Alþýðublaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
Ungir jafnaðarmenn
Sambandsþing SUJ
Sambandsþing Sambands ungra jafnaðarmanna verður
haldið helgina 18.-20. október, í Breiðabliksskálanum í Blá-
fjöllum. Skv. 9. grein b í lögum SUJ, skal fuiltrúatala aðild-
arfélaga fundin með því að deila 10 í félagatölu þeirra
mánuði fyrir sambandsþing. Komi þá út brot, skal það
hækkað upp, ef það er hálfur eða meira, ella skal því
sleppt. Þess skal gætt að ekkert félag má tilnefna meira en
45 af hundraði af fjölda þingfulltrúa, sem leyfilegur er skv.
lögum.
Aðildarfélagi ber að tilkynna til skrifstofu sambandsins,
eigi síðar en viku fyrir þing um tilnefningu fulltrúa og að
því loknu gefur stjórn sambandsins út kjörbréf til réttkjör-
inna fulltrúa.
Þeir sem sitja í sambandsstjórn, framkvæmdastjóri sam-
bandsins svo og ritstjóri málgagna, skulu sjáifkjörnir á
sambandsþing með fullum réttindum. Þeir aðilar tilheyra
ekki fulltrúatölu þeirra aðildarfélaga sem þeir eru félagar í,
skv. grein 9a í lögum SUJ.
Dagskrá verður auglýst síðar.
Framkvæmdastjóri
Félag ungra jafnaðar-
manna í Kópavogi
Aðalfundur verður haldinn miðvikudaginn 18. sept-
ember að Hamraborg 14a kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin
Flokksstjórnarfundur
Flokksjstjórnarfundur Alþýðuflokksins
verður haldinn í Rúgbrauðsgerðinni laugardaginn
7. septemberfrá kl. 10.00 til 13.00.
Fundurinn er lokaðurfjölmiðlum.
Dagskrá
1. Þingflokkur jafnaðarmanna
2. Undirbúningurflokksþings
3. Önnur mál
Formaður
Alþýðuflokkurinn
Lagabreytingar
Lagabreytinganefnd er skipuð af framkvæmdastjórn
til að vinna að tillpgum um breytingar á lögum flokks-
ins. Samkvæmt 63. grein laga Alþýðuflokksins skal
nefndin senda flokksskrifstofu tillögur þessar eigi síð-
ar en mánuði fyrir flokksþing.
Nefndin óskar eftirtillögum að lagabreytingum vegna
47. flokksþings Alþýðuflokksins. Tillögur þurfa að ber-
ast nefndinni eigi síðar en mánudaginn 9. september.
Sendið tillögurnar merktar:
Alþýðuflokkurinn,
b.t. lagabreytinganefndar,
Hverfisgötu 8-10,
101 Reykjavík.
Þungiyndur snillingur. T.E.Lawrence, leiðtogi Araba og stríðshetja, lést í mótorhjólaslysi sem kann að hafa staf-
að af ásetningi.
■ Síðustu bréf Arabíu-Lawrence þykja bera vott um að hann
hafi þjáðst af þunglyndi síðustu dagana sem hann lifði
Framdi Arabíu
Lawrence
sjálfsmorð?
Arabíu-Lawrence, breski
herforinginn, rithöfundur-
inn og fomleifafræðingur-
inn, var síðustu dagana fyrir dauða
sinn, ráðvilltur og þunglyndur. Sex
áður óþekkt bréf sem hann skrifaði
skömmu fyrir dauða sinn, hafa nú
komið leitimar og innihald þeirra
mun vísast endurvekja vangaveltur
þess efnis að Lawrence kunni að
hafa fyrirfarið sér. Lawrence lést
árið 1935 og megi marka skrif hans
bendir allt til að hann hafði þjáðst
af einmanaleika eftir að hann lét af
herþjónustu. Þeir sem til þekktu
vissu að skapgerð Lawrence hefði
ætíð verið sveiflukennd, en þeir
vom einnig þeirrar skoðunar að eft-
ir að hafa látið af herþjónustu hafi
hann verið reiðubúinn að takast á
við ný verkefni. Lawrence James,
sagnfræðingur og höfundur ævi-
sagnar stríðshetjunnar, segir: ,3réf
frá Lawrence og orð vina hans,
skömmu áður en hann lést, þóttu
bera vott um jákvætt hugarfar
hans.“
En í síðustu viku sögðu James og
aðrir sérfræðingar að nýjar upplýs-
ingar gæfu aðra og dekkri mynd af
Lawrence. Phillip Knightley, höf-
undur The Secret Lives of Lawr-
ence of Arabia, sagði: „Þessi bréf
varpa algjörlega nýju ljósi á við-
fangsefnið. Mér virðist þau gefa til
kynna að Lawrence kunni að hafa
framið sjálfsmorð í mikilli örvænt-
ingar.“ Á meðal bréfanna er eitt
sem Lawrence skrifaði til Eric
Kennington, sem var náinn vinur
hans í meira en fímmtán ár, og
bréfið ber vott um mikla vanlíðan.
Það var Paul Marriott, höfundar
nýrrar bókar um síðustu daga
Lawrence, sem fann bréfið.
í bréfinu segir Lawrence: „Ég sit
í húsi mínu fremur ráðvilltur og
velti því fyrir mér hvað hefur gerst,
er að gerast og mun gerast. Eins og
er finn ég einungis fyrir ráðleysi.
Ég held að laufum líði svipað og
mér, ffá því þau falla af tijánum og
þar til þau deyja." Viku eftir að
hann ritaði þessi þunglyndislegu
orð lenti hann í árekstri á mótor-
hjóli sínu; hann náði aldrei meðvit-
und og lést sex dögum síðar.
Eyðimerkurhermaðurinn vissi
betur en flestir hvemig tilfinning
það er að blómstra og visna síðan
eins og lauf. Eftir að hann lauk
sagnfræðiprófi frá Oxford, með
ágætiseinkunn, heillaðist hann af
Arabíu þar sem hann vann í fyrstu
sem fomleifafræðingur. Landfræði-
leg þekking hans leiddi til þess að
örfáum mánuðum eftir að fyrri
heimsstyijöldin braust út var hann
orðinn herforingi í Kairó. Hann
stjómaði uppreisn Araba gegn
Tyrkjum og varð á skömmum tíma
goðsögn. Tyrkir handtóku hann og
pyntuðu, en honum tókst að flýja úr
vörslu þeirra. Hann tók þátt í sigur-
göngu í Jerúsalem eftir stríðið og
beitti sér árangurslaust fyrir stofnun
sjálfstæðs ríkis Araba í Vestur-As-
íu. Hann yfirgaf herinn, orðinn her-
foringi og stríðshetja, og neitaði að
taka við heiðursmerkjum frá Ge-
orgi V.
Árið 1922 gaf hann út endur-
minningar sínar, The Seven Pillars
of Wisdom, en dró sig síðan í hlé
frá opinbem lffi. Hann gekk í
breska flugherinn sem óbreyttur
flugmaður undir röngu nafni. Þegar
uppgötvaðist hver hann var þótti
ráðlegast að leysa hann frá störfum.
Hann gekk þá til liðs við skrið-
drekadeildina, enn undir fölsku
nafni. Hann sneri aftur til þjónustu
við flugherinn og var leystur frá
störfum árið 1935. Hann var 46 ára.
13. maí það sama ár yfirgaf hann
heimili sitt á mótorhjóli, keyrði út
af veginum og lenti á tré. Rannsókn
þótti leiða í ljós að hann hefði
sveigt til hliðar til að forðast árekst-
ur við tvo unga drengi á hjóli. En
efasemdir hafa ætíð verið á kreiki
því eina vitnið að slysinu, sem var
nágranni Lawrence, sagði að Lawr-
ence hefði verið á ofsahraða.
Var Lawrence þunglyndur, og á
ofsahraða, jafnvel að gera tilraun til
sjálfsmorðs? Marriott, sem þrátt
fyrir allt, álítur enn að dauði Lawr-
ence hafi verið slys segir: „Meðan
hann lifði sóttist hann hefði frægð
og velgengni, hann öðlaðist hvom
tveggja og fyrirleit síðan það sem
honum hafði hlotnast. Bréfin sýna
að hann leitaði skjóls í ömurleikan-
um. Hann var mjög flókin og tra-
gískur snillingur.“ ■