Alþýðublaðið - 17.07.1996, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n
Sameining hvers um hvað?
Ég hlýt að hefja þessi skrif á
þeirri afdráttarlausu fullyrðingu að
ég botna ekkert í umræðunni um
sameiningu „félagshyggjuaflanna",
„vinstrisinnaðra", eða hvað það er
nú nefnt hverju sinni. Þessi umræða
hefur samt dunið yfir látlaust um
nokkurt árabil - með mismiklum
krafti þó. Skilgreiningin á þessum
fyrirbrigðum, sem sameina á, virð-
ist all teygjanleg og alltént mjög
Pallborðið |
Björn
Arnórsson
skrifar
persónuleg. Þannig virtist eiga að
sameina Framsóknarflokkinn inn í
þennan söfnuð meðan hann var í
stjórnarandstöðu - hins vegar voru
nokkrar efasemdir um Alþýðu-
flokkinn, sem í þá tíð var í stjórn
með Sjálfstæðisflokki. Nú virðist
hins vegar enginn efast um það
lengur að Alþýðuflokkur, Alþýðu-
bandalag og Þjóðvaki séu í húsum
hæf, en nokkuð langt er síðan
Framsóknarflokksins hefur verið
minnst í þessu samhengi.
Forsetakosningar
og Reykjavíkurborg
Það er síðan hátignarlegt þegar
stjórnmálaspekingar setjast niður
með miklum spekingssvip og lesa
mikla vinstrisveiflu út úr kjörfylgi
Ólafs Ragnars Grímssonar til for-
setaembættis. Ætla ég að margir
vina minna úr Sjálfstæðisflokknum
sem kusu Ólaf verði ansi kindarleg-
ir við þá tilhugsun að með því hafi
þeir verið að lýsa stuðningi við eitt-
hvað sem heitir vinstri, félags-
hyggja eða jafnvel sósíalismi. Oll
slík hugsun á við jafn lítil rök að
styðjast og hugrenningar um að þeir
sem ekki greiddu Guðrúnu atkvæði
séu á móti jafnrétti kynjanna.
Sigur R-listans í Reykjavík hefur
ekkert inn í þessa umræðu að gera,
því í þeim kosningum var að meg-
instofni til tekist á um allt önnur
mál en í alþingiskosningum. Eru þó
margir óþreytandi í að benda á að
þar sé að finna fordæmi fyrir því að
kippa megi stoðum undan veldi
Sjálfstæðisflokksins á Alþingi.
En um hvað snýst málið?
Því get ég ekki svarað og efast
reyndar um að nokkur geti gefið
mér um það afdráttarlaust svar.
Sannleikurinn er nefnilega sá að
þessi umræða hefur verið ger-
sneydd allri pólitískri hugsun. Það
er talað um að sameina stjómmála-
flokka án þess að skilgreint sé um
hvað, og eins og fram hefur komið
eru menn ekki einu sinni með það á
hreinu hvaða stjómmálaflokka á að
sameina.
Enda eru hugtökin vinstri og fé-
lagshyggjumaður orðin ansi inni-
haldsrýr í nútímaþjóðfélagi - jafn-
vel svo að gamall trotskisti eins og
undirritaður hefur ekki minnstu
hugmynd um hvar hann stendur á
þessu sviði. Látum dæmin tala.
EES og ESB
í þessum málum báðum er ég
hjartanlega ósammála Alþýðu-
bandalaginu, og þar sem það virðist
samkvæmt einhverri yfirskilvitlegri
skilgreiningu talið vinstri sinnað,
þá er ég þar með væntanlega hægri-
maður. En bíðum við. Davíð Odds-
son er í þessari viðmiðun ansi
vinstrisinnaður - svo og sú fræga
Thatcher. Gamanlaust er staðreynd
að þetta mál verði seint notað til að
skilgreina hægri og vinstri í pólit-
ískri merkingu.
En hvað um sameiningu félags-
hyggjuafla? Ef við tölum í stjórn-
málaflokkum þá virðist næsta auð-
velt að sameina Alþýðubandalag,
Framsókn og stóran hluta Sjálf-
stæðisflokks og Kvennalista um
Sannleikurinn er lík-
legast sá að gamla
flokkakerfið er ekki
jafn úr sér gengið og
margir skyldu ætla.
þetta mál (sem allir hljóta nú að
vera sammála um að er ekkert smá-
mál). Alþýðuflokkur og Þjóðvaki
og einhverjir úr Kvennalista gætu
sameinast með hluta Sjálfstæðis-
flokksins á hinum vængnum. Og
segi nú hver sem vill hvor flokkur-
inn í því tvíflokkakerfinu væri til
vinstri eða til hægri.
Landbúnaður, kjördæma-
skipulag og fleira smálegt
Afstaða til landbúnaðar segir
ekki mikið meira um vinstri og
hægri en Evrópumálin. Ekki veit ég
hvort Alþýðubandalagið hefur skipt
um skoðun síðan Steingrímur var
landbúnaðarráðherra, en enn sýnist
mér að sameining mundi verða
milli Alþýðubandalags, Framsóknar
og stórs hluta Sjálfstæðisflokks, en
Alþýðuflokkur, Þjóðvaki og
Kvennalisti(?) auk hluta Sjálfstæð-
isflokks í hinum arminum.
I kjördæmamálinu er Alþýðu-
flokkurinn að ég best veit einn með
samþykkta stefnu um að gera land-
ið að einu kjördæmi. Hinir segjast
vera að gera upp hug sinn. Grund-
vallarmál, en hjálpar tæpast til að
skilgreina hægri og vinstri. Eða
hvað?
Auðlindaskattur eða stefna í sjáv-
arútvegsmálum og um eignarrétt al-
menninga - eigum við ekki að láta
staðar numið að sinni?
Ekki meir - ekki meir
Sannleikurinn er líklegast sá að
gamla flokkakerfið er ekki jafn úr
sér gengið og margir skyldu ætla.
Enda virðast kjósendur á þeirri
skoðun miðað við þátttöku í alþing-
iskosningum undanfarinna áratuga
að til nokkurs sé að vinna að efla
einn flokkinn á kostnað annarra.
Alltént er ég sannfærður um, að
ef um uppstokkun á því kerfi á að
verða þá verður hún aldrei á þann
hátt að einhverjir flokkar sameinist
í einn - ef til vill að undanskildum
Þjóðvaka og Alþýðuflokki, þar sem
erfitt er að finna raunveruleg pólit-
ísk ágreiningsefni milli flokkanna.
Ef um uppstokkun verður að ræða,
þá verður hún í kringum ákveðin
málefni og þá verður hún á þann
hátt að hlutar stjórnmálaflokka
sameinast hlutum annarra stjórn-
málaflokka gegn fyrri flokksbræðr-
um. Ætla ég að nokkuð megi ganga
á áður en sú stund rennur upp.
Það sem meira er, þá ætla ég bara
að vona að þessari ópólitísku um-
ræðu fari nú að linna. Því það
mundi skerða lýðræðislegan rétt
minn til kosninga ef Alþýðuflokk-
ur, Alþýðubandalag, Framsóknar-
flokkur, Kvennalisti og Þjóðvaki
mundu renna saman í einn stjórn-
málaflokk. Það mundi hreinlega
fækka möguleikum mínum til að
hafa áhrif á vægi ákveðinna þjóð-
mála. Þar eru til dæmis öll þau mál
sem ég hef nefnt í þessum pistli.
Hins vegar er allt annað mál að
ýmsir flokkar á Alþingi geta sam-
einast um að vinna að ákveðnum
þjóðþrifamálum. Gallinn er bara sá
að þeir geta líka sameinast um að
vinna gegn þeim.
Höfundur er hagfræðingur hjá BSRB.
Tíðindamenn Alþýðu-
blaðsins hafa bent blað-
inu á að það séu skemmti-
leg tengsl Framsóknar-
flokksins við eigendur
þeirra húsakynna sem fyr-
irhugað er að Landmæling-
ar íslands flytji í uppá
Skaga. Byggingafyrirtæki
sem heitir Metró-Áral á
húsið en stjórnarformaður
þess er Ómar Kristjáns-
son sem í seinni tíð er best
sem auglýsingaskelfir í ný-
afstöðnum forsetakosning-
um. Ómar er hálfbróðir
Guðmundar G. Þórarins-
sonar framsóknarmanns.
maður. Leikarar
eru frá ýmsum
löndum, meðal
annars íslandi:
Hilmir Snær
Guðnason, Ing-
var E. Siguð-
urðsson og Edda
Heiðrún Bach-
mann fara með
hlutverk í mynd-
sendur hafa gjörbreyst, inni. Margir íslendingar
samgöngur betri, tölvu- og koma einnig að tæknilegu
Innan rikisbatter-
ísins er Hagsýslu-
stofnun sem tók
þetta mál út árið
1994 og svo aftur
núna áður en
Guðmundur
Bjarnason fram-
sóknarráðherra
ákvað flutning-
ana. Nú munu for-
símasamskipti betri og síð-
ast en ekki síst þykja húsa-
kynni undir starfsemina nú
fýsilegri kostur. Sá sem
hefur yfir Hagsýslustofnun
ríkisins að segja heitir
Haukur Ingibergsson
framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins og fyrrum
poppari í hljómsveitinni
Upplyfting...
Nú standa yfir tökur á
kvikmynd hér á landi
sem framleidd er af Finn-
um og Frökkum. Finnsk
kona er leikstjóri og einnig
er finnskur kvikmyndatöku-
hliðinni og Snorri Freyr
Hilmarsson sér um leik-
myndina. Til stóð að Max
von Sydow færi með að-
alhlutverk í umræddri
mynd en af einhverjum
ástæðum varð ekki af því...
Fátt er um annað rætt
meðal þeirra sem til-
heyra, og vilja tilheyra, hin-
um íslenska aðli hverjum
verði boðið að vera við-
staddir þegar Ólafur
Ragnar Grímsson verður
settur í embætti í Alþingis-
húsinu 1. ágúst. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
forsætisráðuneytinu hefur
megninu af boðsbréfum
verið komið í póst. Þeir
sem ekki verða búnir að fá
boðskort á allra næstu
dögum geta því afskrifað
það fjörið. Ólafur Davíðs-
son ráðuneytisstjóri og
hans menn liggja á gesta-
listanum eins og ormar á
gulli enda er hér um fun-
heitt félagslegt atriði að
ræða...
Húmor í sinni frumstæðustu mynd.
Baldur Maríusson deildar-
stjóri: Þeirra vegna, já.
Sváfnir Hermannsson
verslunarmaöur: Já, eins og
pólitískt ástand er í dag þá
verða þeir að gera það.
Rannveig Möller kennari:
Nei, þeir geta ekki starfað
sarnan.
Guðrún Lárusdóttir hús-
móðir: Já, til að búa til einn
öflugan jafnaðarmannaflokk
verða þeir að gera það.
Guðlaugur Guðmunds-
son kennari: Já, það finnst
mér. Jón er svo sáttfús þessa
dagana að það ætti að geta
gengið.
m e n n
Jafnvel ættarnafnið Líndal
virkar framandlega í eyrum
sumra sem álykta að öll ættar-
nöfn hljóti að koma erlendis frá.
Þannig hafa menn tilhneigingu
til að misherya það sem væri
það Lyngdal. (Einnig hef ég
heyrt útúrsnúninga; svo sem
Ljóðdal, Ljótdal og Lindal.)
Tryggvi V. Líndal í DV í gær.
Með þessu er óbeint
verið að koma því inn hjá
fólki, að það eigi alltaf að vera
hresst, þótt slíkt ástand sé í
hæsta máta óeðlilegt. Eðlilegt er,
að fólk sé stundum hresst
og stundum ekki.
Jónas Kristjánsson um ofnotkun Islendinga
á Prósaki í leiöara DV í gær.
Svo virðist sem vitneskjan
um að DV væri að vinna frétt
um málið hafi komið því til
leiðar að Matthías fékk þessar
25 þúsund krónur.
Frétt í DV í gær. Ómissandi fjölmiðiil.
„Standandi Iófaklapp“,
sem á að tákna fögnuð og
sérstaka viðurkenningu fyrir
frábæra frammistöðu, er reynd-
ar mjög ofnotað eins og margt
annað í eftirhermum manna
á útlendum siðum.
Gunnar Stefánsson í leikdómi um Stone
Free undir fyrirsögninni „Hvorki fugl né
fiskur". Tíminn í gær.
Sverrir er þekktur fyrir
sína þrumuraust og beiska
penna, en í viðtalinu talar hann
af mikilli hógværð og virðingu
um laxveiðarnar.
í frétt Tímans af viðtali Sportveiðiblaðsins
viö Sverri Hermannsson. Tíminn í gær.
Alnetið er sífellt meira
til umræðu manna á meðal
og í fjölmiðlum.
Víkverji með á nótunum í Mogganum í gær.
Siðferðisboðskapur Ragnars
er sá, að maður eigi ekki að
gagnrýna vini, kunningja, forn-
vini, flokksfélaga, kórfélaga
eða nokkurn þann, sem maður
þekkir! Þarna kemur Ragnar
illa upp um bjagaða
siðferðiskennd sína,...
Halldór Halldórsson um Ragnar Kjartansson
og hiö óendanlega Hafskipsmál. Ætla menn-
irnir aldrei að þagna? Mogginn í gær.
Þeir voru scttir inn í skóla í einu
versta gettói Atlantaborgar.
Hilmar Þorbjörnsson hjá Lögreglunni í
Reykjavík um aðbúnað hinna hrekklaXisu ís-
lensku lögreglumannanna og ólympíufara
sem eru nú á heimleið. DV í gær.
Neysla þunglyndislyfja
hefur aukist til muna á síðustu
árum frá því að nýtt lyf kom
á markaðinn, Prósak.
Tíminn í gær er síðastur í langri röð fjöl-
miðla að benda á þá staðreynd, sem fram
kom í grein Gunnars Smára í Alþýðublaðinu
fyrir helgi, að íslendingar eru duglegastir
Norðurlandabúa að bryðja geödeyfðarlyf.
fréttaskot úr fortíð
Fyrir
kvenhatara
Eignist „Kvenhatarann“. Askriftum
veitt móttaka í síma 1269.
Alþýðublaðið,
28. febrúar 1923.