Alþýðublaðið - 05.09.1996, Page 3
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o d a n i r
1 8 0
Pallborðið |
Gunnar
Alexander
! Ólafsson
skrifar
Þessi afstaða þykir mér vera úr
tengslum við allan veruleikann.
Skoðum dæmið aðeins nánar.
Hallalaus fjárlög, fyrir mér, er mark-
mið sem allar sitjandi rikisstjómir eiga
að stefna að, burtséð hvort vel eða illa
árar í efnahagslífi. Fyrir mér er halli á
fjárlögum ekkert annað en fölsk Kfss-
kjör. Því staða ríkissjóðs á hverjum
tíma segir til um hve há skattprósent-
an eigi að vera og hve hátt þjónustust-
ig ríkið eigi að veita. Ef útgjöld ríkis-
ins eru meiri en tekjur þess, þá eru
lífskjör fólks hér á landi röng. Að
mínu mati er halli á ríkissjóði siðlaus
skattlagning á þá sem erfa eiga landið.
Það er ofar mínum skilningi hvemig
menn halda að halli á ríkissjóði komi
ekki niður á einhveijum. Hallarekstur
ríkisstjóðs, allt frá árinu 1985 hefur
haft þær afleiðingar að skuldir ríkisins
hafa margfaldast. Og ég spyr: Hver á
að borga þessar skuldir? Þau sem
stofnuðu til þeirra eða þau sem ekki
vom spurð, en fá reikning fyrir þess-
um skuldum seinna í formi hækkandi
skatta, minni þjónustu og svo fram-
Hallalaus
Mikil umræða hefur átt sér stað
um það takmark ríkisstjórnar-
innar um að næstu fjárlög verði halla-
laus. Umræðan hefur farið svo langt
að sumir hafa sagt að ríkissjóð beri að
reka með „umtalsverðum afgangi" á
næsta ári. Viðbrögð manna við þess-
um áætlunum eru mismunandi, eins
og við mátti búast. En verst þykir mér
þau viðbrögð manna (sérstaklega úr
verkalyðshreyfingunni) að tala um
hallalaus fjárlög sem eitthvað sem
bíða má með.
fjárlög?
IAð mínu mati er halli á ríkissjóði siðlaus skattlagning á þá sem erfa eiga landið.
Það er ofar mínum skilningi hvernig menn halda að haiii á ríkissjóði komi ekki
niður á einhverjum.
vegis?
Með hallalausum ríkisrekstri nást
mörg markmið í einu. I fyrsta lagi er
tekið á skuldasöfnun í eitt skipti fyrir
öll, í stað þess að ýta skuldavandanum
áfram. I öðru lagi duga tekjur ríkisins
fyrir útgjöldum þess, sem þýðir að
skattprósentan er ekki röng. I þriðja
og síðasta lagi er verið að láta þá sem
til skuldanna stofnuðu, borga þessar
skuldir í stað þess að láta komandi
kynslóðir greiða þær.
Mér finnst gagnrýni á markmið rík-
isstjórnarinnar um hallalaus fjárlög
vera röng. Menn eiga ekki að gagn-
rýna markmiðið í sjálfu sér, heldur
eiga menn að gagnrýna aðferðimar að
markmiðinu. Fyrir mitt leyti get ég
sagt að ég er í mörgum atriðum á móti
aðferðum ríkisstjómarinnar að mark-
miðinu, en ef ríkisstjóminni tekst að
ná hallalausum íjárlögum, burtséð frá
aðferðunum að markmiðinu, á hún
hrós skilið!
Höfundur er annar varaformaður SUJ.
v i t i m e n n
Eina vonin er
að þingmenn hefjist handa
við lagagerð um málefni
réttargeðsjúkra.
Grétar Sigurbergsson
réttargeðlæknir á Sogni.
Blés upp í
deyjandi fíkni-
efnaneytenda.
Fyrirsögn á forsíðu DV í gær.
Eiginkonan Norma
er nýja leynivopnið
hans Majors.
DV.
Gott væri, að dóms-
málaráðuneytið íslenzka
hætti að vernda klám og
færi í staðinn að hafa
frumkvæði að alþjóðlegu
samstarfi um verndun fólks
gegn klámi.
Jónas Kristjánsson í leiðara DV.
Margir bíða spenntir eftir
ævisögu Benjamfns
H.J. Eiríkssonar sem
Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson skráir. Benjamín á
að baki ævintýralegan feril
og getur sagt margt af pólit-
ískum átökum í vinstrihreyf-
ingunni á fjórða og fimmta
áratugnum. Hann getur
þannig upplýst ýmislegt
sem varðar klofning Alþýðu-
flokksins 1938, þegar Héðni
Valdimarssyni var vikið úr
flokkum. Benjamín staðhæfir
að Héðinn hafi leitað eftir því
síðar að fá inngöngu í flokk-
inn, eftir að uppúr sauð mill-
um hans og kommúnista, en
að forystumenn Alþýðu-
flokksins hafi þvertekið fyrir
að fá hann aftur í sínar rað-
Kynlegur leiðari
Morgunb/aðsins í
gær þarsem það hljóp
til varnar Þorsteini
Pálssyni vegna grein-
ar Bolla Valgarðs-
sonar í Alþýðublaðinu
fyrr í vikunni. Þetta ýtti
undir bráðskemmtiiegan
orðróm um að Þorsteinn
ætti að verða arftaki Matthf
asar Johannessens sem
ritstjóra Morgunblaðsins.
Ýmsum hefur þótt þetta frá-
leit samsæriskenning, enda
allajafna ekki miklir kærleikar
millum Þorsteins og Mogg-
ans. Hitt er jafnvíst, að Dav-
íð Oddsson gæti hugsað
sér fátt betra en að losna við
Þorstein úr ríkisstjórn og
þingflokki sjálfstæðis-
manna...
Forsetaframbjóðendurnir
okkar hafa enn ekki skilað
reikningum og vantar víst
mikið uppá hjá öllum að
jmdar nái saman - að Ást-
þóri Magnús-
syni undanskild-
um. Flestir efndu
til happdrætta og
þannig átti að
draga í kosninga-
happdrætti Pét-
urs Kr. Haf-
steins í síðustu
viku. Ýmsir góðir
vinningar voru i boði, og því
hefur það komið óþreyjufull-
um eigendum happdrættis-
miðanna á óvart, að upplýs-
ingasíminn reyndistvera
ótengdur...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
c&st&oyj
9 Hvað finnst þér um nýtt hús Hæstaréttar?
Guðrún Hansdóttir
bankamaður: Ég kann ekki
að meta það frekar en Ráðhús-
ið. Svo er það alltof grænt.
Þorsteinn Sigurðsson
gullsmiður: Mér finnst það í
lagi. Þetta þurfti að koma.
Kristín Benediktsdóttir
nemi: Mér finnst það fallegt
og staðsetningin frábær.
Daði Daðason sjálfstæður
atvinnurekandi: Mér lýst
vel á það. Þetta er fallegt hús
en mætti vera betur staðsett.
Kristín Guðmundsdóttir
húsmóðir: Mér finnst það
fallegt og vonandi bætir þetta
vinnuaðstöðu þeirra sem jjama
vinna því sú gamla var til
skammar.
Hverju svarar Mogginn núna?
Okkar menn stóðu sig
samt vel á Ólympíuleikunum
í Atlanta þótt við sæjum þá ekki
oft á verðlaunapalli.
Benedikt Axelsson kennari að líta
á björtu hliðarnar í DV í gær.
Lúpínan er
nytsöm þjóðarjurt.
Gunnlaugur Þórðarson hvílir sig
á forsetanum í Mogganum í gær.
ísland talið eitt
mesta ævintýraland
heims.
Morgunblaðið upplýsti þetta í gær.
Fimmtán minkar
skotnir — forsetinn
fylgdist með.
DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Karl, hinn
afdankaði.
Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Spánn
og Frakkland hafa neitað Karli fyrv.
Austurríkiskeisara landvist og hefir
Sviss því framlengt dvalarleyfið þar.
Alþýðublaöið
föstudaginn 26. ágúst 1921.