Alþýðublaðið - 26.06.1996, Side 8
mtfpi
# Jl
Alla daga
Frá Stykkishólmi
kl. 10.00 og 16.30
Frá Brjánslæk
kl. 13.00 og 19.30
Bókiö bíla meö
fyrirvara í síma
438 1120 og
MHÐUBLMÐ
Alla daga
Frá Stykkishólmi
kl. 10.00 og 16.30
Frá Brjánslæk
kl. 13.00 og 19.30
Miðvikudagur 26. júní 1996
92. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Jakob Bjarnar Grétarsson varð vitni að því í gær þegar Ólafur Skúlason biskup tilkynnti afsögn sína í
opnunarræðu á prestastefnu 1996. Afsögnin tekur þó ekki gildi fyrr en eftir eitt og hálft ár
Kynferðisleg áreitni ógeðsleg
- sagði Ólafur Skúlasonog gagnrýndi framgöngu fjöl-
miðla harkalega vegna ásakana á hendur sér.
„Ég hef ákveðið að sækja um lausn
frá embætti mínu áður en aldursmörk
gera skylt. Ég hyggst gegna embætti í
hálft annað ár enn,“ sagði Ólafur Skúla-
son biskup íslands í setningarræðu sinni
á Prestastefnu 1996 í gær.
Ótrúlega neikvæð
umfjöllun fjölmiðla
Ræðu Ólafs var beðið með mikilli
eftirvæntingu í Digraneskirkju í gær og
menn urðu ekki fyrir vonbrigðum. Bisk-
upinn boðaði tíðindi í ræðu í ræðu sinni.
Hann benti á að árið 2000 væri á næsta
leyti og hefði mikinn viðmiðunarþunga
fyrir kirkjuna sem og áhrif í lífi einstak-
linga. æðingarár mitt til dæmis veldur
því að ég gæti ekki verið í þjónustu
kirkjunnar þetta stóra ár. Að öðru jöfnu
myndi ég láta af embætti ári fyrr. Það
sjá allir að ekki verður gott fyrir nýjan
biskup að koma að hátíðahöldunum án
þess að hafa haft hönd í bagga með und-
irbúningi og nokkurs aðdraganda,“
sagði Ólafur Skúlason þegar hann út-
skýrði tildrög og ástæður afsagnar sinn-
ar. Það vekur nokkra athygli að afsögn-
in tekur ekki gildi fyrr en eftir eitt og
hálft ár. Ólafur segir að á borði sínu séu
stór verkefni, svo sem ábyrgð sem hon-
um hafi verið falin á vegum Lúterska
heimssambandsins sem á fimmtíu ára
afmæli næsta sumar. Þá telur Ólafur
ekki farsælt að efna til biskupskosninga
núna ofan í þá umræðu sem verið hefur
undanfarið. „Það skal líka viðurkennt að
ásakanimar á hendur mér og ótrúlega
neikvæð umfjöllun í sumum fjölmiðlum
hefur haft sín áhrif. Þótti mér það slá-
andi dæmi um ástandið og stöðu mína
að ekki virðist einu sinni hægt að undir-
búa forsetakosningar án þess að nafn
rnitt sé dregið inní umræðuna með lítt
þægilegum hætti. Ég vona að þessi
ákvörðun mín um starfslok stuðli að
friði innan vébanda kirkjunnar og utan
hennar einnig.“
Biskupstárin beisku
Heimildarmenn Alþýðublaðsins í
prestastétt áttu von á nokkmm átökum á
prestastefnunni en sögðu síðar í samtali
við blaðið að með þessu útspili hafi Ól-
afúr „borið ohú á úfið hafið", svo vitnað
sé í einn prest sem ekki vildi láta nafns
síns getið. Ólafi gæti því orðið að ósk
sinni þar sem hann segir í ræðu sinni:
„Það fer ekki svo mörgum sögum af
Kópavogi, hvorki hvað kirkju áhrærir
né þjóðmál önnur í sögu lands og lýðs.
Þó er bömum enn kennt um Kópavogs-
fundinn og tárum vökvaða kinn bisk-
upsins. Býður mér þó í grun ekki sé
vandlega skyggnst undir yfirborð þeirrar
frásögu. Vitanlega vona ég að sagan
endurtaki sig ekki á þessum fundi okkar
í Kópavogi hvað biskupstár áhrærir."
Ólafi Skúlasyni varð tíðrætt um
óvægna umfjöllun á hendur sér og ann-
arra í ræðunni. Hann segir það hafa ver-
ið sér „þyngri raun en orð fá túlkað að
vegna ásakana á mig hafa sóknarböm
horfið frá söfnuði sínum með því að
segja skilið við Þjóðkirkjuna. Að vísu
eru aðrar ástæður líka tilgreindar. Það
fer ekki á milli mála að ásakanir á hend-
ur biskupi og óvægin umfjöllun, svo
meira hkist árásum en hugaðri skoðun,
er skýring á því hvers vegna fólk hefur
snúið baki við kirkjunni og söfnuði sín-
um.“
Ólafur fjallaði um safnaðarstarf og
starf presta og tók dæmi af finnskum
prestum. Hann sagði vægi safnaða hafa
aukist en nauðsynlegt sé að benda á að
„þótt kjömefnd velji prest ræður hún
ekki yfir honum - hvað þá að sóknar-
nefndir ákvarði starfslok."
Stjórnarráðshúsið brúnt
og grænt
„Fjölmiðlaöld setur mikinn svip á
samfélagið og mótar það jafnvel meira
en við kærum okkur um að viðurkenna
oft og tíðum. Hinn gagnrýni fjölmiðill
er auðvitað nauðsynlegur en á honum
hvílir mikil ábyrgð,“ sagði Ólafur
Skúlason ennffemur um íjölmiðla. „Mér
þótti Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi
ffamkvæmdastjóri Alþýðusambandsins,
benda á viðkvæma staðreynd á þessu
sviði í ræðu sinni á þingi frjálsra félaga-
samtaka um daginn. Hann sagði fjöl-
miðla hafa meiri áhuga á því að aía á
spennu og benda á átök heldur en að
upplýsa. Sem dæmi tók hann til, ef hann
héldi því fram að Stjómarráðshúsið væri
grænt og annar að það væri brúnt,
myndu fjölmiðlar hefja upp umræðu um
átök þessara einstaklinga og skoðana-
ágreining í stað þess einfaldlega að gera
mann út af örkinni og ganga sjálfir úr
skugga um það hvemig Stjómarráðs-
húsið er á htinn.
Kirkjan og kirkjunnar þjónar höfum
orðið fyrir barðinu á þessari tilhneig-
ingu. Ég er ekki að afsaka hvorki mig né
aðra. Við eigum oft sök á því vindar
hefjast og blása næstum því allt um koll.
En vegna þessa ættum við að sýna meiri
varkámi en tíðkast. Annað atriði sem
einnig gjörbreytir stöðu prestsins er auk-
in umfjöllun um kynferðislega áreitni
og skýrari meðvitund um það í hveiju
Ólafur biskup Skúlason og séra Flóki Kristinsson heilsast stuttlega í upp-
hafi Prestastefnu.
Þjónar kirkjunnar ganga frá Menntaskólanum til messu í Dómkirkjunni. Ólafur Skúlason biskup gengur síðastur
sem hefur táknræna merkingu: Hann er þar í hlutverki góða hirðisins. Það vakti athygli að nokkrir prestar vildu
ekki taka þátt í göngunni.
hún felst. Það hefur lengi þekkst í henni
Ameríku, þar sem svo margt á upptök
sín, og hefur meðal annars leitt til þess
að kennarar og prestar ræða ekki við
nemanda eða skjólstæðing af gagnstæðu
kyni nema gæta þess að hurð sé opin og
einhver í kallfæri. Það sjá vitanlega allir
hversu erfitt þetta getur verið þegar um
trúnaðarmál er að ræða. En það gagnar
ekki lengur að segja að þetta sé svona í
henni Ameríku. Þetta hefur einnig áhrif
á störf presta á íslandi. Gæta þeir sín nú
á vanda mistúlkunnar. Margir hafa sagt
mér að þeir séu hættir að fara efitir því
sem kennt hefur verið í fræðum sálgæsl-
unnar, að tjá ekki aðeins samúð og
skilning með orðum heldur einnig snert-
ingu. Þeir séu hættir því af því að slíkt
getur misskilist."
Tortímingin virðist
æðsta keppikefli
Sjálfsagt hefur kynferðisleg áreitni
ekki oft borið á góma í setningarræðum
á Prestastefnu enda fór kliður um presta
og aðra viðstadda, en þama voru meðal
annaiTa Vigdís Finnbogadóttir forseti og
Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra,
þegar Ólafur sagði:,J>að fer ekki á milli
mála að kynferðisleg valdbeiting eða
áreitni er eitthvað það ógeðfelldasta og
ógeðslegasta sem þjakar mannlegt sam-
félag. Kynferðisleg misnotkun barna
veldur líka öllu heilbrigðu fólki miklum
áhyggjum enda vitum við það að mis-
notkun bams, sérstaklega af nánum ætt-
ingja eða þeim sem það hefur borið
traust til, hefur áhrif allt lífið. Það mótar
afstöðu til fólks af gagnstæðu kyni auk
þess sem það mótar veruleika alla ævi.
Kirkjunni ber að koma slíku fólki til að-
stoðar. Kirkjunni ber að sinna því ekki
síður en þeim öðrum sem eiga við
vandamál stríða. Og vitanlega eru þjón-
ar kirkjunnar ekki undanskildir ábyrgð,
misstigi þeir sig á þessu vandrataða ein-
stigi. Þessi mál eiga að hljóta umijöllun
án þess að vera borin á torg allt frá
fyrstu stundu enda er vonlaust að unnt
sé að ræða, græða, bæta, hvað þá sætta,
eftir að fjölmiðlar koma þar til vansa og
fara hamförum. Því má kirkjan heldur
ekki gleyma, því mega prestar ekki
gleyma, að sá sem ásakaður kann að
vera þjáist líka og getur liðið svo fyrir
að líf verður aldrei samt aftur. Ekki að-
eins af viðkomandi heldur líka fjöl-
skyldunni allri og vinahópi enda hefúr
yfirleitt verið gætt nafnleyndar. Það hef-
ur fram til þessa verið forðast að búta
myndir þegar svona mál koma upp af
tillitssemi við ijölskylduna. Jafnvel þó
sekt sé sönnuð og viðurkennd. Vitan-
lega eru til undantekningar á slfkri var-
fæmi eins og við ættum að hafa orðið
vör við þessa síðustu mánuði. Á þessu
sviði er kirkjunni mikill vandi á höndum
en henni ber að sinna kærleikshlutverki
sínu og auðvitað að forðast manngrein-
arálit. Hún verður líka að vera skjól þeg-
ar gerð er aðför að fólki, þar sem toitím-
ingin virðist æðsta keppikefli, sé ekki
látið af umfjöllunum og árásum þar sá
sakbomi liggur óvígur eftir."
Athugasemd
við fyrirsögn
í uppsláttarfyrirsögn á forsíðu Al-
þýðublaðsins í gær, þar sem vísað er í
viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson inni í
blaðinu, eru ummæli hans um hugsan-
lega aðild íslands að Evrópusamband-
inu offtúlkuð- Fyrirsögnin hljóðar svo:
„Ólafur Ragnar útilokar aðild Islands
að ESB“. Það gerir Ólafur hins vegar
ekki í viðtalinu þar sem stendur orð-
rétt: „Eins og grundvallarskipulag
EvrópuSambandsins er nú þá samrým-
ist aðild ekki efnahagslegum hags-
munum okkar. Hins vegar eigum við
nána menningarlega, stjórnmálalega
og viðskiptalega samleið með löndum
Evrópusambandsins. Kalt efnahags-
legt mat segir að við höfum ekki hags-
muni af því að ganga í Evrópusam-
bandið." Forsíðufrétt Alþýðublaðsins
hefur þar að auki vafasamt fréttagildi,
þar sem Ólafur Ragnar hefur látið
þessa skoðun í ljós í ræðu og riti í
fimm ár og ítrekað hana aðspurður í
kosningabaráttunni.
Kosningamiðstöð Ólafs Ragnars
Grímssonar.
Athugasemd ritstj.
Ekki er ljóst hvaða tilgangi athuga-
semd Kosningamiðstöðvar Ólafs
Ragnars Grímssonar þjónar, enda þarf
tæpast að útskýra fyrir lesendum að
einungis er um að ræða orðhengilshátt
og útúrsnúninga. Ef Ólafur Ragnar
Grímsson segir að kalt mat sitt sé að
það samrýmist ekki hagsmunum ís-
lendinga að ganga í Evrópusambandið
- þá er hann væntanlega, sem þjóð-
hollur maður, andvígur aðild. Ef Ólaf-
ur Ragnar telur að fslendingar eigi
íremur að beina sjónum til Asíu en til
„gömlu nýlenduveldanna" í Evrópu -
þá er hann væntanlega andvígur aðild
að Evrópusambandinu. Ef Ólafur
Ragnar Grímsson er samkvæmur
sjálfum sér - og hann greiddi mena að
segja atkvæði gegn samningi um Evr-
ópskt efnahagssvæði - þá er hann
væntanlega andvígur aðild að Evrópu-
sambandinu. Ekki er ljóst afhverju
viðhorf Ólafs Ragnars til ESB eru
skyndilega svona viðkvæmt mál - líti
hann svo á, einsog sumir menn aðrir,
að málið sé ekki á dagskrá væri mun
heiðarlegra að segja það beint út.