Alþýðublaðið - 27.06.1996, Síða 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
FIMMTUDAGUR 27. JUNI 1996
„Ég held einfaldlega að það sé ekki hægt að sameina vinstri menn. Ég sagði það við Vilmund á
sínum tíma og hef sagt það við Jón Baldvin. Ég get nefnt ákveðið fólk sem er reiðubúið að ganga
inn í sameinaðan flokk en það er fólk sem ég vildi aldrei vera í flokki með."
sameina vinstri menn. Það er hið arg-
asta kjaftæði vegna þess að miklu nær
væri að taka ftjáslyndari arm Alþýðu-
flokksins og stækka hann með því að
fá til liðs ftjálslynt fólk af miðju stjóm-
málanna.
Ég held einfaldlega að það sé ekki
hægt að sameina vinstri menn. Ég
sagði það við Vilmund á sínum tíma
og hef sagt það við Jón Baldvin. Ég
get nefht ákveðið fólk sem er reiðubú-
ið að ganga inn í sameinaðan flokk en
það er fólk sem ég vildi aldrei vera í
flokki með.
Það er margt fólk sem gæti hugsað
sér að kjósa Alþýðuflokkinn, að
minnsta kosti stundum, því hann hefur
góða stefnu. Ég held að Evrópustefha
flokksins hafi fleytt honum mjög í síð-
ustu kosningum, en þeir sem kusu
hann þá eru margir þeirra sem gætu
ekki hugsað sér að vera í vinstra
flokki.“
Kaiistu Alþýðuflokkinn í síðustu
kosningum?
„Þér kemur það ekkert við.“
Það var mjög kalt á milli ykkar Jóns
Baldvins á tímabili.
„Það em hlutir sem ég vil ekki rifja
upp og ætla ekki að gera, enda skiptir
þeir engu í dag. Ég sagði einhverju
sinni í viðtaii miður falleg orð um Jón
Baldvin. En mér hefur alltaf fundist
hann vera mikill stjómmálamaður - og
ég segi það enn. Svo er hann náttúr-
lega bráðskemmtilegur og mikill sjar-
mör.“
Þannig að það er sátt á milli ykkar
núna?
, Já, við emm góðir vinir.“
Hvemig finnst þér hann hafa staðið
sig sem formaður Alþýðuflokksins?
„Ég hef ekki fylgst með því og veit
því ekkert um það. En sem utanrfkis-
ráðherra og pólitfkus, sem maður horf-
ir á utanfrá, þá hefur hann staðið sig
mjög vel. Ég fylgdist með frammi-
stöðu hans í EES-viðræðunum og þar
vann hann gífurlega gott verk. Hann er
einnig óhræddur við að reka kröftuga
Evrópustefnu og hefur þar staðið sig
mjög vel.“
Evrópusambandið
- flott samtök
I viðtali í Alþýðublaðinu við Ólaf
Ragnar kemur fram að hann er ekki
ýkja hrifinn af hugmyndum um að Is-
lendingar gangi í Evrópusambandið.
„Nú, ég hélt að hann hefði sagt að
aðrir frambjóðendur væm einangrun-
arsinnar. Það kemur svosem engum á
óvart að Ólafúr Ragnar skuh hafna að-
ild að Evrópusambandinu, en það sem
kemur fólki kannski á óvart er að hann
skuli segja það vegna þess að hann
hefur sagt svo fátt undanfama mánuði.
En Ólafúr Ragnar hefúr náttúrlega allt-
af verið einangrunarsinni. Hann var á
móti EES-samningnum. Hann var á
móti þátttöku í starfi vestrænna ríkja.
Ég hef ekki getað séð að þar fari mað-
ur sem vilji að Island eigi mikið sam-
starf við erlend ríki.“
En nú vill hann að íslendingar efli
samskipti við aðrar heimsálfur, eins og
til dœmis Ast'u.
, Ja, hvernig ætlar hann að gera það?
Það er staðreynd að öll ríki heims em
að efla viðskipti við Asíu, þar er hag-
vöxturinn mestur. Það væri eitthvað
einkennilegt ef við ætluðum ekki að
gera það líka. Ég skil ekki hvað það er
sem Ólafur Ragnar heldur að sé nýtt í
því sem hann er að segja
Þú ert mikill Evrópusinni.
„Já, mér finnst Évrópusambandið
afskaplega flott samtök. Menn mega
ekki gleyma megin markmiði sam-
bandsins er að halda of efla frið í álf-
unni. Sambandið setur sér sameigin-
legar reglur og hvort sem mönnum lfk-
ar betur eða verr þá munu þetta verða
þær leikreglur sem íslendingar verða
að leika eftir. Þá er það skoðun mín að
það sé betra að eiga þátt í að móta
þessar reglur. Ef þú vilt láta í þér heyra
og hafa áhrif þá verður þú að vera
með. Smáþjóðimar í Evrópusamband-
inu telja það mikilvægara fyrir sig að
vera þátttakendur í Evrópusambandinu
en stórþjóðimar telja það vera fyrir sig.
Það er vegna þess að smáþjóðirnar
telja sig þar með geta haft áhrif, geta
komið málum til leiðar sem þær ella
gætu ekki. Þetta finnst mér mjög um-
hugsunarvert fyrir þjóð eins og okkur
sem er ekki smáþjóð heldur örþjóð."
Já, en við búum við þannig ríkis-
stjóm að hún virðist ekki líkleg til að
taka þessi rök góð og gild.
„Ég veit það. Þannig að fólk er
nokkuð ráðalaust. En að lokum verða
stjórnmálamennirnir að beygja sig
undir vilja fólksins hvort sem þeim lík-
ar betur eða verr. Stundum tekur það
langan tíma en vilji fólksins sigrar að
lokum.“
Heldurðu sem sagt að þrýstingur al-
mennings verði til þess að málið verði
tekið á dagskrá.
„Ég er að segja að það gæti farið
þannig. Stjómmálamenn hafa sagt að
þeir vilji ekki taka máhð á dagskrá fyrr
en eftir ríkjaráðstefnuna eða eftir þetta
og eftir hitt. Ég held að það sé fyrir-
sláttur. Ég held að sumir áhrifamiklir
menn vilji ekki segja eins og Ólafur
Ragnar að þeir séu á móti aðild að
Evrópusambandinu. ‘ ‘
Ég er ennþá BJ-ari
í útvarpsþœtti fyrir einhverjum vik-
um varstu spurð um afstöðu þína til
Davíðs Oddssonar og þú komst þér
undan að svara. En það litla sem þú
sagðir benti til þess að þér vœri ekki
sérstaklega mikið um manninn.
„Ég sé enga ástæðu til að tjá mig um
Davíð Oddssson."
En hann er forsœtisráðherra lands-
ins og ætti að vera þess virði að um
hann féllu nokkur orð í viðtali eins og
þessu.
„Það er mjög ljóst að í þeim málum
sem ég tel skipta mestu máli fyrir
þjóðina þá er ég eindreginn andstæð-
ingur Davíðs Oddssonar.“
Þér finnst hann þá varla góður
stjómmálaður, eða hvað?
„Ég er enginn sérstakur aðdáandi
Davíðs Oddssonar, ef það er það sem
þú vilt endilega heyra.“
Mér er sagt að í pólitík hafi bœði
íhald og kratar biðlað til þín.
„Ég held að þetta sé nú nokkuð orð-
um aukið. Gamlir samherjar föður
míns ganga að því sem vísu að ég sé
sjálfstæðismanneskja og alþýðuflokks-
menn ganga að því vísu að ég fylgi Al-
þýðuflokknum. Ég hef einu sinni verið
í stjómmálaflokki sem ég var ánægð
með og hann hét Bandalag jafnaðar-
manna. Og ég er ennþá BJ-ari.“
Gœtirðu hugsað þér að snúa þér al-
farið að stjómmálaafskiptum?
„Það er ekki á dagskrá.“
Nú talarðu eins og Davíð Oddsson
um Evrópusambandið.
„Maður lærir nú ýmislegt."
Þú hefur búið erlendis í tíu ár.
Segðu mérfrá starfi þínu.
„Núna vinn ég fyrir EFTA sem er
forstöðumaður í einni af þremur deild-
um í Brussel. Starfið í Brussel snýst
um að aðstoða ríkisstjórnir Islands,
Noregs og Lichtenstein við að við-
halda EES-samningnum sem er ein-
stakur að því leyti að hann er síbreyti-
legur. Deildin sem ég veit forstöðu sér
um samgöngumál, fjármálastarfsemi
og fyrirtækjarétt. Mitt starf er í því
fólgið að hafa yfirumsjón með sér-
fræðingum sem starfa hver í sínum
málaflokki. Þetta er mjög skemmtilegt
starf og gott í alla staði.“
Ertu á leiðinni heim?
, Já, ég fer heim 2. júlí.“
Að fara til Brussel er aðfara heim?
, Já, þá fer ég heim, að svo stöddu.“
Stendur til að koma alkomin til ís-
lands f nánustuframtíð?
„Nei, það er ekki á dagskrá frekar
en Evrópusambandið og stjómmálaaf-
skipti mín.“ ■