Alþýðublaðið - 07.08.1996, Page 5

Alþýðublaðið - 07.08.1996, Page 5
t MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ a l 5 Steingrímur Eyfjörð: Aðferðafræði við hugmyndavinnu vinnur gegn hugmyndahömlum almennt. Áhersla er lögð á að skoða hluti sem eru utan þröngs áhugasviðs, tilþess að uppgötva nýjar leiðir. Handbók um hugmyndir Sköpun er ekki óviðráðanlegt ástand - segir Steingrímur Eyfjörð, sem er að safna saman upplýsingum um viðurkennda tækni og tiktúrur sem menn tileinka sér við hugmyndavinnu Steingrímur Eyfjörð myndlistar- maður er að safna saman aðferð- um sem nýtast við hugmynda- vinnu. Aðferðafræðin ætlar hann að gefa út á bók, sem gengur undir vinnuheitinu Handbók í hugmynda- vinnu. Steingrímur ætlar að taka sam- an upplýsingar um viðurkenndar að- ferðir, semog vinnutækni einstaklinga sem vinna að hugmyndagerð og hug- myndavinnu. Hann hefur þegar sent út sjöhundruð bréf þar sem hann biður einstaklinga um upplýsingar um per- sónulega vinnutækni, og gerir ráð fyr- ir að dreifa beiðninni víðar. Svörin við bónarbréfunum verða efniviður sýn- ingar í Nýlistasafninu í nóvember. „Hugmyndin varð til þegar ég kenndi í Myndlista- og handíðarskól- anum í fyrra, og setti nemendum fyrir það verkefni að þróa eigin hugmyndir og útfæra í mismunandi miðla. Eg sá að það væri full nauðsyn á handbók um aðferðir við hugmyndavinnu, og fékk styrk frá Kennarasambandi Is- lands til þess að vinna verkið. Páll Hannesson fór af stað með mér, en varð að hætta sökum anna. Vissar aðferðir við hugmyndavinnu eru þekktar, um þær hefur margt verið ritað og rætt, og þær hafa verið notað- ar við auglýsingavinnu og vöruþróun. Til viðbótar við þessa viðurkenndu tækni er athyglivert að vita hvernig einstaklingar haga sinni hugmynda- vinnu. í ævisögum listamanna, sér- staklega rithöfunda, kemur alltaf í ljós að þeir hafa notað vissar aðferðir við sína sköpun. Einhverja ákveðna tækni, auk persónulegrar sérvisku. Fólk kem- ur sér í ákveðið ástand áður en það vindur sér í hugmyndavinnu; einstaka sinnum er persónuleg tækni við að koma sér í ákveðið ástand ekki flókn- ari en að fá sér heilsusamlegan göngu- túr í guðsgrænni náttúru, eða drekka sig fullan.“ Hverjar eru helstu þekktu aðferð- irttar við hugmyndavinnu? „Algeng aðferð, sem er af sama meiði og margar þróaðar aðferðir, er að fletta tilviljanakennt uppí orðabók - einfaldlega tilþess að opna hugann, losa hann úr blindgötu. Brainstorm, eða hugflæði, er ein þekktasta tæknin við að búa til og þróa hugmyndir. Hópur fólks kemur saman og hver verður að leggja fram hugmynd - allar hugmyndir eru velkomnar - tilþess að örva ímyndunarafl hópsins og sjá nýja fleti á viðfangsefninu. Þó einhver hug- mynd sé ekki brilljant, getur hún fætt af sér aðrar góðar hugmyndir. Önnur aðferð felst í því að greina viðfangs- el'ni niður í mörg atriði og velta hverju og einu þeirra fyrir sér. Margar ólíkar aðferðir eru til, en allar ganga þær útá að opna hugann og tengja saman ólíka þætti. Aðalatriðið er að kortleggja hugmynd og sjá hana í víðu samhengi, í stað þess að ein- blína á einn þátt og hugsa í einstefnu. Aðferðimar eru yfirleitt ekki notaðar hráar, heldur er þetta viss hugmynda- fræði sem allir geta tileinkað sér. Svona aðferðafræði sviptir í raun- inni mystísku hulunni af hugmynda- vinnu; sköpun er ástand, en ekki óvið- ráðanlegt ástand." Hvemig hefurþessi tœkni orðið til? „Aðferðir við hugmyndasköpun eiga meðal annars uppruna sinn í starfsaðferðum súrrealista. Þeir vildu komast útfyrir sjálfa sig, útfyrir það sem er normalt; og stunduðu ósjálf- ráða skrift. Við ritskoðum okkur nefhilega alltaf sjálf; eitthvað er ekki nógu gott; of bjánalegt, of fáránlegt, of hátíðlegt og svo framvegis. Þegar við ströndum einhvers staðar, blokker- umst, er það ritskoðunin sem er að verki. Akveðin tækni getur hjálpað til við að brjóta niður eigin hömlur; ósjálfráða skriftin var ein slík. Fræðin urðu til í eiginlegri mynd í Bandaríkjunum eftir stríð, þegar unnið var að því að markaðssetja nýtt þjóð- félag. Krafan var endalaust að gera eitthvað nýtt og menn sáu fljótt að vissar aðferðir hentuðu vel til þess að vinna, eða láta sér detta í hug, nýjar hugmyndir. Núna er mikill áhugi fyrir þessu vinnslustigi sköpunarinnar. I sumar var einmitt haldin ráðstefna í Kaup- mannahöfn, Mind Ship, sem Einar Már Guðmundsson tók þátt í, þar sem vinnuferli vísindamanna og lista- manna var til umræðu. Þetta ástand, sem fólk er í þegar það er að skapa, er stórmerkilegt. Einfalt dæmi sem mað- ur verður vitni að á hverjum degi er munurinn á því þegar manneskja segir eitthvað sem hún hefur lært utanað, eða þegar hún þarf að hugsa áður en hún segir eitthvað. Þetta eru tvö mjög ólík ferli.“ Hverjir þurfa helst á því að halda að opna hugann? „Eg held að þetta efhi geti nýst öll- um þeim sem vinna við að þróa eða útfæra hugmyndir - það gæti jafhvel nýst við að finna ný viðfangsefni. Að- ferðaffæði við hugmyndavinnu vinnur gegn hugmyndahömlum almennt, áhersla er lögð á að skoða hluti sem eru utan manns eigin þrönga áhuga- sviðs, tilþess að uppgötva nýjar leiðh. Einstefnu nálgun hamlar nefnilega ekki eingöngu hugmyndavinnu, held- ur einnig því hvemig fólk nálgast og skilur umhverfi sitt. Til dæmis er al- gengt að fólk nálgist myndlist ekki með opnum huga, heldur einblíni á mótíf sem það kannast við en hunsi við öðru. Það er spuming hvort þar sé ekki sama ritskoðunin að verki og sú sem stoppar fólk af þegar það er sjálft að vinna hugmynd." Framlög í aðferðasöfnun Steingríms skal senda í pósthólf 1498, 121 Reykjavík, eða í gegnum intemetið; mor@vortex.is, merkt hugmynd. ■ UTBOÐ + M i n n i n g F.h. Sjúkrahúss Reykjavíkur er auglýst forval vegna fyrirhugaðs út- boðs á leigu 100 einmenningstölva fyrir Sjúkrahúsið. Forvalsgögn fást afhent á skrifstofu vorri. Skilafrestur er til kl. 16 föstudaginn 9. ágúst 1996. shr 119/6 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavík Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616 Haukur Helgason Vinátta og gleði lýsti jafnan af Hauki Helgasyni. Ungur hafði hann verið í fararbroddi jafnaðarmanna og trygglyndi til sinna gömlu félaga og hugsjóna var sífellt til staðar. Hann hafði l£ka næmt skopskyn og naut það sín sérstaklega vel, þegar þjóðfélagið allt var á kafi í einhveijum hitamálum. Ein athugasemd eða upplýsing frá Hauki varpaði ljósi á málið, sjónar- miðin skýrðust og viðmælandinn jafn- an víðsýnni en ella. Haukur braut blað í íslenskri blaða- mennsku þegar hann beitti sér mjög ákveðið fyrir upptöku skoðanakann- ana á þjóðmálum. Birtust þær í þeim blöðum, sem hann starfaði við, Vísi, Dagblaðinu og DV. Áhrif þessara vönduðu skoðanakannana urðu slík, að nú tala frambjóðendur um skoð- anamyndandi skoðanakannanir, taka fullt tillit til þeirra í sfnum athöfnum, sem og sjálfir stjómmálaflokkamir. Hann lagði mikla áherslu á sjálf r itstj o r i vinnubrögðin í þessum könnunum, ræddi mikið um þær, lagði útaf niður- stöðunum á prenti og hafði ákaflega gaman af því við vini sína að meta ná- lægð þeirra við raunveruleikann. Núna framkvæmir fjöldi fyrirtækja svona kannanir fyrir marga íjölmiðla og ná- lægðin við raunvemleikann er slík, að stundum er sagt að það sé bara óþarfi að kjósa. Haukur var boðberi hins frjálsa anda £ blaðamennskunni, hann sóttist eftir viðhorfum og skoðunum £ grein- um, sem allir fengu inni með £ DV, háir sem lágir. Frjáls fjölmiðlun er £ rauninni ótrúlega stórt orð, þegar grannt er skoðað. Haukur stóð svo sannarlega undir þeirri hugsjón og kiknaði aldrei. fslendingar em einstæð þjóð varð- andi þekkingu á uppruna sfnum og sögu. Þessu til staðfestingar tók DV upp ættfræðisfðu undir stjóm frænda Hauks, Sigurgeirs heitins Þorgrims- sonar BA og ættfræðings. Þar er öll fs- lenska þjóðin tengd böndum án tillits til stjórnmálaskoðana, stéttar, rfki- dæmis eða hreppapólítíkur. Daglega erum við minnt á það, að við erum einfaldlega frændur og frænkur, sem sagt ein stór fjölskylda í okkar fagra landi. Er til betri staðfesting á bræðra- lagshugsjóninni, friði og frelsi fyrir alla menn? Ég votta eftirlifandi eiginkonu mína dýpstu samúð, sem og öllum ættingj- um, samstarfsfólki og vinum. Minn hjartahlýi og uppörvandi vinur, sem aldrei hafnaði grein, er nú horfinn sjónum. Strákurinn, sem byrjaði að selja Vfsi sex ára gamall á götum borgarinnar, og hefur í gegnum tíðina kynnst svo mörgum andans jöfri með hjartað úr gulli á íslenskum fjölmiðl- um, saknar nú sáran. Guð miskunn- semdanna leggi nú Hauk minn sér að hjarta. Guðlaugur Tryggvi Karlsson. UTBOÐ F.h. Reykjavíkurhafnar er auglýst eftir tilboðum í gatnagerð í Örfirisey ogriefnist verkið „Grunnslóð, gatnagerð I". Helstu magntölur eru: Frárennslis- og niðurfallslagnir 200 m Niðurföll 10stk Malbik m. 20 cm púkklagi 4000 mJ Steyptur kantsteinn 500 m Steyptar gangstéttir 350 m2 Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá og með miðvikudeginum 7. ágúst nk. gegn kr. 10.000 skilatryggingu. Opnun tilboða: Þriðjudaginn 20. ágúst 1996 kl. 14:00 á sama stað. rvh 120/6 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavík Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.