta embætti þjóðarinnar."
Dæmi: Vinkona mín er tengd
konu sem hún fór oft og
heimsótti á mótorhjóli sínu,
eitt skiptið er vinkona mín
var í heimsókn hjá þessari
konu, þá spurði hún vinkonu
mína hvort að það væri eitt-
hvað svipað að sitja á mótor-
hjóli og að sitja á þvottavél á
vindingu.