Alþýðublaðið - 16.10.1996, Page 1

Alþýðublaðið - 16.10.1996, Page 1
■ Ríkisendurskoðun gagnrýndi fjármál kirkjunnar í endurskoðunarskýrslu til dæmis flutning fjármagns milli sjálfstæðra sjóða og ómarkvissa stjórnun Fjármál kirkjunnar sæta gagnrýni Langur vegur frá því að þetta hafi verið alvarlegar athuga- semdir, segir Baldur Kristjáns- son biskupsritari. Ríkisendurskoðun gerði athuga- semdir við fjármál kirkjunnar, eink- um hvað varðar rekstur og reikninga sjálfstæðra sjóða á vegum kirkjunn- ar. Kirkjan hefur til umráða um það bil tvo milljarða króna á ári, og nemur framlag ríkisins til Biskups- stofu 535 milljónum króna, en ofan á það bætast sóknargjöld og kirkju- garðsgjöld. Enginn fjármálastjóri starfar á vegum embættisins. Samkvæmt heimildum blaðsins beindust athugasemdir Ríkisendur- skoðunar aðallega að fimm eða sex sjálfstætt starfandi sjóðum innan kirkjunnar, en mörg dæmi eru um flutninga á fjármagni milli sjóða án þess að lögformlegar ákvarðanir liggi fyrir. „Það var gagnrýnt að ekki væru nægilega glögg skil á milli sjóða en það helgast af því það vantar verklagsreglur um hvaða sjóðir eigi að annast hvaða verk- efni,“ segir Baldur Kristjánsson biskupsritari. Þá miðuðu tillögur Ríkisendurskoðunar aðallega að því að einfalda fjármál kirkjunnar frá því sem nú er, og skipaður verði fjármálastjóri. Slík staða hefur aldrei verið til innan embættisins og með vaxandi umsvifum kirkjunnar hefur ástandið versnað í seinni tíð. „Ég sat í nefnd þriggja manna, auk mín voru þau Ásdís Sigurjónsdóttir fjármálaráðuneytinu og Sólmundur Jónsson fjármálastjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins," sagði Baldur Kristjánsson. „Við höfum þegar gert tillögur um breytingar en skýrsla okkar verður lögð fram á morgun eða hinn. Margt fólk sem hefur unnið langt fram eftir kvöld- um til að halda í við gamla kerfið og það hafa þegar verið lögð drög að því að ráða fjármálastjóra.“_ FLOKKSÞING Ossur kynnist heimi blindra Össur Skarphéðinsson alþingis- maður kynntist heimi blindra af eigin raun í gær, þegar Biindrafé- lagið hélt dag hvíta stafsins hátíð- legan. Össur, sem er formaður heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis, byrjaði daginn á því að „lesa“ leiðara Morgunblaðsins og Alþýðublaðsins. Tölvurödd flytur textann fyrir hlustendur og er um mikla byltingu að ræða fyrir blinda og sjónskerta. Össur gekk síðan til vinnu, vestan úr bæ og á skrifstofu sína íAusturstræti, með gleraugu sem byrgðu honum alla sýn. Síðdegis í gær var hátíðar- samkoma í Borgarleikhúsinu, að viðstöddum forsetahjónunum, þarsem Össur fékk sjónina aftur. ■ í það minnsta þrjár bækur um Ólaf Ragnar Grímsson í næsta jólabókaflóði Engin ný - segir Hörður Svavarsson út- gefandi sem hyggst gefa út bókina: Ólafur Ragnar Gríms- son - 5. forseti lýðveldisins eftir Pálma Jónasson. „Ég hef verið búsettur úti í Dan- mörku að undanfömu og það var leit- að til mín varðandi ákveðið verkefni. Ég hef verið að vinna það þar og er kominn heim til að ganga frá því,“ segir Pálmi Jónasson blaðamaður og sagnfræðingur en vill ekki tjá sig frek- ar um málið að svo stöddu máli. Samkvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins vinnur Pálmi nú að bók um Ólaf Ragnar Grímsson forseta og er fyrirhugað að hún komi út fyrir jólin. Éjóst er að bókin, sem væntanlega heitir: Ólafur Ragnar Grímsson - 5. forseti lýðveldisins, er skrifuð með miklum hraði því sá tími frú því að Ólafur Ragnar var kosinn er styttri en hneyksli nemur meðaltalsmeðgöngu heillar bókar. í bókinni verður ferill Ólafs Ragnars rakinn og einkum lögð áhersla á pólitfldna þar sem forsetinn hefur marga hildi háð. Ekki mun lagt uppúr því að fara í saumana á einkalífi Ólafs Ragnars þó að sagt verði af upp- vaxtarárum hans. Ekki var leitað sam- þykkis forsetans né hann hafður með í ráðum en honum verður boðin þátt- taka sem felst í yfirlestri. Hörður Svavarsson, eigandi nýs út- gáfufyrirtækis sem heitir Una, stað- festi þetta í samtali við blaðið. Hörður hefur á undanfömum misserum gefið út tímaritið Uppeldi með góðum ár- angri og er nú að fikra sig inn á al- mennan bókamarkað. „Það verður ekki reynt að hnýsast í einkalíf Ólafs Ragnars heldur sagt frá hans opinbera lífi í bókinni. Við emm búin að senda honum erindi og okkur þótti tilhlýði- legt að hann væri með þeim fyrstu sem ffétti þetta. Þess vegna höfum við vilja halda þessu leyndu," segir Hörð- ur. „Það er ekki verið að reyna að op- inbera nein ný hneyksli. Það var reynt í kosningabaráttunni af miklu áhrifa- meiri mönnum en okkur með þeim ár- angri en hann er núna forseti. Þjóðin veit örugglega allt sem menn geta fundið ljótt á hann en Ólafur Ragnar hefur komið víða við og verið um- deildur. Við teljum að almenningur hafi áhuga á því að eiga þá sögu á ein- um stað,“ segi Hörður. Eins og kunnugt er hyggjast stuðn- ingsmenn Ólafs Ragnars gefa út bók sem segir frá kosningabaráttu hans í máli og myndum. Þá bók skrifa Einar Karl Haraldsson og Karl Th. Birgis- son. Einnig er fyrirhugað að gefa út dagbækur forsetans: Bessastaðabæk- umar sem byggir á greinum sem les- endum Alþýðublaðsins þekkja vel. Bessastaðabækurnar eru því þriðja bókin um Ólaf Ragnar sem vitað er til að komi út fyrir næstu jól. Það er bókaforlagið Dægradvöl, sem er stofnað í kringum útgáfu á bókurn eft- ir Gunnar Smára Egilsson, sem gefur Bessastaðabækurnar út. Dægradvöl gefur einnig út Málsvöm mannorðs- morðingjans og Vini og kunningja eft- ir Þráinn Bertelsson. HANiCDK DEKK Frábær dekk á frábæru verði! Jeppadekk SKÚTUVOGI 2 - SÍMI 568 30 80 GARÐADEU GOÐATÚNI 4-6, GARÐABÆ SÍMI 565 61 11 UMBROT/KJ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.