Alþýðublaðið - 26.06.1996, Síða 1
f
r
■ Olafur Skúlason biskup tilkynnti afsögn á prestastefnu 1996
Afsögnin tekur þó ekki gildi fyrr en eftir eitt og hálft ár
Biskup gagnrýnirfjölmiðla harkalega
- í opnunarræðu sinni í Digraneskirkju í gær.
„Ég hef ákveðið að sækja um lausn
frá embætti nunu áður en aldursmörk
gera skylt. Ég hyggst gegna embætti í
hálft annað ár enn,“ sagði Ólafur
Skúlason biskup Islands í setningar-
ræðu sinni á Prestastefnu 1996 í gær.
Ræðu Ólafs var beðið með mikilli eft-
irvæntingu í Digraneskirkju í gær og
menn urðu ekki fyrir vonbrigðum.
Biskupinn boðaði tíðindi í ræðu sinni.
Hann segir fæðingarár sitt valda því
að hann geti ekki verið í þjónustu
kirkjunnar árið 2000. „Að öðru jöfnu
myndi ég láta af embætti ári fyrr. Það
sjá allir að ekki verður gott fyrir nýjan
biskup að koma að hátíðahöldunum
án þess að hafa haft hönd í bagga með
undirbúningi og nokkurs aðdraganda,"
sagði Ólafur Skúlason þegar hann út-
skýrði tildrög og ástæður afsagnar
sinnar. Það vekur nokkra athygli að
afsögnin tekur ekki gildi fyrr en eftir
eitt og hálft ár. Ólafur telur ekki far-
sælt að eíha til biskupskosninga núna
ofan í þá umræðu sem verið hefur
undanfarið. „Það skal líka viðurkennt
að ásakanimar á hendur mér og ótrú-
lega neikvæð umijöllun í sumum íjöl-
miðlum hefur haft sín áhrif. Þótti mér
það sláandi dæmi um ástandið og
stöðu mína að ekki virðist einu sinni
hægt að undirbúa forsetakosningar án
þess að nafn mitt sé dregið inní um-
ræðuna með lítt þægilegum hætti,“
sagði Ólafur og vandar fjölmiðlum
ekki kveðjumar. Hann segir það hafa
verið sér „þyngri raun en orð fá túlkað
að vegna ásakana á mig hafa sóknar-
böm horfið frá söfnuði sínum með því
að segja skilið við Þjóðkirkjuna."
Ólafur segir ijölmiðlaöld setja mik-
inn svip á samfélagið og móti það
jafnvel meira en við kæmm okkur um
að viðurkenna oft og tíðum. „Hinn
gagnrýni ijölmiðill er auðvitað nauð-
synlegur en á honum hvílir mikil
ábyrgð," sagði Ólafur Skúlason enn-
fremur um fjölmiðla. Sjálfsagt hefur
kynferðisleg áreitni ekki oft borið á
góma í setningarræðum á Prestasteíhu
enda fór kliður um presta og aðra við-
stadda, en þama vom meðal annarra
Vigdís Finnbogadóttir forseti og Þor-
steinn Pálsson kirkjumálaráðherra,
þegar Ólafur sagði: „Það fer ekki á
milli mála að kynferðisleg valdbeiting
eða áreitni er eitthvað það ógeðfelld-
asta og ógeðslegasta sem þjakar
mannlegt samfélag."
Sjá baksíðu.
■ Gísli S. Einarsson
alþingismaður
Styð þann
sem getur
sigrað Ólaf
„Eitthvað nýtt ef alþýðubanda-
lagsmenn eru orðnir málsvarar
víðsýni í utanríkismálum."
„Ég treysti mér alls ekki til að
styðja mann sem tekur svo harða af-
stöðu gegn Evrópusambandinu og
hugsanlegri aðild Islands. Ég hlýt því
að greiða þeim manni atkvæði sem
helst getur sigrað Ólaf,“ sagði Gísli S.
Einarsson þingmaður Alþýðuflokksins
á Vesturlandi um ummæli Ólafs
Ragnars Grímssonar í Alþýðublaðinu
í gær. Gísli kvaðst furða sig á þeirri
yfirlýsingu Ólafs að það lýsti „ein-
stakri þröngsýni að ræða alþjóðamál
eingöngu út frá hinu evrópska sjónar-
homi.“ Um þetta sagði Gísli: „Það er
eitthvað alveg nýtt ef alþýðubanda-
lagsmenn eru orðnir málsvarar víðsýni
í utanríkismálum."
■ Forsetakosningar
400 á fundi
Ólafs í
Hafnarfirði
í fyrrakvöld héldu Ólafur Ragn-
ar Grímsson og Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir framboðsfund í
Hafnarfirði. Þangað komu um fjög-
urhundruð manns og var fullt útúr
dyrum. Á morgun er síðan ráðgerð
flugferð um landið, og verða sóttir
heim að minnsta kosti sex staðir um
allt land.
Biskuparnir Sigurbjörn Einarsson, Pétur Sigurgeirsson og Ólafur Skúla-
son við upphaf Prestastefnu en Ólafur vandaði fjölmiðlum ekki kveðjurn-
ar í upphafsræðu sinni.
■ Vinnustaðakannanir í
Sementinu og hjá VSK
Ólafurog
Pétur á
toppnum
Ólafur Ragnar Grímsson hafði yfir-
burða fylgi í vinnustaðakönnun í Se-
mentsverksmiðjunni sem gerð var í
síðustu viku. Könnunin var gerð um
það leyti sem Guðrún Pétursdóttir dró
framboð sitt til baka. Sextíu starfs-
menn tóku þátt og var skiptingin sem
hér segir: Olafur Ragnar 50 prósent,
Pétur Kr. Hafstein 22,6, Guðrún Agn-
arsdóttir 12,9, Guðrún Pétursdóttir 8,1
og Ástþór Magnússon 4,8.
Pétur Kr. Hafstein reyndist hinsveg-
ar hafa yfirburði meðal þeirra 50 sem
tóku þátt í könnun á Verkfræðiskrif-
stofu Sigurðar Thoroddsen. Þar var
skiptingin þessi: Pétur 42 prósent,
Guðrún Agnarsdóttir 18, Ólaftu-Ragn-
ar 16, Guðrún Pétursdóttir 14 og Ást-
þór4.
■ Össur Skarphéðinsson
um orð Ólafs Ragnars
Skipta engu
máli til eða frá
- segir Össur. „Fordómalausir
menn kjósa ekki forseta út frá
stjórnmálaskoðunum."
„Þessi orð Ólafs Rangnars um ESB —r
finnst mér ekki skipta nokkru máli til
eða frá í kosningabaráttunni enda fæ
ég ekki betur séð en þau tvö sem næst
honum koma í skoðanakönnunum hafi
sömu afstöðu og hann til ESB,“ sagði
Össur Skarphéðinsson þegar Alþýðu-
blaðið leitaði álits hans á orðum Ólafs
Ragnars Grímssonar um íslands og
Evrópusambandið.
„Eg held að fordómalausir menn
kjósi ekki forseta út frá stjómmála-
skoðunum, heldur út frá hæfni við-
komandi til að gegna embætti þjóð-
höfðingjans," segir ÖSsur. „Hvaða
skoðanir frambjóðendur hafa á ein-
stökum átakamálum líðandi stundar
skiptir ekki höfuðmáli, enda man ég
ekki betur en núverandi forseti hafi
ljáð stuðning sinn við baráttu gegn
Nató og her, og þótt frábær forseti. Eg
held líka að skoðanir Ólafs Ragnars á
þessu tiltekna máli hafi legið Ijósar
fyrir áður en til baráttunnar kom, eins
og raunar flestra deilumála, og ég man
ekki til þess að hann hafi gefið neitt
tilefni til að menn teldu hann hafa
breytt þeim. Þeir sem verða því undr-
andi á orðum hans hafa því haft hug-
ann við eitthvað annað síðustu misseri
en íslensk stjómmál."
Að vera vond-
ur með því að
vera góður
■ Ummæli Olafs Ragnars Grímssonar um Island og Evrópusambandið
Skilaboð til jafnaðarmanna?
-spyr Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins.
Gunnar Smári skrifar um Guð-
rúnu Agnarsdóttur
I hvert sinn sem ég verð vitni að því
að Guðrún Agnarsdóttir talar til þjóðar
sinnar ómar rödd móður minnar í
höfðinu á mér: Maður getur verið
vondur við fólk með því að vera góður
við það. Og músarhjartað í mér sem
alltaf fmnst það hafa bmgðist vonum
móður minanr slær: Já, mamma, ég
veit, mamma.
Þess vegan er ég sestur hér niður til
að skrifa grein um að hið annálaða
góðmenni Guðrún Agnarsdóttir sé -
kannski ekki illmenni - en það sem
hét á tímum svart hvítrar heimsmynd-
ar, nytsamur sakleysingi í þjónustu
illskunar. Sjá blaðsíðu 5
„Þau ummæli forsetaframbjóðand-
ans, Ólafs Ragnars Grímssonar, í við-
tali við Alþýðublaðið að stefna okkar
jafnaðarmanna í Evrópumálum sam-
rýmist ekki efnahagslegum hagsmun-
um okkar koma eins og blaut tuska
framan í andlitið á íslenskum jafnað-
armönnum. Reyndar hlýtur sama máli
að gegna um fjölmarga kjósendur
annarra flokka sem hafa svipaða sýn
og afstöðu og við,“ segir Jón Baldvin
Hannibalsson.
„Að velja bandalagsþjóðum okkar í
Evrópu heitið „gömlu nýlenduveldin“
minnir óþægilega á málflutning al-
þýðubandalagsmanna fýrr á tíð þegar
þeir beittu sér hvað hatrammlegast
gegn þeirri stefnu, sem notið hefur
stuðnings mikils meirihluta þjóðarinn-
ar, að Island haslaði sér völl innan
varnarsamtaka vestrænna lýðræðis-
ríkja og í viðskiptasamstarfi Evrópu-
þjóðanna,“ segir Jón Baldvin.
Jón Baldvin segir Alþýðubandalag-
ið hafa verið fulltrúa einangrunar-
stefnu og verndarstefnu í íslenskum
stjómmálum. „Það kemur því vægast
sagt úr hörðustu átt þegar þeim sem
einarðlegast hafa beitt sér fyrir fijáls-
lyndi og stuðningi við frjáls viðskipti
á undanförnum áratugum er brugðið
um „einstaka þröngsýni" í viðhorfum
sínum til samstarfs grannþjóða," segir
Jón Baldvin.
Jón Baldvin telur það lýsa glám-
skyggni að mæna á hagvaxtarríkin í
Asíu sem fyrirmynd fyrir íslendinga.
„Að nefna Suður Ameríku, ég tala nú
ekki um Afríku, sem dæmi um hvar
framtíðin liggi í markaðsmálum okk-
ar, skilur mann eftir nánast orðlausan.
Dæmið urn að Björk njóti mestra vin-
sælda í Asíu og þar með séu rökin
komin fyrir þessum undarlegu sjónar-
miðum gerir mann aftur orðlausan.“
„Ég viðurkenni að þessi sjónarmið
eru ekki ný frá Ólafi Ragnari,“ segir
Jón Baldvin. „Hann talaði fyrir þeim
sem formaður Alþýðubandalagsins á
sinni tíð og staðfesti á Alþingi, til
dæmis með atkvæði sínu gegn aðild
okkar að Evrópska efnahagssvæðinu.
Ég hafði satt að segja gert mér vonir
um að þar hefði hugur ekki fylgt máli,
allavega að Ólafur Ragnar væri vax-
inn frá þeirri afstöðu sinni nú þegar
hann heíur boðið sig ífam til embættis
forseta Islands, þar sem hann þarf
mjög á því að halda að sameina þjóð-
ina að baki sér. Ég velti því íyrir mér
hvort þessi orð hafi verið sögð í ógáti
eða hugsunarleysi, en standi þau, og
því verður Ólafur Ragnar að svara, þá
hlýtur hann að stilla okkur jafnaðar-
mönnum og skoðanabræðrum okkar
frammi fyrir þeirri spurningu hvort
við getum greitt forsetaframbjóðanda
atkvæði sem lýsir sjónarmiðum okkar
sem þröngsýni og stefnu okkar í stór-
máli eins og Evrópumálunum sem
ósamrýmanlegri hagsmunum þjóðar-
innar,“ segir Jón Baldvin.