Alþýðublaðið - 02.08.1996, Síða 1
ÆT
■ Olafur Ragnar Grímsson
settur í embætti forseta Islands
Starfforseta
þjónusta við
þjóðina
- sagði Ólafur Ragnar í innsetningarræðu sinni.
Olafur Ragnar Grímsson var
settur í embætti forseta Islands
við hátíðlega athöfn í Alþingis-
húsinu í gær. I innsetningar-
ræðu sinni sagði Ólafur Ragn-
ar: „Það er einlægur ásetningur
minn sem forseti lýðveldisins
að tengja saman krafta og hug-
vit allra þeirra sem móta vilja
sýn þjóðarinnar til nýrrar aldar
og ræða þau markmið sem geta
sameinað hana til góðra
verka.“
Ólafur Ragnar gerði hlut
ungu kynslóðarinnar í mótun
íslensks nútímaþjóðfélags að
umtalsefni og sagði: „Sú kyn-
slóð kvenna og karla sem nú er
að útskrifast úr skólum er hin
fyrsta á íslandi sem hefur
heiminn allan að vinnusvæði...
Þá vaknar sú spurning hvort
okkur tekst að sigra í hinni al-
Þingmaöur sjálfstæðismanna, Árni
Johnsen, brunaði til athafnarinnar í
Dómkirkjunni á mótorhjóli og
kiæddur kjólfötum.
Meðan Ólafur Ragnar undirritaði
drengskaparheitið sat Davíð Odds-
son þungt hugsi.
þjóðlegu samkeppni um unga
fólkið á Islandi. Mun það kjósa
að búa með okkur hér í útsæn-
um eða afla sér viðurværis ann-
arsstaðar? Svarið ræðst af því
hvernig okkur, sem stöndum
fyrir ráðum, tekst að opna hug
okkar og setja þjóðinni hæfileg
markmið."
Ólafur Ragnar sagði í ræðu
sinni að brýnt væri að mynda
þjóðarvilja og trausta samstöðu
svo lífskjör allra íslendinga
gætu jafnast á við það sem best
gerist hjá nágrannaþjóðunum.
Undir lok ræðu sinnar sagði
Ólafur Ragnar: „Að rækta starf
forseta íslands er fyrst og
fremst þjónusta við þjóðina.
Einungis dómgreind, lífs-
reynsla og lifandi tengsl við
fólkið í landinu geta vísað for-
seta rétta leið í starfi.“
Ólafur Ragnar, fimmti forseti lýðveldisins, og Guðrún Katrín, eiginkona
hans, á svölum Alþingishússins, en mikill mannfjöldi var samankominn á
Austurvelli og hyllti þau hjón.
■ Von á 6 þúsund manns á
Siglufjörð
Einstaka íbúar
leggja á flótta
-segirTheodór Júlíusson, „en
flestir skemmta sér vel".
„Fólk fór að streyma inní bæinn í
gær,“ segir Theódór Júlíusson fram-
kvæmdastjóri Síldarævintýrisins á
Siglufirði í samtali við Alþýðublaðið.
Síldarævintýri hefur verið haldið í sex
ár á Siglufirði, við góðar undirtektir.
„Við eigum von á 4 til 6 þúsund
manns, í fyrra voru gestimir rúmlega
10 þúsund. Auðvitað em skiptar skoð-
anir um hátíðina; einstaka íbúar leggja
á flótta þegar bærinn fyllist af fólki, en
mikill meirihluti tekur þátt í skemmt-
uninni og hefur gaman af. Hátíðin hef-
ur til allrar lukku alltaf farið vel fram;
í bænum em nú ekki nema átta fanga-
klefar, sem hafa dugað okkur. Þeir
sem þá gista em helst að sofa úr sér,
alvarlegra er það ekki,“ segir Theodór.
■ 12 þúsund til Eyja
Ólátaseggir
með frímerki á
rassinum heim
-segir Björn Þorgrímsson.
Björn Þorgrímsson er frant-
kvæmdastjóri Þjóðhátíðarinnar í Eyj-
um. „Gestir eru óvenju snemma á
ferðinni í ár,“ segir Bjöm í samtali við
blaðið. „Við tökum þetta snemma hér
í Eyjum, því fjörið hófst strax á mið-
vikudagskvöld." Eyjamenn eiga von á
stórhátíð í ár, Bjöm giskar á að gest-
imir verði 12 þúsund. „f fyrra komu
um það bil 10.000 gestir á Þjóðhátíð,"
segir Bjöm, og bætir við: „hér hefur
alltaf verið haldin ein stærsta hátíðin
um Verslunarmannahelgina. Hér er
gífurlega margt um að vera sem laðar
fólk að, til dæmis flugeldasýningin,
brennan og síðast en ekki síst Arni
Johnsen í Brekkunni með sinn tíuþús-
und manna kór. Bjöm segist ekki hafa
miklar áhyggjur af ólátum þrátt fyrir
stórhátíð. „Svona vesen er búið - fyrir
nokkmm árum voru oft ægileg ólæti
og slagsmál á svæðinu, en það er sem
betur fer liðin tíð. Skemmdafíknin
hefur rénað. Við höfum stóreflt lög-
gæslu og gæslan í dalnum er öflug.
Auðvitað er misjafn sauður í mörgu
fé, og alltaf þarf að hafa afskipti af
einhverjum. En ólátaseggir fara í
steininn og svo með frímerki á rassin-
um heim,“ segir Bjöm.
16 þúsund á leið í Galtalækjarskóg
Hann vill engafordildí kring-
um sig hann Ólafur Ragnar
-segir Jón K. Guðbergsson.
„Gestir föru að streyma að strax
á miðvikudagskvöld. Við eigum von
á sem flestum... einhver nefndi töl-
una 5 tii 9 þúsund, en ætli 5 eða 6
þúsund sé ekki heiðarleg áætlun,“
segir Jón K. Guðbergsson formað-
ur mótsnefndar bindindismótsins í
Galtalækjarskógi. „Veðrið spilar
alltaf stóra rullu og spáin er rneiri-
háttar. Ég veit raunar ekki hvað
veðurfræðingar segja, hef hreinlega
ekki haft tima til að hlusta á þá, en
ég spái dásamiegu veðri sjálfúr. Svo
verðum við að sjá hvursu spámann-
lega ég er vaxinn. Óiafur Ragnar
hefur sagst ætla að heimsækja okk-
ur, sem við teljum mikinn heiður.
Hann verður þarna með sinni fjöl-
skyldu, einsog hver annar mótsgest-
ur. Hvort hann sefur í tjaldi eða fer
heim af'tur að kvöldi veit ég ekki, en
hér er enginn viðbúnaður. Vilji
hann gista verður hann að koma
með eigið tjald. Hann vill enga for-
dild í kringum sig hann Olafur
Ragnar,“ segir Jón K.
ÚTSALAN í fullum gangi
ENN MEIRI VERÐLÆKKUN
Mo/ afsláttur af flestum vörum
/o
Frábærl verð
benelfon Gerið góð kaup
Laugavegi 97, sími 552 2555