Alþýðublaðið - 30.08.1996, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996
MMBUBUBIB
21168. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Hræringar
á blaðamarkaöi
Fyrir hálfum öðrum áratug vom gefin út sex dagblöð á íslandi:
Alþýðublaðið, Dagblaðið, Morgunblaðið, Tíminn, Vísir og Þjóð-
viljinn. Óneitanlega er nú öðmvísi um að litast: Það eina sem eft-
ir er af Þjóðviljanum em hundrað milljón króna skuldir í skúffu í
Landsbankanum; erkifjendumir á Vísi og Dagblaðinu féllust í
faðma fyrir margt löngu; og í gær rann Tíminn sitt skeið á enda.
Af gömlu blöðunum standa því einungis Morgunblaðið og Al-
þýðublaðið eftir. Einhvemtíma hefði þótt tíðindum sæta að Al-
þýðublaðið ætti sér lengri lífdaga auðið en blöðin fjögur sem
horfin em af markaðinum í núverandi mynd.
Með samrnna Tímans og Dags lýkur með formlegum hætti af-
skiptum Framsóknarflokksins af blaðaútgáfu, og er Alþýðublaðið
eina dagblaðið sem nú er í eigu stjómmálaflokks. Það hefur verið
lenska síðustu ár að amast við því að stjómmálaflokkar vasist í
útgáfu, og reyndar ekki alveg að ástæðulausu. En í þeirri umræðu
ber talsvert á tilhneigingu til að kalla fjölmiðla þá fyrst „fijálsa“,
þegar tryggt er að pólitíkusar koma þar hvergi nærri. Þannig er
mörgum tíðrætt um „fijálsu“ stöðvamar á ljósvakamarkaðinum,
og „fijáls og óháð“ dagblöð. Þetta er vitanlega misskilningur, og
miklu nær að tala um einkareknar stöðvar eða blöð. Að baki
stærstu íjölmiðla landsins standa ijársterkir og valdamiklir menn,
sem í sumum tilvikum hafa mun meiri áhrif en flestir pólitíkusar.
í þessu sambandi er líka afar athyglisvert að skoða hvemig öfl-
ugar fjölmiðlablokkir em að verða næsta einráðar á markaðinum.
íslenska útvarpsfélagið, sem rekur Stöð 2 og Bylgjuna, er stór
hluthafi í Fijálsri íjölmiðlun, útgefanda DV, sem aftur er meiri-
hlutaeigandi Dags-Tímans. Þetta veldi keppir við Morgunblaðið,
langöflugasta dagblað landsins, sem gert hefur árangurslitlar til-
raunir til að ná fótfestu á sjónvarpsmarkaðinum. Það þarf því til
dæmis ekki að setja á langar tölur um að Dagur-Tíminn er ekki
frjáls og öllum óháður: Honum era sett markmið af eigendum
Frjálsrar fjölmiðlunar og þess verður vandlega gætt að Dagur-
Tíminn troði ekki DV um tær. Þá er þess tæpast að vænta að DV
eða Dagur-Tíminn flytji gagnrýnar fréttir sem varða eigendur ís-
lenska útvarpsfélagsins - alveg burtséð frá því ágæta fólki sem
starfar á nýja blaðinu.
Spennandi verður að fylgjast með framvindu íslenskra fjöl-
miðla, og óvíst að stofnun Dags-Tímans sé „síðasta útkall“ á
blaðamarkaðinum á þessari öld, einsog Stefán Jón Hafstein rit-
stjóri hefur sagt. Alþýðublaðið mun fylgjast með þeim hræring-
um af áhuga. Þótt það sé nú eina „flokksblaðið" gegnir það öðra
hlutverki en að vera safnaðarbréf. Alþýðublaðið hefur síðustu tvö
ár lagt áherslu á að sinna umljöllun um stjómmál, samfélagsmál
og menningu, og oft verið farvegur fyrir þarfa umræðu. Blaðið
hefur oft lent í ólgusjó á þeim 77 áram sem liðin era frá stofnun
þess. Oft hefur litlu munað að Alþýðublaðið hrataði fyrir ættem-
isstapa, en ávallt hefur það hjálpast af.
Alþýðublaðið, roskið og ráðsett, býður Dag-Tímann velkominn
á blaðamarkaðinn og óskar honum alls hins besta í hörðum
heimi.
Ljóð dagsins
Eg slæmi stundum hendinni í
tækið klukkan 18:45. Þegar
ég er alveg að krepera eftir
ljóðlausan dag við tölvuna. En þá er
einmitt á dagskrá einn af liðum
sumarsins: „Ljóð dagsins". Á Rás Eitt.
Það er vel til fundið hjá þeim
útvarpsmönnum að færa manni
Bókmenntir einmitt þegar maður hefur
eytt deginum í að skrifa sínar
Djókmenntir.
Vikupiltar |
1 Hallgrímur
Helgason
skrifar
Þessi þáttur er góð hugmynd. Þessi
þáttur gæti verið góð hugmynd. Ef
ekki væri framkvæmdin með end-
emum. Umsjónarmaður þáttarins er
Njörður P. Njarðvík, einn af útnjörðum
íslenskrar menningar. Hann kynnir ljóð
dagsins og ýtir því úr vör með stuttum
inngangi sem yfirleitt er sæmilega
fullur af klisjum eins og finnum fyrir
návist dauðans og endurspeglun sálar í
landslagi; þessum frösum sem hanga
enn á herðatijánum í fatahenginu uppí
Háskóla og umsjónarmaður hefur
greiðan aðgang að - þrátt fyrir sumar-
lokun stofnunarinnar - vegna þess að
hann kennir þar og er með lykil. En
ljóð þurfa á inngangs-klisjum að halda.
Að þeim loknum ber ekki eins mikið á
klisjum skáldsins. Og þessar gömlu
handpijónuðu yfirhafnir úr fatahenginu
í Háskólanum koma þægilega yfir
mann þegar maður hefiir nýlokið við
að skrifa kaldrifjaðan kafla. Eins og
lúin lopapeysa sem er löngu hætt að
stinga.
En við þessar yfirhafnir bætist svo
þessi yfirhafni tónn. Mærðin í máli
Njarðar er slfk að hún beinlínis lekur úr
tækinu. Að loknum lestrinum verður
maður að bregða bréfi úr eldhúsrúll-
unni á tækið. Og þá er um að gera að
vera snöggur. Því mærðarfitan er
náskyld hamsatólginni og storknar á
augabragði eftir snertingu við and-
rúmsloftið. Nema hvað. Inngangi fylgir
síðan „Ljóð dagsins" sem oft er ágæt-
lega - þó stundum óskiljanlega - valið.
Það er svo lesið af einhveijum mér alls
ókunnugum Petrínum og Pálum þessa
lands í tóni sem að vísu er önnur
tegund af mærð, ekki eins meistaralega
lærð, en fita engu að síður, fita sem fer
ákaflega illa í njarðartólgina: Sértu
ekki nógu snöggur með „húsbréfið",
eins og móðir mín kallar eldhúsrúllu-
afrifið, brennur allt fast á viðtækinu og
það verður einhvemveginn allt vax-
borið. Eftir það dugir ekkert annað en
oddmjór hnífur. Þessi þáttur kallar því
á stöðug þrif.
Allt þetta stúss veldur því að ég hef
ekki hlustað á þessa þætti sem skyldi
og er ég þó mestur klisju-unnandi.
„Ljóð dagsins" minnir helst á „Orð
dagsins".
Síðan hvenær varð ljóðið svo
heilagt? Þegar það dó? Er ljóðið dautt?
Miðað við helgislepjuna sem lekur úr
tækinu klukkan 18:45 eru dánar- og
jarðarfregnimar sem fylgja bara með
allra hressasta móti.
F y r i r
nokkrumárum
voru haldnar
ljóðahátíðir
hér í landi
með slag-
o r ð i n u
„Ljóðið lifir“.
Til hvers
þurfti að segja
fólki það?
Ekki nema
vegna þess að
það var að
deyja. Óþarft
er að hamra á
því um mann í
fullu fjöri að
hann lifi.
„Hann lifir“ er
aðeins sagt um um þann sem liggur
dauðvona, þann sem hjarir. Og ljóðið
hjarir. Á gömlu hjörunum uppí
Háskóla sem menn-ingar-nirðir
landsins smyija mærðar-fitu á hveijum
degi rétt fyrir fréttir í þeirri von að
málmgjallandi tómleiks-ískrið heyrist
ekki.
Mærðartónninn á reyndar ágætlega
við lestur nútímaljóða dagsins. Maður
skilur þau hvort eð er ekki og mærð fer
ágætlega við mærð. En það tekur út
yfir allan kvæðabálk þegar Pálurnar
fara með ljóð í bundnu máli sem ort
vom á öllu hraustlegri öld þegar skáld
horfðust í augu við öldurótið og buðu
því byrginn í stað þess að kommentara
bara á það og bera saman við öldurótið
í æ-volgum tebolla sálar sinnar. Hér er
illa farið með rím og stuðla og allt lesið
í einni flatneskju. Línur fá ekki að stan-
da og njóta sín en em límdar saman
með mærðarslefinu í munni upplesara.
Kvæði em lesin eins og væm þau opin
ljóð. Þannig verður „Ljóð dagsins" að
litlum greiða við ljóðunnendur og
hrein fráfæla ljóð-fælnari hlustendum
Rásar Eitt sem munu þó reyndar fáir
vera.
í stöðugum framgangi listgreina
hefur ljóðið orðið útundan, var skilið
eftir í vörslu klisjukámugra forvarða
menningarinnar. Landsins bestu synir
og dætur gerðust því afhuga og snem
sér að myndlist, auglýsingagerð,
kvikmyndum, myndböndum, skáld-
sagnaritun. Fyrir fimmtán ámm gengu
frmmtán ljóðskáld um bæinn að selja
sjálfsútgáfur. Sú er liðin tíð. Það yrkir
enginn lengur. Enginn viti borinn
maður. Það yrkir enginn lengur. Af
viti. Aðeins vitleysingar fást enn við
þessa fávísu iðju.
Þetta varð mér ljóst þegar mér á
dögunum barst í hendur ljóðavalið
„Lífið sjálft" sem SÍBS gefur út sínum
happdrættisvinningshöfum. (Nei, ég er
ekki einn af þeim. Eg er einn af vit-
leysingunum.) f þessari fremur fallegu
útgáfu birta 145 ljóðskáld (já, þeir em
svona margir vitleysingarnir) hug-
renningar sínar í eigin handskrift og þá
opinberast manni það blekblátt á hvítu
að þetta fólk á við alvarleg veilindi að
stríða. Bókin er reyndar tileinkuð
„þeim sem búa við fötlun eða eiga við
veikindi að stríða." Sálargutl nútíma-
Ijóðlistar hefur reyndar um áraraðir
seytlað til manns af síðum
Lesbókarinnar en þegar það birtist
manni ritað af eigin hendi skáldanna
verður manni ljóst að nútíma ljóðhst er
lítið annað en afrakstur og úrlausn ein-
skonar hópþerapíu-verkefnis á ein-
hverri geðdeildinni.
Hér er borið stíft úr sama bmnni. Án
þess að vera neinn geðlæknir er ég
nokkuð viss um að þerapistinn ætti að
vera ánægður með þennan árangur:
Þennan mokstur úr haughúsum sálar-
innar: Þessa andlegu hreinsun:
„Ég þeyttist út í kuldann, tómið,
myrkrið" og „ég valdi mér Hrúgald
vanmáttar tilvem“ en „vegur minn lá
um myrkan skóg“ þegar ég „gekk
niður í fjöru að leita að kyrrð“ því “hér
geymir skuggi minn sársauka líðinna
tíma þegar einmana nótt stígur sín
fyrstu spor“ þar til „úr þokumistri
daganna koma draumarnir fljúgandi
með strá í nefinu" og „vonin vex í
dimmu gili“ því „í vitund andartaksins
búa þær systur, von og birta“ og þó
„höfuðið standi upp úr djúpi gleymsk-
unnar“ þá „aleinn ég hvíli í aspanna
flosi og endurminningar gref1 ó já! því
„sé kafað til botns eftir mannlífsins
dýpstu rökum“ þá “læðist um hugann
ljúfsár minning" og þá er „kvölin
horfin úr lauffýlgsnum hugans" já hún
„hverfur í eigin skugga undir kvöld“
og viltu þá „viltu vera sólin mín og
skína á mig þegar kuldinn sígur í sáji-
na“? því þá aðeins „þá gæti nu'n bot-
nþungabirtuþrátekiðtilmáls."' .'
Hér hefur semsagt hin botnþu'ngá
birtuþrá tekið til m'ál's. Því „hjarta
skáldsins er þröngt og fátt sem það
kýs“ annað en eitthvað sem „flýgur á
gullnum vængjum inn í laufgrænan
skóg“ þar sem „öjákrónur kyssa fætur
okkar“ og strá „marglitum blómum
yfir einmana hjarta“.
Allt í kringum mann „svífa ljóðin
íjólublá túrkisrauð í morgunkyrrð." Og
öll eru þau handskrifuð af misskjálf-
andi eða sjálfsdúllandi hendi sjúkl-
ingsins. Það eina sem vantar á er „PS.
Hvað lestu úr skriftinni?"
Svar: Guð hjálpi þér.
Erlendur nokkur Jónsson súmmerar
þetta allt saman ágætlega upp í ljóði
sínu „Ferðin". Hér er komin prýðileg
greinargerð á afstöðu þessara skálda til
þerapíu-verkefnis síns: „Yst við
sjónhring, á skyggðum haffleti minn-
inganna flýtur ljóðið eins og svartur
bátur undir kvöld.“
Ég neyðist því miður til að leiðrétta
þetta. Hér mun því miðúr farið með
rangt mál: Ljóðið er ekki svartur bátur
í kvöldmyrkri á skuggalegum haffleti
minninganna. Nei. Hann er fremur
skrautlega málaður leikfangabátur sem
er með fjarstýringu, en hún er að vísu
hætt að virka fyrir nokkru, og hann
situr svona vélar- og hjálparvana útá
steindauðum og drullubrúnum polli á
miðju svona malarplani. Fremur lágu
plani.
E
a g a t a 1 3 O á g ú s t
Atburðir dagsins
1483 Lúðvík XI deyr. Hann
sameinaði Frakkland í kjölfar
hundrað ára stríðsins. 1720 Jón
Vídalín Skálholtsbiskup lést á
leið norður Kaldadal. 1779 Hið
íslenska lærdómslistafélag
stofnað í Kaupmannahöfn með
það að markmiði að fræða Is-
lendinga í bústjómarefnum og
bæta vísindakunnáttu þeirra og
bókmenntasmekk. 1860 Fyrstu
lestimar byrja að ganga í Bret-
landi. 1939 Byrjað að flytja
böm frá breskum borgum þar-
sem stríð virðist óumflýjanlegt.
1941 Þjóðverjar umkringja
Leníngrad. 1963 Komið á
beinu símasambandi milli
Hvíta hússins og Kremlar.
Afmælisbörn dagsins
Jacques Louis David 1748,
hirðmálari Napóleons keisara.
Raymond Massey 1896, kan-
adískur leikari. Dennis Healey
1917, breskur stjómmálamaður
úr Verkamannaflokknum, fjár-
málaráðherra um skeið. Einar
Olason 1957, ljósmyndari.
Annálsbrot dagsins
Féllu Tyrkjar aptur inn í
Þýzkaiand eptir upphvatningu
Franskra, og færðu stríð upp á
keisarann. Allir þeir þýzku
furstar og Pólskir halda með
keisaranum.
Eyrarannáll 1685.
I/öntun dagsins
Það sem vantar í heiminum er
fleiri lítillátir snillingar. Við er-
um svo fáir eftir.
Oscar Levant.
Málsháttur dagsins
Ég er mikilvirkur í skorpunum,
sagði hvílrækinn.
Spurning dagsins
Hver hefur pínst meira fyrir
hinn í þessum heimi, guð fyrir
mennina eða mennirnir fyrir
guð?
Snæfríöur í íslandsklukku Halldórs
Laxness.
Orð dagsins
Vilji maður vandur í
vera breytni sinni
gengur illa að fá sig frí
fyrir veröldinni.
Jón Mýrdal.
Skák dagsins
King hefur svart og á leik gegn
Hodgson. Svarti hrókurinn er í
talsverðu uppnámi en King
snýr vöm í sókn.
svartur með Hxg3+!
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Hc3! Hvíta drottningin er
fönguð og taflið tapað. Ef hvít-
ur leikur drottningu á al svarar