Alþýðublaðið - 22.08.1996, Page 2

Alþýðublaðið - 22.08.1996, Page 2
B2 afnaðarmaðurinn FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996 Ungir jafnaðarmenn Útgefandi Samband ungra jafnadarmanna Ritstjórn Þóra Arnórsdóttir Útlit Gagarín hf. Lýðræði og vald í flóknum tuttugustualdarsamfélögum eru ekki til neinar ein- faldar kenningar eða lausnir á skipan lýðræðis og valddreifingu. Flest lýðræðisþjóðfélög byggja þó á fulltrúalýðræði og flokkum. Stór munur er þó á því sem kallað er stjómmálaflokkur á Norður- löndunum eða Bandaríkjunum. Svo stór að nafnið virðist í fljótu bragði vera það eina sem þeim er sameiginlegt. Norræn flokka- kerfi bygga á því að hinn almenni flokksfélagi hafi valdið og því fylgja bæði réttindi og skyldur að vera meðlimur í stjómmála- flokki. Það em eingöngu þeir sem em skráðir í flokkinn sem geta haft áhrif á hverjir skipa framvarðasveitina og engar breytingar em gerðar á málefnum og stefhu nema með samþykki grasrótarinnar. Frama í stjóm- málum er náð með því að gera flokki sínum gagn, mikilli vinnu og virðingu fýrir því sem fjöldinn ákveður. Bandarískum flokkum er aftur á móti stjómað af fámennum kjama sem er oft ekki sýni- legur hinum almenna flokksmanni. Hverjir em í framboði fyrir slíka flokka og hvað málefni þeir setja á oddinn ræðst yfirleitt af því markmiði þeirra að vinna sigur í næstu kosning- um. Sigur í kosningum er ágætis markmið útaf fýrir sig, en þegar það fær að ráða bæði mönnum og málefnum sem boðið er upp á fyrir kosningar em afleiðingamar hörmungin ein. I framboði em oftar en ekki fjölmiðlamenn, poppstjömur eða gamlar íþróttahetj- ur, einfaldlega vegna þess að þeir em þekktir og því betri sölu- vara. í stefnuskrám og loforðum eiga allir að fá allt fýrir ekki neitt og engum dettur í hug að við neitt verði staðið að kosningum ioknum. Lýðræðið er því orðið marklaus leikur innantómra lof- orða, hugsjónalausra íþróttastjama og þess hver býr til bestu aug- lýsingamar. Afleiðingin er sú að hvergi í vestrænum lýðræðisríkj- x um er kosningarþátttaka lægri og tiltrú almennings á stjómmálum minni. Það hljóta jú að vera takmörk fýrir því hversu oft tilkomu- miklar auglýsingar fá fólk til að taka þátt í tilgangslausum leik. Eina undantekningu er að fínna á því sem hér að ffarnan var sagt um norræn flokkakerfx og það er hérlendis. íslenska flokka- kerfið á mun meira sameiginlegt því bandaríska en flokkakerfum á hinum Norðurlöndunum. Alþýðuflokkurinn er þar engin undan- tekning. Þótt formlegt skipulag og lög flokksins séu mjög í anda systurflokka okkar á hinum Norðurlöndunum hefur skipulagið í raun verið sorglega nálægt því bandaríska. Fyrir kosningar hefst leit að þekktu fólki úr þjóðlífinu til að „skreyta“ lista flokksins, meðan dyggir stuðningsmenn og vinnuhestar fá ekki tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Málefnavinna liggur oftar en ekki niðri á milli kosninga og sú málefnavinna sem þó fer fram skilar sér ekki í stefnu forsvarsmanna flokksins. Allt of mikil áhersla er lögð á að sníða menn og málefni að tískusveiflum. Langtímamarkmið gleymast fyrir stefnuna að sigri í næstu kosningum. Sigri verður ekki náð með því að virkja grasrótina til góðra verka, skipulagið býður einfaldlega ekki upp á það, þannig að auglýsingabrellur og glansbæklingar verða svarið. Þessi braut hefur nú verið gengin nokkuð lengi innan þessa flokks. Niðurstaða þess er að á meðan systurflokkar okkar á Norðurlöndum eru stórir og ráðandi stjóm- málaöfl er Alþýðuflokkurinn smáflokkur sem við og við heppn- ast, fyrir náð annarra flokka, að komast til valda. Fylgisþróun flokksins er „stöðnun niður á við“. Þetta er ekki ástand sem ungir jafnaðarmenn eru tilbúnir að sætta sig við. Þessu viljum við breyta, því þessu er hægt að breyta. Fylgi jafnaðarstefnunar er miklu meira hér á landi en fylgi Alþýðuflokksins, jafnaðarmanna- flokks íslands. Látum flokksþing okkar nú í haust marka upphaf þeirra breytinga sem nauðsynlegar em til að hefja jafnaðarmanna- stefnuna til þeirra valda og virðingar sem hún nýtur á hinum Norðurlöndunum og allar forsendur em fyrir að hún njóti hérlend- is. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi ...um allan heim! Segir hér af ferð fulltrúa SUJ, Þóru Arnórsdóttur og Jóhönnu Þórdórsdótt- ur á vikuhátíð Alþjóða- samtaka ungra jafnaðar- manna sem haldin var í fyrrum höfuðborg Vestur- Þýskalands, Bonn, í júlí síðastliðnum. Þegar við stigum upp i Boeing 737 ílugvél þýska flugfélagsins LTU að- faranótt þriðjudagsins 22. júlí, vissum við lítið hvað biði okkar handan hafs- ins. Islendingar hafa ekki átt fulltrúa á IUSY-festivali eins lengi og elstu menn muna. Enginn Moggi um borð, hvað þá Alþýðublað. Bara Bild der Frau. Svo sem eins gott að fara að dusta rykið af menntaskólaþýskunni fyrst maður ætlar að eyða næstu vik- unni á þýskri grund... Við komum til Diisseldorf í morg- unsárið og erum komnar á hátíðar- svæðið í Bonn á heppilegum tíma, beint í morgunmatinn. Leggjum okkur íyrst aðeins í sólinni á Rínarbökkum. Framundan eru 6 dagar í hópi 5000 ungra jafnaðarmanna, hvaðanæva að í veröldinni. Við snúumst í hringi fyrstu tímana þar til við komum höndum yflr dagskrá vinnuhópa og yfirlit yfir stærstu viðburði vikunnar. I lok henn- ar, þegar öll þessi hundruð hvítra þjóðhátíðartjalda hafa verið tekin nið- ur horfum við hvor á aðra, fulltrúar Is- lands, og spyrjum okkur að því hvem- ig við eigum að fara að því að veita öðrum hlutdeild í þessari reynslu. Lof- um sjálfum okkur því að í Ungverja- landi að þremur árum liðnum, muni íslenska sendinefndin verða að minnsta kosti tíu sinnum stærri. Þau samtök sem em hluti af FNSU, samtökum ungra jafnaðarmanna á Norðurlöndum, tóku sig saman og ráku kaffihúsið Nordic Rock á svæð- inu í gríðarstóm veitingatjaldi sem var að sjálfsögðu nefnt Valhalla - Valhöll. Þetta var mögulegt vegna hins gríðar- lega fjölda norrænna þátttakenda, Norðmenn mættu með um 170 manns, Svíar 200, Danir 150 og Finn- ar 70, samtals um 600 manns + 2 fs- lendingar, gleymum því ekki. Þjóðim- ar skiptu með sér vöktum og í stuttu máli sagt sló Valhöll í gegn og var dansað uppi á borðum og bekkjum hvert einasta kvöld, sama hvað var í gangi; karaoke, líbanskt kvöld, norskir gítargutlarar eða bara diskó. Hagnað- urinn af kafflhúsinu, sem var umtals- verður, mun renna til uppbyggingar í Bosníu. Reynt var að halda umhverfinu hreinu með öllum tiltækum ráðum, til dæmis var skilagjald á plastglösin sem allir drykkir vom seldir í heil 2 þýsk mörk, um 90 krónur. Þetta varð til þess að maður hélt fast utan um glasið sitt og margnotaði það og ef einhveijir subbulabbar skildu glös eftir á víða- vangi, var óðar einhver búinn að tína það upp og endurheimta gjaldið. Þeir vinnuhópar og fyrirlestrar sem vom í gangi vom svo margir og marg- breytilegir, að það var með öllu ókleift að komast yfir meira en örlítið brot. Á heimleið: íslenska sendinefndin í öllu sínu veldi. Formaður íslensku sendinefndarinnar ásamt finnsku kollegu sinni, Outi Vilén. Vistvæna hárspöngin var fengin að iáni í tilefni myndatökunnar. „Street-festival" - götugleði- í miðborg Bonn. Enda var dagskrá frá klukkan níu á morgnana til klukkan fjögur á nætum- ar. Ef eitthvað á að nefna, þá vomm við trúar kynsystrum okkar og tókum þátt í femínistavinnuhópnum, lentum í ECOSY-umræðu um sjálfstæði ung- liðasamtaka í Evrópu, tengsl flokks og ungliðahreyfingar, stækkun Evrópu- sambandsins til austurs, við komumst á fund með leiðtogum sósíaldemó- krataflokka frá Argentínu, Þýskalandi, Fflabeinsströndinni, Ítalíu og Indlandi, lentum á ungversku kvöldi undir ber- um himni þar sem utanríkisráðherra þeirra kom í heimsókn til að spjalla við sitt fólk og þá sem áhuga höfðu, vorum svo heppnar að mæta á mjög áhrifaríkan fyrirlestur um Tíbet sem nánar er greint frá annars staðar í blað- inu og svona mætti lengi telja. Á íslenskan mælikvarða var hrein- lætisaðstaðan svo sem ekki til þess að hrópa húrra fyrir, ferðaklósett og þó- nokkuð-kaldar- og-ekki-alltaf-hreinar sturtur. En þetta eru bara atriði sem skipta svo litlu máli og ef satt skal segja þá er greinilegt að við erum bara of góðu vanar. Það getur heldur ekki verið öfundsvert hlutskipti að þurfa að elda ofartí 5000 manns í einu og reyna að gera öllum til hæfis. Maturinn var því furðu góður miðað við það og enginn hefur þurft að svelta þess vegna. Einn kosturinn við að vera hluti af svona lítilli sendinefnd er sá að þá verður ekki hjá því komist að kynnast fjöldanum öllum af fólki, það er ómögulegt að láta sig hverfa í íslenska hópinn! Það voru fulltrúar frá 117 löndum staddir í Bonn þessa viku og ef þetta er ekki tækifæri til landkynn- ingar, þá veit ég ekki hvað er það. Við erum nú að gæla við Afríkuferð til að geta heimsótt félaga okkar frá Tógó, Burkina Faso, Mósambik, Súdan... Hér á síðunni gefur að líta brot úr IUSY-festivali í Bonn 22.- 28. júu 1996. Og já, við sofnuðum í flugvé inni á leiðinni heim. Oscar Lafontaine, formaður SDP, áritar bol hjá ungum flokksmanni. GGG

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.