Alþýðublaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Bessastaðabækurnar Dagur85 Fimmtudagurinn 24. október Um leið og ég opnaði augun í morgun leiddist mér. Þegar ég fór ffam á baðherbergi leiddist mér. Þegar ég leit í spegilinn leiddist mér þessi forseti á sloppnum sem horfði á mig. Ég benti á hann og hann benti á móti. Ég sagði: „Hver ert þú, vinur?“ Hann spurði mig hins sama. Ég sagði: „Ókei, ókei, þú ert forsetinn og allt það, en hvað gerir þú? Opnar mynd- listarsýningar? Og hvað með það? Eru það áhrif? Em það völd?“ Forsetanum í speglinum datt ekkert annað í hug en éta upp eftir mér setningamar eins og páfagaukur. Ég sagði: „Einmitt, þú ert bara páfagaukur, étur upp það sem fólk vill heyra. Þú segir aldrei neitt óvænt, aldrei neitt nýtt, aldrei neitt sem getur haft nokkur áhrif!“ Ég var orðinn nokkuð reiður og pirraður og mér sýndist forsetanum renna í skap einnig. Ég leit undan. Ég mátti ekki við því að byrja daginn á rifrildi við spegilinn á baðhérberginu. f dag þyrfti ég á öllum mínum kröftum að halda og ég vildi ekki sólunda þeim strax í bítið. í dag ætlaði ég að breyta ásýnd forsetaembættisins, gera eitthvað það við embættið sem hæfði reynslu minni, þekkingu og hæfni. Ég klæddi mig, greip rúnnstykki á leið minni gegnum eldhúsið og út í bfl. „Reykja- vík,“ sagði ég við bflstjórann eins og ég gæti í raun farið hvert á land sem var. Þetta er liður í nýjum tökum á embættinu. Héðan í frá geri ég það sem ég vil. Þótt ég geri ef til vill það sama áður, þá mun ég héðan í frá vilja gera það sem ég geri. Ég gekk með þjósti inn á Sóleyjargötuna, heilsaði á báðar hendur á hraðferð minni inn á skrifstofu. „Komí,“ hrópaði ég skip- andi í kallkerfið um leið og ég settist. Ég tók tímann. Tuttugu og átta sek- úndur. Þá opnaði hann hurðina, óað- finnanlega klæddur, óaðfinnanlega greiddur, óaðfmnanlega áhugalaus en einbeittur í andliti. Hvemig tekst hon- um að vera einbeittur en samt áhuga- laus á sama tíma? Þetta hlýtur að vera eitthvað sem menn læra í diplómata- skólanum. „Korní,“ sagði ég ákvfeð- inn, „héðan ( frá gerum við ekkert nema það sem ég vil.“ Hann horfði á mig einbeittur en áhugalaus. „Héðan í frá mun ég breyta þessu embætti, auka áhrif þess, nota það til að fleyta þessu moldarkofaþjóðfélagi inn í tutt- ugustu og fýrstu öldina," bætti ég við. Hann horfði á mig og beið. Helvítið á honum, hann beið. Hann vissi eitt- hvað sem ég vissi ekki. „Hafa ein- hverjir blaðamenn beðið um viðtöl í dag?“ spurði ég. „Ég gæti látið ýmis- legt flakka í þeim sem gæft til kynna hvað ég ætlaði af þessu embætti." „Nei,“ sagði hann og mig grunaði strax að hann væri ánægður með þetta svar. „En sjónvarpsmenn?" „Nei.“ Ég hugsaði mig um. „Hefur einhver beð- ið um ávarp, ræðustúf, eitthvað þess- legt?“ „Nei.“ „Hvað þá? Hefur enginn beðið um þjónustu forsetans í dag?“ ,Jú,“ sagði Komí. Ég horfði á hann. Hann var að bíða eftir að ég spyrði hver hefði óskað eftir þjónustu okkar. Ég ætlaði ekki að gefa mig. Hann stóð þama í einhverri stellingu sem hann hafði lært á diplómataskólanum og ætlaði ekki að gefa sig. „Hver?“ spurði ég. „Þín er vænst við opnun kvikmyndahátfðar," sagði hann. „Ætl- arðu að senda mig í bíó?“ spurði ég hvumsa. ,Ja, það er hefð fyrir því að forseti íslands sé viðstaddur fyrstu sýningu á þessari hátíð,“ svaraði hann án þess að bregða svip. Ég sneri mér í stólnum og horfði út yfir Hljómskála- garðinn. Eg fann hvemig löngunin til áhrifa sullaði í æðum mér, hvemig at- orkusemin beið þess að finna sér rétt- an farveg. Og ég var á leiðinni í bíó. Og ég fann að ég gat ekkert gert til að breyta því. Þetta var klípan sem ég var lentur í. Ég hafði barist til metorða til þess eins að sitja í myrkvuðum sal og borða popp. Ég sneri mér aftur að Korní. „Hvemig á ég að vera klædd- ur?“ „Þessi föt sem þú ert í em vel til- hlýðileg þó ég myndi ef til vill frekar vera með þetta bindi," sagði hann og dró bláröndótt bindi upp úr vasanum. Ég horfði á fangavörð minn og fannst bindið snoturt skraut við fangabúning- inn. Dagur86 Föstudagurinn 25. október Önnur tilraun á skrifstofunni. „- Komí, þú hlýtur að sjá það, ég verð að setja mark mitt á þetta embætti, ég get ekki sífellt verið að hendast út um borg og bí að opna sýningar, vera við- staddur verðlaunaafhendingar, mæta í kokteila. Einhvers staðar verð ég að finna tíma til að vera ég, herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýðveldisins. Ekki bara hvaða forseti sem er, heldur herra ég sjálfur." „Ég skil það fullvel, Ólafur, en þetta er alþjóðleg frí- merkjasýning og samkvæmt mínum heimildum em miklar líkur til að fs- lendingur vinni þama í fyrsta skipti grand prix-verðlaun fyrir safnið sitt.“ „Þú getur ekki gert mér þetta, Komí, ekki frímerkjasýningu, gerðu það,“ grátbað ég. „Það væri ákfalega óvið- eigandi ef forseti íslands mætti ekki,“ sagði hann með þessum óhaggandi mónótómska tón. Þetta var örlagasin- fónía mín. Þessi óhaggandi mónót- óníski tónn sem fylgdi mér í innibyrg- an heim steindauðra hefða. „Hvaða maður er þetta sem á að fá verðlaun- in?“ spurði ég. „Indriði Pálsson," svaraði hann. „Indriði Pálsson," át ég upp eftir honum, „eitthvað kannast ég við nafnið." „Ja, hann var forstjóri Skeljungs," sagði Komí. Ég horfði á hann. Ég veit ekki hvemig mér leið. „Er Kolkrabbinn búinn að taka yfir frímerkjasýningamar líka?“ spurði ég - ekki Komí frekar en aðra, ég varp- aði þessari spumingu bara fram. Hvað er að gerast í þessu þjóðfélagi? Einu sinni dunduðu ungir drengir við frí- merkjasöfnin sín en nú hefur Kolb- rabbinn teygt sína gráðugu lúku fram og hrifsað þau af þeim. Og ég er for- setinn yfir þessum óskapnaði. Og ég á að veita blessun mína yfir þessari þró- un með því að afhenda Kolbrabban- um sérstök verðlaun fyrir ódæðið. Og ég get ekkert gert, það er ekki tilhlýði- legt. Ég verð að dansa með. Dagur 87 Laugardagurinn 26. október Það lá ekkert sérstakt fyrir í dag. Og ég var þv£ feginn. Ég gekk um sali Bessastaðastofu og reyndi að skynja nið aldanna. Hér hafði saga þjóðarinn- ar oltið ffam. Hér hafði Snorri átt hjá- leigu. Hér var Bessastaðaskóli. Hér lærðu Fjölnismenn. Hér var Svein- bjöm skólameistari. Hér lék Grímur Thomsen við hundinn sinn. Hér var Skúli Thoroddsen. Hér bjuggu Sveinn, Asgeir og Kristján. Líka Vig- dís. Þegar ég hnusaði út í loftið fann ég aðeins létta angan af ilmvatninu hennar. Engan keim af hinni ómstríðu sögu þjóðarinnar. Vom þeir sem þótt- ust finna hann ekki bara að plata? Hver finnur fyrir nið sögunnar? Og hvernig þá? Hristast menn? Kemur hún yfir mann eins og léttur hausverk- ur? Eða tannpína? Hvað veit ég? Ég geng um ganga Bessastaðastofu og finn bara lykt af Channel no 5. Og finnst hún góð. Ætli Channel búi til rakspíra sem hæfa forsetum? Ég gekk inn í bókaherbergið, settist við skrif- borðið og tók fram frímerkjabókina sem ég keypti í gær. Indriði hafði gef- ið mér þrjú frímerki á sýningunni í gær. Ég setti merkið hans Sveins á fyrstu blaðsíðu, Ásgeir á blaðsíðu tvö. Þá skipti ég um skoðun og færði Ás- geir á síðu þrjú. Mér fannst við hæfi að hver forseti fengi eina opnu fyrir sig. Kristján lenti á síðu fimm. Vig- dísarmerkið var enn óútkomið. Það færi á blaðsíðu sjö. Og mitt kæmi á síðu níu. Ég lokaði bókinni. Þetta var ef til vill ekki stórt safn en það var fal- legt. Þrjú merki í bók og tvö ókomin. Það var yfir þessu safni fallegur fyrir- boði. Það var alveg sama hvað þeir gerðu mér, hversu rækilega þeir héldu mér niðri; þeir munu aldrei taka af mér frímerkið. Dagur 88 Sunnudagurinn 27. október Sunnudagur á Bessastöðum. Forset- inn situr í bókastofunni. Hann handf- fjatlar bók, blaðar í henni, leggur hana frá sér. Þetta er ffímerkjabók. Forset- inn hallar sér aftur í stólnum og horfir á síður bókarinnar þarsem hún liggur opin á borðinu fyrir ffarnan hann. Hún er opin á blaðsíðu átta og níu. Snyrti- legir plastrenningar liggja eftir síðun- um. Að öðru leyti eru þær auðar. For- setinn horfir á opnuna og reynir að ráða í framtíð sína af henni. Framtíð sumra er eins og hvítt blað. Framtíð mín er eins og opna í frímerkjabók. Afrek mín munu skipast í snyrtilegar raðir, formlegar og fyrirfram ákveðn- ar. Ég hef ekki stjóm á hvemig þau skipast í raðir en ég ræð nokkm um hver þau verða. Komí stjómar röðun- um. Ég verð að halda mér innan þeirra. En á bak við plastið get ég ráð- ið nokkru. Það er frelsi mitt til at- hafha, svigrúm mitt til að setja mark mitt á þetta embætti, sögu þjóðar minnar, framvindu mannkynssögunn- ar. Á bak við plastrenninga í frí- merkjabók. Þar er framtíð mín í þrengslunum og loftleysinu. Það þarf nokkuð til að fremja þar afrek er hæfa vænum mínum og væntingum. En ef ég þekki mig rétt þá hef ég nokkuð til þess. í það minnsta minnir mig að ég sé þannig maður. Að ég hafi verið þannig maður. Dagur 89 Mánudagurinn 28. október Ég var mættur á skrifstofuna klukk- an átta. Beið til klukkan níu fimmtán. Hringdi í Sighvat Björgvinsson. „Ég vildi láta þig vita af því, Sighvatur minn, að þú hefur fullan stuðning minn til formennsku í Alþýðuflokkn- um.“ Ég beið ekki eftir þökkum held- ur sleit samtalinu. Ég vildi ekki hlusta á hann verða meyran yfir þessum óvænta stuðningi frá hæstu hæðum samfélagsins. Klukkan var níu átján. Ég hringdi í Guðmund Áma Stefáns- son. „Eg vildi láta þig vita af því, Guðmundur minn, að þú hefur fullan stuðning minn til formennsku í Al- þýðuflokknum." Ég beið ekki eftir þökkum heldur sleit samtalinu hið fyrsta. Ég hafði mikið að gera. Ég var í ham. Ég var að plotta um framtíð/ís- lenskra stjómmála. Ég vissi ekki al- veg hvað ég vildi með þessu en ég fann að ég var að gera hið réttá. Hringja í menn og dreifa stuðningi, örlítið misvísandi, en stuðningi engu að síður. Það er sama hver yrði for- maður hjá krötum, sá myndi muna eftir símtalinu sem hann fékk einn mánudagsmorgun frá herra forseta ís- lands. Menn gleyma slíku ekki svo auðveldlega. Það er einn kosturinn við að vera forseti. Menn gleyma manni ekki svo auðveldlega. Ólafur Ragnar Grímsson. Já, hann. Slíkt segir enginn lengur. Það er ömggt. Nafnið er kom- ið inn. Nú vantar bara afrekin til að fýlgja því. Dagur 90 Þriðjudagurinn 29. október Ég kallaði Komí inn til mín um leið og ég mætti á skrifstofuna. „Korní, hringdu í Nelson Mandela og bjóddu honum í opinbera heimsókn. Og vertu fljótur að því. Maðurinn er orðinn nokkuð gamall.“ Svona á það að vera. Ég ætlaði ekki að lenda í því að bjóða hingað upp einhverjum Belgíukóng- um sem enginn kann að nefna. Vin- samlegast sýnið friðarverðlaun Nób- els við landganginn. Það verður skil- yrðið til að heimsækja mig. Af vinun- um skuluð þér þekkja mig. Mandela, Havel - svoleiðis menn. Verst að Palme skuli vera dauður. Vigdís má eiga kóngaklúbbinn. Ég ætla að tryggja mér sæti í betri selskap. Ég ætla að ræða um framtíð mannkyns, friðarferli hér og hvar, afvopnun og fólksfjölgun. Eg læt kóngana um skilnaði, bamseignir og góðgerðarmál eins og alnæmi, berkla og þess konar. Ég hef ekkert á móti þessu svo sem, en ég er ekki gerður til smærri verka. Engin bjartsýnisverðlaun handa mér, nei takk. Friðarverðlaun kannski og helst ef ég get afþakkað þau á síðustu stundu. Ég ætla að verða afgerandi forseti, beittur og nteð þungri undir- öldu. Ekkert lamb sem leggst með hvaða Ijóni sem er. Ég er búinn að finna sjálfan mig. Komí truflaði þess- ar hugsanir mínar. Hann sagði að for- setaskrifstofa Suður-Afríku hefði tek- ið vel um umleitan sína um opinbera heimsókn. Ég beið þess að Komí færi og lokaði á eftir sér. Þá stökk ég upp á borð og gargaði: „Jibbbííí." Korní opnaði hurðina og horfði á mig stand- andi upp á borði. „Það þarf að skipta um þessa peru,“ sagði ég og benti á loftljósið. „Hún er alltof sterk." Dagur 91 Miðvikudagurinn 30. október Hvað er að taka vel í umleitan? Ef lögmaður Færeyja hringdi í mig og spyrði hvort ég vildi koma í opinbera heimsókn, myndi ég ekki taka vel í það? Auðvitað. Ég myndi taka ákaf- lega vel í það en fara hvergi. Ég myndi aldrei fyrir mitt litla líf eyða tíma mínum í að heimsækja Færeyjar. Ég held þeir séu ennþá með svarthvítt sjónvarp. Þeir ganga enn með prjóna- húfur. Forsetinn heilsar lögmanni Færeyjar. Hann er með húfu. Forset- inn heilsar biskupi Færeyja. Hann er með húfu. Það er alveg sama hversu mikið ég myndi brillera, ferð mín til Færeyja yrði alltaf álappaleg. Eins og Kristján X að heilsa fslenskum bænd- um í bæjarhlaðinu við torfbæ. Og er Mandela ekki að velta þessu sama fyrir sér? Hvers vegna ætti hann að fara til íslands? Hann getur valið um London, París, Róm, New York, Pek- ing, Moskvu. Hvar er Reykjavík á óskalista Mandela? Einhvers staðar á milli 130. og 144. sætis. Hann sér fram á að koma hingað ef hann verður 230 ára. Afhveiju er ég íslendingur? Af hverju fæddist ég hér? Drottinn guð, gef mér þjóð sem skiptir máli. ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.