Alþýðublaðið - 07.08.1996, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
s k o ð a n
Veraldarverkefnin
frumstæðu viðhorf er hér ríkja til ver-
aldarverkefnanna gera miklar kröfur
til þeirra sem stjóma slíkri aðstoð. Því
ef þessi viðhorf eiga einhvem tíma að
víkja fyrir öðmm háieitari er nauðsyn-
legt að almenningur geti samsamað
sig þeirri aðstoð sem veitt er og öðlast
trú á mikilvægi slíkrar starfsemi.
Sú tillaga Bosníunefndarinnar að
ráðstafa helmingi aðstoðarinnar til
kaupa á gervilimum frá Össuri hf. er í
þessu samhengi stórsnjöll. Hún styrkir
íslenskan útflutningsiðnað og friðþæg-
ir þannig þá sem mestri sérhyggju em
haldnir. Hún er aðstoð við fólk sem á
sannanlega erfitt, það er vantar útlimi,
í formi áþreifanlegra hluta sem ís-
lenskir sérfræðingar munu hafa eftirht
með að komist til skila. Allt er þetta til
þess fallið að vekja traust og skilning
á verkefninu meðal almennings. Og
verði þannig staðið að málum fram-
vegis má að minnsta kosti vona að
viðhorf okkar til aðstoðar við með-
bræður okkar taki nokkrum þroska.
Ég átti þess kost að kynnast nokkr-
um störfum Bosníunefndarinnar og
átti meðal annars fundi með þeim
vegna aðstoðar við blinda og sjón-
skerta í Bosníu. Sá stuðningur sem fé-
lagið hlaut til þess var ekki hár í krón-
um. En það var mikilvæg viðurkenn-
ing á því -að samtök fatlaðra og frjáls
félagasamtök yfirleitt geta gegnt lykil-
'hlutverki í verkefnum af þessu tagi og
þá ekki síst í þeim tilgangi að styrkja
lýðræði í þeim löndum sem aðstoð fá.
Einhvern veginn
hefur það verið út-
látalaust fyrir okkur
að axla ekki nema
að litlu leyti skyldur
okkar gagnvart þeim
meðbræðrum okkar
sem ekki tilheyra
ríkustu löndum
veraldar.
Kannski er það að bera í bakkafull-
an lækinn að hrósa framsóknar-
mönnum, hér í blaði alþýðunnar. En
störf Bosníunefndar rikisstjómarinnar,
undir forystu Hilmars Þ. Hilmarsson-
ar, aðstoðarmanns utanríkisráðherra,
gefa tilefni til þess.
Aðstoð við stríðshijáð lönd og van-
þróuð er vandmeðfarin. Því hefur oft
verið haldið fram á liðnum árum að
aðeins brot af því sem varið er til
Háborðið I
Helgi
Hjörvar
M skrifar
slíkrar aðstoðar skili sér þar sem til er
ætlast. Sú goðsögn, sönn eða login,
hefur orðið til að vekja vantrú á þeirri
sjálfsögðu viðleitni ríkra þjóða að láta
nokkuð rakna til hrjáðra landa. Þess
vegría einkennist ímynd slíkrar að-
stoðar ekki af því að hún sé verðugt
verkefni, heldur fremur af spillingu,
óráðasíu og skipulagsleysi.
Ekki er örgrannt um að þessi ímynd
hafi gert sérhyggjuna léttbærari í sam-
visku okkar. Einhvern veginn hefur
það verið útlátalaust fyrir okkur að
axla ekki nema að litlu leyti skyldur
okkar gagnvart þeim meðbræðrum
okkar sem ekki tilheyra ríkustu lönd-
um veraldar.
Og þetta hefur ágerst enn frekar í
þeirri lægð sem var í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Eftir því sem fátæktin í
samfélagi okkar varð sýnilegri gerðust
háværari raddir sem sögðu að fyrst
ættum við að hjálpa „okkar“ fólki áð-
ur en við veittum aðstoð erlendis. Rétt
eins og við séum aðeins fær uni að
gera annað hvort. Og rétt eins og um
sambærilegan vanda sé að ræða.
Þeim sem ráðstafa eiga aðstoð Is-
lendinga við önnur lönd er því nokkur
vandi á höndum. Þau sjálfhverfu og
Margir bíða spenntir eftir
fyrsta tölublaði Dags-
Tímans, enda er Stefán
Jón Hafstein til alls líklegur
auk þess sem margt hæfi-
leikafólk er fyrir á blöðunum.
Stefán Jón hefur lengi verið
áhugasamur um að mynda
mótvægi við Morgunbladid,
og á þeim bæ ætla menn að
taka samkeppninni af fullri
alvöru frá byrjun. Hið nýja
blað mun njóta samstarfsins
við DV, en það er að ýmsu
leyti mjög tæknilega vel bú-
ið. Menn veittu því athygli
um helgina að stóreflis lit-
mynd af embættistöku Ól-
afs Ragnars Grímssonar
prýddi forsíðu Dags, en
myndin var tekin af Ijós-
myndara DV. Samvinna af
þessu tagi verður áreiðan-
lega náin milli DT og DV, og
því má Moggi gamli fara að
vara sig...
Það vakti nokkurn titring
þegar Guðrún Agnars-
dóttir sagði strax eftir að úr-
slit forsetakosninga lágu fyr-
ir að margir hefðu skor-
að á sig að halda áfram
baráttu í þágu þeirra
málefna sem hún beitti
sér fyrir. Þetta var jafnvel
túlkað sem fyrirboði um
stofnun nýs stjórnmála-
flokks og kom flatt uppá
marga. Hljótt hefur verið
um Guðrúnu uppá síð-
kastið, en í helgarblaði
Tímans er viðtal við
hana þarsem hún segir
ekkert ákveðið í þessum
efnum. Trúlega hafa
menn líka gert of mikið
úr yfirlýsingum sem
gefnarvoru áðuren
vígamóður kosningabar-
áttunnar var runninn af
mönnum...
Aðeins meira um forseta-
kosningarnar. Enn hefur
enginn frambjóðandi birt
reikninga baráttunnar, og
verður víst nokkur bið á því.
Allir fóru talsvert hressilega
framúr því sem áformað var,
og því ófáar milljónir sem
ennþá vantar uppá...
Vikupilturinn Hallgrímur
Helgason hefur að und-
anförnu sýnt í galleríi Sæv-
ars Karls Ólasonar í Ing-
ólfsstræti. Nú fer hver að
verða síðastur að sjá hina
stórskemmtilegu sýningu
hans, en henni lýkur nú í vik-
unni...
"ForSide" eftir Gary Larson
Guðrún Ósk Hermansen
verslunarmaður: Ég var að
vinna þannig að ég komst ekki
á Þjóðhátíð eins og venjulega.
Þórey Vilhjálmsdóttir
blaðamaður: Ég fór í sumar-
bústað og skrapp að Búðum.
Júlía Guðmundsdóttir
skrifstofumaður: Ég var á
ferðalagi um Norðurland
eystra.
Ómar Örn Smith nemi: Ég
djammaði bara í bænum.
Margrét Brynjólfsdóttir
íþróttafræðingur: Ég var að
vinna í sumarbúðum fyrir fötl-
uð böm.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Seint hefði ég trúað því
að Kristín Ólafsdóttir fyndi
afsökun til að Ieggja niður
Grensásdeild. Fyrr trúað að
hún segði af sér.
Albert Jensen í kjallaragrein DV. Kristín er
formaður stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Það er sannarlega kominn
tími á alþýðubyltingu gegn
valdhöfum bókmenntaheimsins
á íslandi.
Ingólfur Margeirsson í viðtali við Dag.
Prestur einn með glœpa geð
girndir sínar vekur.
Himnaríkis mœtti með
mittisorminn skekur.
Vísa eftir Pétur Stefánsson
í Tímanum á laugardag.
ítalska þingkonan Alessandra
Mussolini, barnabarn fasista-
leiðtogans Benitó Mussolini,
krafðist þess í gær að mínútu
þögn yrði á ítalska þinginu til
þess að lýsa sorg yfir eyðingu
mörgþúsund fósturvísa sem er
byrjað að þýða á víð og dreif
um Bretlandseyjar.
DV á föstudag.
Nauðganir, árásir
og fíkniefnaneysla.
DV gerir upp helgina í hnitmiðaðri
forsíðufyrirsögn.
Það má segja að hreinlætis-
mál hafi ekki verið neitt vanda-
mál hér enda hafði þetta fólk
ekki neinn áhuga á slíku,
það bara ældi og meig þar
sem það stóð.
ívar Sigurmundsson yfirmaður
tjaldstæða Akureyrar.
Stofnun Sjálfstæðra kvenna
innan Sjálfstæðisflokksins mætti
líkja við það ef stofnuð yrði
sjálfstæð eining svertingja
innan Ku Klux Klan.
Grímur Hákonarson í Mogganum
á laugardag.
Það er vitanlega verið
að skrifa greinar á borð við
þessa hér og þar í blöðum
heimsins. En það er ekki
mikið tekið eftir þeim...
Árni Bergmann virðist vera aö upplifa
það núna, eftir greinaskrif í áraraöir,
aö boðskapurinn fer fyrir ofan garö og
neðan. DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Lifði mörg ár
eftir dauða sinn
Francois de Civille dó árið 1562 og
var grafinn. Sex klukkutímum seinna
lét bróðir hans grafa hann upp og það
tókst að lífga hann við. Hann lifði eft-
ir það í 70 ár og dó 105 ára gamall úr
köldu, sem hann hafði fengið af því
að standa heila nótt úti fyrir glugga
unnustu sinnar og syngja ástarsöngva.
Alþýðublaðið,
4. júlí 1937.