Alþýðublaðið - 14.11.1996, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996
m e n n i n g
Jólakort Amnesty
íslandsdeild Amnesty Intema-
tional er nú að hefja sölu á jólakort-
um ársins 1996. Að þessu sinni varð
myndin JóJamorguninn eitir Bar-
böru Ámason fyrir valinu. Barbara
var stofiifélagi íslandsdeildarinnar
og studdi ötullega við balcið á deild-
inni meðan henni entist aldur til.
Ákveðið hlutfall af sölu jólakorta
íslandsdeildar Amnesty Intemation-
al rennur í hjálparsjóð, en það fé
sem safhast í þann sjóð er nýtt til
endurhæfingar fómarlamba pynt-
inga og veitt í aðstoð við aðstand-
endur ,Jiorfinna“ og aðra sem sæta
grófum mannréttindabrotum.
Kortin verða seld á skrifstofu
samtakanna að Hafnarstræti 5.
Vasabrotsbækur
á skiptibóka-
markaði
Hjá Ömmu í Réttarholti, Þing-
holtsstræti 5 verður næstkomandi
föstudag opnaður skiptibókamark-
aður fyrir notaðar vasabrotsbækur.
Hugmyndin er sú að fólk komi með
kilju sem það hefur lokið við að
lesa, leggi hana inn á markaðinn og
taki með sér aðra sem það hefur
áhuga á að lesa. Að þeim lestri
loknum er ekkert því til fyrirstöðu
að skila ldljunni aftur og velja sér
enn aðra sem vekur áhuga og svo
koll af kolli. Ef sú staða kemur upp
að engin kilja á markaðnum vekur
áhuga má annaðhvort skilja sína
bók eftir og fá kvittun fyrir innlögn
eða bara koma aftur seinna. Þannig
má koma í lóg gömlum kiljum og
komast yfir aðrar í stað þess að þær
dagi verðlausar uppi í bókahillum
heimilisins
Endurmenntunarstofn-
un Háskólans
Ofvirkni barna og
unglinga
Endurmenntunarstofnun Háskóla
Islands mun 15. og 16. nóvember
standa fyrir námskeiði um ofvirkni
bama og unglinga. Námskeiðið er
ætlað kennurum á leikskóla- og
grunnskólastigi, hjúkmnarffæðing-
um í heilsugæslu, sem og öðrum
fagmönnum á uppeldis- og heil-
brigðissviði er tengjast ofvirkum
bömum.
Umsjón með námskeiðinu hefur
Páll Magnússon sálfræðingur á
Bama- og unglingageðdeild land-
spítala, en með honum kenna Halla
Þorbjömsdóttir bamageðlæknir,
Kristín Kristmundsdóttir félagsráð-
gjafi, Sólveig Guðlaugsdóttir geð-
hjúkrunarfræðingur, Sólveig As-
grímsdóttir sálffæðingur, Rósa
Steinsdóttir myndþerapisti, Málffíð-
ur Lorange sálffæðingur, Ragna
Freyja Karlsdóttir sérkennari og
Sign'ður Benediktsdóttir sálffæðing-
ur.
Námskeiðið verður haldið á Hót-
el Sögu, föstudaginn 15. nóvember
klukkan 9.00-16.00 og laugardaginn
16. nóvember klukkan 9.00-13.00.
■ Námsmenn með fjöldafund á Austurvelli á morgun
Svör menntamálaráð-
herra eru hlægileg
-segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson en stjórnarliðar deila nú um Lánasjóðinn. Hjálmar Árnason þingmaður Fram-
sóknar: Þetta er alvarlegt mál, stórt mál og við lögðum þunga áherslu á það.
Nefnd sem menntamálaráðherra
setti á laggimar um málefhi Lánasjóðs-
ins hefur ekki komið saman í þijá mán-
uði sökum ágreinings stjómarflokk-
anna. Framsóknarflokkurinn hafði
mánaðarlegar greiðslur námslána sem
eitt af loforðum sínum fyrir síðustu
kosningar en fulltrúar Sjálfstæðisflokks
hafa verið ófáanlegir til að ræða slíkt.
,,Ég sagði í ræðu í þinginu í fyrradag
að ég vildi auka fjárveitingar til Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna," sagði
Bjöm Bjamason menntamálaráðherra.
„Þar hafa einkum verið til umræðu
endurgreiðslureglur og samtíma-
greiðslur lána. Ég tel að það séu sterk
rök fyrir því að draga úr endurgreiðslu-
byrði lána en ég hef ekki séð nein rök
sem hníga að því að það ætti að draga
úr kröfum um námsffamvindu áður en
til útgreiðslu lána kemur. Það þurfa að
vera miklir hagsmunir í húfi miðað við
þá óvissu sem myndi skapast um stöðu
sjóðsins. Námsmenn hafa ekki sett
ffam neinar tillögur í lagaformi sem ég
hef séð og ég nefhdi í ræðu minni í gær
vaxtakostnað vegna lána sem em tekin
til að brúa bilið en þær em um 0.4 pró-
sent eða sem jafngildir 1500 krónum á
400.000 króna láni.“
Engin lausn í sjónmáli
, J síðustu alþingiskosningum lofuðu
allir flokkar nema sjálfstæðisflokkur að
koma á mánaðarlegum útborgunum
námslána og allir flokkar vom sam-
mála um að létta greiðslubyrðina," seg-
ir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson formað-
ur Stúdentaráðs Háskóla íslands. „Þetta
fór inn í stjómarsáttmála stjómarflokk-
anna en þar er einungis talað um að
endurskoða lögin um Lánasjóð Is-
lenskra námsmanna. Það lá þó ljóst
fyrir að Framsókn myndi halda fram
mánaðarlegum greiðslum. Björn
Bjamason setti á laggimar nefnd og
hún kom saman í ágúst 1995 og hefur
fundað alls 25 sinnum. I apríl á þessu
ári töldu ffamsóknarmenn að öll gögn
sem nefndin þyrfti til ákvarðanatöku
væm komin fram og þeir lögðu fram
minnisblað þar sem þeir leggja til mán-
aðarlegar útborganir og að endur-
greiðslubyrði verði 4,5 prósent. Þetta
var heldur minna en námsmenn höfðu
vænst en við vildum samþykkja þessar
tillögur til að ná sáttum. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks hafa engar tillögur lagt
ffam og í ágúst sögðu fulltrúar Fram-
sóknarmanna hingað og ekki lengra.
Síðan hefur nefndin ekki komið saman
og engin lausn er í sjónmáli."
Harkalegur niðurskurður hefur einn-
ig verið boðaður á fjárlögum til fram-
haldsskólastigsins og er íhugað að taka
upp „fallgreiðslur," það er greiðslur
fyrir endumpptöku prófa.
Námsmenn boða til fjöldafundar á
Austurvelli í hádeginu á morgun þar
sem krafist er tafarlausra breytinga á
reglum um lánasjóð og að menntun
fari ffamar í forgangsröð við skiptingu
ríkisútgjalda.
Stórt og alvarlegt mál
,Æðri máttarvöld em að skoða mál-
ið,“ sagði Hjálmar Ámason sem situr í
nefndinni sem á að endurskoða reglur
um Lánasjóð. „Með öðmm orðum þá
er þetta á ráðherrastigi. Það er áherslu-
munur hjá flokkunum og það er verið
að finna lausn sem báðir flokkarnir
geta sætt sig við. Ég sagði í upphafi,
þegar nefndarstörf hófust, að veganesti
mitt væri að lækka endurgreiðsluhlut-
fall lána og taka upp mánaðarlegar
greiðslur. Við emm ekki tilbúnir að
gefa eftir þessi atriði en þau byggja á
samþykktum flokksins. Eg tel að það
sé hægt að finna leið, sem báðir aðilar
geta sætt sig við, ef vilji er fyrir hendi.
Ef hann er ekki til staðar spyijum við
að leikslokum. Þetta er alvarlegt mál,
stórt mál og við lögðum þunga áherslu
á það. En fæst orð hafa minnsta
„Björn hefur málað sig út í horn í
málefnum námsmanna... IMáms-
menn þurfa að hafa svigrúm í
námi. Það hefur þó ekkert okkar
imprað á því að taka upp gamla
kerfið aftur þar sem ekkert eftirlit
var haft með námsárangri," segir
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
ábyrgð.“
Aðspurður um hvort þetta væri svo
alvarlegt mál að komið gæti til stjóm-
arslita svaraði Bjöm Bjamason: „Þama
er verið að setja hluti í pólitískt sam-
hengi sem koma málinu ekki við. Við
höfum leyst stærri mál en þetta.“ En
samkvæmt heimildum blaðsins hefur
málið valdið titringi í stjómarsamstarf-
inu þessa dagana.
Hlægilegur ráðherra
,Ég var með tæplega sjö í meðalein-
kunn en vantaði 0,5 prósent upp á að
ná einu prófið og fékk því ekkert lán,
ekki krónu,“ segir Þóra Björk Baldurs-
dóttir hjúkmnamemi en hún er ein af
stómm hópi námsmanna sem hefur far-
ið illa út úr reglum Lánasjóðs um eftir-
ágreiðslur lána. „Þetta er sérstaklega
einkennilegt í ljósi þess að í úthlutunar-
„Ég vona að einbeitni þin og dugn-
aður hjálpi þér til að ná settu
marki," segir Björn Bjarnason í
bréfi til Þóru Bjarkar Baldursdóttir.
„Heldur hann að einbeitni og
dugnaður námsmanna dugi til að
leysa vandann... Ráðherrann er
hlægilegur," segir Þóra Björk Bald-
ursdóttir.
„Æðri máttarvöld eru að skoða
málið," segir Hjálmar Árnason."...-
Þetta er alvarlegt mál, stórt mál og
við lögðum á þetta þunga áherslu.
En fæst orð hafa minnsta ábyrgð."
reglum segir að 75 prósent námsárang-
ur nægi til að fá 75 prósent lán. Til að
framfleyta mér og strákunum mínum á
námstímanum þurfti ég að taka
280.000 króna lán sem rúllar nú á
bankavöxtum."
í vandræðum sínum skrifaði hún til
menntamálaráðherra sem svaraði henni
á eftirfarandi hátt: „Því miður sýnist
mér að ekki sé unnt að hrófla við þeim
reglum sem sjóðurinn fylgir," skrifar
Bjöm Bjamason. „Allt frá öndverðu
hefur hann í þessu efni byggt á kröfum
viðkomandi skóla. Hefðir þú komist
yfir þröskuldinn í einkunnffengið 6.0 í
stað 5.5) en ekki lent í sextíu manna
hópnum hefðir þú fengið lán.
Ég virði baráttu þína fyrir aukinni
menntun en öll verðum við að beygja
okkur undir reglur sem stundum geta
virst mjög ósanngjarnar þegar þær
bitna mjög harðlega á okkur. Ég vona
að einbeitni þín og dugnaður dugi þér
til að ná settu marki og óska þér alls
hins besta.“
„Lög og reglur Lánasjóðs íslenskra
námsmanna em svartur blettur á ís-
lenska menntakerfinu og í raun til há-
borinnar skammar,“ segir Þóra Björk.
,Ráðherrann er hlægilegur. Það er eins
og reglur um lánasjóð hafi dottið af
himnum ofan og hann geti engin áhrif
haft á þau. Heldur hann að einbeitni og
dugnaður námsmanna dugi til að leysa
vandann. Hvemig á ég að geta fram-
fleytt börnunum mínum, borgað af
þessu bankaláni og um leið haldið
áffam í námi.“
Námsmenn þurfa svigrúm
„Mér finnst þessi svör hlægileg.
Þama er æðsti yfirmaður menntamála í
landinu að láta eins og hann geti ekkert
gert í málinu," segir Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson. „Hann klappar henni bara á
bakið. Það er eins og hann geri sér ekki
grein fyrir að það eru ekki allir fóstrað-
ir í skjóli Moggans og Sjálfstæðis-
flokksins. Námsmenn þurfa að hafa
svigrúm í námi. Það hefur þó enginn
okkar imprað á því að taka upp gamla
kerfið aftur þar sem ekkert eftirlit var
haft með námsárangri. Bjöm vísar allt-
af til þess að það sé okkar helsta mark-
mið en það er vitleysa. Fólk þarf ein-
faldlega að hafa möguleika á að dreifa
einingum eftir hentugleikum yfir árið.
Bjöm hefur málað sjálfan sig út í hom í
málefnum námsmanna. Hann hefur
alltaf sagt: „Ég ræði þetta ekki. Þetta er
í nefhd og mánaðargreiðslur koma ekki
til greina." Hann montar sig af því í há-
tíðablaði Menntaskólans í Reykjavík
að hann hafi ekki skipt um skoðum síð-
an hann gekk þar í skóla. Er það kost-
ur? Það er talað um að tillögur Fram-
sóknar kosti 15 til 25 milljónir í ffam-
kvæmd. Það segir sig sjálft að það eru
ekki stórar fjárhæðir plús einhver eftir-
spurnarþáttur sem hlýtur að vera já-
kvæður ef eftirágreiðslur unnu gegn
því að fólk færi í langskólanám."
Bessastaðabækurnar ko
áskrifendur Alþýðubl
Bessastaðabækurnar sem birst hafa í Alþýðublaðinu undanfarna már
færslurforseta lýðveldisinsfyrstu 100 daga hans í embætti - hveitibrau
boðið að kaupa Bessastaðabækumar á sérstöku kynningarverc
endum Alþýðublaðsins býðst að hringja í blaðið sitt, panta bókina i
Hringið í síma 562 55 66 og kaupið Bessi
Bókaforlagið Dægradvc