Alþýðublaðið - 09.08.1996, Page 3

Alþýðublaðið - 09.08.1996, Page 3
FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1996 ALÞÝÐUBLAÐK) 3 s k o ð a n i r Heimur versnandi fer Skrílsamkomur til skammar Sæmundur Guðvinsson skrifar í leiðara HP um fjárplógsstarfsemi og sukkhátíðir: Á Akureyri stóðu svokallaðir hags- munaaðilar í ferðaþjónustu fyrir skríl- samkomu sem þar var haldin undir heitinu Halló Akureyri. Mikið hefur Önnur sjónarmið máltilfinningu norðanmanna hrakað fyrst þeir geta ekki gefið þessari svo- kölluðu hátíð rismeira heiti. En það er kannski í samræmi við innihaldið. Á Akureyri fór allt úr böndum vegna of- drykkju og skrílsláta. Á tjaldsvæðum dvöldu margfalt fleiri en rúm var fyrir og þar fór fram samfelld ofdrykkja og fíkniefnaneysla sólarhringum saman. Brennisvínsdauðir unglingar lágu eins og hráviði vítt og breitt um svæðið. Þeir, sem tókst að halda sér vakandi, dunduðu sér við að rústa snyrtiað- stöðu tjaldstæðanna og höfðu uppi önnur drykkjulæti. Á sjúkrahúsi bæj- arins stóðu læknar og hjúkrunarfólk dag og nótt við að gera að sárum þeirra sem höfðu hlotið meiðsl í átök- um eða ekki kunnað fótum sínum for- ráð. Ungur maður slapp naumlega h'fs eftir morðárás. Lögregla staðarins gerði sitt besta til að halda uppi lög- gæslu en fékk lítt við ráðið. Yfirmanni tjaldsvæða á Akureyri blöskraði svo ástandið að hann lýsti því yfir að aldrei aftur yrðu slíkar sukksamkomur leyfðar á tjaldsvæðum svo lengi sem hann mætti ráða. Það er út af fyrir sig ánægjulegt að einhver heimamaður hafi bein í nefinu til að segja sína skoðun umbúðalaust. Á sama tíma og reynt er af veikum mætti að halda uppi vömum gegn of- drykkju og fíkniefnaneyslu standa tvö stór bæjarfélög í landinu beint og óbeint fyrir árlegum drykkju- og dóp- samkomum. Óll lög um meðferð áfengis og fíkniefna eru þverbrotin en Hvað hefur gert okkur viðskila við gömul gildi? Ekki er það óáran, aflabrestur, þrengingar eða eldgos... Er þetta velmegunartrúin, góðærið, land vísindanna eða vindar frjálsræðis? enginn telur sig bera nokkra ábyrgð. Foreldrar leyfa bömum sínum undir lögaldri að sækja þessar samkomur og láta sig engu varða heill þeirra og hamingju. Mótshaldarar vísa allri ábyrgð frá sér. Það sé ekki þeirra hlut- verk að passa annarra manna böm svo lengi sem þau borga uppsett verð, nema þá að bjarga þeim frá að kafna í eigin ælu. Allt er þetta hræsni og yfir- drepsskapur. Það hefur sýnt sig að unnt er að halda útihátíðir innan vel- sæmismarka þar sem áfengi og önnur fíkniefni em gerð útlæg. Iþróttafélögin í Vestmannaeyjum og hagsmunaaðilar á Akureyri hafa orðið sér til skammar með því að gera út á svall og sukk um verslunarmannahelgina til að afla skjótfengins gróða. Tjónið sem sam- komur sem þessar valda em samfé- lagsins alls. Hvenær drepur maður mann? Sigurður Antonsson fram- kvæmdastjóri skrifar kjallaragrein í DV um fóstureyðingar og rétt til lífsins: Nú bregður svo við að löggjafinn, hið háa Alþingi, samþykkti lög fyrir nokkrum árum er leyfa eyðingu á mannlegu hfi sé það gert innan þriggja mánaða frá getnaði. Að vísu þurfa að vera gildar ástæður fyrir fóstureyðingu en þær em mjög ftjálslyndar. Vísinda- menn telja sig þess umkomna að fleygja mannlegu lífi úr tilraunaglasi þegar þeim hentar. Fyrir nokkrum áratugum þótti það ganga glæpi næst að eyða fóstri. Að- eins í tilfellum þegar heilsa bams og móður var í hættu mátti framkvæma fósturlát. Síðan nýju lögin tóku gildi hafa verið framkvæmdar yfir tíu þús- und fóstureyðingar hér á landi undir handleiðslu lækna. Kvenréttindakonur hafa á orði að það sé þeirra að ákveða hvenær barn sé hluti af konunni og hvenær það sé sjálfstæð persóna. Hvað hefur gert okkur viðskila við gömul gildi? Ekki er það óáran, afla- brestur, þrengingar eða eldgos. Hvað veldur því að alþingismenn klyfja riddara vísindanna morðtólum, setja upp við vegg og fyrirskipa að deyða líf í stað þess að styrkja nýtt líf? Er þetta velmegunartrúin, góðærið, land vísindanna eða vindar frjálsræðis? Em þetta vindar frá Norðurlöndum eða vinum okkar Dönum sem hafa gert frjálslyndi í kynferðismálum að út- flutningsvöru? Varla, því við höfum gert enn betur en þeir í fjölgun fóstur- eyðinga. Siðferðisbrestur segir páfagarður: „Við verðum að lýsa yfir heilagleika lífsins. Rétturinn til lífsins, ávallt og alls staðar." ftalskar konur undirstrika þessi ummæli og vilja ganga með 100 fósturvísa sem skal fargað í Bretlandi. Þær mega ekki til þess hugsa að við skolum meðbræðrum okkar niður á þennan hátt. Hver vildi að sín eigin systir, bróðir, sonur eða dóttir hefði yfirgefið heiminn í tilraunaglasi með alkóhóldropa? Getum við lengur horft upp á að lífi sé eytt á frumstigum þess? Megum við breyta löggjafar- valdi sem setur samviskuna í íjötra? Spurningu Jóns Hreggviðssonar er ósvarað. Hvenær mega menn drepa mann og hvenær ekki drepa mann? ■ hinumegin "FarSide" eftir Gary Larson Skondið mál er nú komið upp í borgarkerfinu. Sig- urður Hjartarson mennta- skólakennari, Mexíkófari og rit- höfundur hefur sent menning- armálanefnd borgarinnar kynn- ingu á óvenjulegasta safni landsins. Sigurður er eigandi Hins íslenska reðursafns, og mun það vera einstakt í veröld- inni. í safni Sigurðar eru „60 eintök af 30 tegundum", svo notað sé orðalag Tímans, sem sagði frá málinu í gær. Þar er að finna reður allra dýra á og umhverfis ísland, nema homo sapiens að vísu. En Sigurður ætlar að bæta úr því, og segist hafa vilyrði frá áttræðum Norð- lendingi fyrir því að hann ánafni safninu þessum tiltekna líkamshluta þegar hann safnast til feðra sinna. Nú finnst Sig- urði semsagt mál til komið að kynna safn sitt, þæði fyrir Reyk- víkingum og hefur lika áform um að komast með það alla leið í sjálfa heimsmetabók Gu- Margir gamlir reykinga- menn sakna Marlboro, en framleiðendur þess drógu það af íslenskum markaði árið 1984 þegar sett voru ströng lög um varnaðarorð á tóþakspökkum. Marlboro var ein vinsælasta sígarettutegundinn, og þótt ís- lenski markaðurinn sé ekki sá stærsti í heimi hefur framleið- andinn, Philip Morris, talsverð- an áhuga á nýju landnámi á ís- landi. Á næstunni verður ákveðið hjá ÁTVR hvaða tíu tegundir, eða þar um bil, fá að bætast við hérlendis, og sam- kvæmt Viðskiptablaðinu eru all- ar líkur á því að Marlboro verði ein þeirra. Framleiðandinn get- ur nú skírskotað til nýrra reglna EES um merkingar á tóbaks- varningi, sem ekki eru eins strangar og þær sem hafa verið í gildi á íslandi... Eins og kunnugt er mun Leik- félag Reykjavíkur halda há- tíðlegt 100 ára afmæli sitt á ár- inu 1997. Af því tilefni hafa sagnfræðingarnir Þórunn Valdimarsdóttir og Eggert Jónsson verið fengnirtil að skrifa sögu félagsins. Þar verð- ur um veglega útgáfu að ræða enda mikil saga, leikfélagið elsta menningarstofnun lands- ins, elsta félagið og þar liggja rætur allrar sönglistar, danslist- ar og leiklistar landsins. Bókin kemur væntanlega fyrir al- mannasjónir um áramótin... r Asunnudag erfyrirhuguð mikil fjölskylduskemmtun útí Viðey. Þar munu koma fram Radíusbræður, Emilíana Torr- ini og Bítlavinafélagið auk þess sem boðið verður uppá veiting- ar (SS splæsir pylsum), skemmtiskokk, hjólreiðakeppni og sjóskíðasýningu svo eitt- hvað sé upp talið. Nú er stóra spurningin hvort fari fyrir þess- ari skemmtun eins og þeirri sem Magnús Kjartansson og félagar stóðu fyrir um árið. Veðurguðirnir reyndust þeim ekki hliðhollir og gestirnir voru talsvert færri en þeir sem áttu að sjá um skemmtiatriðin. Stór- huga fyrirætlanir I Viðey hafa sjaldnast verið arðbærar... „Vóóóó, vúúúúiííi. Afsaki-iii-iðiii, röng stofa." f i m m förnum veg Q| Heldur þú að það sé líf útí geimnum? Guðrún Sigurgeirsdóttir nemi: Nei, ekki í manns- mynd. Kannski einhverjar ör- verur. Margrét Halldórsdóttir skrifstofumaður: Nei, það held ég ekki. Benedikt Pálmason versl- unarmaður: Nei, ég hef eng- ar áþreifanlegar sannanir fyrir því. Hrafnhildur Arnardóttir hárgreiðslumeistari: Þessi uppfinning vísindamanna er allavega mjög spennandi. Erla Arnardóttir verslun- armaður: Það er fáránlegt að halda að við séum eina lífs- formið í alheimi. m e n n Núna eru menn að uppgötva að allir hlutir verða fornmunir - bara ef nógu langur tími líður. Ómar Ragnarsson í 11 fréttum Sjónvarps á miðvikudagskvöld. Hennar [þjóðarsálarkonunnar] er sárt saknað. Og svo mjög að dagana áður en hún hætti linnti ekki látunum frá hlustendum sem hörmuðu brotthvarf hennar en dásömuðu hana í leiðinni og sumir veinuðu af söknuði. Stefán Magnússon gerir „ekki" ráð fyrir því að þjóðarsálarkonan hafi átt einhvern þátt í innhringingum. Lesendabréf í DV í gær. [Sjötta regla Parkinsons] er iðulega óskýr í hugsun og framsetningu, höfundur styðst við sleggjudóma í stað röksemda og fordómar höfundar um samtímann byrja honum oft og iðulega sýn á fremur einfalda hluti. Guðmundur Hreiðar Frímannsson í bóka- dómi undir fyrirsögninni „Ekki meirl Ekki meir!" í Mogga í gær. Landakotsspítali, fyrir sameiningu við Borgarspítala, hefði getað orðið sá einkarekni valkostur, ef rétt hefði verið á haldið. í ieiðara Mogga í gær. Velkomin í strætó? Fyrirsögn á grein Dóru Stefánsdóttur þróun- arráðgjafa í grein í Mogga í gær. Fulltrúar starfsmanna Ríkisútvarpsins gengu nýlega á fund Lilju Ólafsdóttur, forstjóra Strætisvagna Reykjavíkur og afhentu henni undirskriftalista 140 starfsmanna þar sem fyrirhugðum breytingum á leiðakerfi SVR er mótmælt. Frétt í Mogga í gær. Mér finnst Ríkisútvarpið á góðri leið með að deyja, hreinlega. borsteinn J. í HP í gær. Mér fannst forsetinn fyrrverandi aldeilis fríka út þarna í þættinum. Anna Sigurðardóttir í lesendabréfi DV í gær. fréttaskot úr fortíð Uppruni knattspyrnu Þegar villimenn í Vestur-Afríku náðu óvini sínum á sitt vald, tóku þeir af honurn höfuðið og spörkuðu því á milli sín. Þannig er uppruni knattspymu. Alþýðublaðið 4. júlí 1937.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.