Alþýðublaðið - 05.06.1996, Síða 4

Alþýðublaðið - 05.06.1996, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1996 ð t a I ■ Hrafn Jökulsson ræðir við Ingibjörgu Ástu Hafstein, eiginkonu Péturs Kr. Hafstein forsetaframbjóðanda Sá er heiðarlegur sem gerir eins vel og hann getur - segir Inga Ásta í viðtali um uppvöxt og bakgrunn, tónlist og trúarlíf, fjölskyldumál - og Pétur Kr. Hafstein. „Mér finnst þetta hafa verið mjög skemmtilegt,“ svarar Inga Ásta innilega, þegar ég spyr hvemig henni hafi fundist að hafa formálalaust lent í kastljósinu miðju í þjóðmálaumræð- unni. Hún segir að þetta hafi ekki síður verið spennandi fyrir Pétur, enda hefur hann síðustu ár unnið á einhverjum lokað- asta vinnustað á íslandi. „Við höfum kynnst óskaplega mörgu fólki. Þetta hefur verið bæði gefandi og þroskandi. Við kynnumst hlutum sem við ella hefðum aldrei komist í snertingu við. Mér fínnst þetta mjög spennandi, og hvemig sem fer hljótum við að standa uppi með mikla reynslu. Sér- staklega er gaman að fara um landið og sjá að hver staður hefur sín einkenni. Mér finnst líka mjög áhugavert að heim- sækja öll fyrirtækin og sjá hvað er að gerast þar.“ Mér finnst svolítið skrýtið, að það er stundum sett fram með neikvæðum for- merkjum að Pétur sé hógvær og vamm- laus. Þeim kostum hans, sem ég féll fyr- ir, var stillt upp sem göllum af sumu fólki. Því er ég enganveginn sammála, en þetta mun þjóðin dæma um. „Ég fékk mjög gott uppeldi,“ segir Hún tekur á móti mér á heimili þeirra Péturs við Einimel. Muni ég rétt hefur Einimelur oftar en einu sinni verið valinn fallegasta gata Reykja- víkur: garðamir eru vel hirtir og húsin reisuleg. Heimili Ingu Astu og Péturs er í senn fágað og menningarlegt: fjöl- breytilegt úrval málverka á veggjum, gömul og virðuleg húsgögn, gott bókasafn og glæsilegur flygill. Inga Ásta hefur heillað marga með framgöngu sinni í kosningabaráttunni. Hún er ákaflega blátt áfram og einlæg, og það er stutt í smitandi hláturinn. En jafnframt þarf enginn að velkjast í vafa um að þessi kona veit hvað hún viU. Hún er píanókennari, þriggja bama móðir - og kannski næsta húsfreyja á Bessastöðum. Þegar við emm sest niður yfir kafft í stofunni spyr ég hvemig henni ftnn- ist fjölmiðlar hafa staðið sig í kosn- ingabaráttunni. „Þetta er nú svolítið viðkvæm spurning!" svarar hún og hugsar sig um. Velur orðin af kostgæfni: „Mis- jafnlega vel, verð ég að segja. Sumir fjölmiðlar hafa staðið sig mjög vel. Einkum hafa smærri ljölmiðlamir lagt sig fram, blöð einsog Dagur og Al- þýðublaðið. Allir sem hafa haft sam- band við okkur hafa lagt sig fram um að skrifa góðar greinar, taka góðar myndir og hafa gefið sér góðan tíma. Fjölmiðlar hafa mikla ábyrgð gagn- vart þjóðinni, ekki bara frambjóðend- um.“ Heyrt margar skemmti- legarsögur Eg spyr hvemig synimir þrír hafa tekið allri athyglinni og umfjöllun íjölmiðla uppá síðkastið. „Sá elsti er víðsfjarri góðu gamni og sleppur vel. Hann heitir Jóhann Haukur, sautján ára, og er við nám í íþróttamenntaskóla í Noregi. Hann fréttir vikulega hvað er að gerast, en ég hugsa að honum brygði við að koma heim og sjá pabba og mömmu aftan á öllum strætisvögnum! Sá sem er þrettán ára er klipptur af fjölskyldu- myndunum og vill ekki koma í blöð- um og sjónvarpi, en hann tekur þessu mjög vel. Hann vill ekki vera í sviðs- ljósinu, og við höfum tekið fullt tillit til þess. Sá yngsti er átta ára og vill eðlilega vera á öllum myndunum. Þetta em þrír ólíkir pólar, en allir hafa þeir tekið þessu vel. Eðlilega þurfa börn langan tíma til að átta sig á þessu, og við verðum bara að vona að það sem við erom að leggja á strákana muni þroska þá og hafa jákvæð áhrif.“ Kjaftasögur og baktal em hvimleið- ir, en að því er virðist óhjákvæmilegir, fylgifiskar kosningabaráttunnar. Ég spyr Ingu Ástu hvort hún haldi að mikið sé slúðrað. „Já, já, ég hef heyrt margar skemmtilegar sögur,“ segir hún og hlær hjartanlega. „Yfirleitt finnst mér þær mjög fyndnar. Það stóð í mér kaffið þegar ég las Dagfara þarsem hann fjallaði um frambjóðendur. Ég lét ljósrita það í stómm stíl og dreifa, meðal annars á ísafirði þarsem fólk þekkir okkur. Þar var sagt: Pétur er traustsins verður, það stendur aftan á strætó og strætó skrökvar ekki! Það var líka sagt að Inga Ásta sé píanó- kennari og Pétur hafi hitt nemendur hennar og meira að segja talað við þá... Hann hafi jafnvel talað líka við nokkra sem hann ekki þekkir." Aftur hlær hún glaðlega. Bætir svo. við: „Kjaftasögumar hafa ekki verið ljótar. Einhver sagði í þjóðarsálinni að Pétur hefði aldrei viljað fara úr sýslumanns- búningnum og alltaf verið í honum fyrir vestan. Þetta fannst mér náttúr- lega mjög fyndið af því ég veit hvað hann þoldi illa að fara í þennan bún- ing. Pétur neyddist til að fara í búning- inn þegar hann þurfti að sinna emb- ættiserindum, en honum var raun að því að klæðast þessu skarti. Okkur fannst nú bara fyndið að heyra þetta. Ég held að ef maður hefur hreinan skjöld taki maður ekki nærri sér ein- hveijar sögur.“ Tökum því sem að höndum ber Ég spyr hvort henni muni reynast erfitt að sætta sig við það, ef Pétur nær ekki kjöri. Svarið er ákveðið: „Nei. Við tökum hverju sem að höndum ber. Þegar framboð var nefnt í fyrsta sinn, í október í fyrra, var þetta ákaflega fjarri okkur. Við höfum ekki átt þann draum áratugum saman að komast til Bessastaða. Það var ekki fyrren eftir páska að okkur var eigin- lega hrint fram af bjargbrúninni, og við höfum varla haft tíma til að hugsa um þessar tilfinningar eða setja þær í einhvem búning. Nái Pétur ekki kjöri finnst mér það verst gagnvart öllu því góða fólki sem hefur dottið ofan úr himnum og er að vinna baki brotnu fyrir okkur. Ég veit ekki hvaðan allt þetta fólk er komið, en það flykkist að okkur og er reiðubúið að vinna fyrir okkur dag og nótt. Ég hef aldrei kynnst öðm eins, og mér fyndist það sárast gagnvart þessu fólki ef Pétur næði ekki kjöri. Við erum alsæl ein- sog við höfum það, Pétur er í góðu staífi og ég er nýbúin að stofna tónlist- arskóla. En ég finn líka að þessi tími breytir okkur." @Meginmál = En gef- um okkur að Pétur nái kjöri. Hvert er þá í þínum huga hlutverk forsetafrúar? „Þá mun ég að sjálfsögðu gera allt sem í mínu valdi stendur til að axla þá ábyrgð sem embættið leggur okkur sameiginlega á herðar. Það er augljóst að ég gæti ekki kennt áffam við tón- listarskólann, þar emm við með unga krakka sem þurfa aga og aðhald, og það þýðir ekkert að segja: Nú þarf ég að skreppa í opinbera heimsókn eða taka á móti gestum, og get ekki sinnt ykkur fyrren í næstu viku. Það gengur ekki upp. Aftur á móti hef ég mjög gaman af því að kenna eldri nemend- um, fullorðnu fólki, og það hefur verið samningsatriði við þá hvemig kennsl- unni er hagað. Fullorðið fólk þolir sveigjanleika í námi, svo ég sé alveg íyrir mér að ég gæti kennt áfram. Það myndi ég hinsvegar gera í einkatímum og væntanlega bara í litlum mæli.“ Atorkusamur krakki í Vesturbænum Við ákveðum að hvfla okkur aðeins á forsetamálum og ég spyr um bak- gmnn og uppvöxt. Inga Ásta fæddist í Neskaupstað þar sem foreldrar hennar bjuggu í sjö ár, og faðir hennar var apótekari. Ung flutti hún til Reykja- víkur og ólst upp í Vesturbænum, og gekk hina hefðbundnu leið gegnum Melaskóla, Hagaskóla og MR. Hún segist hafa verið lifandi og athafna- samur krakki, og það kemur heim og saman við það sem æskufélagar henn- ar höfðu sagt mér. Hún stundaði hestamennsku og handbolta, og byrj- aði ung í tónlistarskóla. hún. „Foreldrar mínir leituðust við leyfa mér að njóta þess sem hægt var. Þetta á við um marga af þeirra kyn- slóð: fólk sem lagði gríðarlega hart að sér en gat lítið veitt sér og vildi þess- vegna láta drauma sína rætast í böm- unum. Þessvegna fékk ég tækifæri til að fara í tónlistarskóla og til útlanda á sumrin að læra tungumál. Þau lögðu mikið á sig til að við systkinin gætum notið þess sem vissulega voru nokkur forréttindi." Inga Ásta fór tfl Danmerkur 13 ára að passa börn, var á sumarskóla á Bretlandi og vann sumarlangt í Frakk- landi. Þá lærði hún tungumálin og það kom sér vel þegar hún, fyrir einskæra tilviljun, varð leiðsögumaður erlendra ferðamanna á Islandi. Upphaflega ætl- aði hún einungis að fara eina ferð sem leiðsögumaður en sumrin urðu tíu áð- ur en yfir lauk. Félagar Ingu Ástu úr menntaskóla minnast hennar sem sjálfstæðrar og lífsglaðrar stúlku sem lét heilmikið að sér kveða. „Við vomm að vakna til lífsins og okkur fannst allt svo spennandi. Ég sótti hvaðeina sem var í boði: Við fór- um á allar málverkasýningar og tón- leika, við sóttum alla fyrirlestra, hvort sem þeir voru um heimspeki eða stjómmál. Vinimir vom annaðhvort í Fylkingunni eða Heimdalli, þannig að við sóttum fundi hjá báðum og það var mikið rifist um pólitík í kringum mig. Jafnframt félagslífinu sem fylgdi skólanum var Inga Ásta á kafi í hesta- mennsku. „Það vom ekki margir ung- iingar í hestamennsku og við Pétur vomm þá ekki í sama hópi. Hann var með Þorláki Ottesen, Höskuldi á Hof- stöðum og einhverjum gömlum körl- um og ég var með öðrum gömlum körlum í hestamennskunni. Reyndar vom þetta alls ekki „garnlir karlar“ - þegar maður er unglingur finnst manni að allir sem komnir em yfir þrítugt séu óskaplega gamlir. Ég var ekki með bílpróf, svo ef mig langaði að komast á hestbak þá hringdi ég í ein- hverja af körlunum og spurði hvort þeir vildu koma á bak,“ segir Inga Ásta og hlær. „Mínir helstu félagar fyrir utan vinahópinn í skólanum vom menn einsog Árni Þórðarson skóla- stjóri í Hagaskóla, Páll Briem, Stefán Pálsson í Búnaðarbankanum. Hesta- mennskan er svo hrífandi og það var gaman að vera með þessum mönn- um.“ Inga Ásta og Pétur eru semsagt bæði hestamenn, einsog reyndar hefur komið rækilega fram í sjónvarpsaug- lýsingum. Og ekki nóg með það: þau kynntust upphaflega í gegnum þetta sameiginlega áhugamál. Inga Ásta segir mér að þau eigi ekki hesta núna. Á sínum tfma fluttu þau með sér hesta til ísafjarðar en þar er fátt um lendur þar sem hægt er að spretta úr spori; Oshlíðin eini reiðveg- urinn og þar mátti heyra smáskriðum- ar rúlla niður fjallshlíðina. „Við vor- um vön Rangárbökkum og Heiðmörk og ótal reiðvegum í kringum Reykja- vík. Að lokum gáfumst við eiginlega upp, enda höfðum við heldur ekki tíma til þess að sinna hestunum sem skyldi. Én hnakkanir og stígvélin og kambamir em enn á sínum stað úti í bflskúr. Við fylgdum hinsvegar strák- unum þegar þeir fóm að shinda skíði enda góð aðstaða til þess á Isafirði." Kostirnir sem ég féll fyrir... Þegar hér er komið sögu kemur Einar Ólason ljósmyndari með al- væpni. Það er ekki á Ingu Ástu að sjá að hún hafi til skamms tíma verið fjarri leifturljósum myndavélanna, og hún tekur því með mestu ró þegar Ein- ar biður hana að setjast við píanóið og taka eitt lag eða tvö meðan hann smellir af í gríð og erg. Hvort við vilj- um heyra eitthvað sérstakt? spyr hún, og töfrar síðan fram Mozart. Þegar ljósmyndun er lokið spyr ég um Pétur. Vinir hans og samstarfs- menn eru sammála um að hann sé grandvar og heiðarlegur og megi ekki vamm sitt vita. Jafnframt að hann sé ákaflega hlédrægur maður. Hvernig lýsir Inga Ásta eiginmanni sínum? „Mér finnst þetta góð lýsing. Það er sagt að hann sé hlédrægur og það er rétt í þeim skilningi að hann hefur aldrei troðið sér áfram. En þegar sagt er að hann sé feiminn, þá spyr ég á móti: Hefur einhver heyrt um feimna sýslumanninn á ísafirði?" Nei, ætli það, svara ég. „Einmitt. Hann er ekki hlédrægur þar sem hann ekki á að vera það. En lýsingin er ágæt: þetta em þeir.kostir í fari hans sem ég féll fyrir. Fyrst eftir að Pétur gaf kost á sér var óft sagt að hann brosti aldrei - en hajm er nú bú- inn að afsanna það aftari á strætó! En þegar sagt er að hann hafi ekki brosað þegar hann lýsti yfir framboði, þá spyr ég: Finnst einhverjum það brosvert að gefa kost á sér í þetta embætti? Ég hefði ekki verið par ánægð ef hann hefði verið brosandi yfir því,“ segir Inga Ásta og raddblærinn er ákveðinn. „Aftur á móti er hann ákaflega bros- mildur maður og léttur og skemmti-

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.