Alþýðublaðið - 16.10.1996, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 16.10.1996, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 s k i I a b o ð 48. flokksþing Alþýðuflokksins, J afnaðarmanna- s flokks Islands Með vísan til 29. og 30. greinar flokkslaga Al- ✓ þýðuflokksins - Jafhaðarmannaflokks Islands - er hér með boðað til 48. flokksþings Alþýðu- flokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands sem samkvæmt ákvörðun flokksstjómar verður haldið dagana 8. til 10. nóvember 1996 í Perl- unni. Með vísan til 16. til 19. greinar flokkslaga er því hér með beint til stjóma allra Alþýðuflokks- félaga að láta fara fram kosningu aðal- og vara- fulltrúa á flokksþing, svo sem nánar er mælt fyrir í flokkslögum. Með vísan til 18. greinar flokkslaga er því hér með beint til aðildarfélaga að kosningar fari fram á tímabilinu 18. til 28. október næstkom- andi að báðum dögurn meðtöldum. Félagsstjómum er skylt að tilkynna kjör fulltrúa að kosningum loknum til skrifstofu Alþýðu- flokksins (Hverfísgötu 8-10 í Reykjavík, sími 552-9244), sem veitir allar nánari upplýsingar. Með vísan til 21. greinar flokkslaga skulu kjör- dæmisráð Alþýðuflokksins í öllum kjördæm- um hafa lokið kosningu fulltrúa sinna í flokks- stjóm fýrir reglulegt flokksþing. Með vísan til 24. og 25. greinar flokkslaga skulu stjómir allra félaga hafa sent flokksstjóm skýrslu um starfsemi félagsins á kjörtímabilinu, félagaskrá miðað við áramót og greiðslu félags- gjalda samkvæmt þeirri skrá. Dagskrá flokksþings Alþýðuflokksins - J afnaðarmannaflokks íslands verður auglýst síðar. Jón Baldvin Hannibalsson formaður Menntamálaráðuneytið Orlof Athygli er vakin á því að umsóknir um orlof framhalds- skólakennara fyrir skólaárið 1997-1998 þurfa að berast menntamálaráðuneytinu fyrir 1. nóvember næstkom- andi. Menntamálaráðuneytið, 15. október 1996 Félag Ungra Jafnaðarmanna í Reykjavík FUJR heldur aðalfund sinn í kvöld, miðvikudaginn 16. október. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er í fundarsal á 3. hæð í Hinu Húsinu, Aðalstræti 2. Dagskrá fundarins verður lögbundin dagskrá aðalfundarfélagsins. Allir félagsmenn eru velkomnir á fundinn en þeir einir sem skuldlausir eru við félagssjóð hafa atkvæðisrétt á fundinum. Stjómin Fundarboð Málefnahópur um landbúnaðar- og umhverfismál boðar til fundar þriðju- daginn 25. október kl. 20.30 í Félagsheimili Alþýðuflokksins í Hamraborg Kópavogi. Flutt verða erindi um lífræn og vistræn samfé- lög og árangur ífráveitumálum þéttbýliskjarna. Allir velkomnir. Málefnahópur um landbúnaðar- og umhverfismál. Fundarboð Aðalfundur Kvenfélags Alþýðuflokksins í Hafnarfirði verður haldinn miðvikudaginn 16. október kl. 20:30 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning á flokksþing dagana 8.9. og 10. nóv- ember. Kaffiveitingar. Fundarstjóri Guðfinna Vigfúsdóttir. Fjölmennum. Stjómin Alþýðublaðið á Alnetinu sendið okkur línu alprent@itn.is Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki Svansins gerist helst til fjölþrefinn við Maríu Eliingsen í hlutverki Dóru. ■ Annað svið frum- sýnir um helgina í Borgarleikhúsinu Svanurinn kemur svífandi „Svanurinn, ekki sem fugl, heldur sem tákn, er líklega flóknasta líking í sögu sagðri með óbeinum hætti,“ skrifar Guðbergur Bergsson í óút- komna leikskrá leikhópsins Annars sviðs. Um helgina verður leikritið Svanurinn eftir Elizabeth Egloff ífum- sýnt á litla sviði Borgarleikhússins. Það er samstarfsverkefni Annars sviðs og LR slík fyrirkomulag hefur gefið góða raun. Er skemmst að minnast leikrits Hlínar Agnarsdóttur, Konur skelfa, sem gekk mjög vel á síðasta leikári og þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi. Þar var einmitt for- kólfur Annars sviðs, María Ellingsen, í stóru hlutverki. f Svaninum leikur María Dóru hjúkrunarkonu, Ingvar E. Sigurðsson leikur hinn dýrslega Svan sem breytist í dýrðlegan mann og Bjöm Ingi Hilm- arsson fer með hlutverk mjólkurpósts sem á í harðri samkeppni við Svaninn um ástir Dóm. Leikstjóri er Kevin Ku- hlke en fyrir átta áram færði hann upp leikrit Sam Shepards, Sjúk í ást, hér á landi. Það var ekki lausu lofti gripið hjá aðstandendum Annars sviðs að leita til Guðbergs Bergssonar um grein í leik- skrá. Guðbergur er þekktur sérfræð- ingur í svönum og skrifaði samnefiida verðlaunabók sem kom út fyrir nokkr- um árum. Við skulum grípa niður í kafla í grein hans. „Þess vegna hefur það gerst, að þegar líður á áratuginn sem mun kveðja þessa öld, þá kemur svanurinn líka svífandi í listimar á nýjan leik, sí- fellt dulbúinn og með samblandi af skiljanlegum og óskiljanlegum hætti. Hveijum manni er sjálfgefið að ráða í hann og spyrja hver tilgangur hans kunni að vera, éf hann kýs að gera það, en ekki hitt, að njóta lífsins og listanna í þeirra hreinu, upprunalegu mynd, hinni óskiljanlegu og unaðar- fullu. Yfirleitt eiga þessi verk eitt sameig- inlegt, margræðið. Það er vegna óvissutímans sem við lifum á, kvik- syndisins undir rennsli hans, þar bólar hvergi á öðru en þeirri tálsýn sem menn kalla bjartsýni og er ekki fram- tíðarsýn laus við blekkingu. Flestir, sem telja sig vera boðbera framtíðarinnar, em þannig að ekki tek- ur því að svifta blekkingarhulunni af þeim, enda sést í gegnum nýju fötin keisarans, sem þeir klæðast, að undir þeim er ekkert sem ftjóvgai' nýja tíma. Kyn þeirra er sniðið úr kjaftæði og virðist hafa verið hnoðað í höndum sjónhverímgamanns."

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.