Alþýðublaðið - 05.06.1996, Síða 8

Alþýðublaðið - 05.06.1996, Síða 8
► * WfflE 'SW 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 Miðvikudagur 5. júní 1996 nMiiiiRiimn 81. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk „íslandsklukkan á jafnmikið erindi nú og fyrir fimmtíu árum," sagði gagnrýnandi eins virtasta blaðs Þýskalands um stórvirki Halldórs Laxness. ■ Laxness vinsæll í Þýskalandi íslands- klukkan meðal mestu skáldverka aldarinnar Fjórar útgáfur á þremur árum í Þýskalandi. Vaka-Helgafell hefur á síðustu þremur árum gengið frá samningum um fjórar mismunandi útgáfur á ís- landsklukkunni eftir Halldór Laxness í Þýskalandi. Nú síðast gaf hið virta forlag, Deutscher Taschenbuch, út þetta mikla stórvirki Nóbelsskáldsins. Fyrst kom íslandsklukkan út innbund- in á almennum markaði, þá í tveimur af virtustu og stærstu bókaklúbbum þar í landi og loks er hún nýlega kom- in út í kilju. Þegar Steidl Verlag gaf íslandsklukkuna út fyrir almennan markað árið 1993 í þýðingu Huberts Seelows, sagði stórblaðið Frankfurter Allgemeine meðal annars í umsögn sinni: „íslandsklukkan á jafnmikið er- indi við samtíma sinn nú og fyrir hálífi öld.“ Haustið eftir kom Islands- klukkan út í ritröð hjá Bertelsmann forlaginu sem er eitt stærsta útgáfufyr- irtæld Þýskalands. í ritröð þessari eru bækur sem þykja mestu bókmennta- verk 20. aldar og nefnist hún .Jahrhundert Edition“. Þar er íslands- klukkan í mjög vönduðum búningi í öskju og fylgir henni myndskreyttur bæklingur um Laxness, líf hans og feril. Aðeins verða eitthundrað bækur, eftir jafnmarga höfunda, valdar í þetta safn. ■ Færeyska landsstjórnin missir meirihluta sinn Joensen hlýtur að boða til kosninga - segir Eðvarð T. Jónsson og telur að sjálfstæðis- kröfur Færeyinga muni setja mark á kosningabar- áttuna. Jafnaðarmannaflokkurinn í Færeyj- um er genginn úr landsstjórn Ed- munds Joensens lögmanns. Stjómin, sem mynduð var í september 1994, nýtur nú aðeins stuðnings ellefu þing- manna af þrjátíu og tveimur. Alþýðu- blaðið hafði samband við Eðvarð T. Jónsson, fyrrum fréttaritara Ríkisút- varpsins í Færeyjum, og bað hann að segja frá aðdraganda þessa brotthlaups jafnaðarmanna og hugsanlegum af- leiðingum. Edmund Joansen í heimsókn til íslands á dögunum. Naut ekki trausts samstarfsmanna, skortir forystuhæfileika og þykir lifa í liðnum tíma. Eðvarð segir Edmund Joensen hvorki hafa notið trausts meðal sam- starfsflokkanna né í eigin flokki. Hann sé talinn óákveðinn, skorta forystu- hæfileika og þyki lifa um of í gamla tímanum. Þegar Joensen myndaði stjórnina voru fjórir flokkar í landsstjórninni, Sambandsflokkurinn, undir stjóm Jo- ensens, Jafnaðarmannaflokkurinn, Verkamannaflokkurinn, sem splundr- aðist á kjörtímabilinu og er nú í sár- um, og Sjálfstýrisflokkurinn, sem Eð- varð segir vera lítinn Framsóknar- flokk. Samstarfið byrjaði vel, en síðan tók að gæta óánægju með störf Joan- sens. Tveir þingmenn Sambandsflokksins létu af stuðningi við Joensen. Eðvarð segir þá hafa verið fylgjandi því að gagngerar breytingar í sjálfstæðisátt yrðu gerðar á sambandi Færeyja og Danmerkur. Þeim breytingum er Joen- sen algjörlega andvígur og hefur meirihluta Sambandsflokksins á bak við sig. „Umræðan um að breyta heima- stjómarlögunum og gera Færeyjar að frjálsu og fullvalda ríki verður æ meira áberandi í Færeyjum. Færeying- ar eru reiðir Dönum og finnst þeir hafa niðurlægt sig á allan hátt. Jafnað- armenn vilja breytingar á sambandinu og það vilja einnig Þjóðveldismenn sem staðið hafa utan stjómar. Það er að myndast samstaða á lögþingi um að endurskoða heimastjómarlögin. Öll endurskoðun á heimastjómarlögunum þýðir aukið sjálfstæði Færeyja," segir Eðvarð. Eðvarð telur að Edmund Joansen hljóti að boða til kosnirtga. „Verði gengið til kosninga má búast við að þeir flokkar sem hafa setið utan stjóm- ar muni bæta við sig fylgi. Um leið mun kosningabaráttan snúast að miklu leyti um vilja Færeyinga til aukins sjálfstæðis frá Dönum." Eðvarð T. Jónsson telur að Ed- mund Joansen hljóti að boða til kosninga og segir að kosningabar- áttan muni að miklu leyti snúast um vilja Færeyinga til aukins sjálf- stæðis. E n g i n n h e i m a ? Kínverjar eru orðlagðir fyrir kurteisi en í gær kom enginn til dyra þegar fulltrúar íslandsdeildar Amnesty International ætluðu að færa starfsmönnum kínverska sendi- ráðsins nýja skýrslu um mannrétt- indamál í Kína. í gær voru einmitt liðin rétt sjö ár frá blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar, en þá murkuðu hermenn lífið úr meira en tvöþúsund vopnlausum andófs- mönnum. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir formaður íslandsdeildar Amnesty sagði fréttamönnum í gær að við- brögð sendiráðsmanna hér væru hin sömu og hvarvetna í heimin- um: Kínverjar þverneituöu alstaðar að taka á móti fulltrúum Amnesty. Siðdegis i gær safnaðist fólk við Tjörnina, þar sem hvítum blómum var dreift - en hvítt er litur sorgar- innar í Kína. ■ ísland í Indlandi Islenskt skjól fyrir indversk götubörn I suðausturhluta Indlands er að finna Litlu ljósin (Little Lights Orp- hanage) sem er heimili fyrir munaðar- laus og yfirgefm börn á Indlandi og hefur það verið starfrækt í fjögur ár. Sífellt fleiri böm leita þangað og hafa nú um 370 böm eignast þar heimili. Öll eiga þau íslenska stuðningsfor- eldra í gegnum ABC hjálparstarf. Stuðningsforeldramir greiða einungis 1450 krónur á mánuði til félagsins og rennur sú fjárhæð óskert til hjálpar- starfsins. Fyrir þessa ljárhæð er mögu- legt að veita indversku götubami fæði, klæði, menntun, læknishjálp og heim- ili. ABC hjálparstarfið var stofnað ár- ið 1988 og er íslenskt samkirkjulegt hjálparstarf sem hefur að markmiði að veita bágstöddum börnum þriðja heims hjálp sem kemur að varanlegu gagni. Fyrir 500 krónur á mánuði er hægt að styrkja bam til náms í Uganda og fyrir 1100 krónur á mánuði er hægt að styrkja barn á Filippseyjum til náms. Stuðningsforeldrar fá myndir af bömum sínum ásamt upplýsingum um hagi þeirra og geta skrifast á við þau. Aðeins einn stuðningsaðili stendur að baki hveiju styrktarbami. Um fjórtán hundmð Islendingar em nú stuðnings- foreldrar um tvö þúsund bama í þriðja heiminum. En neyðin er mikil og Qöldi bama þarfnast enn aðstoðar. ABC hjálparstarfið hefur nýlega fest kaup á litlu landsvæði í Indlandi sem hlotið hefur nafnið Island. Síðar í þessum mánuði verður tekin þar í notkun bygging sem verður heimili 150 munaðarlausra bama. Guðrún Margrét Pálsdóttir er fram- kvæmdastjóri félagsins. Það er til húsa að Sóltúni 3 og síminn er 5616117. Gjöfum til hjálparstarfsins er veitt móttaka á tékkareikningi 151 í Is- landsbanka (537). Þessi munaðarlausa indverska stúlka er ein fjölmargra barna sem loks hefur eignast heimili vegna stuðnings íslenskra stuðningsforeldra.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.