Alþýðublaðið - 12.11.1996, Page 4

Alþýðublaðið - 12.11.1996, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐiÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996 ó r n m á I Spenna í formannskjöri Sighvatur 177— Guðmundur Ámi158 Sighvatur Björgvinsson var kjör- inn ellefti formaður Alþýðuflokks- ins á 48. þingi flokksins um helg- ina, þegar hann bar sigurorð af Guðmundi Árna Stefánssyni. Á kjörskrá voru 357 og alls kusu 340, eða 95,2 prósent. Sighvatur hlaut 177 atkvæði, 52,1 prósent, en GuðmundurÁrni 158, eða 46,5 prósent. Einn seðill var auður en fjögur atkvæði voru greidd öðrum. Ámundi Ámundason, Jón Baldvin Hannibalsson, Mörður Árnason og Rannveig Guðmundsdóttir fengu eitt atkvæði hvert. Nýr varaformaður Alþýduflokksins Ásta sigraði örugglega Ásta B. Þorsteinsdóttir varaþing- maður var kjörin varaformaður Alþýðuflokksins í stað Guðmund- ar Árna Stefánssonar. Ásta og Gunnar Ingi Gunnarsson formað- ur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur höfðu formlega gefið kost á sér. Á kjörskrá voru 357 og alls kusu 322. Ásta fékk 186 atkvæði (57,8 prósent), Guðmundur Árni Stef- ánsson 89 atkvæði (27,6), Gunnar Ingi Gunnarsson 27 atkvæði (8,4), Össur Skarphéðinsson 5, og þau Ásta Sigurðardóttir, Guðjón Þór- hallsson, Guðmundur Finnsson, Kristín Jóhanna Björnsdóttir, Sig- urður Tómas Björgvinsson og Valgerður Bjarnadóttir eitt at- kvæði hvert. Auðirseðlarvoru 9. Nýr formadur framkvæmdastjórnar Magnús M. Norðdahl kjörinn með yfirburðum Magnús M. Norðdahl var kjör- inn formaður framkvæmdastjórn- ar Alþýðuflokksins í stað Guð- mundar Oddssonar, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Á kjörskrá voru 357 og ails kusu 292. Magnús hlaut 226 atkvæði, Kristinn T. Haraldsson 34, Gestur G. Gestsson 12, Rafn Haraldsson 2, Össur Skarphéðinsson 2, Petr- (na Baldursdóttir 2, Birgir Dýrfjörð 1 og Þorvaldur Finnsson 1. Auðir seðlar voru 11 og einn var ógild- ur. Tvísýn barátta um embætti ritara Valgerður Guðmundsdóttir endurkjörin Valgerður Guðmundsdóttir var endurkjörin ritari Alþýðuflokksins í tvísýnni baráttu við Vilhjálm Þor- steinsson. Á kjörskrá voru 357 og alls kusu 313. Valgerður hlaut 161 atkvæði, Vilhjálmur 141, Sigrún Benedikts- dóttir 3, Guðmundur Árni Stef- ánsson 2 og þeir Reynir Ólafsson, Ólafur Thordersen, Jóhanna Þór- dórsdóttir og Valgerður Bjarna- dóttir eitt atkvæði hvert. Auðir seðlar voru tveir. ■ Jón Baldvin Hannibalsson að afloknu flokksþingi Sérstök ánægja með góðan hlut kvenna og ungs fólks „Málefnaleg eindrægni á þessu flokksþingi var meiri en nokkru sinni á mínum ferli í Al- þýðuflokknum." „Ég tók þá ákvörðun sem fráfarandi formaður að mæla með eftirmanni mínum. Það var gagnrýnt af ýmsum og þótti að minnsta kosti óvenjulegt. Ég gerði reyndar meira. Ég lýsti per- sónulegum skoðunum mínum á því hvemig ég vildi sjá samhenta forystu- sveit, og rökstuddi það fyrst og fremst með því að Alþýðuflokkurinn þyrfti að sýna gott fordæmi, nú þegar sam- einingarferli á vinstri væng er hafið. Auðvitað var ég líka að vara við því ástandi sem myndaðist í flokknum á síðustu ámm. Það leiddi til óeiningar innan forystunnar og varð okkur að falli í síðustu kosningum. Niðurstaða flokksþingsins sýnir að alþýðuflokks- menn tóku skilaboðum mínum nokk- uð mismunandi. Eftir stendur að Sig- hvatur Björgvinsson hefur verið kjör- inn formaður. Munur á milli fram- bjóðendanna var hinsvegar minni en flestir gerðu ráð fyrir, og hlutur Guð- mundar Árna Stefánssonar á þessu flokksþingi var góður,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson í viðtali við Al- þýðublaðið á síðasta degi 48. þings Álþýðuflokksins. Formaðurinn fyrrverandi sagði mik- ið ánægjuefni að konur og ungt fólk hefði til muna styrkt stöðu sína í for- ystusveit og stofnunum flokksins: „Hið ánægjulega gerðist, sem ekki var fyrirséð, að fulltrúar kvenna og unga fólksins styrktu mjög stöðu sína í forystusveit flokksins. Þegar ég segi að það hafi ekki verið fyrirséð, þá er það bara vegna þess að svona kapall ræðst á flokksþinginu. Eftir stendur að kona er tekin við varaformennsku, kona er tekin við gjaldkerastarfinu, kona var endurkjörin ritari, konur eru í meirihluta í framkvæmdastjórn og tvær konur leiða þingflokk jafnaðar- manna. Þetta eru auðvitað tíðindi, og sérstaklega ástæða til að nefna vegna gagnrýni, sem stundum hefur heyrst ffá Kvennalistanum, um að konur ættu erfitt uppdráttar í Alþýðuflokknum. Það hefur nú heldur behir afsannast." Málefnaleg eindrægni meiri en nokkru sinni Hvað með málatilbúnað á flokks- þinginu? Ymsum finnst að á mœli- kvarða Alþýðuflokksins hafi hann ver- iðfurðu daufur? ,JÉg get tekið undir það, en á því eru ýmsar skýringar. Á undanförnum flokksþingum hefur verið lögð gnðar- leg vinna í málefnaundirbúning, einna mest fýrir flokksþingið 1994 og fyrir aukaflokksþingið um Evrópumál í árs- byijun 1995. Við áttum því að baki flokksþing, þar sem málefnaleg undir- búningsvinna var mjög rækileg. Flokksþingið nú byggir að verulegu leyti á þessari vinnu, og því eru álykt- anir styttri og einatt byggðar á for- sendum eða með tilvísun til þess sem áður lá fyrir sem samþykkt steína. Það má orða það svo, að stefna Alþýðu- flokksins hafi legið fyrir í öllum veigamestu málum. Málefnaleg ein- drægni á þessu flokksþingi var meiri en nokkru sinni á mínum ferli í Al- þýðuflokknum. Það var satt að segja ekki ágreiningur um eitt eða neitt. Umræðan endurspeglaði að menn voru ekki að takast á um stefnu flokksins.“ Fyrirlestraferð um Kína Hvað tekur nú við hjá þér? „Ég byija á því næstu daga og vikur að minna mig á það kvölds og morgna, að ég er ekki lengur formaður Alþýðuflokksins. Sjálfsagt tekur ein- hvem tíma að venjast því. Á næstunni mun ég taka boði um að fara í þriggja „Ég byrja á því næstu daga og vik- ur að minna mig á það kvölds og morgna, að ég er ekki lengur for- maður Alþýðuflokksins," segir Jón Baldvin. vikna fyrirlestraferð til Kína í boði utanríkismálastofnunar Kína, ýmissa samtaka og nokkurra háskóla, þar sem ég mun fjalla um alþjóðamál og EVr- ópumál. Að svo stöddu hef ég ekki gert frekari áætlanir, en þau orð standa að ég mun ekki sækjast eftir endur- kjöri til Alþingis í næstu kosningum. Hversu lengi ég sit á þingi veit ég ekki á þessari stundu.“ ■ Valgerður Guðmundsdóttir ritari Alþýðuflokksins Samstilltur hópurí framkvæmdastjórn Valgerður Guðmundsdóttir var end- urkjörin ritari Alþýðuflokksins. Hún segir þingið gott, og þó á tímabili hafi ríkt mikil spenna hafi það farið vel fram. „Úrslitin í formannskjörinu komu mér ekki á óvart en munurinn var kannski minni en ég átti von á. Sjálf bjóst ég allt eins við því að fá mótframboð í embætti ritara enda hef ég sagt áður að ég tel eðlilegt að kosið sé á milli manna á þingi jafnaðar- manna og að niðurstöðunum sé tekið. Ég er sátt við úrslitin almennt og nú er mikið verk fyrir höndum. Það þarf að skipuleggja það sem betur má fara og ég tel að í framkvæmdastjóm sé sam- stilltur hópur sem er samstiga um að taka á því.“ Sigrún Benediktsdóttir gjaldkeri Alþýðuflokksins Ögrandi og skemmtilegt verkefni Sigrún Benediktsdóttir var kjörin gjaldkeri Alþýðuflokksins með lófa- taki á nýafstöðnu flokksþingi. Hún tekur við af Sigurði Amórssyni sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Sig- rún kvaðst hlakka til að takast á við „Eðlilegt að kosið sé á milli manna," segir Valgerður Guð- mundsdóttir. starfið: „Ég er búin að kynna mér starfið og það er ögrandi og skemmti- legt. Það em litlir peningar til en þetta er síður en svo óframkvæmanlegt. Það þarf að endurskipuleggja fjármálin en ég hef reynslu af því í gegnum starf mitt að takast á við slík verkefhi og kvíði engu. Það er gott fólk í kringum mig og ég mun taka upp önnur vinnu- brögð en hafa tíðkast, án þess að ég sé með því að kasta nokkurri rýrð á störf Sigurðar Amórssonar. En ég tel til dæmis að það fari betur á því að gjald- keri einbeiti sér að fjármálalegri yfir- stjóm en sé ekki sjálfur í því að borga reikninga. Það er betur komið í hönd- um ffamkvæmdastjóra flokksins. Einnig stefni ég að því að fá einhvem til að annast bókhaldið en ég tel ekki rétt að gjaldkeri færi jafnframt bók- hald. Ég tek við þessu starfi full af „Tek ekki við slæmu búi, síður en svo," segir Sigrún Benediktsdóttir. áhuga. Það er ofsögum sagt að flokk- urinn sé á hausnum þó staðan sé knöpp. En ég tel ekki tímabært að tjá mig nánar um það. Ég tek ekki við slæmu búi af Sigurði Amórssyni, síð- ur en svo.“ Magnús Norðdahl formaður framkvæmdastjórnar Efling innra starfs Magnús Norðdahl hlaut yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða sem formað- ur framkvæmdastjómar Alþýðu- flokksins eða 226 atkvæði. Kristinn T. Haraldsson kom næstur með 34 at- kvæði. „Ég íhugaði fyrir þingið að gefa kost á mér sem formaður fram- kvæmdastjómar en endanleg ákvörri un var ekki tekin fyrr en á þinginu. Ég „Ymsar hugmyndir um endure'isn og endurskipulagningU," se'gi'r Magnús Norðdahl. hafði engar fyrirframgefnar hugmynd- ir um hvemig kosningin færi,“ segir Magnús. ,Ég ætla að leggja áherslu á að efla innra starf og tengsl við flokks- menn og flokksfélög. Þá hluti þyrfti að byggja upp frá gmnni. Við emm að tala okkur saman og ég þarf að ráða ráðum með þeirri ffamkvæmdastjóm sem kjörin var. Starfið verður unnið í samráði við hana. Ég vil hafa stærri hóp til þess að fara í ýmis verkefhi, svo sem endurskipulagningu flokks- skrifstofu. Það em fleiri sem koma að því verkefni en formaður ffam- kvæmdastjómar en ég hef að sjálf- sögðu ýmsar hugmyndir þar að lút- andi. Næsm vikumar verður unnið að því að koma frekari mynd á þær. Mér fannst flokksþingið gott og hef tilfinn- ingu fyrir því að flokkurinn sé ekki veikari eftir en áður.“ ■ Þrjátíu fulltrúar kosnir í flokksstjórn Jón Baldvin efstur Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi formaður Al- þýöuflokksins hlaut flest atkvæði ( kjöri til flokksstjórnar. Þrjátíu fulltrúar voru kjörnir beinni kosningu, en þrír karl- ar urðu að láta konum eftir sæti sín, ( samræmi við lög flokksins um kynjakvóta. Á kjörskrá voru 357 og atkvæði greiddu 196. Ógild at- kvæði voru fimm. Eftirtaldir hlutu kosningu í flokkstjórn: Jón Baldvin Hannibalsson (179 atkvæði), Árni Gunnarsson (175), Bryndís Schram (158), Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi for- maður Alþýðuflokksins (146), Sigbjörn Gunnarsson (143), Magnús Jónsson (138), Þóra Arnórsdóttir (138), Ragna Bergmann (130), Jóna Ósk Guðjónsdóttir (129), Stefán Friðfinnsson (122), Anna Karólína Vilhjálmsdóttir (120), Guðfinna Vigfúsdóttir (120), Tryggvi Skjaldarson (120), Haukur Helgason (115), Cecil Haraldsson (114), Hlín Daní- elsdóttir (114), Hreinn Hreinsson (114), Ragnhildur Björk Guðmundsdóttir (114), Steindór Karvelsson (108), Þröst- ur Ólafsson (108), Þórunn Sveinbjörnsdóttir (106), Björn Hafberg (100), Tryggvi Gunnarsson (97), Helgi Danfels- son (96), Gestur P. Reynisson (95), Gísli Hjartarson (95), Stefán Gunnarsson (95), Hrönn Hrafnsdóttir (87), Guðríð- ur Þorsteinsdóttir (84) og Helga E. Jónsdóttir (80). Hrönn, Guðríður og Helga koma í flokksstjórn vegna ákvæða í flokkslögum um hlutföll kynjanna. Pétur Bjarna- son, Sigfús Magnússon'og Steindór Ög'mundsson fengu allirfleiri atkvæði, en urðu að víkja. Röð annarra frambjóðenda var sem hér segir: Rúnar Geirmundsson, Bergvin Oddsson, Kristín J. Björnsdóttir, Rósa Guörún Jónsdóttir, Ingvar Sverrisson, Gunnar Alex- ander Ólafsson, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Þór- dórsdóttir, Jónas Þór Jónasson, Jón Guðmundsson, Bolli Valgarðsson, Margrét Ingþórsdóttir, Sigurður E. Guð- mundsson, Björn Gíslason, Gunnar Pétursson, Oktavía Jóhannesdóttir, Erlingur Kristenson, Kristmundur Ás- mundsson, Guðríður Einarsdóttir, Kolbrún Bergþórsdótt- ir, Guðlaugur Tryggvi Karlsson, Elías Kristjánsson, Magri- ús Hafsteinsson, Sæmundur Pétursson, Steindór Har- aldsson, Kristinn T. Haraldsson, Ægir Hafberg, Þorlákur Oddsson, Sverrir Ólafsson, Brynjólfur Þór Guðmunds- son, Tómas Waage, Hrefna Haraldsdóttir, Jón Sigurðs- son, Kristján Sigurmundsson, Sveinn Hannesson, Hall- dór V. Kristjánsson, Sólveig Adolfsdóttir, Auðunn R. Guðmundssón, Helgi Gunnláug'sson, Böðvar Gíslason.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.