Alþýðublaðið - 01.08.1996, Síða 1

Alþýðublaðið - 01.08.1996, Síða 1
Fimmtudagur 1. ágúst 1996 Stofnað 1919 113. tölublað - 77. árgangur „Þakka ykkur fyrir að vera þjóðin mín" ■ Mikil óánægja meðal starfsmanna Dags hvernig staðið hefur verið sameiningu Dags og Tímans og að ráðningu nýs ritstjóra Fylgjiim Degi til grafar - segir Óskar Þór Halldórsson sem seinnipartinn í gær vissi ekki hvertæki við starfi sínu. Vigdís Finnbogadóttir var hyllt af þúsundum manna fyrir framan Stjórnarrádið, síðdegis í gær, þegar hún lauk síðasta starfsdegi sín- um sem forseti íslands. Vig- dís var kjörin fyrir 16 árum en í dag tekur Ólafur Ragnar Grímsson við embætti sem fimmti forseti lýðveldisins. A-mynd: E.ÓI. „Við munum fylgja Degi til grafar eða þar til hann hættir að koma út í núverandi mynd. Nýr ritstjóri er nátt- úrlega ráðinn á nýtt blað en ekki á Dag,“ segir Óskar Þór Halldórsson rit- stjóri Dúgs í samtali við Alþýðublaðið í gær. Eins og ffam hefur komið í fréttum hafa bræðumir Óskar Þór og Jóhann Ólafur Halldórsson sagt upp störfum hjá Dagsprenti hf. I Degi í gær er upp- sagnarbréf þeirra birt og þar kemur fram að ástæða uppsagnarinnar er ekki hvað sfst vegna skorts á upplýsinga- streymi ffá eigendum til starfsmanna. í bréfinu segir meðal annars: „Þessi aðgerð hefur að hálfu meirihlutaeig- endanna aldrei verið borin undir okkur sem ritstjóra blaðsins og aðila sem starfað hafa inni í fyrirtækinu og verið í beinum tengslum við lesendur sjálfa. Sá trúnaður sem fram til þessa hefur ríkt milli okkar sem ritstjóra blaðsins og eigenda, og verið hefur einn lykill- inn að mjög bættum hag Dagsprents hf., er þar með brostinn." Þetta er ekki orðum aukið ef marka má orð Óskars en Alþýðublaðið talaði við hann seinni part dags í gær og þá vissi Óskar ekki enn hver yrði ritstjóri: ,,Ég get guðsvarið það að ég veit það ekki. Það hefur okkur ekki verið til- kynnt. Við höfum aldrei verið upp- lýstir um hver tekur við en okkur er tjáð að hann komi hér síðdegis. Jújú, auðvitað bíða menn spenntir að sjá nýjan ritstjóra. Það er nú annað hvort.“ Óskar segist ekki vera kominn svo langt að huga að öðrum verkefnum. „Það verður næsta verkefni," sagði hann. Óskar gerði jafnframt ráð fyrir þvr að það gæti tekið lengri tíma en menn hugðu að undirbúa útgáfu nýs blaðs. Stefán Jón Hafstein boðar nýtt og öflugt landsmálablað. ■ Nýjasti ritstjórinn Stefán Jón Hafstein ráð- inn ritstjóri Dags-Tímans Loksins hefur verið tilkynnt um nýjan ritstjóra Dags- Tímans. Stefán Jón Hafstein er þegar kominn norður til að taka við starfmu. Stefán Jón er menntaður ijölmiðlafræðingur og á að baki áralanga reynslu bæði sem út- varps- og sjónvarpsmaður. Stefán læt- ur þegar af störfum hjá Stöð 2 þar sem hann hefur starfað að undanförnu. Stefán Jón boðar nýtt og öflugt lands- málablað sem á að höfða til allra landsmanna, jafnt Reykvíkinga sem landsbyggðafólks. ■ Niðurskurður í heilbrigðismálum Aldrað fólk ósjálfbjarga í heimahúsum -segir í ályktun Öryrkjabandalagsins Geðsjúkir einstaklingar eiga ekki í nein hús að venda og lokun deilda kemur einnig niður á öldruðu fólki sem er ósjálfbjarga í heimahúsum. Þetta kemur fram í harðorðri ályktun sem stjóm Öryrkjabandalags Islands sendi frá sér í gær. „Niðurskurður í heilbrigðismálum er orðinn slíkur að ekki verður við það búið lengur,“ seg- ir Ólöf Ríkarsdóttir formaður. Öryrkjabandalagið krefst þess að stjómvöld tryggi aðhlynningu sjúkra og endurhæfingu fatlaðra verði sinnt. Grensásdeild er rekin með minna en háifum afköstum en hún er ómissandi hlekkur í endurhæfmgu fatlaðs fólks. Öryrkjabandalagið leggur þunga áherslu á að su endurhæfingaraðstaða sem fyrir hendi er verði nýtt og Grens- ásdeild tekin í fulla notkun. r ■ Olafur Ragnar Grímsson tekur við embætti sem fimmti forseti lýðveldisins Þjóðin sameinast um Ólaf Ragnar - segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðu- flokksins. „Efasemdir um að þjóðin sé sundruð eftir kosningarnar eru með öllu tilefnislausar." „Menntun Ólafs Ragnars, starfs- gegni starfi forsetans af þeim mynd- reynsla hans innan lands og utan, er ugleik sem til þarf,“ segir Jón Bald- hvort tveggja til þess fallið að vera vin Hannibalsson, formaður Alþýðu- góður undirbúningur í starf forseta flokksins. Jón Baldvin segir enn- Islands. Það er þyí engin ástæða til fremur um Ólaf Ragnar: „Hann hefur að ætla annað en Ólafur Ragnar í veganesti mikið fylgi meðal al- mennings á Islandi, eins og kosn- ingaúrslitin leiddu í ljós. Þjóðin mun sameinast um forsetann. Efasemdir um að þjóðin sé sundruð eftir kosn- ingamar og nái ekki að sameinast að baki forseta sínum eru því að mínu mati með öllu tilefnislausar. Ég óska þeim hjónum velfarnaðar í starfi á Bessastöðum." Ragnar Arnalds, þingmaður Al- þýðubandalagsins, segir: „Ég held að Ólafur Ragnar verði ágætur forseti. Ég kaus hann með góðri samvisku. Hann er margreyndur stjórnmála- maður, hefur mikla reynslu í erlend- um samskiptum og þau hjónin munu sóma sér afar vel á Bessastöðum." Jón Baldvin og Ragnar Arnalds eru í hópi þeirra einstaklinga sem Alþýðublaðið bað um að svara spumingunni hvernig forseti Ólafur Ragnar verði. Sjá baksíðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.