Alþýðublaðið - 26.07.1996, Page 6

Alþýðublaðið - 26.07.1996, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ1996 BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 105 REYKJAVÍK SÍMI 563 2340 MYNDSENDIR 562 3219 Útvarpshúslóð við Efstaleiti 1. Auglýst er kynning á breyttri afmörkun lóðarinnar ásamt lóðarafmörkunum og skilmálum fyrir lóðirnar Efstaleiti 3, 5,7 og 9. Staðahverfi, deiluskipulag og skilmálar. Auglýst er kynning á skipulagi Staðahverfis sem sam- þykkt var í skipulagsnefnd 10. júní 1996 og borgarráði 25. júní 1996. Kynning á teikningum og líkani ásamt skilmál- um. Skógarhlíð, umhverfi og skipulag. Auglýst er kynning á skipulagi umhverfis Skógarhlíðar - afmörkun lóða. Egilsgata 5. Auglýst er tillaga að skipulagi lóðarinnar nr. 5 við Egils- götu þar sem gert er ráð fyrir sjálfsala á bensíni, bílastæð- um og grænu svæði. Ábendingum og athugasemdum vegna Skógarhlíðar og Egilsgötu 5 skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykja- víkur eigi síðar en 27. ágúst 1996. Kynningarnar fara fram í sal Borgarskipulags Reykjavíkur og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð kl. 9 - 16 virka daga og stendurtil 27. ágúst 1996. SUMARFERÐ VERKAKVENIMAFÉLAGS INS FRAMSÓKNAR verðurfarin laugardaginn 10. ágúst n.k. Farið verður dagsferð um Mýrdalinn og kvöldverður snæddurá Skógum (hlaðborð). Allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568-8930. Verkakvennafélagið Framsókn. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Vegna breytinga sem ganga í gildi 1. október 1996 á fyrir- komulagi á þjónustu við þá skjólstæðinga Trygginga- stofnunar ríkisins sem fá neyðarhnappa tengda símkerfi auglýsirTryggingastofnunin eftir aðilum, sem áhuga hafa á að taka að sér slíka þjónustu. Gert er ráð fyrir að samið verði við þá aðila sem uppfylla kröfur Tryggingastofnun- ar. Þjónustan felst í rekstri og eignarhaldi nauðsynlegs búnaðar (neyðarhnappa, upphringi- og móttökubúnaði), svarþjónustu allan sólarhringinn og viðbrögðum við neyðarköllum, t.d. að heimsækja þá sem neyðarboð senda og kalla til nauðsynlega hjálp. Upplýsingar um verkefnið verða afhentar hjá verkfræði- stofunni Rafteikningu hf. Borgartúni 17, 105 Reykjavík frá þriðjudegi 23. júlí 1996. Fyrirspurnum og athugasemdum um þjónustuna skal skila skriflega til sama staðar merkt „TR - Viðvörunar- kerfi/neyðarhnappar" í síðasta lagi 7. ágúst 1996. Öllum fyrirspurnum verður svarað skriflega innan viku þaðan í frá. Væntanlegir þjónustuaðilar skulu skila inn útfylltu þar til gerðu eyðublaði ásamt umbeðnum upplýsingum og öðru sem þeir vilja koma á framfæri eigi síðar en kl. 16 mánu- daginn 26. ágúst 1996 til verkfræðistofunnar Rafteikning- ar hf. Borgartúni 17, 105 Reykjavík merktu „TR - Viðvör- unarkerfi/neyðarhnappar - Þjónusta". ■ Samkvæmt úttekt í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins eru engin tengsl á milli auglýsinga forsetaframbjóðenda og árangurs í kosning- um. Ástþór Magnússon auglýsti langmest og fékk langfæst atkvæði, en sigurvegarinn Ólafur Ragnar auglýsti einna minnst Skipta auglýsin ar engu máli Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur: Þorpsidjótar á aug- lýsingastofum „Auðvitað þarf eitthvað að auglýsa, því menn þurfa að minna á sig, en auglýsingar lyfta engum Grettistök- um. Frambjóðandi verður fyrst og fremst að sýna sig og vera á meðal fólks. Fréttir af ferðum hans og gjörð- um í blöðunum hafa mikið meira að segja helduren auglýsingar. Menn em hættir að trúa á ógurlegar yfirlýsingar um ágæti einhvers - allar auglýsingar verka á mig einsog Hunt’s tómatsósu- auglýsingar. Menn geta ekki blandað saman forsetaffambjóðanda og tómat- sósu. Það hefur komið á daginn að auglýsingar hafa andskotann ekkert að segja, nema til að minna á. Mál verða ekki sótt með auglýsingum. I gamla daga þegar maður kom út á land spurði maður eftir þorpsidjótinu, en það voru menn sem sátu á háum tröppum við húsgafla og göptu uppí umferðina, vom eitthvað vangefnir og sérkennilegir. Þorpsidjótarnir eru horfnir úr þorpinu - en komnir á aug- lýsingastofurnar. Það er ekki mjög merkilegt lið sem er fengið til að fjalla um viðkvæm mál einsog persónu manna í framboði til forseta. I mínum augum er þetta allt tómatsósa." Atli Rúnar Halldórsson fréttamaður: Brosti til Péturs utaná strætó „Það er hreint og klárt að ekki er hægt að auglýsa sig inná Bessastaði. Kjósendur kærðu sig hreinlega ekki um að fá Astþór fyrir forseta. Pétur Hafstein styrkti sig í sessi með auglýs- ingum, og hann þurfti sannarlega á kynningu að halda. Auglýsingaherferð hans var vel heppnuð, þar var hamrað á skýmm atriðum, og maður varð fyrir áreiti af framboðinu hvar sem maður kom. Ég var nánast farinn að nikka til hans þar sem hann brosti til mín utaná strætó. Menn geta velt því fyrir sér hvort Olafur Ragnar hefði orðið forseti hefði hann ekki auglýst neitt. Ég held það. Þó auglýsingamar hafi ekki haft áhrif á úrslitin, urðu þær til þess að styrkja ímynd hans. Kosningaherferð- in var sérstök; Ólafur Ragnar var allt- af kynntur sem forseti en ekki fram- bjóðandi. Imynd þeirra hjóna var ímynd parsins á Bessastöðum. Það er varla hægt að færa rök fyrir því að auglýsingar í þessari kosningabaráttu hafi breytt einhvetju til eða frá. Aftur á móti er ég hræddur um að hinar aug- lýsingamar, þessar ljótu um Ólaf, séu komnar til að vera. Næst fara menn líklega fyrr af stað. Það sem stendur uppúr er sú taktík Alþýðublaðið Aðeins 950 krónur á mánuðiHringdu eða sendu okkur línu eða símbréf Ég óska eftir að gerast áskrifandi að Alþýðublaðinu Nafn Heimilisfang Bæjarfélag Kennitala Ég óska eftir að greiða með greiðslukorti númer: gíróseðli Gildir til: að hafa kynnt Ólaf sem forseta allan tímann. Það var eitursnjallt." Hallur Hallsson kynningarfulltrúi: Auðvitað skipta auglýsingar máli „Menn verða að gera sér grein fyrir hvaðan lagt er upp í kosningabaráttu. Hvar í samfélaginu menn hafa áður haslað sér völl, og hvort þeir þurfi al- mennt kynningar við. Ólafur Ragnar Grímsson bauð sig fram til embættis forseta fslands, með aldafjórðungs stjómmálaferil að baki. Pétur Hafstein var algerlega óþekktur. Skömmu áður en Pétur fór fram hafði verið gerð skoðanakönnun, þar sem hann var vart mælanlegur. Ég man að 8. maí fékk hann 9% en Ólafur Ragnar 75% en endanleg niðurstaðan varð 30 á móti 40. Auðvitað þurfti Pétur mikla kynn- ingu og í þessu tilviki vom auglýsing- ar nauðsynlegar. Það var sagt um kosningabarátta Ólafs Ragnars hún væri barátta þagnarinnar. Þjóðin þekkti Ólaf Ragnar fyrir, því þurfti hann að halda sér ífá sviðsljósinu. Þeir sem stóðu á bak við hans framboð töldu að þannig gæti hann haldið sér frá umræðum um umdeildan stjórn- málaferil. Það verður að hafa í huga hvaðan farið er af stað, Pétur Hafstein þurfti að nota öll tækifæri til þess að kynna sig. En auðvitað skipta auglýs- ingar máli.“ Vilhjálmur Þorsteinsson kerfisfræðingur: Auglýsingar kynna ekki persónur „Kosningabarátta fyrir forsetakjör er þess eðlis að ég held ekki að aug- lýsingar komi að miklu gagni. Aug- lýsingar eru aldrei markmið í sjálfu sér, heldur gegna þær því hlutverki að koma einhveiju til skila. Við forseta- kjör er fólk að velja sér persónu, og auglýsingar eru varla til þess fallnar að kynna persónu almennilega. Fólk vill sjá meira af frambjóðandanum, hitta hann í eigin persónu eða fylgjast með honum í sjónvarpi. Ég held þó ekki að af þessu megi álykta að auglýsingar gagnist aldrei í kosningabaráttu, því almennum upp- lýsingum er upplagt að koma á fram- færi með auglýsingum.“ Karl Th. Birgisson ritstjóri: Auglýsingar vinna ekki kosningar „Það veit enginn hvernig þessi kosningabarátta hefði þróast hefðu ekki verið auglýsingar. Menn vita jafnframt að auglýsingar vinna ekki kosningar. Skýrasta dæmið er Ástþór Magnússon. Annað dæmi er kosn- ingabarátta Péturs Hafstein. Hann var með góðar auglýsingar, sem hjálpuðu honum, en voru á endanum á skjön við þá ímynd sem fólk fékk af honum, meðal annars í sjónvarpi. Auglýsingar Guðrúnar Agnarsdóttur og Ólafs Ragnars styrktu þá ímynd sem fólk hafði af þeim fyrir. Og hjálpuðu til. En á endanum var það auðvitað fram- bjóðandinn, sem þjóðin valdi.“ Rósa Ingólfsdóttir auglýsingateiknari: Dáðist að herferð Ástþórs „Þessar auglýsingaherferðir eru óþarfar, vegna þess að þær eru steríl. Auglýsingar hafa verið staðnaðar í þijú eða fjögur ár og eru hættar að ná til fólks. Heilsíðuauglýsingar eru til dæmis útí hött, það verður að gera eitthvað sérstakt, eitthvað óvenjulegt. Almenningur er upplýstur og lætur ekki plata sig, svo auglýsingateiknarar verða að fara að vanda sig, nú duga engin ódýr trikk. Frambjóðandi verður auðvitað að standa undir þeirri mynd sem af honum er gefin, það þýðir ekk- ert að dressa Jón Jónsson uppí súp- ermanbúning. fslendingar eru orðnir svo sigldir; hafa gert víðreist um heiminn og hafa aðgang að fjölda- inörgum fjölmiðlum, og þeir vita hvað þeir vilja. Ég dáðist að auglýsingaherferð Ást- þórs Magnússonar, þó ég hafi auðvit- að kosið Ólaf Ragnar. Mér fannst and- legur þróttur þar á bak við, og auglýs- ingamar voru fallegar." ■

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.