Alþýðublaðið - 06.09.1996, Síða 3
FOSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 19bo
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Við höfum stigið skref
IÞví hefur verið haldið fram að þingmenn Alþýðuflokks-
ins verði ekki bundnir stefnumótun flokksstjórnar og
flokksþings Alþýðuflokksins en þetta er alrangt.
Höldum áfram að láta
verkin tala
Þau góðu tíðindi bárust þjóðinni í
fyrradag að Alþýðuflokkurinn og
Þjóðvaki hafa sæst. Það er sögulegur
viðburður að þingflokkar Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka hafa ákveðið að
setjast að einu borði og mynda saman
þingflokk jafnaðarmanna. Með þeirri
ákvörðun erum við að stíga skref sem
getur orðið upphaf þróunar sem í fyll-
ingu tímans leiðir jafnaðarmenn sam-
an til dáða. Alþýðuflokkur og Þjóð-
Pallborðið |
> >_ n Guðmundsdóttir
vaki eru ekki að sameinast en með
sameiginlegum þingflokki og þeirri
viðurkenningu á sameiginlegum
stefnumiðum sem í þeirri aðgerð felst
opnast farvegur til víðtækara sam-
starfs. Þingflokkur jafnaðarmanna er
sammála um að nú sé stigið skref sem
getur leitt okkar á nýjar brautir, að
mikilvægt sé að láta verkin tala en
forðast stórtækar yfirlýsingar.
Þessir flokkar hafa sömu
áherslur
Það hefur komið skýrt fram á um-
liðnum vetri að ekki ber mikið á milli
í áherslum Alþýðuflokks og Þjóðvaka.
Þingmenn flokkanna hafa staðið sam-
an um fjölmörg þeirra mála sem þing-
menn flokkanna hafa flutt og í afstöðu
til stórmála ríkisstjórnar unnu þessir
flokkar vel saman. f upphafi komandi
þings mun þingflokkurinn kynna
máiaskrá sína og áherslur. Samstaða
er um að beita sér í málefnum fjöl-
skyídunnar, þ.m.t. velferðar- og heil-
brigðísmálum, skattamálum, nýsköp-
un atvinnulífsins og menntamálum,
auk þess sem áhersla verður lögð á
samvinnu við launafólk. Þingflokkur
jafnaðarmanna mun að sjálfsögðu
starfa undir merki jafnaðarstefnunnar
og byggja á stefnuskrám Alþýðu-
flokksins og Þjóðvaka. Því hefur verið
haldið fram að þingmenn Alþýðu-
flokksins verði ekki bundnir stefnu-
mótun flokksstjómar og flokksþings
Alþýðuflokksins en þetta er alrangt.
Þingmenn Þjóðvaka em ekki bundnir
af stefnuskrá Alþýðuflokksins en
þingmenn Alþýðuflokksins em það á
sama hátt og áður. Alþýðuflokkurinn
á svo sannarlega eftir sem áður sína
sjö þingmenn, en nú í þingflokki Al-
þýðuflokks og Þjóðvaka - þingflokki
jafhaðarmanna.
Þecjar viö látum verkin tala
A liðnum árum hefur farið fram sí-
endurtekin umræða um samfylkingu
og sameiningu jafnaðarmanna. Enda-
lausar vangaveltur um stöðu jafnaðar-
manna og veikleika sem felist í sundr-
un jafnaðarmanna í margar flokka.
Þessi umræða hefur helst haft þau
áhrif að veikja flokkana því svo lengi
má tala um getuleysi vegna smæðar
og sundmngar að fólki finnist tilgang-
slítið að halla sér að þessum flokkum.
Þess vegna er svo mikilvægt að láta
verkin tala. Það höfum við gert að
þessu sinni. Við höfum sameinað
þingflokka og ákveðið að setja af stað
þróun sem getur, ef vel tekst til, leitt
það fólk saman sem áður hefur fylgt
mismunandi framboðum. Við erum
ekki að búa til hér og nú nýtt framboð.
Við emm ekki að leggja Alþýðuflokk-
inn niður. Við emm ekki að ráðast á
Alþýðubandalagið með því að ráða
fagmann úr þeirra röðum í verkefni.
Við emm ekki að bijóta í bága við lög
Alþýðuflokks með því að ráða mann
utan Alþýðuflokksins til verkefnis á
vegum þingflokks jafnaðarmanna.
Þvert á móti emm við í verki að vekja
vonir um að sem flestir geti fundið
farveg að einu og sama markinu, þjóð-
félagi jafnaðarmanna.
IMú þurfum við að standa
saman
Það er ljóst að tilkynning um stofn-
un nýs þingflokks jafhaðarmanna kom
mjög á óvart. Formlegir fundir milli
flokkanna spönnuðu fáa daga og það
tókst að vinna í kyrrþey að verkefn-
inu. Það hefur hins vegar sýnt sig að
þegar áhrif hins óvænta em liðin hjá
hefur borið á tilraunum til að gera
þennan þýðingarmikla viðburð tor-
tryggilegan. Þá er mikilvægt að Al-
þýðuflokkurinn allur sé meðvitaður
um styrk sinn og að hvaða marki hann
hefur verið að stefna. Að flokksfólk
bendi á að engin önnur ákvörðun hef-
ur verið tekin en sú að sameina þing-
flokka og að leggja upp í langferð.
Það er ekki ferð án fyrirheits því skref
fyrir skref getum við nálgast hið sam-
eiginlega markmið ef við bara forð-
umst æsing og yfirlýsingar.
Höfundur er formaður þingflokks
jafnaðarmanna.
Einsog lesendur Alþýdu-
bladsins vita var hæsta-
réttarlögmönnum ekki boðið
við vígslu nýja Hæstaréttar-
hússins fyrr en á síðustu
stundu. Á miðvikudagskvöld
og fram á nótt streymdu
dreifibréf frá skrifstofu lög-
mannafélagsinstil lögmann-
anna þar sem segir að Þor-
steinn Pálsson hafi ákveðið
að bjóða öllum hæstaréttar-
lögmönnum við athöfnina.
Jafnframt er tekið fram að
boðið standi eftir sem áður
hvað varðar fyrsta málflutn-
inginn sem fer fram 9. sept-
ember. Hæstaréttarlögmenn
eru hvattirtil að mæta þá
einnig. „Þetta er nú alveg til
að bíta hausinn af skömm-
inni," sagði einn hæstarrétt-
arlögmanna í samtali við
blaðið í gær. „Nú er Þor-
steinn að reyna að redda
þessu klúðri á síðustu stundu
en því er hagað svo að skrif-
stofufólk okkar er á nætur-
vinnutaxta við að koma til
okkar þessu boði og við sem
félagsmenn borgum brús-
ann," sagði hæstaréttarlög-
maðurinn óhress. Hann segir
að verið sé að bera í bakka-
fullan lækinn að fá eitthvert
boð í faxformi meðan sýslu-
menn fá fíneríis boðskort...
Forsíðuuppsláttur Helgar-
póstsins í gær tengist
þráðbeint átökunum í bæjar-
málapólitík Hafnarfjarðar. Þar
var sagt frá því með stríðs-
letri að gjaldþrot Altaks sé
farið til saksóknara og birt
stór litmynd af Magnúsi
Hafsteinssyni fram-
kvæmdastjóra hins gjald-
þrota fyrirtækis og núverandi
formanni Alþýðuflokksfélags
Hafnarfjarðar. Við fréttum af
því fyrir nokkru að pólitískir
andstæðingar Magnúsar í
Hafnarfirði hafi gengið á milli
fjölmiðla og reynt að fá þá til
að fjalla um málið til að koma
höggi á Magnús. Fréttastofur
Stöövar 2 og Sjónvarpsins
vísuðu alfarið á bug að fjalla
um málið, og sömu sögu er
að segja af þeim dagblöðum
sem leitað var til. Síðast bar
andstæðinga Magnúsar að
garði á Helgarpóstinum og
þar var ekki fúlsað við mál-
inu, en því slegið upp með
látum...
r
Ymsir af þingmönnum Al-
þýðubandalagsins eru
bálillir yfir því að Einar Karl
Haraldsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri flokksins,
skuli taka að sér sérstök verk-
efni á vegum hins nýja þing-
flokks jafnaðarmanna. Svav-
ar Gestsson gagnrýndi
þessa ráðstöfun harkalega og
taldi hana siðlausa, og sumir
félagar hans í þingflokknum
hafa tekið í sama streng. Ein-
ar Karl er þó tæpast að svíkja
einn eða neinn, enda var
honum bolað úr starfi fram-
kvæmdastjóra með samein-
uðu átaki Margrétar Frí-
mannsdóttur og Svavars
Gestssonar. Mörgum þótti
framganga Margrétar skrýtin,
enda Einar Karl arkitektinn
bakvið sigur hennar á Stein-
grími J. Sigfússyni í for-
mannsslagnum í fyrra...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
frú Kartöfluhöfuð, hvað gerðist kvöldið sem eiginmaður
þinn elti þig um allt hús með grænmetistætarann á lofti."
Hvað finnst þér um sameinaðan þingflokk jafnaðarmanna?
Kristólína G. Jónsdóttir
fulltrúi: Ég vona að hann eigi
eftir að vaxa og dafna. Ekki
veitir okkur af.
Jón Orri Magnússon píp-
ari: Hann skiptir mig engu
enda mundi ég aldrei kjósa
jafnaðarmenn.
Vilhjálmur Benediktsson
pípari: Ég hefði viljað sjá
sameiningu allra vinstri
manna.
Grímur Tómasson nemi:
Þetta er hið besta mál. Ég vona
að af frekari sameiningu verði.
En ég verð hissa ef Kvenna-
listinn gengur til liðs við þessa
hreyfmgu.
Örn Ragnarsson kennari:
Mér lýst mjög vel á hana. Þeir
hefðu átt að stíga skrefið tii
fúlls.
JÓN ÓSKAR
m e n n
Geðsjúkir menn eiga
mjög auðvelt með að Ijúga.
Þeir fá ánægju útúr því einu að
hafa fólk að fíflum meðan lygar
stjórnmálamanna hafa á
kveðinn tilgang.
David Cook, breskur sálfræöingur sem hefur
komist aö því að stjórnmálamenn og geð-
sjúklingar séu af sama meiði. DV.
Ekki er nóg að þykjast
lifa við tæknivæðingu, heldur
ættum við að nota hana, óhrædd
við byltinguna sem hún hefur
í för með sér.
Guðbergur Bergsson rithöfundur í DV í gær.
Tími
jafnaðarmanna
er kominn.
Jóhanna Siguröardóttir í DT í gær.
Tími Jóhönnu á frjálsum
markaði var liðinn og Þjóðvaki
sofnaöur... Mestar áhyggjur
hef ég af því hvað Jóhanna ætlar
að segja kjósendum sínum,
frjálslyndu fólki, sem hún
dregur núna inní hið skelfilega
hús Alþýðuflokksins.
Stjórnmálaskýrandinn Guöni Ágústsson frá
Simbakoti fór á kostum í DT í gær.
Það er óttinn sem heldur
þessu undarlega kerfi saman.
Hver einustu samtök, sem ekki
eru undir stjórn flokksins, hafa
verið þurrkuð út. Samfélagið ein-
kennist af einsemd þeirra, sem
ekki þora að hafa eðlileg sam-
skipti við annað fólk.
Höfundur bókarinnar „Lýöveldi óttans"
sem fjallar um írak undir stjórn
Saddams Hússeins.
Þakka ber Jóni Baldvini
Hannibalssyni og Jóhönnu
Sigurðardóttur sérstaklega.
Þeirra samvinna nú er stórmann-
leg eftir það sem á undan
er gengið.
Stefán Jón Hafstein í forystugrein DT.
Sálfræðingar segja Dutroux
vanheilan á geði, mann sem
neyði þá sem vinni að rannsókn
málsins til að taka þátt í óhugn-
anlegum leik; valdatafli, þarsem
hann hafi tögldin og hagldirnar.
Frétt í Morgunblaöinu um belgíska
moröingjann og barnaníðinginn.
Gott fyrir heilsuna
að græða fullt af peningum.
Fyrirsögn í Morgunblaöinu í gær.
fréttaskot úr fortíð
Tilkynning
Þér sem hirtuð tómt sængurver í
Kirkjugarðinum 4. þessa mánaðar,
gerið svo vel að vitja um fiður í það á
sama stað 7. þessa mánaðar.
Alþýðublaðið,
miðvikudaginn 6. október 1920.