Alþýðublaðið - 26.07.1996, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
skodanír
Þótt ég glaður vildi
koma þá kemst ég ekki til
að hylla nýjan forseta en ég bið
að heilsa honum.
Kristján Jóhannsson söngvari
í Morgunblaðinu í gær.
Afraksturinn var sex
þorskar og þrjár ýsur.
Kristján Elíasson stýrimaður á Sigli að segja
frá aflabrögðum í Smugunni. Mogginn.
Hægt verður að ættleiða
brasilísk börn í gegnum Inter-
netið frá og með næstu viku.
Frétt í DV.
Ég hefði viljað fá léttari
andstæðing sem hefði verið
raunhæft að ég ynni.
Enn rignir guilkornum frá íslenskum Ólymp-
íuförum. Þetta var Elsa Nielsen sem var
bökuð í badminton strax í fyrstu umferð.
Viðureignin tók aðeins 12 mínútur. DV.
Ef að sé og af að mundi
átján höfuð af einum hundi.
Ef að mundi og ef að sé
átján höfuð af einu fé?
Svar Magnúsar Jóns Árnasonar
foringja allaballa í Hafnarfirði, þegar
blaðamaður Tímans spurði hvort Alþýðu-
bandalagið væri reiðubúið í meirihluta
með Alþýðuflokknum.
Búið er að birta gestalista og
nú eru margir að búa til annan
lista yfir þær forstandspersónur
sem ekki eru boðnar. Þær kváðu
vera þónokkrar og sumar
í vondu skapi.
Oddur Ólafsson að velta fyrir sér boðsgest-
um við embættistöku herra Ólafs Ragnars
Grímssonar. Tíminn í gær.
Sá furðulegi misskilningur
hefur komið fram að kirkjan
eigi að koma þolendum kynferð-
islegs ofbeldis tii hjálpar.
En til þess hefur hún hvorki
fræðilega þekkingu né með-
ferðalega tækni. Starf hennar
er á öðru sviði. Annað vegur þó
miklu þyngra á metunum.
Sjálfsbjörg og spennufall
Ritstjóri Skutuls á ísafirði,
Gfsli Hjartarson, var
farstjóri með hafnfirska
hestamenn í júlí. Leiðin lá yf-
ir Glámuheiði frá Botni í
Dýrafirði, að Gjörvudal í ísa-
firði í Djúpi í vitlausu veðri
og þoku, um 50 kílómetra
leið yfir fjöll og firnindi.
Skömmu seinna sagði Gísli
frá ferðinni í Svæðisútvarpi
Vestfjarða, og kvaðst hafa
verið þrettán tíma á hestþaki
og hefðu bæði menn og
hestar verið úrvinda þegar í
Gjörvudal í ísafirði var kom-
ið. Aðspurður kvaðst Gísli
ekki hafa komið á hestbak í
heilt ár fyrir ferðina, og væri
alltof langt að sitja á hest-
baki í þrettán tíma eftir slíka
hvíld. Ferðin hefði verið farin
á mánudegi og nú væri
föstudagur, og væri hann
enn með hestinn í klofinu.
H.K. á Flateyri orti í tilefni af
þessum orðum ritstjórans:
Finnst mér von að varist þú,
og viljir gjarnan bíða -
en þrettán tíma þarftu nú
þrotalaust að riða.
Við höfum þegar sagt frá
því að Vigdís Gríms-
dóttir gefur út skáldsögu
hjá Iðunni í haust. En hún
lætur þar ekki staðar numið,
því við heyrum að ennfrem-
ur sé von á barnabók frá
hennar hendi. Vigdís hefur
sent frá sér skáldsögur, smá-
sögur og Ijóð en þetta verð-
urfyrsta barnabókin hennar.
Ekki þarf að fjölyrða um met-
sölu á bókum Vigdísartil
þessa og því verður fróðlegt
að sjá hvort hún slær líka í
gegn á barnabókamarkaðin-
um...
r
Ahugamenn um útgáfu-
mál á íslandi ræða nú
hvaða áhrif samruni Dags
og Tímas muni hafa á fjöl-
miðlamarkaðinn. Sagt er að
með þessu sé verið að „-
kítta" upp í öll hugsanl’eg
göt í markaðinum án þess
að fara út í alvöru sam-
keppni við Morgunblaðið.
Tilgangurinn sé meðal ann-
ars sá að aftra möguleikum
„alvöru" blaðs á því að
hasla sér völl, án þess þó að
nokkuð bendi til að slík út-
gáfa standi fyrir dyrum. Hlut-
hafar nýja fyrirtækisins eru
ákaflega bjartsýnir eins og
fram hefur komið og sam-
kvæmt heimildum Alþýðu-
bladsins áætla þeir ekki
minna en 50 milljón króna
hagnað af blaðinu fyrsta ár-
ið...
Töfrasýning Skara skrípó
hefur gengið verulega
vel og farið fram úr björtustu
vonum Loftkastalamanna,
þeirra ingvars Þórðarson-
ar, Halls Helgasonar og
Baltasar Kormáks. Þá hef-
ur leiksýningin Að sama
tíma að ári gengið vel. Á
næstu dögum munu æfing-
ar hefjast á nýju verki eftir
Þorvald Þorsteinsson sem
heitir Bein útsending. Baltas-
ar leikstýrir en með helstu
hlutverk fara Ingvar E. Sig-
urðsson, Benedikt Erlings-
son, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Edda Arnljótsdóttir...
Ný úrræði í atvinnumálum
Jónas Haraldsson talar í leið-
ara DV um batnandi atvinnu-
ástand og Vinnuklúbba fyrir
fólk í atvinnuleit:
Atvinnuástand á landinu batnaði
verulega milli mánaðanna maí og
júní eins og fram kom í yfirliti frá
félagsmálaráðuneytinu. Hið sama
á einnig við ef miðað er við júní í
fyrra. Atvinnulausum í heild fækk-
aði að meðaltali um tæplega 21
prósent frá maímánuði en hefur
fækkað um nær 30 prósent frá því
í júní í fyrra.
Önnur
sjónarmiö |
Þessi þróun er mjög ánægjuleg.
Atvinnulausum fækkar meðal
karla og kvenna og í öllum lands-
fjórðungum. Hlutfallslegt atvinnu-
leysi er nú 3,6 prósent en var 5,1
prósent á sama tíma í fyrra. Aukn-
ar framkvæmdir í þjóðfélaginu og
aukin eftirspurn ráða mestu um
þessa þróun. Því er spáð að enn
dragi heldur úr atvinnuleysi í júlí
og það verði á bilinu 3,1 til 3,5
prósent.
Nú er lag að koma þeim til
vinnu sem geta unnið. Því hefur
verið haldið fram að eins og ástatt
er í þjóðfélaginu nú sé atvinna fyr-
ir alla sem vilja vinnu. Vandinn er
hins vegar sá að þeir sem lengi
hafa verið atvinnulausir geta átt
erfitt með að rífa sig upp úr sínu
fari. Þessa aðila verður að aðstoða
til sjálfsbjargar. Því ber að fagna
nýjum úrræðum í atvinnumálum,
tilraunaverkefni félagsmálaráðu-
neytisins og Reykjavíkurborgar
um svonefndan Vinnuklúbb fyrir
fólk í atvinnuleit.
Vinnuklúbburinn er ætlaður
þeim sem eru að leita sér að vinnu,
einkum þeim sem lengi hafa verið
atvinnulausir. í skýrslu vinnuhóps
ráðuneytisins og borgarinnar kem-
ur fram að almennt er viðurkennt
að kjarkur og frumkvæði atvinnu-
lausra minnkar eftir því sem lengra
líður á atvinnuleysið. Tölur sýna
að ný störf sem skapast á vinnu-
markaði virðast ekki koma í hlut
þeirra sem lengst hafa verið at-
vinnulausir.
Verkefni þetta hefst um næstu
mánaðamót og stendur í eitt ár. Að
loknum þriggja mánaða undirbún-
ingstíma verður Vinnuklúbbnum
komið á laggirnar. Tilraunaverk-
efni þetta miðast við að á þriggja
vikna fresti verði myndaður 15
manna hópur atvinnulausra sem
síðan leitar sér að vinnu með að-
ferðum Vinnuklúbbsins. Vinnu-
klúbburinn er byggður á erlendri
fyrirmynd. Hann starfar þannig að
þeir sem eru að leita sér að vinnu
hittast undir stjórn sérhæfs ráð-
gjafa og starfa í hópi að vinnuleit.
Hópurinn hittist daglega í þrjár
vikur. Að þeim tíma liðnum er gert
ráð fyrir því að flestir hafi fundið
starf. Reynsla ytra sýnir 62-95 pró-
senta árangur. Eftir þrjár vikur er
stofnaður nýr klúbbur og þeir sem
ekki hafa fengið vinnu fara þá
sjálfkrafa í nýja hópinn. Enginn
fær þó að vera í Vinnuklúbbi leng-
ur en í 13 vikur.
Spennufall í fjölmiðlaheimi
Tryggvi V. Líndal fjallar í DV
um afdrif ísienskra fjölmiðla eft-
ir að kalda stríðinu lauk:
Fróðlegt er að skoða afdrif
vinstrimanna á íslandi eftir að
kalda stríðinu lauk. Vil ég nefna
hér nokkur dæmi úr fjölmiðla-
heiminum.
Fyrsta stórmerkið varð er dag-
blaðið Þjóðviljinn; málgagn Al-
þýðubandalagsins, hætti að koma
út: Væntanlega vegna þess að
áskrifendum þess þótti vinstri-
stefnan minna spennandi eftir fall
Sovétríkjanna, með tilheyrandi
spennufalli í íslenskum stjórnmál-
"FarSide” eftir Gary Larson
„Hey! Þú þarnal... Já, það er rétt! Ég er að tala við ÞIG!"
Áhugi almennings á pólitískum skrifum
minnkaði, og hefur það trúlega stuðlað að
uppgjöf sumra vinstrisinnaðra rithöfunda.
Einnig minnkaði áhugi dagblaða á að birta
greinar um heimspólitíkina.
um. Enda gátu þeir nú ekki lengur
tekið þátt í að upphefja sína menn,
á kostnað hægri manna, með sama
hætti og tíðkaðist fyrir fall járn-
tjaldsins.
Um svipað leyti var Almenna
bókafélagið að missa flugið, enda
samsvarandi minnkun á þörf fyrir
hetjusköpun á hægri vængnum.
Dagblaðið Tíminn fór nú endan-
lega á hausinn, sem og tímaritið
Þjóðlíf.
Áhugi almennings á pólitískum
skrifum minnkaði, og hefur það
trúlega stuðlað að uppgjöf sumra
vinstrisinnaðra rithöfunda. Einnig
minnkaði áhugi dagblaða á að birta
greinar um heimspólitíkina. ■
Sveinbjörn Sveinsson
borgarstarfsmaður: Nei, ég
nenni því ekki.
Ólöf Guðfinnsdóttir ferða-
fræðingur: Nei, ég verð ekki
íbænum.
Oddný Þóra Sigurðardótt-
ir húsmóðir: Nei, ætli ég
verði ekki á fæðingadeildinni.
Hafþór Sigþórsson vél-
stjóri: Nei, ég hef ekki ráðgert
það.
Sæmundur Norðfjörð
kvikmyndagerðarmaður:
Nei, ég ætla að vera með Mar-
íu á Þingvöllum og flagga í
hálfa stöng.
Henni er því ekki treystandi
í þessum efnum.
Sigurður Þór Guðjónsson
í Morgunblaðinu í gær.
fréttaskot úr fortíð
Sérstæð
sakamál
Rannsóknum er nú lokið
í smyglunarmáli „skófdtnaðar-
skipsins", og mun bráðlega verða
kveðinn upp dómur í því.
Alþýðublaðið,
13. nóvember 1924.