Alþýðublaðið - 22.10.1996, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 22.10.1996, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER 1996 ALÞYÐUBLAÐIÐ □ Lifandi trú José Jiménez Lozano: Lambið og aðrar sögur Þýðendur: Jón Thoroddsen og Kristín G. Jónsdóttir Mál og menning 1996 Höfundur þessa smásagnasafns, Jo- sé Jiménez Lozano, er Spánverji, menntaður í lögfræði, heimspeki og bókmenntum en starfaði lengst af sem blaðamaður, jafnframt því að sinna ritstörfum. Síðasta aldarfjórðunginn hefur hann nær eingöngu sinnt skáld- skapariðkun. Hann er nú hálfsjötugur og viðurkenndur sem einn athyglis- verðasti núlifandi rithöfundur Spánar. Bókmenntir | Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar Sögurnar í þessu safni fjalla að meira eða minna leyti um boðskap kristinnar trúar og mismunandi við- horf og túlkanir til hennar. En fyrst og fremst fjalla þær um einstaklinginn frammi fyrir ofurmætti yftrvalda, ver- aldlegra og kirkjulegra, sem trúa í blindni á kennisetningar og eira eng- um þeim sem óhlýðnast bókstafnum. í sögunum bíður einstaklingsins því iðulega sama hlutskipti og lambsins í titilsögunni: hann er leiddur til slátr- unar. Að lesa þessar sögur er eins og að vera leiddur aftur inn í sunnudagaskólann eft- ir margra ára fjarveru. Söguefnið er hið sama og var, en einkennist af depurð og trega, angist og skelfingu sem ekki var fyrrum. Lozano spinnur við frásagnir Biblí- unnar, segir frá framadraumum Jesú í æsku, örlögum Lasarusar eftir uppris- una og fundi Júdasar og móður Jesú. Hann sviptir persónur guðlegri tign sinni og gæðir þær hversdagsleika manneskjunnar í næsta húsi. Hann ferðast vítt og breitt um söguna, leiðir fram á svið þekkta menn sem kirkjan bannfærði og/eða kastaði á bál líkt og Savanarola og Spinoza. Hann segir einnig í sögum sínum frá örlögum nafnlausra alþýðumanna sem urðu fómarlömb grimmdar og illsku og þá á tímum Rannsóknarréttarins eða spænsku borgarastyrjaldarinnar. Það er drungi yfrr allflestum sögun- um, enda er meginefni þeirra dauði og eyðilegging þar sem ofsóttir menn og böðlar þeirra eru í aðalhlutverkum. Úr sögunum má lesa þá gömlu viðvörun, að hættulegasta leið sem menn geti valið sé sú að þjóna málstað í blindri trú og af þeirri sannfæringu að til- gangurinn helgi meðalið. Höfundur á ekki predikunarerindi við lesendur sína að öðru leyti en því að samúð hans með þeim ofsóttu og smáðu er stundum viðkvæmnislega berskjölduð og opinberar sýn þess kristna húman- ista sem Lozani sannanlega er. Á okkar trúlausu tímum telst til undantekninga að höfundar halli sér að Guði í leit að viðfangsefnum. Sög- ur Lozano koma því næstum eins og úr gömfum, vel plægðum jarðvegi, en einmitt þar felast töfrarnir. Að lesa þessar sögur er eins og að vera leiddur aftur inn í sunnudagaskólann eftir margra ára fjarveru. Söguefnið er hið sama og var, en einkennist af depurð og trega, angist og skelfmgu sem ekki var fyrrum og boðskapurinn byggir enn sem áður á mikilvægi mannúðar, umburðarlyndis og kærleika. Jón Thoroddsen og Kristín G. Jóns- dóttir hafa skilað góðri og tilgerðar- lausri þýðingu. Þau skrifa einnig fróð- legan eftirmála um höfundinn og eiga þakkir skildar fyrir að kynna hann hér á landi. Alþýðublaðið á Alnetinu sendið okkur línu alprent@itn.is ERT ÞU AÐ TAPA RÉTTINDUM? Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslu á árinu 1996: Lífeyrissjóður Austurlands L ífeyrissjóður framreiðslumanna Lífeyrissjóðurinn Hlíf Lífeyrissjóður Norðuriands Lífeyrissjóður sjómanna Lífeyrissj. verkafólks í Grindavík Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóður Vesturiands Lífeyrissjóður Bolungarvíkur Lífeyrissjóðurinn Framsýn L ífeyrissjóður ma treiðslumanna Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna Lífeyrissjóður Suðurnesja Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga Sameinaði lífeyrissjóðurinn FAIR ÞU EKKI YFIRLIT en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fieiri af ofangreindum lífeyris- sjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfiriitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið ailra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember nk. Við vanskii á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna: ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI ÖRORKULÍFEYRI GÆTTU RETTAR ÞINS í LÖGUM UM ÁBYRGÐASJÓÐ LAUNA SEGIR MEÐAL ANNARS: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tíma- marka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.