Alþýðublaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 ALPÝÐUBLAÐK) 7 ■ Sextíu ár frá því að Þjóðviljinn leit dagsins Ijós Skeleggur, vel skrifaður og heiftúðugur „Ég verða að segja að margt missti sín með Þjóðviljanum," sagði Svavar Gestsson en nú eru sextíu ár liðin frá því að Þjóðviljinn kom út fyrst en sem kunnugt er lagði af- mælisbarnið upp laup- ana áður en sextugs- aldri var náð, nánar til- tekið í lok janúar árið 1992. Alþýðublaðið bað valda menn að minnast afmælis- barnsins sáluga. „Þjóðviljinn var með bestu umfjöll- unina um verkalýðs-, menningar- og utanríkismál og opnaði fyrir umræðu í öðrum fjölmiðlum," sagði Svavar, sem lengi var ritstjóri blaðsins. „Eftir að Þjóðviljinn hvarf hefur þrengt af frjálsri blaðamennsku. Vinstri menn hafa minni möguleika en áður á því að taka þátt í daglegri pólitískri um- ræðu.“ Engu við það að bæta „Eg kvaddi Þióðviljann á sínum tíma. Það var birt í síðasta tölublaði þess blaðs og við það hef ég engu að bæta,“ sagði Matthías Jóhannessen rit- stjóri Morgunblaðsins. „Þjóðviljinn var hjartsláttur komm- únista," sagði Indriði G Þorsteinsson. „Þar var aðallega skrifað um pólitík og menningu eins og hún átti að vera samkvæmt forskriftinni. Það var gam- an að fylgjast með þessu en það fer allt fyrir borð hjá þessum blessuðu mönnum.“ ,Árið 1978, þegar ég hætti að vinna þama, fóru tólf þúsund eintök á dag af Þjóðviljanum og hann bar sig mjög vel,“ sagði Svavar. „Þá var mikil ein- ing innan Alþýðubandalagsins en árið 1985 hófust átök í flokknum sem ég tel að hafi átt stærstan þátt í þvf að gera út af við blaðið. Undir lokin stóð blaðið svo illa íjárhagslega að það var ekki hægt að haída því úti nema stefna í hættu fjárhag einstaklinga í stórum stfl.“ Loftfimleikar og spádómar „Það er eftirsjá að gamla Þjóðvilj- anum,“ sagði Indriði. „Faðir minn keypti hann alltaf og var hálfgerðúr íylgismaður þessara manna og ég ólst Svavar Gestsson: Þjóðviljinn var hagur hreyfingarinnar og hennar verk því fólk gaf af matarpeningum sínum til að halda úti blaði. í þá daga sá fólk greinilega samhengi milli lífskjara sinna og þess að staða Þjóðviljans væri sterk. upp við að bera virðingu fyrir vel skrifandi mönnum. Af merkilegum Þjóðviljamönnum vil ég nefna Magn- ús Kjartansson og hans dálka um pó- lítík eins og Austra. Þetta voru miklir loftfimleikar og spádómar enda voru menn að fjalla um viðkvæma hluti eins og Stalín. Þetta voru pólitískar heimasætur vinstri manna og menn sátu á tröppunum og biðu eftir að þeir létu sjá sig.“ Hagur hreyfingarinnar „Það er kannski ósanngjarnt að nefna einn og tvo mennsagði Svav- ar Gestsson. „Þetta var hagur hreyf- ingarinnar og hennar verk því fólk gaf af matarpeningunum sínu til að halda úti blaði. I þá daga sá fólk greinilega samhengi milli lífskjara sinna og þess að staða Þjóðviljans væri sterk. En ég verð þó að nefna Einar Olgeirsson því hann var lífið og sálin í hreyfingunni lengur en nokkur annar maður. Það var þó fyrir mína blaðamannatíð, ég minnist einna helst tímans með Kjart- ani Ólafssyni og Áma Bergmann sem skilaði geysilega sterkum Þjóðvilja." Grafinn og gleymdur tími „Blaðið var ákaflega heiftúðugt og einn liður í að frelsa heiminn en það hefur ekki tekist enn eins og menn vita,“ sagði Indriði G. Þorsteinsson. Þetta er grafinn og gleymdur tími og þeir eru ílestir komnir ofan í jörðina sem gerðu þennan garð frægan. Það var mikið af fólki á þeim árum sem var alveg sérstaklega vel skrifandi en íslendingar hafa týnt mikið niður þessari fallegu list. Enda eru pólitískir dálkahöfúndar flestir atvirmulausir eða skuggar þeirra sem áður voru. Þegar Þjóðviljinn dó urðu ýmsir menn einmana í pólitík." ■ Þorvaldur Þorsteinsson stendur í stórræðum á Akureyri Indriði G. Þorsteinsson: í dag veður sá misskilningur uppi að texti þurfi að Ijóma af einhverjum óskapleg- um gáfum, útkoman er ekki gáfu- leg heldur sú að menn rembast á pappírinn og útkoman er remba. Sérkennilegt tungutak „Þjóðviljinn hafði sérkennilegt tungutak og var ákaflega orðljótur," Matthías Jóhannessen: Ég kvaddi Þjóðviljann á sínum tíma og hef engu við það að bæta. sagði Indriði. „En hann var vel skrif- aður og því er komin upp sú taktík að ýmsir lítils megnugir dálkahöfundar halda að þeir séu vel skrifandi af því þeir eru á sama máli og Þjóðviljinn. En í dag veður sá leiði misskilningur uppi að texti þurfi að ljóma af ein- hveijum óskaplegum gáfitm, útkoman er ekki gáfuleg heldur sú að menn rembast á pappírinn og útkoman er remba." „Pólitísk blöð eiga erfiðara upp- dráttar en áður,“ sagði Svavar Gests- son. „Það er veruleiki sem blasir við blaðaheiminum og menn verða að horfast í augu við. Ymislegt hefur komið í staðinn, til dæmis eru Mogg- inn og DV eru opnari blöð í dag og það eru ljósvakamiðlamir líka þó að þar sé greinileg hætta á einokun og hringamyndum eins og Margrét Frí- mannsdóttir benti á í útvarpsviðtali nýlega. Við tókum þá ákvörðun eftir að Þjóðviljinn hætti að leysa okkar út- gáfumál öðruvísi vegna þess að við höfðum ekki fjármagn til að gera bet- ur en það. Ég vil að lokum þakka Al- þýðublaðinu íýrir að muna eftir þessu afmæli.“ ■ Þetta getur ekki klikkað -segir Þorvaldur sem opnar viðamikla myndlistarsýningu nú um helgina. Þorvaldur Þorsteinsson: Ég er á starfslaunum og er bara að vinna vinnuna mína; að leika myndlistar- mann. „Þetta er myndlist sem er að kepp- ast við að líta ekki út einsog mynd- list,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson fjöllistamaður í samtali við Alþýðu- blaðið en hann mun opna viðamikla sýningu á laugardaginn í Listasafninu á Akureyri. Mikill fjöldi manna kemur að henni með einum eða öðrum hætti. Sýningin heitir Eilíft líf og er marg- þætt. Meðal verkanna má nefna At- hafnir, ljósmyndaröð sem sýnir 25 al- gengar athafnir fólks í heimahúsum. ,Já, ég er búinn að gefast upp á að reyna að búa til verðandi verðmæti - misskilin verk sem verða skilin síðar eftir að ég er skilinn við. Þetta er IU- sýning (instant understanding),“ segir listamaðurinn sem er búinn að virkja alls 200 manns á Akureyri til að allt verði sem best verði á kosið. „Þetta er meðal annars fólk sem ýmist hefur hleypt að ljósmyndara inná heimili sitt eða leyft Þorsteini Joð að taka viðtöl við sig. Arnaldur Halldórsson ljós- myndari kom sérstaklega norður til að taka myndir en hann er snillingur ekki síður en Þorsteinn.“ Þorvaldur er spurður hvort hann sé búinn að setja bæjarfélagið á annan endann og hann jánkar því. „Þetta get- ur ekki klikkað. Það verður fjölmenni á opnuninni og til að tryggja enn frek- ar til að allir skemmti sér hef ég feng- ið kór aldraðra til að syngja við opn- unina og í framhaldi af því mun safn- stjórinn kaupa fyrstu kökuna á Kökub- asar kvenfélagsins Framtíðarinnar sem verður þama með sitt besta bakkelsi í tilefni dagsins,“ segir Þorvaldur sem „Að spjaila við gesti" úr myndröð- inni Athafnir. ekki hefur setið auðum höndum frá því að hann kom til Akureyrar í byrj- un september. „Ég er á starfslaunum og er bara að vinna vinnuna mína; að leika myndlistarmann." í tengslum við sýninguna verða hljóðverk flutt á Rás 2 á hverjum virk- um degi meðan sýningin stendur yfir. DT mun birta að minnsta kosti 12 verk sérstaklega unnin fyrir blaðið og þannig má lengi telja. Þorvaldur er væntanlegur til höfuðborgarinnar í lok nóvember. „Það er vinna að halda sýningu og þegar hún snýst um veru- leikann verður maður að vera á staðn- um. Norðanmenn taka mér ótrúlega vel, þar ber hvergi skugga á,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson. ■ ■ The Bang Gang í Hinu húsinu íslenskan hentar ekki rokkinu Hljómsveitin The Bang Gang sem sendi nýlega frá sér 7 tommu hljómplötuna Listen baby mun halda fyrstu tónleika sína á morgun, föstudaginn 1. nóvember, í Hinu húsinu. Alþýðublaðið náði tali af Barða Jóhannssyni og Henrik Baldvin Björnssyni... Nú eru þetta fyrstu tónleikamir ykk- ar. Hvað hafið þið uppá að bjóða? „Við bjóðum uppá háklassarokk en megin ástæða þess að við ætlum að spila á tónleikum er forvitni. Okkur langar að komast að því hvemig emm á sviði.“ Hvað eru margir sem skipa þessa sveit? , J>etta er dúett skipaður okkur, Hen- rik og Barða, en við höfum fengið til liðs við okkur þrjá undirleikara þau Áma Þór, Esther og Hrafnhildi. Þau gerir okkur fært að flytja tónlistina „li- ve“. Annars emm við ákaflega ánægð- ir með innlegg þessara listamanna í starfsemi sveitarinnar.“ Lögin á plötunni eru í anda gam- alla rokkslagara. Er stefnunni haldið í þá átt? „Nýju lögin em ekki í alveg sama stíl og þau smáskífunni. Það er notast meira við hljómborðs-og tölvuhljóð. Öll eiga þó lögin okkar sameiginlegt að vera rokkuð og taktföst sem er afar tónleikavænt. Við höfum flókinn ein- faldleika sem felst í því að hver ein- asta nóta í lögunum okkar hefur til- gang. Til dæmis höfum við engin óþarfa gítarsóló, trommulæti eða ann- að slíkt rugl. Lögin okkar eru mel- ódísk og kúl.“ Það fer ekki mikiðfyrir söng á smá- skífunni ykkar. Er von á að heyra raddbönd þanin á morgun? „Ójá. Söngur átti einfaldlega ekki við þessi lög en allt nýja efnið er sam- ið með miklum og melódískum söng- línum. Til þess að geta fullnægt söng- þörf þessara laga fengum við söng- konuna Esther Talíu Casey til að ljá okkur rödd sína. En fram að því hafði Henrik séð aleinn um barkaþenslu." Allir textamir og upplýsingamar á plötunni eru ensku. Er (slenskan ekki nógu góð fyrir THE BANG GANG (Hvellgengið)? Það passar einfaldlega ekki við mússíkina að syngja á íslensku og því væri fáránlegt að vera með enska texta en upplýsingar á íslensku. Auk þess hentar íslenska ekki til söngs í rokk- lögum meðal annars vegna þess hve íslenskan er hart mál. Einnig finnst okkur íslenskir söngvarar fíflalegir þegar þeir syngja íslensku með sam- blandi af flámæli og enskum hreim. íslenskan fellur hins vegar vel við drykkjusöngva og jólasálma en hljóm- K ar fáránlega í rokkmússík." Þið gerðuð myndband sem hefur fengið nokkra sýningu á sjónvarps- | stöðvunum. Hvemig var þeirri vinnu háttað? „Kunningi okkar, Ami Þór, sem er starfsmaður Saga film hafði heyrt plötuna og fannst lögin góð. Þegar við sámm allir saman á kaffihúsi ákváðum við að gera myndband við lagið Listen Baby. Utkomuna geta menn svo séð á Sýn og í sjónvarpinu á milli dagskrár- liða.“ Hvað er á döfinni hjá sveitinni nœstu misseri? „Það eina sem er framundan er að spila á tónleikum, klára heimasíðuna okkar, taka upp lög og gera annað myndband. Síðan munum við gera hlé á starfsemi sveitarinnar vegna ferðar til Prag og íslenskunáms.“ ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.