Alþýðublaðið - 16.10.1996, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
s k o d a n i r
MMBUÐIB
21194. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Úmbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sfmi 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Ullen-dúllen-doffarinn
Ein mesta nauðsyn íslenskra stjómmála er að koma Úllen- dúll-
en-doffaranum frá völdum, sagði Össur Skarphéðinsson á fundi
jafnaðarmanna á Norðurlandi um helgina. Úllen-dúllen- doffar-
inn er auðvitað enginn annar en Davíð Oddsson, og Össur sæmdi
hann þessum titli af því Davíð er í aðstöðu til að velja einhvem af
litlu flokkunum til landsstjómar með Sjálfstæðisflokknum. Sitji
ríkisstjóm Davíðs út kjörtímabilið, og því miður bendir ekkert til
annars, setur hann íslandsmet: enginn forsætisráðherra á lýðveld-
istímanum hefur setið samfleytt í átta ár. Verði pólitískt litróf
svipað eftir næstu kosningar er eins líklegt að Úllen-dúllen- dof-
farinn sitji í stjómarráðinu fram á næstu öld.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins ætti að færa jafnaðarmönn-
um í öllum flokkum heim sanninn um, að vart er hægt að finna
verðugra markmið en senda flokk Davíðs í langt ffí. Sjálfstæðis-
flokkurinn er orðinn að tákni kyrrstöðunnar í íslenskum stjóm-
málum, og hefur að því leyti tekið við hlutverki Framsóknar. Á
landsfundi sjálfstæðismanna opinberaðist átakanlegur skortur á
framtíðarsýn og úrræðum sem hæfa nýrri öld. Ekki var við öðm
að búast: Davíð Oddsson er í stjómmálum til að ná völdum og
halda þeim. Hann er hvorki pólitískur hugsuður né atorkusamur
stjómandi, og þrífst best í lognmollu og skoðanaleysi. Sú mynd
sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf af sjálfum sér á landsfundi var því
fremur af trúarsöfnuði en stjómmálaflokki. Öllum málum var
ráðið til lykta fyrirfram, og sú litla andstaða sem fram kom í ein-
stökum málum var barin niður. Áður fyrr var einatt tekist hressi-
lega á um gmndvallarmál innan Sjálfstæðisflokksins. Sú tíð er
liðin. Nú talar flokkurinn allur munni Davíðs. Og Davíð hefur
ekkert að segja.
En meðan Úllen-dúllen-doffarinn situr og dottar í stjómarráð-
inu er margt að gerast á vettvangi stjómmálanna. Hin almenna
krafa þeirra sem una ekki kyrrstöðunni er að andstæðingar aftur-
haldsins taki höndum saman, og að flokkamir á vinstri væng ein-
beiti sér að því sem sameinar þá. Helsta ástæða þess, að hvorki
hefur gengið né rekið með sameiningarmálin, er sú að atvinnu-
stjómmálamenn hafa einokað umræðuna. Nú fer hinsvegar fram
víðtæk og fijó umræða í grasrótinni, og hún er líklegri til að skila
árangri en frórn orð einstakra forystumanna á tyllidögum. Á for-
síðu Alþýðublaðsins í gær vom tvö dæmi um þetta. Anna Margr-
ét Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Reykjanesbæ
sagði frá auknu samstarfi A-flokkanna í bæjarstjóm, og það
kæmi ekki síst til vegna kröfu fólksins. Hún segir kröfu fólksins
að jaíhaðarmenn sameini krafta sína, og ennfremur að það vilji
að einstakir forystumenn komi sem minnst að málinu í bili. í
hinni fréttinni er sagt frá sambandsþingi ungra jafnaðarmanna,
sem fram fer um helgina. Þar kemur fram að sameiningarmálin
verða efst á baugi, í kjöffar þess að Verðandi, samtök ungs fólks í
Alþýðubandalaginu, sendi SUJ erindi um að ungt fólk í stjómar-
andstöðuflokkunum stilli saman strengi.
Friðarverðlaun Nóbels
og baráttan á Austur-Tímor
Síðast liðinn föstudag bárust
gleðileg tíðindi frá Osló að
ákveðið hefði verið að veita tveim-
ur af leiðtogum frelsisbaráttu Aust-
ur-Tímorbúa friðarverðlaun Nób-
els. Annar verðlaunahafinn er bisk-
up kaþólskra Carlos Belo sem
meðal annars hefur með orðum og
aðgerðum reynst að verja íbúa
landsins fyrir grimmilegum of-
sóknum Indónesíuhers. Hinn er Jó-
sé Ramos Horta fyrrum utanríkis-
ráðherra landsins sem er landflótta
og hefur lagt fram tillögur og áætl-
Gestaboð |
un um hvernig koma megi á friði
og fá sjálfstæði landsins viður-
kennt í áföngum. Það sem er gleði-
legast við útnefningu nóbelsnefnd-
arinnar er að barátta örlítillar þjóð-
ar sem á svo mjög í vök að verjast
fær alþjóðlega viðurkenningu. Um
stund beinast sjónir heimsins að
mannréttindabrotum, kúgun og
valdbeitingu ríkisstjórnar Indónes-
íu sem alþjóðasamfélagið lætur
sem það sjái ekki vegna þeirra
hagsmuna sem ótal fyrirtæki eiga
að gæta í þessu auðuga ríki.
að með harðri hendi yfir íbúunum,
framið hrikaleg fjöldamorð, barið
miskunnarlaust niður alla and-
stöðu, hneppt fólk í fangelsi, beitt
pyntingum og ofsóknum.
Hagsmunir ráða för
Ar eftir ár hafa aðgerðir Indónes-
íuhers verið fordæmdar hjá Sam-
einuðu þjóðunum, en stjórnvöld
landsins hafa haft þær samþykktir
að engu og hafa komist upp með
það. Þá hefur gengið illa að koma
málefnum Austur-Tímor á dagskrá
þjóðarleiðtoga vegna fyrrnefndra
hagsmuna, en einnig vegna þess
hve illa Indónesíustjórn bregst við.
I rúmlega 20 ár hafa íbúar Aust-
ur-Tímor haldið uppi andófi gegn
hernáminu. Fjöldi Tímorbúa er
landflótta og meðal annarra hitti ég
hóp fólks í Lissabon fyrir nokkrum
árum sem flest hafði setið í fang-
elsi í Jakarta höfuðborg Indónesíu,
verið pyntað en sloppið fyrir til-
verknað Amnesty International og
Portúgalstjórnar sem hefur beitt sér
kröftuglega í þágu fyrrum nýlendu-
búa sinna. Einn þekktasti útlaginn
er Hosé Ramos Horta sem var
utnaríkisráðherra í stjórn Fretelin.
Samkvæmt mínum heimildum var
hann á leið til Portúgal til samn-
ingaviðræðna þegar herinn gerði
innrásina og þess vegna slapp hann
lifandi. Allir hinir ráðherrarnir
voru drepnir. Fyrir nokkrum árum
í Indónesíustjórn, kvartað yfir
mannréttindabrotum og hótað þeim
vopnasölubanni þótt ekki beri á
frekari aðgerðum. Þá tók Gro Harl-
em Brundtland málið upp áður en
hún heimsótti Indónesíu í fyrra, en
í Noregi er öflugur stuðningshópur
við baráttu Austur-Tímorbúa.
Á þessari stundu er erfitt að meta
hvaða áhrif friðarverðlaunin muni
hafa. Þau vekja athygli á málstaðn-
um, en hvort það leiðir til ein-
hverra frekari aðgerða ríkja heims
eða tilslökunar af hálfu Indónesa
skal ósagt látið. Málið er afar við-
kvæmt fyrir stjórn Indónesíu sem
ekki vill viðurkenna að neitt sé að
og má geta þess að þegar mál Aust-
ur-Tímor var nefnt í ræðu utanrík-
isráðherra Islands á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna árið 1994 var
íslenski sendiherrann kallaður inn á
teppið hjá Indónesum fyrir ósvífn-
ina. Island er eitt af örfáum ríkjum
sem alla tíð hefur stutt tillögu til
stuðnings Austur-Tímorbúum hjá
S.Þ. og fyrir það eru þeir afar
þakklátir.
Dauðans alvara
Nú hafa fregnir borist af því að
herforinginn Súharto forseti Ind-
ónesíu sem nýlega barði niður að-
gerðir stjórnarandstæðinga í höfuð-
borginni Jakarta hafi boðið Belo
biskupi til veislu í tilefni verðlaun-
anna. Ekki er enn ljóst hvort bisk-
IÞað er löngu tímabært að þjóðir heims sameinist um
að taka eina verstu einræðisstjórn veraldar til bæna.
Saga Austur-Tímor
Barátta íbúanna á Austur-Tímor
á rætur að rekja langt aftur í aldir
til landkönnunar og nýlendustefnu
evrópsku stórveldanna á 16. öld.
Af einhverjum ástæðum skiptu
Hollendingar og Portúgalir eyjunni
Tímor á milli sín, en Hollendingar
réðu um aldir yfir flestum eyjanna
sem kallaðir voru Austur-Indíur.
Hollendingar voru ekkert að troða
kristni upp á nýlendubúa sem voru
flestir muslimir, en beittu því meiri
hörku við framleiðslu á kryddi,
gúmmí og öðrum nýlenduvörum.
Portúgalir reyndu hins vegar að
bjarga sálum frá glötun og því urðu
íbúar Austur-Tímor sem þeir réðu
yfir kaþólskir.
Árið 1974 var einræðisstjórnin í
Portúgal að þrotum komin eftir
linnulausar styrjaldir í nýlendun-
um, einkum þó Angóla og Mosa-
bique. Bylting var gerð í Portúgal
sem leiddi af sér að flestum ný-
lendunum var gefið frelsi. Portú-
galir voru komnir í þrot á Austur-
Tímor og unnu að því að veita
landinu sjálfstæði. Portúgalir hörf-
uðu og einn góðan veðurdag árið
1975 fóru þeir frá Austur-Tímor
með allt sitt hafurtask án þess að
gengið hefði verið frá skuldaskil-
um. Stjórn Fretelin- hreyfingarinn-
ar tók við völdum. Aðeins nokkr-
um dögum síðar réðist her Indónes-
íu á Austur-Tímor og hertók land-
ið. Frá þeim tíma hafa þeir drottn-
a g a t a I 16
náðist foringi andspyrnuhreyfing-
arinnar gegn Indónesum Xanana
Gusmao og var hann dæmdur í
ævilangt fangelsi. Amnesty Inter-
national hefur fylgst grannt með
líðan hans og er það kannski ein
ástæðan fyrir því að hann er enn á
lífi.
Söngvarar og leikarar
leggja lið
Ástæðurnar fyrir þessum lang-
vinnu átökum á Austur-Tímor eru
einkum af tvennum toga. Fyrst er
að nefna að sunnan við eyjuna, í
sundinu milli Ástralíu og Tímor
eru auðugar olíulindir sem Ind-
ónesíustjórn hefur nú ráðið í rúm
20 ár og vill ekki láta af hendi. Hin
meginástæðan er sú að Austur-
Tímorbúar eru kaþólskir og hafa
búið við aðra menningu en fyrrum
nýlendubúar Hollendinga. Þeir
vilja ekki hlíta stjórn og siðum
múslima. Þeir líta á sig sem sjálf-
stæða þjóð sem vill ráða sér sjálf.
Þeir Austur-Tímorbúar sem
vinna að friði á eyjunni og sjálf-
stæði landsins, en þetta tvennt þarf
ekki að fara saman, hafa beitt
snjöllum aðferðum. Þeir hafa ein-
beitt sér að því að fá frægt fólk í
lið með sér til dæmis leikara og
söngvara og þeir voru búnir að ná
góðu sambandi við Al Gore áður
en hann varð varaforseti Bandaríkj-
anna. A1 Gore á sinn þátt í því að
Bandaríkjamenn hafa aðeins potað
e
upinn ætlar að sitja heima eða nota
tækifærið til að ræða við ráðamenn
um ástandið í landi sínu. Biskupinn
er friðarins maður og hefur reynt
sitt til að lægja öldur, en hefur orð-
ið að gæta sín afar vel vegna hættu
á handtöku. Sennilega þætti mörg-
um súrt í broti ef hann settist til
borðs með harðstjórum sem hafa
drepið um 200 þúsund manns á
Austur- Tímor að því er talið er.
Eftir að fregnir bárust um verð-
launaafhendinguna hringdi til mín
ungur íslenskur skiptinemi sem er
nýkominn heim frá Indónesíu.
Hann sagði mér frá því að sér hefði
boðist að fara til Austur-Tímor en
alþjóðasamtök skiptinema lögðu
blátt bann við því að hann færi, þar
sem það teldist lífshættulegt. Hann
sagði að nýlega hefði franskur fjöl-
miðlamaður verið drepinn á eyj-
unni sem sýnir hvílík dauðans al-
vara er á ferð.
Mín von er sú að friðarverðlaun-
in verði til þess að stuðningur við
baráttu Austur-Tímorbúa tvíeflist.
Það er löngu tímabært að þjóðir
heims sameinist um að taka eina
verstu einræðisstjórn veraldar til
bæna, þannig að hún komist ekki
lengur upp með að traðka á vilja og
rétti jafnt fbúanna á Austur-Tímor
sem þessa fólks í Indónesíu sem
krefst lýðræðis og mannréttinda.
Höfundur er þingkona Kvennalistans.
Þetta eru aðeins tvö dæmi af mörgum sem sýna að umræðan
um sameiningarmál fer nú fram vítt og breitt um þjóðfélagið. Á
nýliðnum kjördæmisþingum Alþýðuflokksins á Vesturlandi og
Reykjanesi voru þessi mál í brennidepli og Ijóst að frjór jarðveg-
ur er að skapast. Mikilvægast er að komast uppúr hjólförum for-
tíðarinnar, einsog bent var á í ályktun kjördæmisráðsins á
Reykjanesi: „Allir jafnaðarmenn þurfa að leggja til hliðar fyrri
deilur og snúa bökum saman um að gera ísland að þjóðfélagi sem
byggist á hag íjöldans en ekki hagsmunum fárra.“
Þetta er mergurinn málsins. Og alveg efalaust er sú lamandi
kyrrstaða sem ríkisstjóm Davíðs Oddssonar stendur íyrir ein af
meginástæðum þess að grasrótin krefst breytinga og uppstokkun-
ar í íslenskum stjómmálum. Davíð Oddsson hefur lýst afstöðu
sinni til skoðana grasrótarinnar á eftirminnilegan hátt: Ef maður
hlustar of grannt geta eyrun fyllst af ormum, einsog hann orðaði
það svo smekklega á landsfundinum. Og Davíð telur sig auðvitað
ekki þurfa að hlusta á einn eða neinn, meðan hann getur stundað
sitt pólitíska úllen-dúllen-doff. ■
Atburðir dagsins
1793 Marie-Antoinette, ekkja
Lúðvíks XVI Frakkakóngs,
hálshöggvin f París. 1890 Sími
milli Hafnaríjarðar og Reykja-
víkur vígður af landshöfðingja.
1902 Landakotsspítali form-
lega tekinn í notkun. 1946 Tíu
leiðtogar nasista hengdir í Nii-
rnberg f kjölfar réttarhalda.
Hermann Göring framdi sjálfs-
morð rétt áður en leiða átti
hann til aftöku. 1964 Fyrsta
kínverska kjarnorkusprengjan
sprengd. 1978 Pólski kardínál-
inn Karol Wojtyla kjörinn páfi.
Hann er fyrsti páfinn sem ekki
var ítalskur síðan 1542.
Afmælisbörn dagsins
Noah Webster 1758, höfundur
fyrstu bandarísku orðabókar-
innar. Oscar Wilde 1854, írsk-
ur rithöfundur. David Ben
Gurion 1886, fyrsti forsætis-
ráðherra ísraels. Eugene O’-
Neill 1888, bandarískt leikrita-
skáld. Angela Lansbury 1925,
bresk leikkona. Gunter Grass
1927, þýskur rithöfundur.
Annálsbrot dagsins
Forstandari hospítals í Vest-
firðingafjórðungi kom í Rif við
Jökul vestra og beiddi gisting-
ar, ákvað einhýsi til svefnstofu,
kvaðst hann vera ærið svefn-
styggur og lét sér eigi hent við
skarkala um nætur. Var það
uppi látið. Um morguninn, þá
til var komið, var hann dauður;
hafði hann hengt sig í veiðar-
færum, sem héngu f húsinu. Sá
hét Salómon Jónsson, forríkur
að fé, en fátækur að bæninni.
Mælifellsannáll 1702.
Spurning dagsins
Þú skalt ekki spyrja, hvað land
þitt getur gert fyrir þig, heldur
hvað það hefur gert þér.
David Friedman, bandarískur eöl-
isfræðingur og hagfræðingur.
Málsháttur dagsins
Fátækur má ei fríða konu eiga
né fagran hest.
Líf dagsins
Langar yður að vita, hvað er
sögulegast við líf mitt? Að ég
hef lagt snilligáfu mína í líf
mitt; í verk mín hef ég aðeins
lagt hæftleikana.
Oscar Wilde, 142 ára í dag.
Orð dagsins
Heiinskra manna hátlur er
að hœða konur í orðum,
útaf þeim þó allir vér
erum komnir forðum.
Jón Bjarnason, Presthólum.
Skák dagsins
Nú bregðum við okkur til Sov-
étríkjanna árið 1949. Þar sátu
að tafli Ostropolski og Iv-
anovski. Sá fyrrnefndi hafði
hvítt og átti leik - og alveg
magnaða fléttu.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Dxd7+! Hxd7 2. Rc7+
Hxc7 3. Hd8 Skák og mát!