Alþýðublaðið - 22.08.1996, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 22.08.1996, Qupperneq 1
JAFNAÐARMAÐURINN MALGAGN SAMBANDS UNGRA JAFNARMANNA ■ ■ Oflug sam- vinna Norð- urlandanna Fimm ungir jafnaðarmenn fóru í júní á vegum SUJ til Bommersvik í Svíþjóð til að sitja þing ungra jafnaðar- manna á Norðurlöndum. Þóra Arnórsdóttir stiklar hér á stóru um atburði helgarinnar. Það er sérstök tilfinning fyrir unga jafnaðarmenn ofanaf Islandi að ganga inn í uppsprettu sænskrar sósíaldemó- kratíu og sjá og finna hverju hún getur áorkað. Ungir sænskir jafnaðarmenn, SSU, lögðust á eitt árið 1937 og keyptu herragarð 50 kílómetra fyrir utan Stokkhólm. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og mikið verið byggt, breytt og bætt. Um er að ræða stórt landsvæði, skógi vaxið, staðsett við vatn svo hægt er að fara út á bát og dorga í Yngemsvatni, nú eða taka land á litlu eyjunni sem staðsett er í því miðju og grilla í góðra vina hópi. Þar er allt til alls, fundaaðstaða fyrir allt upp í 200 manna ráðstefnur, tenn- isvöllur, lítil plottherbergi og innigist- ing fyrir einhver hundruð auk þess sem þúsundir ungra jafnaðarmanna gista þama í tjöldum í sumarbúðum á hveiju sumri. Allir þingmenn jafháð- armannaflokksins hafa þama aðstöðu til að funda eða slaka á og það er ekki að ósekju að Bommersvik hefur verið nefnd hugmyndafræðileg vopna- smiðja sænskra jafnaðarmanna. Sem sagt: Paradís jafnaðarmannsins. Erindi okkar íslensku fimmmenn- ingana á þessar slóðir var að taka þátt í þingi ungra jafnaðarmanna á Norð- urlöndum þar sem meginumfjöllunar- efnið var atvinnuleysi ungs fólks. Þó svo að atvinnuleysi hér virðist hjóm eitt samanborið við ástandið í löndum eins og Finnlandi, þá er vandamálið engu að síður það sama. Auk þess hafa hin Norðurlöndin glímt við at- vinnuleysisdrauginn mun lengur en við og því nokkuð augljóst að við get- um margt lært af þeim. Fulltrúamir 85 skiptu sér í fyrstu í þijá hópa sem einbeittu sér hver að af- mörkuðu sviði. Þeim var síðan bland- að og unnar niðurstöður úr hverjum málaflokki. Undirrituð tók þátt í hópn- um sem fjallaði um atvinnu og um- hverfi, Kolbeinn Einarsson og Gestur G. Gestsson ræddu efnahagsmál og at- vinnu og Gunnar Alexander Ólafsson og Hreinn Hreinsson voru í hópnum sem fjallaði um atvinnustefnur ríkis- ins, svokallaða „náringspolitik". ^tjórn FNSU hafði ákveðið að skandinavíska yrði opinbert mál á þinginu og það háði eilítið Islending- um og Finnum. Þetta er þó sjálfsagt og meiri spuming um stolt heldur en að fólk tali ekki ensku, enda gátu þeir sem það vildu notað hana. En það vom aldeilis ekki einungis rædd stjómmál, til dæmis var boðið í hádegisverð í ráðhúsi Stokkhólms og skoðunarferð um húsið. Ungir sænskir jafnaðarmenn eiga nokkra borgarfull- trúa af þeim 101 sem kjömir eru og Anders Ygeman, formaður nefndanefndarinnar kynnir lokaplaggið. Fulltrúar íslands í Stokkhólmi, fjórklofnir í afstöðu sinni daginn fyrir forsetakosningar. þess má geta að af þessum 101 em 49 konur! I Bommersvik er líka að finna írá- bært gufubað og var ekki amalegt að æfa hjartavöðvann aðeins með sund- ferð í köldu vatninu inni á milli þess sem svitnað var í gufunni og sungið. Við íslendingar eigum greinilega langt í land með að ná upp gufubaðs- menningu frændþjóða okkar, þama er allt sameiginlegt, bæði búningsklefar og gufan og sundföt em eitthvað sem enginn veit hvað er. Síðan var dansað á efri hæð gamla herragarðsins fram eftir nóttu bæði föstudags- og laugar- dagskvöld. Óll skipulagning var til fyrirmyndar og má sem dæmi nefna að formaður FUJR var svo óheppinn að bijóta gler- augun sín í æsispennandi skallatennis- leik og var búið að bjarga nýjum í bít- ið daginn eftir. Allar tímasetningar stóðust og við komum heim innblásin af þeim krafti sem einkennir starf ungra jafnaðarmanna á Norðurlönd- um. Vegna plássleysis er ekki hægt að birta lokaplaggið sem samþykkt var í heild sinni, en við fjölium lítillega um starf tveggja málefnahópanna og velt- um upp nokkrum spurningum þeim tengdum. Niðurstöðumar í heild sinni má nálgast á skrifstofu SUJ Umhverfismál í umhverfismálahópnum var mikil umræða um orkulindir og nýtingu þeinra. Við fslendingar búum náttúru- lega svo vel að eiga ómengandi, end- umýjandi orkulindir í fallvötnum og jarðhita. Þetta er hins vegar mikið hitamál annars staðar, einkum þar sem stendur fyrir dymm að reisa gasorku- stöð í Noregi sem mengar jafn mikið og ef hátt í 800.000 nýir fólksbílar væm teknir í notkun. Svíar em einnig að beijast fyrir því að kjamorkufram- leiðsla verði lögð þar niður. Einnig var bent á að ef við tökum alla jarðarbúa og deilum lífsgæðunum, þá hafa íbúar Norðurlandanna það um 4-5 sinnum betra en meðaljarðarbú- inn. Þetta sýnir augljóslega að leita þarf leiða til að draga úr þeirri gegnd- arlausu neyslu sem orðin er hluti af lífsstíl okkar. Ef við eigum að standa undir nafni sem jafnaðarmenn, hlýtur takmark okkar að vera að jafna lífs- gæðin meðal jarðarbúa. Umhverfisvænar vömr vom einnig mikið ræddar og lögð áhersla á að það þyrfti að nota skattaleiðina til að hvetja til umhverfisvænnar fram- leiðslu, með mengunarskatti og jafn- framt ívilnunum fyrir hreina fram- leiðslu. Svokölluð „græn störf ‘ vom einnig mikið í umræðunni og sett upp ýmis konar reikningsdæmi sem öll enda á einn veg: það borgar sig að hugsa fyrst um umhverfið. Það er greinilegt að Islendingar eru mjög aftarlega á merinni í rannsóknum og öðru er tengist umhverfismálum, hluti af ástæðunni er sú að landið okkar er til- tölulega ómengað ennþá, en umhverf- isvandinn er alþjóðlegur, súrt regn og mengaður sjór spyr ekki um landa- mæri. Efnahagsmál Efnahagsmálahópurinn byijaði sína vinnu á stuttri kynningu á þeim straumum og stefnum sem hafa verið uppi innan hagfræðinnar á tuttugustu öld og hvaða svör við atvinnuleysi hagfræðin hefur boðið upp á á ólíkum tímapunktum. Sérstaklega var framlag Keynes og sú gagnrýni sem síðar kom fram á hann tekið fyrir. Rætt var um hvemig rannsóknir A.W. Phillips á at- vinnuleysi í Englandi og sambandi þess við verðbólgu (Phillip curve) hefðu stýrt aðgerðum gegn atvinnu- leysi lengi vel og hvemig þær aðgerðir hefðu virkað. Sérstaklega vom mögu- leg áhrif „peningargildrunnar" tekin íyrir og framlag M.Frideman var líka kmfið. Öll þessi umræða var síðan sett í samhengi við sænska efnahagsmód- elið og hvernig það hefði þróast. Vinnu þessa hóps lauk síðan með miklum og áhugaverðum umræðum um hlutverk ríkisvaldsins í stjórnun efnahagsmála almennt, þó með sér- stöku tilliti til atvinnuleysis ungs fólks. Hvort ríkisvaldið ætti að skipta sér af efnahagslífinu og ef svo þá hvemig. Einnig hvort mögulegt væri að öll tæki og bjargir einstakra ríkja til stjómunar efnahagsmála innan sinna landamæra væm að hverfa með auk- inni alþjóðavæðingu. Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Lítum okkur nær! „í veikri von sinni um bætt kjör, leit þetta venjulega fólk í vesturátt til samtaka eins og NATO og ESB. Það horfir enn í dag og lítið hef- ur breyst til batnaðar í kjörum þess fólks." Undirritaður átti þess kost að sitja ráðstefnu, dagana 27. júlí til 3. ágúst, um stækkun Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Evrópusambandsins (ESB), í Alaborg sem er í konungsrík- inu Danmörku. Þátttakendur á þessari ráðstelhu vom ungt fólk milli tvítugs og þrítugs frá 24 þjóðum. sem allar eiga það sameiginlegt að taka þátt í „Partnership for peace“ (PFP) sem NATO setti á laggirnar. Ráðstefnan var hin fróðlegasta að öllu leyti en það sem stóð upp úr var kynni mín af full- trúum Austur-Evrópuþjóða s.s. frá Eystrasaltsríkjunum, Rússlandi, Pól- landi, Ungverjalandi, Tékklandi, Sló- vakíu, Albaníu o.s.frv. Nær undan- tekningarlaust töluðu fulltrúar þessara þjóða um nauðsyn þess að sínar þjóðir fengu aðild, fyrst og l'remst að NATO og svo ESB. Höfðu sumir fulltrúamir frá þessum löndum á orði að Vestur- lönd væru fullsein í að ákveða sig hvort og hvenær þessar þjóðir fengju aðild að áðurnefndum samtökum. Þetta vakti hjá mér nokkrar spumingar um stöðu þeirra landa sem eiga aðild að NATO og ESB. Er svo mikill vilji fyrir stækkun þessara samtaka? Fylgir hugur máli? Em Vesturlönd að halda þessum þjóð- um heitum en á endanum verða efnd- imar engar? Eftir fall Berlínarmúrsins tóku ríki Austur-Evrópu upp lýðræðisskipulag og settu á laggirnar hagkerfi á vest- ræna vísu. í mörgum, ef ekki öllum löndunum (nema Tékklandi og Ung- verjalandi) voru þessar breytingar dýru verði keyptar. Venjulegt fólk í þessum löndum sem bjó við öryggi s.s. vinnu og tekjur fyrir lágmarks- framfærslu á tíniúm kommúnistanna, sá lífskjör sín hrynja á þessu breyting- arskeiði. Allt í einu bjó þetta venju- lega fólk við óöryggi, varðandi tekjur og vinnu, og misrétti í tekjum og eign- um í þessum löndum stóijókst. Það er mikil ábyrgð af hálfú Vestur- landa að predika yfir þessum þjóðum nauðsyn þess að taka upp lýðræði og vestrænt hagkerfi, ef svo Vesturlönd í sama mund neita þessum þjóðum um aðgang að stöðugleika og velmegun til að styrkja lýðræði og hagkerfi í þess- um löndum. Vesturlönd geta ekki haldið að sér höndum og vonað að þessar þjóðir dafni fyrir eigin tilkostn- að. Þvf miður er það óframkvæman- legt. Verra er þegar leiðtogar Vestur- landa verða eins og steini lostnir yfir því að í nær öllum þessum ríkjum hafa fyrrverandi kommúnistar komist aftur til valda, í þetta sinn með lýðræðisleg- um hætti. Þessir sömu leiðtogar virð- ast ekki skilja það að nteð því að draga lappirnar í ákvörðunum um stækkun NATO og ESB hafa þeir um leið komið fýrrverandi kommúnistum til valda í flestum Austur- Evrópuríkj- um. Það er algeng skoðun að með því að stækka bara ESB til austurs hefðu þessar þjóðfélagsbreytingar ekki kost- að fólkið í þessum löndum svona mik- ið. Það er mín skoðun að hætta eigi með ráðstefnur og fundi hjá þessum samtökum og aðildarlöndum þess og hreinlega taka ákvörðun hvort stækka eigi bæði samtökin, því orð kosta lítið en biðin hjá þessu venjulega fólki í Austur-Evrópu kostar óheyrilega mik- ið. Og klukkan tifar .... Höfundur er annar varaformaður Sambands ungra jafnaðarmanna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.