Alþýðublaðið - 26.06.1996, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Pétur er kletturinn
Ií mínum huga er valið einfalt og í raun þykir
mér lítt skiljanlegt hversu mjög það vefst
fyrir mörgum að gera upp hug sinn.
Senn líður að þeim degi er íslenska
þjóðin kýs sér forseta, þann fimmta í
röðinni frá stofnun lýðveldisins.
Við Islendingar erum lánsöm að
búa við þau mannréttindi að hafa for-
seta sem kjörinn er af þjóðinni, okkur
fólkinu í landinu. Þannig séð fellum
við að vissú leyti dóm yfir sjálfum
okkur eftir því hvem við veljum.
Því miður hefur það oft átt sér stað í
veraldarsögunni að þjóðir, og það
stórþjóðir, hafa valið svo sorglega
rangt þegar þær völdu sér stefnu eða
leiðtoga. Oft er eins og örlög verði
ekki umflúin ög stundum hefur það
tekið marga mannsaldra að græða sár
og reyna að bæta, fyrirgefa og laga, ef
ranglega var valið.
Pallborð
í mínum huga er valið einfalt og í
raun þykir mér lítt skiljanlegt hversu
mjög það vefst fyrir mörgum að gera
upp hug sinn.
Þegar frambjóðendur komu fram
hver af öðmm með mismunandi stæl
varð ég ráðvilltari með hveijum deg-
inum sem leið. En loks heyrðist rödd
sem var í senn látlaus, virðuleg og
traust. Þetta var rödd Péturs Kr. Haf-
stein. Þama var hann kominn forseti
íslands, hugsaði ég.
Sannfæring mín styrktist því meir
sem Pétur kynnti hugmyndir sínar um
hvemig forseti íslands ætti að vera.
Það em einkum eftirfarandi sjö þættir
sem þurfa að fyrirfmnast í forsetanum
að mati Péturs.
Forseti fslands skal:
- vera trúvérðugt sameiningartákn
íslensku þjóðarinnar,
- rækja hlutverk sitt í stjómskipun-
inni með öruggum og ótvíræðum
hætti og djúptækri virðingu fyrir þing-
ræðinu,
- meta vald sitt til synjunar laga-
fmmvarpa sem neyðarúrræði við sér-
stakar og ófyrirsjáanlegar aðstæður,
- leggja höfuðáherslu á skyldur sín-
ar innanlands og koma jafnífamt fram
af myndugleika fyrir hönd tslensku
þjóðarinnar á erlendri gmnd,
- skerpa vitund Islendinga um
sjálfa sig sem fijálsa og fullvalda þjóð
í samfélagi þjóðanna,
- reka embætti sitt með hófsemd,
látleysi og ráðdeild og alltaf innan
fjárheimilda frá Alþingi,
- vera traustsins verður.
Helsti munurinn á Pétri og hinum
frambjóðendunum er sá að það er
óhætt að treysta orðum hans. Hann er
ekki eins og stjómmálamaður sem tal-
ar alltaf eins og vindurinn blæs hverju
sinni og sem telur fólki jafnvel trú um
að hvítt sé svart.
Pétur er eins og kletturinn í haftnu,
fastur fyrir og trúr sannfæringu sinni.
Hann er orðheldinn og réttsýnn dreng-
skaparmaður.
Ymsar fáránlegar spumingar hafa
verið lagðar fyrir forsetafrmbjóðend-
ur. Sumum þeirra er vart hægt að
svara.
Pétur hefur staðið sig afburða vel
og svarað í stuttu, kjamyrtu máli. Inn-
antómt orðagjálíúr er ekki hans aðferð
til svars, hann kemur beint að efninu
og heldur rökfestu sinni út í gegn.
Hjá sumum hinna ffambjóðendanna
var orðskrúðið svo mikið að ég hafði
gleymt spurningunni þegar orða-
flaumnum lauk. Pétur er sá sem segir
mest í sem fæstum orðum. Hann mun
alltaf verða sá sem stendur og fellur
með sannfæringu sinni.
Daginn sem Pétur tilkynnti framboð
sitt var hann spurður hvort hann teldi
að hann yrði næsti forseti lýðveldisins.
Þá svaraði hann því til að það væri
bara einn sem réði því, guð allra stétta.
Ég veit að Pétur gæti tekið undir
með skáldinu Valdimar Briem er hann
orti:
Égfel mig þinni föðumáð,
minnfaðir elskulegi,
mitt lífog eign og allt mitt ráð
og alla mína vegi.
Þú rœður öllu og rœður vel
afríkdóm gcesku þinnar.
Þín stjóm ncer jafnt um himins hvel
og hjólið auðnu minnar.
Ég hef sagt það við vini mína og
ættingja að það sé í fínu lagi að hugsa
málið fram að kjördegi, en þegar í
kjörklefann er komið, kjósið þá Pétur
Kr. Hafstein.
Höfundur er kennari og sjúkraþjálfari
JÓN ÓSKAR
m e n n
Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, gaf út yfirlýs-
ingu í gær þarsem hún viður-
kenndi að hafa átt samræður
við löngu látna forsetafrú, en
sagði að um vitsmunalegar æf-
ingar hefði verið að ræða en
ekki neinn miðilsfund.
Frétt í DV í gær.
Raup forsetaefna um hlutverk
þeirra og væntanlega fram-
göngu meðal þjóðanna minna
ekki lítið á hlutverk nafn-
kenndra íslendinga í storma-
sömum stríðum Heljarslóðar-
orustu, en þar voru þeir alls
staðar nærri þar sem mikil
tíðindi urðu.
Oddur Ólafsson í Tlmanum í gær.
Komið hefur í ljós í ýmsum
málum, að Clinton Banda-
ríkjaforseti er nánast alveg
stefnulaus í utanríkismálum
og skiptir um skoðun á ýmsa
vegu eftir því, hvernig vindur-
inn blæs í innanríkismálum.
Hann rambar fram og til baka
eftir gagnrýni repúblíkana
hverju sinni.
Jónas Kristjánsson í forystugrein DV í gær.
Með kynskiptum er verið að
gagnrýna verk guðs.
Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. DV í gær.
Það sem eftir stendur er,
einsog dagskrárgerðarmenn
á Bylgjunni orðuðu það í
gærmorgun: Grís, Skvís,
Pís og Frýs.
Garri Tímans aö fjalla um
forsetaframbjóðendur.
Ólafur er maður
unga fólksins.
Hákon S. Sverrisson í Mogganum í gær.
Sameinumst um
Pétur Kr. Hafstein.
Ásdís Lúðvíksdóttir í Mogganum i gær.
Ég treysti Guðrúnu
Agnarsdóttur til að... sameina
þjóðina á bakvið sig.
Páll Skúlason í Mogganum í gær.
fréttaskot úr fortíð
Aldraður
auðjarl
Jón gamli Rockefeller, hinn þekkti
milljónamæringur, varð 97 ára 8. júh'
síðast liðinn. Sagði hann við það
tækifæri, að þegar hann væri orðinn
hundrað ára ætlaði hann að byija að
lifa. A yngri árum sínum strengdi
hann þess heit, að lifa í hundrað ár
eða liggja dauður ella. Afmælisveizl-
an var haldin á óðali hans, „Golf
House“, í Lakewood í New Jersey.
Sænski matsveinninn hans hafði bak-
að heljarmikla afmæliskringlu, og át
Jón gamli hana upp til agna, án þess
að kenna sér nokkurs meins.
Sunnudagsblaö Alþýöublaösins,
9. ágúst 1936.
h i n u m e g i n
Olympíuskákmótið fer
fram í Yerevan í Ar-
meníu í haust, og binda
margir vonir við að sterk
íslensk sveit nái að blanda
sér í toppbaráttuna. ís-
lenska liðið verður skipað
Hannesi Hlífari Stef-
ánssyni, Helga Áss
Grétarssyni, Helga Ól-
afssyni, Jóhanni Hjart-
arsyni, Margeiri Péturs-
syni og Þresti Pórhalls-
syni. Liðsstjóri verður
Ágúst S. Karlsson og
þjálfari, einsog áður, sjálf-
ur Gunnar Eyjólfsson
leikari og yfirskáti...
Könnun Félagsvísinda-
stofnunár leiddi í Ijós
að mjög hátt hlutfall kjós-
enda Alþýðuflokksins ætl-
ar að greiða Guðrúnu
Agnarsdóttur atkvæði
sitt, og nýtur hún einungis
meiri vinsælda hjá kvenn-
alistakonum. Samkvæmt
könnuninni hefur Ólafur
Ragnar Grímsson 44,1
prósent fylgi hjá alþýðu-
flokksmönnum, Guðrún
Agnarsdóttir hefur 28,8,
Pétur Kr. Hafstein 22 og
Ástþór Magnússon 5,1.
Fylgi Péturs hefur nokkuð
aukist í Framsókn en Ólaf-
ur hefur sem fyrr yfir-
burðastöðu á þeim bæ:
60,3 prósent framsóknar-
manna fylgja honum nú
en 19,2 prósent styðja
Pétur. Þá er ekki að sjá að
Ólafur hafi verið umdeild-
ur í Alþýðubandalaginu,
alltjent hefur hann stuðn-
ing 76,7 prósenta af fylg-
ismönnum flokksins en
Pétur aðeins 4,7. Meðal
sjálfstæðismanna er Pétur
kominn með 60,5 prósent,
Ólafur hefur tæp 22 og
Guðrún 13,6...
F
Igær sendi aðalbækistöð
Ólafs Ragnars Gríms-
sonar frá sér símbréf þar-
sem fjármál framboðs
Péturs Kr. Hafstein
voru gerð að umtalsefni.
Vitnað var i sjónvarpsvið-
tal við Pétur, þar sem
hann neitaði staðhæfing-
um um að fólk á hans
vegum byði fyrirtækjum
kvittanir fyrir fjárframlög-
um sem gerðu fyrirtækj-
unum kleift að draga
framlögin frá skatti. Hann
kvað þetta tilhæfulausar
aðdróttanir, en Ólafsmenn
spyrja í símbréfinu hvern-
ig hann geti fullyrt nokkuð
í þá veru, með hliðsjón af
því að hann hafi áður sagt
að hann komi sjálfur ekk-
ert nálægt fjármálum
framboðsins. Þá segja Ól-
afsmenn tvískinnung að
Pétur hafi sagt í upphafi
baráttunnar að hann vildi
ekki vita hverjir legðu
fram fé til baráttunnar, en
hafi síðan efnt til fjáröfl-
unarkvöldverðar á föstu-
daginn þarsem hann hitti
þá sem styðja hann fjár-
hagslega...
FarSido" oftir Gary Larson
Og þú þykist vera indíáni!
f i m m
f ö r n u
v e g
Q| Hvaða lið leika til úrslita í Evrópukeppninni í knattspyrnu?
Sigrún Margrét skrifstofu-
maður: Englendingar vinna
Frakka 2-1.
Pétur Pétursson Ijós-
myndari: Ég held að það
verði Þjóðvetjar og Frakkar, en
ég vona þó að Englendingar
komist í úrslit.
Guðni Elísson bók- Walter Reataza tónlistar-
menntafræðingur: Ég vona maður: Frakkar vinna Þjóð-
að Frakkar vinni Englendinga í verja í vítaspymukeppni.
úrslitaleiknum.
Birgir Björgvinsson skrif-
stofumaður: Frakkar og
Englendingar, og vona að
Tjallinn hafi þetta loksins
með marki frá Alan Shearer.