Alþýðublaðið - 12.11.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996
s k i I a b o ð
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Við stefnum í stórsamtök
„Þetta lítur vel út og útkoman er já-
kvæð og skemmtileg. Ekki síst með
tilliti til þess að við stefnum í stórsam-
tök jafnaðarmanna þar sem Alþýðu-
flokkurinn er burðarásinn og forysta
flokksins er vænleg til að sameina
jafnaðarmenn í stóran flokk,“ sagði
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir al-
þingismaður.
„Ég er mjög ánægð með hvað kon-
ur komu sterkar út úr þinginu og tel
það mikilvægt fyrir Alþýðuflokkinn.
Ég sat ekki þingið nema í upphafi en
ég hlustaði á pallborðsumræðumar og
mér fannst ánægjulegt að upplifa hvað
þingfulltrúar eru hlynntir sameiningar-
áformum og hvað hinn almenni
flokksmaður í salnum var jákvæður
og áhugasamur.“
Halldór Blöndal samgönguráðherra
Sighvatur ervaskur
stjórnmálamaður
„Sighvatur er gamalreyndur stjóm-
málamaður og það hefur lengi legið í
loftinu að hann yrði arftaki Jóns Bald-
vins Hannibalssonar ef hann drægi sig
í hlé frá pólitíkinni," segir Halldór
Blöndal samgöngumálaráðherra. „Ég
hef unnið með Sighvati í ríkisstjóm og
hann er vaskur stjómmálamaður og ég
óska honum til hamingju með kjörið.
Ég hafði ekki áttað mig á styrk Guð-
mundar Áma og ég óska honum til
hamingju með það sem ég tel vera
persónulegan sigur fyrir hann.
Aðspurður um ummæli Jóns Bald-
vins Hannibalssonar um Sjálfstæðis-
flokkinn sagði Halldór: „Það má líkja
stöðu Alþýðuflokksins í íslenskum
stjómmálum við dingulhreyfingar
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚNI 3 - 105 REYKJAVÍK
SlMI 563 2340 - MYNDSENDIR 562 3219
Dalbraut 16
Kynning á tillögu að breyttu skipulagi
lóðarinnar Dalbraut 16.
Tillagan verður til sýnis í kynningarsal Borgarskipu-
lags og Byggingafulltrúa að Borgartúni 3, 1. hæð, kl.
9.00 -16.00 virka daga.
Kynningin stendurtil 6. desember 1996.
Ábendingum eða athugasemdum skal skila skriflega
til Borgarskipulags, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, eigi
síðar en föstudaginn 6. desember 1996.
1ÚTB0Ð
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er
óskað eftir tilboðum í lokafrágang viðbyggingar við
Grandaskóla. Um er að ræða frágang innanhúss á
2.000 m2 viðbyggingu sem er frágengin að utan.
Helstu verkþættir: Tréverk, málun, raflagnir, múrverk,
pípulagnir og dúkalagnir.
Verkinu á að vera lokið 20. júlí 1997.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 15.000,-
skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 28. nóvember 1996,
kl. 14:00 á sama stað.
bgd 148/6
F.h. Húsnæðisnefndar Reykjavíkur er óskað eftir
tilboðum í:
1. Útihurðir
2. Handrið úr galv. stáli
3. Steyptar svalaeiningar
í 102 íbúðir í Álfaborgum/Dísaborgum í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá miðvikud.
13. nóv. n.k. gegn kr. 10.000 skilatr. pr. verkþátt.
Opnun tilboða: miðvikud. 27. nóvember 1996,
kl. 11:00 á sama stað.
hnr 149/6
F.h. Húsnæðisnefndar Reykjavíkur er óskað eftir
tilboðum í:
1. Múrverk
2. Flísalögn
3. Málningur og sandspartl
í 102 íbúðir í Alfaborgum/Dísaborgum í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá miðvikud.
13. nóv. n.k. gegn kr. 10.000 skilatr. pr. verkþátt.
Opnun tilboða: þriðjud. 3. desember 1996
kl. 11:00 á sama stað.
hnr 150/6
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. sjálfseignar-
stofnunar Skógarbæjar, óskar eftir tilboðum í upp-
setningu á brunaviðvörunarkerfi fyrir hjúkrunarheimil-
ið Skógarbæ að Árskógum 2, Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá og með þriðjud.
12. nóv. nk. gegn kr 10.000, - skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtud. 28. nóvember 1996 kl. 11.00
á sama stað.
bgd 151/6
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík
Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616
klukkunnar. Hann slæst til hægri og
vinstri með taktföstu millibili. Það
kemur mér ekki á óvart að Jón Bald-
vin skuli hneigjast til vinstri. Hann er
róttækur og kemur úr Alþýðubanda-
laginu. Alþýðuflokkurinn sat í vinstri
stjóm árið 1978 og réði miklu um í
hvaða farvegi landbúnaðarmálin lentu.
Meðan ég var landbúnaðarráðherra
reyndi ég að losa um höftin en komst
ekkert áleiðis vegna þess að það var
ekki trúnaður um þau mál milli mín
og ráðherra Alþýðuflokksins. Alþýðu-
flokkurinn var einnig í ríkisstjóm með
Sjálfstæðisflokknum á árunum 1987
til 1995 og vann vel að því ásamt okk-
ur að setja löggjöf sem festi núverandi
kvótakerfi í sessi. Ég varð ekki var við
annað en við stæðum að þessu heils-
hugar þegar við vomm saman í ríkis-
stjóm og það sama má segja um þau
ákvæði sem snerta Gatt og einstaka
þætti EES samninga. Mér hefur aldrei
fundist það trúverðugt þegar flokkar
fara að beijast gegn því í stjómarand-
stöðu sem þeir áttu þátt í að koma á í
stjómarsamstarfi. Þannig málflutning-
ur er broslegur en að sama skapi ein-
kenni h'tilla flokka. Alþýðuflokkurinn
stóð heill og óskiptur að baki þessum
málum þrátt fyrir að einstaka menn
séu núna að reyna að skjóta sér undan
ábyrgðinni.“
Margrét Frímannsdóttir formaður
Alþýðubandalagsins
Útkoma Guðmundar Áma
er mjög glæsileg
„Ég óska Sighvati Björgvinssyni til
hamingju og vonast eftir góðu sam-
starfi við hannsegir Margrét Frí-
mannsdóttir formaður Alþýðubanda-
lagsins um nýjan formann Alþýðu-
flokksins. „Guðmundur Ami er þó
ótvfrætt sigurvegari kosninganna því
Sighvatur hafði stuðning forystumiar
og mikið forskot á Guðmund Áma í
byijun. Hann hafði líka meiri tíma og
stuðningur Jóns Baldvins skipti sköp-
um. Útkoma Guðmundar Áma er því
mjög glæsileg í ljósi þess. Það er at-
hylisvert en hefiir vakáð minni athygli
en hitt að konur koma mjög vel út úr
þessum landsfundi og ég vil óska kon-
um í Alþýðuflokknum til hamingju
með þeirra hlut. Konur em famar að
gera sig meira gildandi í stjómmálum
og flokkamir em famir að taka mark á
þeim sem slíkum.
Varðandi áhrif úrslitanna á hugsan-
lega sameiningu vinstri flokkanna,"
segir Margrét. „Guðmundur Ami taf-
aði um fyrir kjörið að Alþýðuflokkur-
inn ætti að leggja minni áherslu á
ágreiningsefni vinstri flokkanna eins
og til dæmis Evrópumálin. Mikið
fylgi hans meðal almennra Alþýðu-
flokksmanna em ótvíræð skilaboð til
flokksins um að færa flokkinn lengra
til vinstri en Jón Baldvin og Sighvatur
hafa verið fulltrúar hægri slagsíðunn-
ar. Ég hef sjálf enga trú á að vinstri
flokkamir renni saman á þessu kjör-
tímabili en ég er sammála Jóni Bald-
vini þar sem hann sagði að við þyrft-
um að vinna okkur í gegnum málin,
eitt og eitt í einu og finna það sem við
getum sameinast um. Það verður að
stíga öll sem skref mjög varlega í
þessu máh því ef fólk verður ósátt við
niðurstöðuna er betur heima setið en
af stað farið. Formenn flokkanna hafa
engin áhrif á þessa umræðu sem slíkir.
Viljinn verður að koma frá fólkinu og
málefnin ráða ferðinni. Ég held að
okkur takist þetta á endanum," segir
Margrét Frímannsdóttir.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
heldur opinn fund með nýkjörnum formanni,
Sighvati Björgvinssyni, í Kornhlöðunni
þriðjudagskvöldið 12 nóvember kl. 20.30.
Framsaga og fyrirspurnir.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Alþýðuf lokksfélag Reykjavíkur
Fundur með
nýjum formanni!