Alþýðublaðið - 09.07.1996, Page 3

Alþýðublaðið - 09.07.1996, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r r Sigur Olafs er ósigur jafnaöarmanna í kjölfar forsetakosninga hefur nokkuð verið rætt um þýðingu þeirra fyrir vinstri væng íslenskra stjórn- mála. Tveir ffambjóðendur sem koma úr röðum félagshyggjufólks fengu samtals hátt í sjötíu prósent atkvæða og hafa margir viljað túlka það sem vísbendingu um styrk vinstri hreyf- inga. Að mínu mati er þó afar vafa- samt að gefa sér það að línumar liggi á þennan hátt. Vissulega má segja að ef fylgi flokka og flokksbrota á vinstri Pallborðið Hreinn fcj. * Ba . Hreinsson skrifar væng er lagt saman kemur í ljós að styrkurinn er hátt uppi í þónokkuð en það er ekkert nýtt því þannig hefur það alltaf verið. Það er því afar mikil hræsni að sperra sig upp í sparifótun- um og gaspra um styrk hreyfingar sem hefur aldrei borið gæfu til að vinna saman. Félagshyggjuöflin á Is- landi hafa allt frá stofnun lýðveldisins ávallt verið með í kring um helming kjósenda á bak við sig þannig að það em engin ný tíðindi að þannig sé það í dag. Félagshygguöflin hafa hins vegar aldrei kosið að vinna saman sem ein heild og hafa misklíð og persónulegar deilur verið tilgangurinn sem helgar meðalið. Flokkamir hafa frekar kosið að vinna með hægri öflum í krafti þess að í þess konar stjómum er að finna rneiri völd fyrir einstaka flokks- menn og hefur sala kosningaloforða verið réttlætt með þeim hætti. Þetta pólitíska landslag hefúr síðan mótað lýðveldið þannig að það þjóð- félag sem við búum við í dag er skil- getið afkvæmi þessara bræðingshug- mynda og plásturspólitíkur sem notast hefur verið við í ísienskum ríkisstjóm- um. Þess vegna er hræsni að segja að Þess vegna er hræsni að segja að árangur Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðrúnar Agnarsdóttur sé sigur fyrir vinstri hreyfing- una. Þessi árangur er þvert á móti æpandi dæmi um það að sá samtakamáttur sem býr í félagshyggjufólki fær ekki að njóta sín í því flokkakerfi sem við búum við í dag. árangur Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðrúnar Agnarsdóttur sé sigur fyrir vinstri hreyfinguna. Þessi árangur er þvert á móti æpandi dæmi um það að sá samtakamáttur sem býr í félags- hyggjufólki fær ekki að njóta sín í því flokkakerfi sem við búum við í dag. Þess vegna er grátlegt að sjá fólk eins og Svavar Gestsson, Össur Skarphéð- insson og Jóhönnu Sigurðardóttur (dæmi tekin af handahófi) tala um þennan góða árangur, því hvað ætla þau sér að gera í kjölfar þessa og hvað hafa þau verið að gera síðustu árin. Þau em fulltrúar félagshyggjufólksins, sem kom svona sterkt fram í forseta- kosningunum, en samt em þau ekki að vinna saman í flokki. Þess vegna er það mitt mat að ekki sé hægt að túlka forsetakosningarnar sem merki um styrk vinstri manna. Mín túlkun á niðurstöðum þessara kosninga er sú að þetta sé enn ein sönnun þess að vinstri hreyfmgin er afar veikburða. Þetta segi ég vegna þess að hreyfmg sem er svona stór og inniheldur ótal manneskjur sem hafa mikið fram að færa í pólitík getur ekki unnið saman. Það fólk sem tilbúið er að styðja grundvallarhugmyndir jafn- aðarmanna hefur aldrei fengið kjósan- legan valkost og því hefur þessi stóri þjóðfélagshópur aldrei fengið tækifæri til að móta þjóðfélagið eftir sínu höfði. Hvemig væri nú að setjast aðeins nið- ur eins og fólk og ræða málin án þess að ráðherrastólar eða formannsemb- ætti séu til umræðu. Fömm að tala um pólitík og reynum að móta framtíðar- sýn fyrir fólkið í landinu sem ekki á fyrir mat vegna þess að jafnaðarmenn hafa aldrei getað unnið saman. Höfundur er félagsráðgjafi. h i n u m e g í n "FarSide" eftir Gary Larson Rithöfundurinn Friðrik Erlingsson skrifar nú af kappi viðtalsbók sem Vaka Helgafell hyggst gefa út fyrir næstu jól. Viðfangsefnið er Pétur prestur í Laufási sem vak- ið hefur athygli og aðdáun í erfiðum veikindum. Frægt er þegar sóknar- börn í Laufásprestakalli söfnuðu fé til kaupa á sér- útbúnum traktor um árið handa Pétri svo hann gæti slegið tún sín. Undanfarna tvo mánuði hefur Friðrik búið á Laufási, spjallað við Pétur og skrifað. Að auki er Friðrik með stóra sögulega skáldsögu i vinnslu en hún byggir á þekktum atburðum úr ís- landssögunrii. Bók Frið- riks, Vetrareldur, sem kom út um síðustu jól seldist vel þrátt fyrir misjafna dóma gagnrýnenda... r Ibúð í Húsi Jóns Sig- urðssonarí Kaup- mannahöfn er eftirsótt til dvalar og nú hefur úthlut- unarnefnd skipuð þeim Ólafi G. Einarssyni for- seta Alþingis, Róbert Trausta Árnasyni sendi- herra í Kaupmannahöfn og dr. Jakob Yngvason veitt sex fræðimönnum afnot af íbúðinni og er hún því frátekin til ágúst- mánaðar 1997. Þau sem fá íbúðina til afnota eru Drífa Pálsdóttir lög- fræðingur, Sveinbjörn Gizurarson lyfjafræðing- ur, Hrafnhildur Ragn- arsdóttir sálfræðingur, Eiríkur Rögnvaldsson málfræðingur, Ævar Pet- ersen dýrafræðingur og Jörundur Svavarsson líffræðingur. Umsóknir voru alls 36... inn margreyndi og snjalli blaðamaður Eg- ill Helgason, en hann hefur meðal annars starf- að hjá Alþýðublaðinu, hef- ur verið ráðinn til starfa við fréttastofu Stöðvar 2. Þó prentmiðlarnir hafi verið vettvangur Egils að mestu er hann ekki ókunn- ur Ijósvakamiðlum en hann starfaði fyrir margt löngu hjá Ríkissjónvarp- inu... Hallgrímur Helgason vikupiltur Alþýdu- blaðsins er nú kominn til landsins frá París og dvel- ur nú í íbúð rithöfunda- sambandsins í Hveragerði þar sem hann er að leggja lokahönd á skáldsögu sem Mál og menning gefur út fyrir næstu jól. Skáldsag- an hefur ekki fengið nafn ennþá en kvisast hefur út að hinum prúðu MM mönnum þyki sagan í klúrara lagi. Með dvöl sinni í Hveragerði fetar Hallgrímur í spor Indriða G. Þorsteinssonar, Jó- hannesar úr Kötlum, Gunnars Dals og Krist- manns Guðmundssonar sem þar hafa löngum set- ið að skriftum... Bíddu! Vægð!... Vægð!... Ég á konu, heimili, og rúmlega þúsund egg í sultunni! a Telur þú að Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson muni eiga farsælt samstarf? Ríkharður Björnsson líf- eyrisþegi: Já, ég tel að þeir geti aðlagast aðstæðum. Gígja Grétarsdóttir þjónn: Nei. Ekki farsælt en ég held að það gangi. Pétur Einarsson banka- maður: Já, það tel ég. Þeir leyfa sér það ekki að láta illa. Ásdís Schram flugfreyja: Þeir þurfa ekki að hafa neitt samstarf. Allavega í algjöru lágmarki. Baldur Stefánsson fram- leiðandi: Hveitibrauðsdagam- ir verða ekki spennandi en þeir gætu lært að elska hvor annan. m e n n Mjög vel. Mér finnst bara rosalega gaman. Þórhildur Þorleifsdóttir um nýja starfiö sem leikhússtjóri Borgarleikhússins. Moggi á laugardag. Kossarnir eru ekkert kák og það smellur í svo unun er að heyra. Nils Olson Gadde sænskur vísindamaður skrifaði þessa línu í dagbók sína á 19. öld um íslendingana. Lesbók Moggans. Það liggur nokkuð ljóst fyrir að kommagrýlan er dauð. Skúli Thoroddsen lögfræðingur um forseta- kosningarnar. Mogginn á iaugardag. Kommúnisminn er dauður og hefur verið það lengi. Þorvaldur Kr. Gunnarsson, Grettisgötu 58b. Mogginn á laugardag. Grikkinn Zorba veikur. Fyrirsögn í Mogganum á laugardag. Við nánari eftirgrenslan kemur í Ijós að það er bandaríski leikarinn Anthony Quinn, sem lék persónu Nikos Kasanzakis, sem er lasinn. Mogginn laugardag. Ert þú þessi hressa opna manngerð sem átt auðvelt með að umgangast fólk? Stúdíó Ágústu og Hrafns að auglýsa eftir starfskrafti í atvinnuauglýsingum Moggans á sunnudag. Hver skyldi trúa því, sem þekkir mig og hefur heyrt til mín undanfarna mánuði að ég hefði staðið alein með tárin í augunum fyrir framan sjón- varpsskerminn kosninganóttina og hrópað húrra af hrifningu fyrir Ólafi Ragnari Grímssyni og fjölskyldu. Lóa Konráðs, sem að vísu kaus Pétur Haf- stein, í hrifningarvímu vegna nýkjörins for- seta. Ölvun var nokkur en minni en oft áður. Það er rétt að hafa vaöið fyrir neöan sig og vera ekki of yfirlýsingaglaður. Á forsíöu DV í gær. Og víst er um það að einhverj- um hentar einmitt nú að frú Vigdís sé hálfgildings forseti áfram þegar Ólafur Ragnar tek- ur við embætti. Ingveldur Sigurðardóttir í DV í gær. forystugrein úr fortíð Blað veiðiþjófa Blað veiðiþjófa og landhelgisnjósn- ara, Morgunblaðið, hefir um hríð ver- ið að tala um landhelgisgæzlu. Úr forystugrein Alþýðublaðsins 21. ágúst 1937.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.