Alþýðublaðið - 07.08.1996, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
s k o ð a n i r
MJiBUBUBID
21154. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob BjarnarGrétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Úmbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
íslenskar hátíðir
í fyrrakvöld voru sýndar sjónvarpsmyndir frá Akureyri en þar
átti að vera mikið um dýrðir um verslunarmannahelgina. Engu
var líkara en sprengjuárás hefði verið gerð á þennan snotra bæ,
slíkur var sóðaskapurinn. Lögregla sagði frá yfirgengilegu fylleríi
unglinga og fullorðinna, fíkniefnasölu og slagsmálum; margar
ungar stúlkur höfðu leitað á sjúkrahúsið vegna nauðgana og
starfsmaður tjaldstæðis sagði að dauðadrukkið fólk hefði gert
þarfir sínar á víðavangi eftir að búið var að rústa hreinlætisað-
stöðu. Eftir þennan dapurlega vitnisburð var síðan rætt við boru-
brattan talsmann útihátíðarinnar sem hellti sér yfir fjölmiðla fyrir
að draga upp ranga mynd af ástandinu, og helst á honum að skilja
að þeir hefðu logið upp fréttum af nauðgunum, eiturlyfjasölu,
barsmíðum og óþrifnaði.
En það verður víst seint nokkru logið um menningarástand á ís-
lenskum útihátíðum. Þar byrja fjölmargir unglingar að neyta
fíkniefna, og er amfetamínbylgja þessa árs rakin til „hátíðahald-
anna“ í fyrra. Flestir sem standa fyrir útihátíðum virðast einfald-
lega líta á nauðganir og ofbeldi sem óhjákvæmilega fylgifiska
skemmtanahaldsins, enda er þeim ofar í huga að hafa sem mest fé
af samkomugestum, sem í sumum tilvikum eru nær einvörðungu
unglingar. Foreldrar virðast ekki sjá neitt athugavert við að senda
böm sín á samkomur af þessu tagi og virðist litið á það sem eins-
konar manndómsvígslu. Dagfari DV segir í gær að fullorðnir séu
miklu fremur til aðstoðar við skipulagningu á fíkniefnaveislunni,
„og segja má að helgin beri nafn með rentu því aldrei þrífst versl-
un með fíkniefni sem einmitt þessa daga sem unglingamir kynn-
ast óreglunni."
Skipuleggjendur hátíðarinnar sem kölluð er „Halló Akureyri“
ætla að halda ótrauðir áfram næsta ár. í viðtali við DV í gær segir
einn þeirra að bæta þurfí aðstöðu gesta, og jafnvel koma upp sér-
stöku tjaldstæði fyrir unglinga og „hafa það þá ekki alveg við
miðbæinn.“ Einhverjum finnst sjálfsagt tilvalið að koma upp get-
tói fyrir unglinga, þar sem þeir geta slegist, dmkkið og verslað
með fíkniefni án þess að það skeri í augu hinna eldri. En héraðs-
læknirinn á Norðurlandi eystra vill hinsvegar skera upp herör
gegn því sem hann kallaði í útvarpsviðtali „bamafyllerí á íslandi“
og sagði að væri þjóðarböl. Þótt læknirinn hafí sitthvað til síns
máls væri mikil rangt að einblína á háttemi unglinga á opinberum
samkomum verslunarmannahelgarinnar. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglu vom það yfirleitt fullorðnir menn sem ákærðir em
fyrir nauðganir á unglingsstúlkum, og það var fullorðið fólk sem
átti mestan þátt í að breyta Akureyri í svínastíu.
Ekki var allt á sömu bókina lært um verslunarmannahelgina.
Þannig gengu hlutimir stórslysalaust á Siglufirði, Galtalæk og
Vopnafirði þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá, sem
einkum höfðaði til fjölskyldufólks. Þar kom glöggt í ljós að vel er
hægt að smala íslendingum saman án þess að allt fari úr böndum
með voðaverkum og nauðgunum. Ætli Akureyringar að halda
samkomu á næsta ári þurfa þeir að vanda langtum betur til undir-
búnings. Skipuleggjendur „Halló Akureyri" hafa að minnsta kosti
nóg af mistökum til að læra af. ■
II heild er þessi sýning einhver ánægjulegasta frumsköpun
í íslensku leikhúsi sem ég hef lengi séð.
Gleðistund f skemmtihúsi
bestir þóttu þeir sem höfðu þann hæfi-
leika að herma eftir samferðamönnun-
um og draga upp lifandi myndir þeirra
atburða sem lýst var. Stfllinn á þessari
sýningu dregur nokkum dám af þess-
ari alþýðulist aldanna, en með slíkum
hætti að úr verður hinn ánægjulegasti
kokteill, gamalla hefða og framsæk-
innar, frjórrar nýsköpunar. í heild er
sýningin einhver ánægjulegasta trurn-
sköpun í íslensku leikhúsi sem ég hef
lengi séð.
Benedikt Erlingsson ber hita og
þunga leiksins og það með glæsibrag.
Mér hefur stundum fundist Benedikt
vera nokkuð stífur og þungur í leik
sínum. En nú bregður svo við að eng-
inn af veikleikum hans er sýnilegur.
Hann glansar í þessari sýningu, leikur
hans bæði hvað snertir framsögn og
líkamsbeitingu er agaður og áreynslu-
laus og greinilegt að Benedikt nýtur
þess sem hann er að gera og leikgleði
hans og kraftur hrífur áhorfandann
með sér og á ekki minnstan þátt í
hversu vel sýningin heppnast. Það er
freistandi að nota gömlu klisjuna um
leiksigur og víst er þetta glæsilegur
áfangi á ferli hans sem listamanns.
Halldóra Geirharðsdóttir er meira
baksviðs í sýningunni en skilar sínu
með mestu prýði. Tónlist hennar er
einföld og stílhrein og gefur sýning-
unni kraft og fyllingu.
Lýsing Þórðar Orra Péturssonar er
látlaus og heldur vel utanum sýning-
una.
Niðurstaða: Sýning sem lýsir af
sköpunargleði, aga og krafti og
útkoman er listaverk sem á erindi
til allra.
Verkefni: Ormstunga ástarsaga
Leikstjóri: Peter Engkvist
Leikari: Benedikt Erlingsson
Leikkona: Halldóra
Geirharðsdóttir
Aðstoðarleikstjóri:
Bára L. Magnúsdóttir
Ljósahönnun:
Þórður Orri Pétursson
Sýningarstaður:
Skemmtihúsið við Laufásveg
Enn bættist nýtt leikhús við þau
sem fyrir em á höfuðborgarsvæðinu.
A fimmtudag var Skemmtihúsið við
Leikhús
Arnór
Benónýsson
skrifar um
leiklist
Laufásveg 22 opnað með sýningu
Ieikhópsins Ormstungu á leikverkinu
Ormstungu ástarsögu. Verkið er
byggt á Gunnlaugs sögu Ormstungu,
ástarsögu þeirra Gunnlaugs, Helgu og
Hrafns fylgt og síðan spunnið í kring-
um þá atburðarás og leikaramir tveir
fara með öll hlutverk er við sögu
koma. I leikskrá er enginn skráður fyr-
ir handriti svo að það hlýtur að skrifast
á hópinn í heild. Það er hinsvegar hið
besta verk og þeim sem að því stóðu
til sóma. Sagnaarfurinn gamli hefur
ekki ratað inn í leikhúsið í verulegum
mæli og því er ánægjulegt að þetta
unga listafólk skuli sýna þann kjark að
taka efnið til meðferðar. En ánægju-
legast er þó hversu vel tekst til. Oft
hefur mér fundist þegar bókmennta-
verk eru tekinn til sýninga í leikhúsun-
um vilji það brenna við að menn fari í
sparifötin og hátíðleiki svífi yfir vötn-
um í meira mæli en æskilegt má telja.
Svo er ekki hér, leikgleði og húmor
ráða ríkjum, og ýmis nútímaleg minni
em svikalaust notuð, teiknimyndasög-
ur, sjónvarp og fleira. Allt er þetta gert
af aga, vandvirkni og listfengi svo úr
verður hin besta skemmtun. Undir
sýningunni var mér aftur og aftur
hugsað til Gerplu Halldórs Laxness
sem mér finnst ágætust bóka og besta
ádeila á hetjudýrkun og stríðsást sem
Islendingar eiga.
Leikstjórinn, Peter Engkvist, mun
vera einn af betri og þekktari leikhús-
mönnum Svía. Ekki þekki ég neitt til
verka hans, en af þessari sýningu er
ljóst að þar fer afbragðs listamaður.
Verkið er sett upp í efri sal Skemmti-
hússins, sem er flangt rými panelklætt
og em áhorfendabekkir með langhlið-
um en leikrýmið í miðjunni. Leik-
mynd er ekki önnur og treyst á að list
leikarans haldi athygli áhorfenda og
komi sögunni til skila. Og það tekst
sannarlega, þeir bregða sér í allra
kvikinda líki og með stflhreinum hætti
bæði í framsögn og hreyfingum leiða
þau okkur í gegnum söguna og bregða
upp skýmm og oftar en ekki háðslega
ýktum persónum. Það er stundum tal-
að um sagnaskemmtun íslendinga og
víst er um að í sveitinni í gamla daga
vom til karlar og kerlingar sem lifðu
og hrærðust í því að fara á milli bæja
og segja sögur af sveitungunum og
a g a t a 1 7 . á 9 ú s t
Atburðir dagsins
1556 Fljúgandi furðuhlutur á
sveimi yfir Basel í Sviss. 1727
Eldgos í Öræfajökli, hið síðara
á sögulegum tíma. Gosið stóð í
tæpt ár. 1772 Útilegumennimir
Fjalla-Eyvindur og Halla hand-
sömuð á Skeiðarársandi og
l'ærð til byggða í Mývatnssveit.
Hann slapp og frelsaði hana
skömmu síðar. 1938 Konstant-
in Stanislavsky deyr. Hann var
einn áhrifamesti leikhúsmaður
aldarinnar: leikstjóri, höfundur,
leikari og kennari. 1945
Skömmtun á áfengi aflétt, en
hún hafði staðið í tæp fimm ár.
1957 Oliver Hardy deyr, 65
ára. Hann var þybbnari hluti
tvíeykisins Laurel og Hardy.
Afmælisbörn dagsins
Jónas Jónasson 1856, prestur
og fræðimaður frá Hrafnagili.
Hulda (Unnur B. Bjarklind)
1881, skáldkona. Bill Burke
1885, bandarísk leikkona.
Ralph Johnson Bunchc 1904,
fyrsti þeldökki Bandaríkjamað-
urinn sem reis til áhrifa innan
utanríkisþjónustunnar. Hlaut
friðarverðlaun Nóbels 1949
fyrir framlag til friðarsamninga
araba og Israelsmanna.
Annálsbrot dagsins
Þetta suntar var stríð mikið og
ógnarlegl milli keisarans og
Tyrkja. Settust Tyrkjar um
keisarasetrið í Wien í Austur-
rfki, en keisarinn flýði burt
þaðan. Greifi Gvido af Starren-
berg frelsaði aptur borgina, og
rak Tyrkja á flótta.
Vallaannáll, 1683.
Saga dagsins
Það eru ekki minnismerkin
sem kenna okkur söguna. Það
gera rústimar.
Óþekktur höfundur.
Málsháttur dagsins
Prettur og púki bjuggu í einum
búki.
Sannleikur dagsins
Venjulegur sannleikur endist í
mesta lagi tuttugu ár.
Henrik Ibsen.
Orð dagsins
Gott er ad liafa starfað strítt.
strauminn þunga brotir),
hugur kraft og handa nýtt,
harma og gleði notið.
Hulda; I dag eru 115 ár
frá fæöingu hennar.
Skák dagsins
Garcia hefur hvítt og á leik í
skák dagsins gegn Van der Wi-
el. Hvemig notfærir Garcia sér
veikleika andstæðingsins á
svörtu reitunum?
Hvítur leikur og vinnur.
1. Hxf5!! Hxf5 2.1)e5+! Hxe5
3. Bf6 Mát!