Alþýðublaðið - 05.06.1996, Side 2

Alþýðublaðið - 05.06.1996, Side 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5, JÚNÍ1996 MMHIBIMD 21121. tölublað Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566 Utgefandi Ritstjóri Auglýsingastjóri Umbrot Prentun Alprent Hrafn Jökulsson Ámundi Ámundason Gagarín hf. ísafoldarprentsmiðjan hf. Ritstjórn, augiýsingar og dreifing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Símboði auglýsinga 846 3332 Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk Neyð sem verður að bregðast við Fyrir tveimur vikum bað Rannveig Guðmundsdóttir alþingis- maður og fyrrum félagsmálaráðherra um umræðu utan dagskrár á Alþingi um málefni fatlaðra. Páll Pétursson félagsmálaráðherra taldi sig þurfa tíma til þess að skoða málið og því dróst úr hömlu að umræðan færi ffam. Það gerðist loks í gær - og þá var Páll Pétursson stokkinn úr landi, en Guðmundur Bjamason var til svara. Rannveig sagði af þessu tilefni á Alþingi í gær, að ekki væri hægt draga aðra ályktun en Páll hefði hlaupist frá óþægilegri umræðu. Nýverið var haft eítir aðstoðarmanni Páls Péturssonar í fréttum Ríkisútvarpsins að „neyðarástand" ríkti í málefnum fatlaðra. Jafnframt sagði hann orðrétt: „Það er mjög mikil þörf fyrir úrræði í málefnum fatlaðra og þeir fjármunir sem við fáum til þess að annast fatlaða, við verðum að velta hverri krónu tvisvar og við er- um að horfa uppá mikla neyð.“ Þetta voru vitaskuld ekki nýjar fréttir, en þótti óvenjulega tæpitungulaust af pólitískum embættis- manni. Það var þessvegna aumlegt þegar aðstoðarmaðurinn hélt því fram að ekki væri rétt eftir sér haft. Staðreyndin er sú, að neyð ríkir í málum fatlaðra og á næstunni mun enn syrta í álinn ef ekkert verður að gert. Rannveig Guð- mundsdóttir upplýsti á Alþingi í gær, að samkvæmt biðlista frá Svæðisskrifstofu Reykjaness í maí síðastliðnum eru nú 103 fatl- aðir einstaklingar á Reykjanesi á biðlista eftir búsetu, og þar af er 21 á neyðarlista. í Reykjavík eru 214 fatlaðir einstaklingar á biðl- istum eftir búsetu. Á sama tíma og biðlistamir lengjast stendur sambýli fatlaðra í Vallengi í Grafarvogi tilbúið - og autt, þarsem engin eru stöðugildin. í þessu sambandi minnti Rannveig líka á þá staðreynd, að aðeins 13 heimilismenn af Kópavogshæli hafa verið útskrifaðir á sambýli, þrátt fýrir samning um að 37 einstak- lingar eigi þegar að hafa fengið inni á sambýlum. Því miður er allt á sömu bókina lært í þessum efnum. Það vakti reiði ög hneysklun alþjóðar þegar yfirvöld ætluðu snemma árs að leysa upp heimilið að Bjargi á Seltjamamesi, og ráðstafa heimil- ismönnum einsog hreppsómögum. Aðför var gerð að meðferðar- heimili íyrir böm að Kleifarvegi, og fýrir skemmstu komst Ár- land í fréttir vegna þess að allar líkur vom á því að þessu heimili sex mikið fatlaðra bama yrði lokað í sumar. Aftur og aftur er þannig m'ðst á þeim sem síst skyldi, þeim sem alls ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér. Og í öllum tilvikum er um að tefla ijárhæðir sem em einsog krækiber í helvíti miðað við bmðl og sóun ann- arsstaðar í ríkiskerfmu. I máli Rannveigar við umræðumar í gær kom einnig fram, að vegna undirbúnings fjárlagagerðar næsta árs hafa verið gefin fyr- irmæli um að draga saman rekstur sem nemur fimm til tíu pró- sentum. Allir sem til þekkja em hinsvegar samdóma um, að kom- ið sé að leiðarenda í flötum niðurskurði, og að verði þessum áformum haldið til streitu þýði það lokun stofnana. Um þetta sagði Rannveig: „Það er ógnvekjandi ef skera á niður um fimm til tíu prósent við þessar aðstæður og ég kalla stjórnarliða til ábyrgðar og hvet þá til að forgangsraða, og setja málefni þeirra sem minna mega sín í öndvegi.“ ■ S vefngenglarnir í vetur var svo værðarleg stemmn- ing á Alþingi Islendinga að suma daga þurfti jafnvel að fella niður fundi vegna skorts á umræðuefnum. Þá var látið heita svo að þingmenn einbeittu sér að starfi í nefndum, til að afstýra opinberri umræðu um þá staðreynd að þingmenn höfðu einfaldlega ekkert um að tala. Einsog gengur | Síðastliðinn mánudag var 158. fundur vetrarins settur, klukkan tíu ár- degis. Á dagskrá voru 36 mál. Þing- mönnum var ætlað að taka afstöðu til og ræða þingsályktunartillögur og frumvörp um eftirfarandi: Vörugjald, virðisaukaskatt, fjáröflun til vegagerð- ar, gjald af áfengi, tóbaksvamir, stjóm fiskveiða, þróunarsjóð sjávarútvegs- ins, stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar, póstlög, fjarskipti, vegaáætlun, flugmálaáætl- un, lögreglulög, meðferð opinberra mála, staðfesta sambúð, lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, Innheimtustofn- un sveitarfélaga, reynslusveitarfélög, iðnaðarmálagjald, samninga við Fær- eyjar um fiskveiðimál, samninga um veiðar úr norsk- íslenska sfldarstofnin- um, almannatiyggingar, byggingarlög, stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna, ólöglegan innflutning fíkni- efna, græna ferðamennsku, menning- ar- og tómstundastarf fatlaðra, rann- sóknir í ferðaþjónustu, notkun stein- steypu til slitlagsgerðar, rannsóknir á launa- og starfskjömm landsmanna, merkingar þilfarsfiskiskipa, starfs- þjálfun í fyrirtækjum, trúnaðarsam- band fjölmiðlamanna og heimilda- manna, fiskveiðar utan lögsögu ís- lands... og svo voru líka á dagskrá nokkrar fyrirspumir til ráðherra. Þetta var semsagt dagskrá þing- fundar númer 158. En gamanið var ekki búið. Þingfundur 158 var nefni- lega aðeins fyrsti af þremur þennan mánudag. Blessaðir alþingismennirnir okkar voru að framundir morgun og bytjuðu svo aftur 10 árdegis. Hvernig er ástandið niðri í þing- húsi? Einhvemveginn svona, kannski: Svefngenglar ráfa um, rauðþrútnir til augnanna, delerandi af ofþreytu. Og setja þjóðinni lög. Og fleiri lög. Þeir settu okkur ellefu ný lög í fyrrinótt. Meðan þjóðin svaf settu þingmenn í svefnroftinum lög. Með leyfi að spyrja: Hverslags vinnulag er þetta? Þingmenn fá ijögurra mánaða sum- arfrí og heilan mánuð í jólafrí. Þing- fundir em ekki haldnir á fostudögum, nema þegar vinna þarf í akkorði af því allt er komið í steik. Afhveiju em þingmenn nú í hland- spreng að flýta sér í ijögurra mánaða sumarfríið sitt? Afhveiju vinna menn- imir bara ekki áfram og dunda við í rólegheitum að setja öll lögin sín? (Reyndar má spyrja hvort allt þetta lagafargan sé nauðsynlegt, en það er a t a I u n i efni í annað vers.) Á sínum tíma þótti nauðsynlegt að alþingismenn fengju ríflegt sumarfrí af því þeir þurftu að flýta sér heim í sauðburð, vorverk og heyskap. Hvað sitja margir bændur á Alþingi núna? Valgerður á Lómatjöm, Páll á Höllu- stöðum, Egill á SeíjavöUum - þrír af sextíu og þremur. Ondyegisfólk, auð- vitað, en mín vegna má gefaþeim ftí, jafnvel um óákveðinn tíma. En ég veit ekki til þess að aðrir þingmenn eigi sérstökum skyldum að gegna við sum- arið. Einhverntfma montaði Magga Thatcher sig af því að hún svæfi að- eins fjóra tíma á sólarhring. Bretum fannst, flestum hverjum, mikið til koma að forsætisráðherrann þeirra væri svona duglegur - þangað til sér- fræðingur í geðsjúkdómum lýsti yfir því, að svo lítill svefn brenglaði dóm- greind og ylli hægfara geðbilun. Alþingismennirnir okkar sem nú leggja nótt við dag að samþykkja hauga af nýjum lögum eru samkvæmt þessu alls óhæfir til verka. Þeir fá ein- faldlega ekki nægan svefn. Og þótt margt vitsmunalegt ofurmennið vermi þingsæti er til of mikils mælst að biðja þingmenn að taka afstöðú til 36 mála fyrir hádegi, þjarka um annað eins frameftir degi og samþykkja svo eitt- hvað að áliðinni nóttu. Þetta er náttúrlega hreinn og klár farsi, að því undanskildu að fyndnina vantar. Og svo eru þessar elskur alltaf jafn undrandi á því að þjóðin skuli ekki bera takmarkalausa virðingu fyrir þeim. ■ Atburðir dagsins 755 Enski kristniboðinn Bonif- ace, þekktur undir nafninu „postuli Þýskalands", myrtúr ásamt 53 fylgismönnum sínum af þýskum heiðingjum. 1783 Loftbelgur frönsku bræðranna Joseph-Michel og Jacques-Eti- enne Montgolfier nær 6000 feta hæð. 1885 Bríet Bjamhéð- insdóttir skrifar ritgerð í Fjall- konuna og er þetta talin fyrsta grein sem tslensk kona skrifar í opinbert blað. 1963 Hermála- ráðherra Bretlands, John Prof- umo, segir af sér embætti og játar að hafa logið að þinginu um samband sitt við fyrirsæt- una Christine Keeler. Ungfrú Keeler átti sama tíma í nánu sambandi við rússneska sendi- ráðsmanninn Ivanov höfuðs- mann. 1991 Blökkumenn í Suður-Afríku fá aftur land- svæði sem tekin höfðu verið af þeim með opinberum reglu- gerðum. 1991 Hæstiréttur kvað upp dóm í Hafskipsmálinu. Flestir hinna ákærðu voru sýknaðir. Annáisbrot dagsins Dæmd frá lífinu á alþingi Guð- rún Eiríksdóttir úr Múlaþingi, er lýst hafði stjúpa sinn föður að barni, en skotið á frest lífsstrafftnu. Vallaannéll 1693. Skáidskapur dagsins Óort ljóð eru alltaf fegurst. Henrik Ibsen. Siður dagsins Það er góður siður að trúa aldrei nema helmíngnum af því sem manni er sagt og skifta sér ekki af afgánginum. En fara aldrei eftir öðru en því sem maður segir sér sjálfur. Halldór Kiljan Laxness; Sjálfstætt fólk. Málsháttur dagsins Hér mun eldur af verða, sagði refur, dreit á ísinn. Orð dagsins Á vörum brann veikasta sögnin að elska. Einar Bragi; Nafnlaust Ijóð. Skák dagsins Flestum finnsl líklcga skák- þraut dagsins bæði létl og löð- urmannleg. Um er að ræða stöðu úr skák Fullers og Steed- mans, en hvorugur cr meðal mestu spámanna tafllistarinnar. Fullur hefur hvítt og þvingar umsvifalaust fram mát. Hvítur mátar í tveimur leikj- um. 1. Dg7+! Hxg7 2. fxg7 Skák og mát. Sko Fuller.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.