Alþýðublaðið - 26.07.1996, Síða 1
■ Fangelsismálastofnun
Fangelsismálastofnun krefst
ákæru á hendur Alþýðublaðinu
fangelsismálastjóra.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður Fangels-
ismálastofnunar staðfesti í samtali við blaðið í
gær, að hann hefði sent Ríkissaksóknara erindi
þess efnis, að opinber ákæra yrði gefin út, en
neitaði að öðru leyti að tjá sig um málið. Hall-
varður Einvarðsson ríkissaksóknari staðfesti að
kæran hefði borist, og sagði að hún hefði verið
send til rannsóknar hjá RLR. Málið barst Rann-
sóknarlögreglunni í vikunni og sagði Sigurbjöm
Eggertsson rannsóknarlögregluþjónn að áhersla
væri lögð á að hraða málinu.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Fangelsismálastofnunar,
krefst opinberrar ákæru á hendur Alþýðublaðinu og ritstjóra þess,
vegna skrifa um málefni fanga og Fangelsismálastofnunar. Ríkissak-
sóknari búinn að senda máliðtil Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Fangels-
ismálastofnunar ríkisins, hefur sent embætti Rik-
issaksóknari erindi þar sem þess er krafist að
gefm verði út opinber ákæra á hendur Alþýðu-
blaðinu og ritstjóra þess, Hrafni Jökulssyni,
vegna skrifa blaðsins um málefni fanga og Fang-
elsismálastofnunar. Ríkissaksóknari hefur sent
málið til Rannsóknarlögreglu ríkisins og verður
það tekið til meðferðar þar í næstu viku.
Samkvæmt upplýsingum frá Sigurbimi Egg-
ertssyni, hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, er
óskað eftir opinberri ákæm vegna tveggja greina
í Alþýðublaðinu. Annarsvegar er um að ræða
grein sem birtist 6. mars, merkt ritstjóra blaðsins,
þarsem meðal annars er fjaliað um þá ákvörðun
Fangelsismálastofnunar að skerða heimsóknar-
tíma til fanga úr sjö og hálffi klukkustund niður í
tvær. Opinber stefna í fangelsismálum er gagn-
rýnd harðlega í greininni, og sagt að hún miði
fremur að því að framleiða glæpamenn en draga
úr glæpum. Hinsvegar krefst Jón Steinar Gunn-
laugsson ákæm, fyrir hönd Fangelsismálastofn-
unar, vegna viðtals Alþýðublaðsins við Ólaf
Gunnarsson fanga í blaðinu 20. júní síðastliðinn.
Þar segir Ólafur meðal annars að ef almenningur
vilji harðari og verri afbrotamenn þá séu fangels-
in rétt rekin. Hann segir að Litla-Flraun sé upp-
eldisstöð fyrir glæpamenn og að fangar geti
nálgast eiturlyf af öllu tagi. Jafnframt fer hann
hörðum orðum um störf Haraldar Johannessens
■ Stjórn Alþýðuflokksfélagsins í Hafnarfirði héltfund í gærkvöldi. Þegar blaðið fór í prentun var
búist við að samþykkt yrði ályktun um að leitað verði eftir samstarfi vinstrimanna
Við erum búin'að fá nóg
- segir Sverrir Ólafsson stjórnarmaður í flokksfélaginu. Val-
gerður Guðmundsdóttir bæjarráðsmaður telur rétt að kalla
saman félagsfund áður en talað er um vilja flokksmanna.
„Við látum ekki troða uppí okkur
lengur. Við erum alveg búin að fá
nóg,“ segir Sverrir Ólafsson stjómar-
maður í Alþýðuflokksfélagi Hafnar-
fjarðar í samtali við AlþýðublaðiQ.
„Bæjarfulltrúamir em alltaf að biðja
um meiri tíma og meiri tíma, svo gera
þeir ekki rassgat við þennan tíma.
Málið er einfalt: Allir Hafnfirðingar
em orðnir brjálaðir. Og ef þessu verð-
ur ekki vísað til föðurhúsanna er
flokkurinn búinn í næstu kosningum.
Við ættum að vera búin að slíta þessu
samstaríi fyrir löngu,“ segir Sverrir.
í gærkvöldi var haldinn stjórnar-
fundur Alþýðuflokksfélagsins í Hafn-
arfirði og samkvæmt heimildum
blaðsins, rétt áður en það fór í prentun,
var nánast öruggt að samþykkt verði
ályktun þess efnis að leitað verði til
Alþýðubandalagsins varðandi bæjar-
stjórnarsamstarf í Hafnarfirði. Þar
með er lagt til að meirihlutasamstarfi
við Jóhann Bergþórsson og Ellert
Borgar Þorvaldsson verði slitið.
Óvíst er til hvers sú ályktun leiðir.
Valgerður Guðmundsdóttir benti á
það í samtali við blaðið að innan Al-
þýðuflokksins í Hafnarfirði em þrjú
félög: Alþýðuflokksfélagið, Kvenfé-
lag Alþýðuflokksins og Ungliðahreyf-
ingin. Yfir því er fulltrúaráð þar sem
formaður er Jóna Ósk Guðjónsdóttir.
„Þeir eru svoldið skondnir og taka
stórt uppí sig,“ segir Valgerður um
stjómarmenn í Alþýðuflokksfélaginu.
„Til dæmis hefur þetta ekki verið bor-
ið undir bæjarfullrúa, ekkert komið
fram í bæjarmálaráði flokksins þar
sem mál bæjarins em reifuð hálfsmán-
aðarlega og svo framvegis. Það er
ekki þeirra að vera í viðræðum við Al-
þýðubandalagið um þetta stjómarsam-
starf.“
Valgerður segir lágmark að bæjar-
arfulltrúar komi saman og ræði málin
og í framhaldi af því fulltúaráðið.
„Við emm ekki í neinum viðræðum,"
segir hún. „Þeir hafa að sjálfsögðu rétt
til að hafa sínar skoðanir, stjómin að
halda fund og álykta sem slfk. En hún
er ekki að álykta sem heilt félag án
þess að halda félagafund. Fyrr er ekki
hægt að tala um vilja flokksmanna.“
Sverrir Ólafsson segir vissulega rétt
að það sé ekki þeirra í stjóm Alþýðu-
flokksfélaginu að mynda nýjan meiri-
hluta. „En við ætlum svo sannarlega
að undirbúa jarðveginn."
Samkvæmt heimildum blaðsins er
mikill vilji meðal Alþýðubandalags-
manna að ganga til samstarfs við Al-
þýðuflokkinn í Hafnarfirði.
I stjóm Alþýðuflokksfélagsins em:
Magnús Hafsteinsson formaður, Haf-
rún Dóra Júlísdóttir, Sigurgeir Ólafs-
son, Jón Kr. Óskarsson, Erlingur
Kristensson, Sverrir Ólafsson, Garðar
Smári Gunnarsson og Ingi H. Guð-
jónsson.
Sjá forystugrein á blaðsíðu 2
„Kunningi Vikupilts dagsins
kom að máli við hann um
daginn og hafði ófagra sögu
að segja ..." segir Guðmund-
ur Andri Thorsson
á blaðsíðu 2
Ragnar Þorsteinsson
kennari segir sitthvað af
æskudögum, kynnum sínun
af skáldunum Jóhannesi úr
Kötlum og Jóni frá Ljárskóg
um í bráðskemmtilegu viðtc
við Harald Jóhannsson
hagfræðing. Blaðsíða 4
Eleanore Marx bjó yfir
miklum pólitískum hæfileik-
um enda dóttir föður síns.
Um hana sagði Karl gamli:
„Hún er ég... “ En hún varð
ekki hann - óhamingjusamt
einkalíf lagði hana í gröfina
fyrir aldur fram. Blaðsfða 5
Prófaðu hann til dæmis með:
bökuðum baunum,
brúnuðum lauk og spældu eggi,
kartöflusalati og fersku grænmeti
eða skerðu hann í lida bita og
útbúðu spennandi sumarsalat.
Notaðu
i piparköku-
? mótið og buðu
til fiskönd, fisksvín, fiskblóm
eða annað sem börnin vilja helst.
TAKTU EFTIR NYJA UTLITINU