Alþýðublaðið - 27.06.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐU BLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚNl' 1996
s k o ð a n i r
MÍYBVBUIBIB
21133. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Fleipur Ólafs
Einstök háttprýði hefur einkennt framgöngu Ólafs Ragnars
Grímssonar í kosningabaráttunni. Reyndar finnst mörgum að for-
setaframbjóðandinn Ólafur Ragnar eigi lítið sameiginlegt með
þeim Ólafi Ragnari sem til skamms tíma var einn umdeildasti
stjómmálamaður landsins, orðlagður fyrir dómhörku og óbilgimi.
Batnandi manni er best að lifa, og ánægjulegt er að fylgjast með
vaxandi fæmi Ólafs í umgengni við fólk, hófstillingu hans og
yfirvegun.
En þótt Ólafur hafi tekið undraverðum framfömm á skömmum
tíma skortir ennþá eilítið uppá að hann hafi tileinkað sér hin fínni
blæbrigði mannlegra samskipta. Þannig skrikaði honum illa fótur
í fyrradag og hafði uppi innistæðulaus stóryrði og dylgjur í út-
varpsviðtali um Alþýðublaðið. Tilefnið var ansi kyndugt: Al-
þýðublaðið birti langt og ítarlegt viðtal við Ólaf - sem hann las
vandlega yfir fýrir birtingu. í viðtalinu var Ólafur meðal annars
spurður um afstöðu sína til aðildar íslands að Evrópusamband-
• inu. Hann sagði: „Kalt efnahagslegt mat segir að við höfum ekki
hagsmuni af því að ganga í Evrópusambandið og ég er þeirrar
skoðunar að við getum náð meiri pólitískum áhrifum á alþjóða-
vettvangi utan þess.“
Lummubakstur
r
Olafs Ragnars
Ólafur Ragnar Grímsson forseta-
frambjóðandi hefur í gegnum tíðina
ekki leynt skoðunum sínum á Evrópu-
sambandinu; hann er á móti því. Það
hefur þó ekki alltaf verið ljóst hvers
vegna. Ólafur - og Alþýðubandalagið
í heild sinni - voru á móti Evrópska
efnahagssvæðinu, en fylgjandi fjór-
frelsinu (í orði kveðnu í það minnsta).
Undir forystu Ólafs Ragnars vildi Al-
þýðubandalagið því breyta EES í tví-
hliða samning. Sem sagt: EES án
þeirra stofnana sem samningnum
fylgja. Þetta var ekki sérstaklega raun-
sæ hugmynd og átti rætur sínar að
rekja til þarfar Alþýðubandalagsins til
einingar í þessu stóra máli. Þessi ein-
ing var þó yfirborðsleg og alls ekki
líkleg til að halda þegar á reyndi, enda
ristir andstaða fólks á borð við Hjör-
leif Guttormsson gegn Evrópusam-
bandinu dýpra en þetta. Ólafur Ragnar
hafði sitt fram innan Alþýðubanda-
lagsins varðandi EES, en sá sigur var
Pyrrhosarsigiu- til lengri tíma litið.
Þetta veit Ólafur Ragnar jafn vel og
ég. Og þetta veit Mörður Ámason líka
og skrifaði um það fræga blaðagrein.
Ég er viss um að Mörður er meira en
til í að rifja þetta allt saman upp í síðar
í góðu tórm út á nesi, hvort sem það
verður nú Álftanes eða Seltjamames.
Umræðan um Evrópumálin hér á
landi er satt best að segja á lágu plani.
Það má spyrja sig hvernig hún geti
verið annað meðan forsætisráðherra
þjóðarinnar endurtekur delluhug-
myndir lítils hóps breskra íhalds-
manna um ESB í hverri ræðunni og
viðtalinu á eftir öðm. Þessi sérvisku-
hópur - sem félagi þeirra í íhalds-
flokknum kallaði „bunch og political
have beens and political never will be-
es“ - hefur vakið athygli á málstað
sínum vegna stöðu sinnar í breskum
stjómmálum og er nú á góðri leið með
að gera íhaldsflokkinn óhæfan til
stjórnarsetu. Málflutningur þessara
sérvitringa - hvort sem er í breskum
stjómmálum almenn - þykir hins veg-
ar góð latína uppi á íslandi og í sér-
stöku uppáhaldi illa lesinna ungtyrkja
í Heimdalli. Og hjá Davíð Oddssyni
auðvitað.
Öll umræða um Evrópumálin verð-
ur að byija á einni einfaldri staðreynd.
Island er aðili að Evrópska efnahags-
svæðinu og sem slíkt hefur það tekið
upp lungann af tilskipunum ESB í ís-
lenska löggjöf. Á þessar tilskipanir
hafði ísland auðvitað enginn áhrif. Og
það sem meira er: ísland hefur skuld-
bundið sig til að gera slfkt hið sama í
framtíðinni án þess að hafa nein áhrif
á innihald þeirra tilskipanna sem í
framtíðinni munu berast frá Bmssel.
Páll Pétursson er því í hlutverki pósts-
ins frá Bmssel að flytja tillögur á Al-
þingi sem hann er í aðalatriðum ósam-
mála.
Þetta ástand ætti auðvitað að vera
tilefni alvarlegrar umræðu um sam-
skipti íslands og Evrópu. Engin slík
umræða á sér þó stað. Álþýðuflokkur-
inn heldur uppi samræðum við sjálfan
sig um málið og einstaka hagsmuna-
samtök í atvinnulífinu hafa unnið
skipulega að málinu. Eins og fyrri
daginn bregðast stjómmálaflokkamir;
ESB er of eldfimt mál til að höndla og
því er best að þegja.
Framlag Ólafs Ragnars forsetafram-
bjóðanda til þessarar umræðu í Al-
þýðublaðinu síðasta þriðjudag felst í
því að hræra upp gamalt deig og hefja
lummubakstur af kappi. Þar er talað
um „gömlu nýlenduveldin" sem kom-
in séu að fótum ffam í samanburði við
Asíu; þröngsýni Evrópusinna og að
Evrópa sé andstæð efnahagslegum
hagsmunum Islands. Allt eru þetta
gamlar lummur. Viðbrenndasta
lumman er líklega sú að ísland hafi
meiri áhrif á alþjóðavettvangi utan
ESB en innan. Þessi hæpna fullyrðing
hefur aldrei verið rökstudd af neinu
viti. Áhrif á hvaða mál? Hvernig?
Misskilningurinn í þessari fullyrðingu
er sá að líta á samrunaþróunina í Evr-
ópu sem ufipríkismál í hefðbundnum
skilningi, þegar ljóst er að hér hverfur
að mestu hefðbundinn greinarmunur á
utanríkismálum og innanríkismálum.
Spumingin um aðild fslands að ESB
er því ekki síður spuming um þróun
íslensks samfélags og áhrif okkar á
eigin mál eins og tengsl okkar við er-
lend ríki.
Líklegast þurfum við nýja kynslóð
stjórnmálamanna til að takast á við
Evrópumálin og hræra deigið upp á
nýtt. Enn um sinn verðum við að gera
okkur lummurnar að góðu. Þegar
kemur að embætti forseta íslands er
það líklega óumflýjanlegt, í það
minnsta hefur ekki komið ffam fram-
bjóðandi sem lýsir yfir stuðningi við
sameinaða Evrópu og náin tengsl okk-
ar við hana. Þetta þarf ekki að koma á
óvart. I engum málaflokki er skýrari
fylgni á milli aldurs og skoðana en í
Évrópumálum. Þessi staðfeynd segir
sína sögu. ■
Þessi afdráttarlausu ummæli voru tilefni eftirfarandi fyrirsagnar
Alþýðublaðsins: „Ólafur Ragnar útilokar aðild íslands að ESB“.
Ekkert er við þau vinnubrögð að athuga; ekki er um að ræða túlk-
un blaðsins heldur endursögn á orðum Ólafs. En því miður varð
þessi fyrirsögn til að setja taugakerfi frambjóðandans algjörlega
úr skorðum. Hann réðst á Alþýðublaðið með gífuryrðum um
óvönduð vinnubrögð, og lagðist jafnvel svo lágt að gefa í skyn að
ritstjóri blaðsins væri í vinnu hjá öðrum frambjóðanda.
Nú er ekki óeðlilegt þótt taugakerfi frambjóðandans sé þanið til
hins ítrasta, eins þótt hann sigli hraðan byr til Bessastaða sam-
kvæmt skoðanakönnunum. En yfirlýsingar Ólafs eru enganveg-
inn samboðnar verðandi forseta lýðveldisins. Alþýðublaðið óskar
Ólafi Ragnari velfamaðar, og lætur í ljós þá einlægu von að hon-
um takist að hemja skap sitt, og halda áfram námi í háttprýði og
kurteisi.
Útspil Ólafs
Ólafur Skúlason biskup hefur nú tilkynnt að hann ætli að láta af
embætti eftir eitt og hálft ár. Með þessu reynir biskup að lægja
öldur innan Þjóðkirkjunnar, en þar hefur ríkt sannkallað umsát-
ursástand síðustu misseri. Ólafur hefur jafnframt sagt að ásakanir
í hans garð um kynferðislega áreitni og umfjöllun fjölmiðla um
þau mál eigi mikinn þátt í ákvörðun hans. Biskup gagnrýndi
reyndar fjölmiðla mjög harkalega í ræðu sinni á prestastefnu, og
sagði meðal annars: „Það skal líka viðurkennt að ásakanir á
hendur mér, og ótrúlega neikvæð umijöllun í sumum íjölmiðlum,
hefur haft sín áhrif. Þótti mér það sláandi dæmi um ástandið og
stöðu mína að ekki virðist einu sinni hægt að undirbúa forseta-
kosningar án þess að nafn mitt sé dregið inn í umræðuna með
óþægilegum hætti.“
í Morgunblaðsviðtali í gær segir Ólafur að hann sé ekki samur
maður eftir þá umfjöllun sem verið hefur síðustu mánuði um per-
sónu hans og meintar ávirðingar. Þá ítrekar hann gagnrýni sína á
fjölmiðla og segir: „Ég hef lent í því að þurfa að kvíða fyrir
hverjum fréttatíma útvarps og sjónvarps og ég hef staðið mig að
því að bíða eftir blöðum með skelfingu, ekki bara DV heldur
Morgunblaðinu stundum líka.“ Vitanlega hefur Ólafur biskup
gengið í gegnum mikla þolraun, en það sama á við um íslensku
þjóðkirkjuna. Það er fráleitt að skella skuldinni á fjölmiðla, en
svosem ekki nýtt að vegið sé að sendiboðanum. Þá vekur nokkra
furðu að Ólafur skuli tilkynna afsögn sína með átján mánaða fyr-
irvara: Telji biskup á annað borð að tilefni sé til afsagnar á hann
auðvitað að hætta strax, en sitja áfram ella. ■
Eins og fyrri daglnn
bregdast stjórnmáia-
flokkarnir; ESB er
of eldfimt mál til að
höndla og því er best
að þegja. Framlag
Ólafs Ragnars for-
setaframbjóðanda
til þessarar umræðu
í Alþýðublaðinu
síðasta þriðjudag
felst í því að hræra
upp gamalt deig og
hefja lummubakstur
af kappi.
Atburðir dagsins
1648 Amgrímur Jónsson lærði
lést, um 80 ára. Hann samdi
vamarrit gegn lastskrifum um
ísland. 1693 Fyrsta kvenna-
blaðið í heiminum lítur dagsins
ljós. Það hét Lady Mercury.
1921 Staðfest lög um að veita
útlendingum ríkisborgararétt á
íslandi. 1925 Lög um manna-
nöfn staðfest. Samkvæmt þeim
var bannað að taka sér ættar-
nafn. 1954 Fyrsta kjarnorku-
verið er opnað í Obninsk í Sov-
étríkjunum. 1957 Enski rithöf-
undurinn Malcolm Lowry
deyr, 48 ára. Þekktastur fyrir
skáldsöguna Under the Volc-
ano. 1976 Sex Palestínumenn
ræna franskri farþegaþotu og
neyða flugstjórann til að fljúga
til Entebbe í Úganda. 1990
Bob Dylan hélt tónleika n
Laugardalshöll.
Afmælisbörn dagsins
Lúðvík XII 1462, franskur
konungur. Karl IX 1550,
franskur konungur. Helen
Keller 1880, bandarískur
kennari blindra og heyrnar-
lausra; rithöfundur.
Aldur dagsins
Menn verða ekki gamalmenni
fyrr en þeir sakna í stað þess að
þrá. J. Barrymore.
Spjarir dagsins
Spakur er spjaralaus maður, sé
hann spurður úr þeim, en
heimskur er hinn, sem fer óum-
beðinn úröllu.
Guðbergur Bergsson; Flateyjar-
Freyr.
Annáisbrot dagsins
Vinnumaður á Tjöm í Svarfað-
ardal fannst dauður í fjárhúsi
með snæri um hálsinn; voru
menn í efa, hvort sjálfur hefði
farið sér eður einhver annar,
því snærið var reyrt inn í háls-
inn og hnýtt að, en þó eigi
iengra en sem naumast næði
um háls honum.
Mælifellsannáll 1680.
Máisháttur dagsins
Kotra og kanna gera margan
fátækan manna.
Orð dagsins
Karlamagnús keisari dýr
kenndi trúna hreina,
aldrei liann fyrir aftan kýr
orustu hdði neina.
Þórður á Strjúgi Magnússon;
úr Fjósarímu.
Skák dagsins
Svarta drottningin er í uppnámi
í skák dagsins, en örlög hvíts
em ráðin. Maric hefur svart og
á leik, en Nikollc nokkur stýrði
hvítu mönnunum: skákin var
tefld í Júgóslavíu sálugu árið
1965.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Bg3! 2. Hxf6 Hel Skák
og mát!