Alþýðublaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
B7
Atli Jósefsson markaðsstjóri og faðir hans, Jósafat Hinriksson sem stof-
naði fyrirtækið. Ljósm. E. ól.
Framleiðsla J. Hinrikssonar ehf. á toghler-
um er þekkt meðal sjósóknara um allan
heim, enda hafa hlerarnir verið seldir til
25 landa.
Erum í hópi
þriggja stærstu
í heimi
-segir Atli Jósefsson markaðsstjóri
Jósfat Hinriksson hefur byggt
upp vélaverkstæði sitt af fá-
dæma atorku og dugnaði sem
hefur svo sannarlega skilað góðum ár-
angri. Poly-Ice toghlerar frá J. Hin-
riksson eru ekki aðeins þekktir af ís-
lenskum útgerðar- og sjómönnum,
heldur út um allan heim.
„Við seljum hlera til um 25 landa
og það er ekki bara til nágrannaland-
anna heldur einnig til allra heims-
homa. Við höfúm til dæmis selt fram-
leiðsluna til Ástralíu, Nýja Sjálands,
Chile, Perú og Namibíu. Staðreyndin
er sú að við erum í hópi þriggja
stærstu toghleraframleiðendum í
heimi,“ sagði Atli Jósafatsson mark-
aðsstjóri J. Hinriksson í spjalli við
blaðið. Atli er einn af íjórum sonum
Jósafats sem starfa við fyrirtækið.
„Það er ekki hægt að segja að það
sé fyrirtækinu fjötur um fót að vera
með ffamleiðsluna hér á landi, nema
síður sé. Við höfum getað þróað hler-
ana við íslenskar aðstæður sem eru
erfiðari en víðast hvar annars staðar.
Það er hér í norðurhöfum sem menn
hafa haft frumkvæði að veiðum við
erfiðar aðstæður og því höfum við
verið að þjóna mjög kröfuhörðum
markaði sem síðan skilar sér áfram.
Lagið á hlerunum hefur frá upphafi
verið hið sama, það er að segja þeir
eru sporöskjulaga og það er marg-
sannað að þetta ákveðna hleralag er
besti kosturinn. Við höfum hins vegar
stöðugt unnið við að bæta styrk hler-
anna og hæfni,“ sagði Atli.
Hann nefhdi sem dæmi um hve að-
stæður hér við land væru sérstakar, að
hleri sem endist í tvö ár hér gæti enst í
tíu til fimmtán ár þar sem allar að-
stæður væru einífaldari. J. Hinriksson
rekur mjög öfluga markaðsstarfsemi,
enda veitir ekki af í þeirri hörðu sam-
keppni sem fyrirtækið er í á heims-
markaði. Þess má geta að J. Hinriks-
son hefur samtals tekið þátt í hátt í 90
sjávarútvegssýningum vftt og breytt
um heiminn.
Hampiðjan er stöðugt að leggja net sín í fleiri heimshöf með
línum og trollum sem fyrirtækið framleiðir. Nú hefur Hampiðj-
an hafið sölu á nýrri ofurlínu og það virðist engin takmörk fyrir
því hvað fyrirtækið getur framleitt stór troll
Með stærsta troll í heimi
Við emm byijaðir að framleiða
Dynex ofurlínu sem er komin
um borð í nokkur skip og
hefur vakið vemlega athygli. Auk inn-
lenda markaðarins erum við þegar
famir að selja ofurlínuna til Argentínu
um borð í skip sem em að veiða allt
niður á 2.500 metra dýpi. Byr VE hef-
ur tekið þátt í tilraunum með línuna í
um eitt ár og lfnan hefur komið rosal-
ega vel út hjá þeim. Þeirra umsögn
hefur vakið mikla athygli hér heima
og erlendis því þeir lýsa ótrúlegum
styrk og endingu línunnar,“ sagði Öm
Þorláksson sölustjóri línu og kaðla hjá
Hampiðjunni í samtali við blaðið.
„Til marks um það hvað ofurlínan
er sterk má nefna að eftir þetta eina ár
sem hún hefur verið í notkun um borð
í Ver heldur hún enn 80% af uppmn-
arlegum styrk sínum, sem er krafta-
verk því eftir þann tíma þarf venjulega
að fara að skipta venjulegum hnum út.
En þeir treysta sér til að halda henni í
notkun alla vega eitt ár í viðbót. Slit-
styrkur 7 mm línu er 3.200 kíló miðað
við að venjuleg lína með sama sver-
leika er með milli 800 og 900 kíló,“
sagði Öm ennfremur.
Hann sagði að Hampiðjan hefði
tekið eitt ár í að þróa línuna og allar
prófanir farið ffam á þeim tíma. Ofur-
línan hefði strax vakið athygh erlend-
is, en Hampiðjan væri að keppa við
fyrirtæki sem væm sífellt að bjóða
sverari hnu til að auka styrkinn til nota
á miklu dýpi við erfiðar aðstæður. „En
við sjáum enga nauðsyn á því þar sem
við höfum þessi efni til staðar og get-
um boðið uppá þetta sem heldur full-
komlega og gott betur. Við höfum
kynnt línuna á sýningum bæði hér
heima, í Noregi, Danmörku og Banda-
ríkjunum auk þess sem hún verður
kynnt á fleiri sýningum," sagði Öm
Þorláksson sölustjóri.
Troll til andfætlinga
Hampiðjan er þekkt jafnt innan-
lands sem út um heim fyrir Gloríut-
rollin sem þykja taka öllum öðrum
trollum fram. Um 90% af togurum
sem veiða á Reykjaneshrygg eru til
dæmis með þessi troll, bæði innlendir
og erlendir. Haraldur Ámason hefur
unnið að markaðssetningu á trollum
Hampiðjunnar í fjarlægum löndum.
,JVlitt aðalmarkaðssvæði hefur verið
hinum megin á hnettinum, það er að
segja Ástralía og Nýja-Sjáland. Þar
höfum við verið að gera það gott og
höfum þegar selt sex stór Gloríutroll
til Nýja-Sjálands og fleiri pantanir í
deiglunni. Þá höfum við selt fjögur
troll til Ástralíu, bæði stór og lítil,“
sagði Haraldur.
Eru andfœtlingar okkar ánœgðir
með trollin?
,Já, já. Fyrsta trolhð fór út í janúar
á þessu ári og var notað við veiðar út
frá austurströnd Nýja-Sjálands. Þar
fengu þeir sinn verðmætasta túr sem
þeir höfðu nokkm sinni farið. Eftir sex
vikna túr komu þeir að landi með afla
að verðmæti um 130 milljónir ís-
lenskra króna meðan önnur skip vom
ekki hálfdrættingar á við þá sem vora
með Gloriutrollið. Eftir það má segja
að dymar hafa opnast þama og fleiri
festu kaup á trollum. í framhaldinu
munum við væntanlega setja þarna
Orn Þorláksson sölsustjóri linu og kaðla. Ljósm. E. ói.
upp einhvers konar þjónustumiðstöð.
Heimamenn sögðu mér að það hefðu
komið margir sölumenn frá Evrópu-
löndum til að selja þeim veiðarfæri.
Sumir hefðu selt en þegar gengið
hafði verið frá samningum þökkuðu
þeir fyrir sig og sáust ekki framar. Við
ætlum hins vegar að koma upp að-
stöðu í þessum löndum til að þjóna
okkar viðskiptavinum og það gerir
grundvallarmun. Slíkt hefur gefið
góða raun í öðmm löndum þar sem
við höfum gert þetta. Við höfum líka
leitað íyrir okkur með sölu á trollun-
um í Namibíu og Chile. Þá er mikil
sala til Seattle til veiða á Alaskaufsa,"
sagði Haraldur Ámason.
Stærsta troll í heimi
Guðmundur Gunnarsson er sölu-
stjóri Hampiðjunnar og heldur utan
um alla þá starfsemi sem sölunni
fylgja. Hann sagði að mikið hf væri á
innanlandsmarkaðinum.
„Þar kemur bæði til úthafskarfa-
veiðamar og í sumar flottrollsvæddist
eiginlega allur sá floti sem sótti í
Smuguna. f fyrra kom í ljós að þar
fékkst afli nær eingöngu í flottroll og
þeir sem ekki höfðu flottroll í fyrra
fengu sér þau núna. Þetta hefur valdið
gríðarlegri aukningu hjá okkur,“ sagði
Guðmundur.
En eru engin takmörk fyrir því hvað
þið getið haldið áfram að stœkka troll-
in?
„Það era eflaust einhver takmörk
fyrir því. Það stærsta sem við höfum
framleitt til þessa er 3.600 metra troll
sem er í notkun um borð í Heineste.
Við vorum að skjóta á að að kjaftopið
væri um 72 þúsund fermetrar, eða á
stærð við 12 fótboltavelli. Stærstu
möskvamir fremst era 256 metrar að
lengd, þannig að þetta er alstærsta troll
sem framleitt hefur verið í heiminum
ffarn að þessu. Það hefur verið stöðug
framþróun í þessu og á næstunni mun-
um við kynna nýja útfærslu á Gloríut-
rollinu sem nú er verið að vinna að.
Við höfum haft algjöra forystu í heim-
inum um þessi stóra troll með þessum
risamöskvum."
Hvað með Rússlandsmarkað?
„Við höfum selt töluvert á vestur-
svæðið” til Murkmansk. Þau skip það-
an sem era á úthafskarfaveiðum eru
hægt og bítandi að koma til okkar og
fá troll. Ég get nefnt sem dæmi að síð-
ast hðið vor gerðum við samning við
fyrirtæki í Murmansk upp á hundrað
milljónir króna. Þar inní vora veiðar-
færi, vinnslulínur og fiskleitartæki og
fyrir rest kom SH inn í þetta og gerði
okkur þetta mögulegt. Veiðarfærafyr-
irtæki í Rússlandi, hkt og önnur fyrir-
tæki þar, eiga ekki peninga til að gera
neitt og fá hvergi peninga. Þama virð-
ist vera stór framtíðarmarkaður fyrir
okkur og við erum aðeins farnir að
þreifa fyrir okkur á Kamtsjaka í sam-
vinnu við ÍS. Við sendum troll þangað
með flugi síðast liðinn vetur. Það fór
maður fyrir okkur út með skipinu og
ætlaði að vera um borð í þijár vikur en
það fór svo að hann var þar í sex mán-
uði. Möguleikamir eru margir út um
allar jarðir og það kostar mikla vinnu
að koma auga á þau tækifæri sem gef-
ast og nýta þau,“ sagði Guðmundur
Gunnarsson.