Alþýðublaðið - 15.11.1996, Síða 3
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Konur þurfa á öllu sínu að halda
Gættu varúðar við að beita þessari tækni við yfirmanninn. Líta verður hann öðrum
augum og yfirleitt er ekki árangursríkt að stara á hann með þessum hætti.
Þorkell Sigurlaugsson er stjórn-
arformaöur Þekkingar sem gefur út
Viðskiptablaöiö. Þorkell hefur
starfað hjá þróunarsviði Eimskips
til margra ára en er einnig fastur
dálkahöfundur viö Viðskipablaðiö
þar sem hann skrifar um stjórnun.
I síðasta töiublaðið fjallaði hann um
táknmál líkamans. Viö skulum
skoða brot úr pistli hans:
Önnur
sjónarmið
Á fundum er mjög auðvelt að sjá
viðhorf fundarmanna t.d. eftir því
hvemig þeir horfa á fyrirlesara, hvort
þeir eru sífellt með hendumar uppi í
hárinu á sér eða andlitinu eða hvort
þeir líta undan og sýna umræðuefninu
lítinn áhuga. Margir láta í ljósi van-
þóknun sína eða áhugaleysi með því
að horfa niður á fundarborðið eða
sýna tilburði til að sinna einhverju
öðm. Þeir sem hafa mikil völd geta
auðveldlega haft áhrif á fundarmenn
t.d. undirmann sína með því að senda
skilaboð með andlitsviðbrögðum eða
táknrænum hreyfingum.
Konur - lærið að nota líkam-
ann
Kvenfólki, sem mér skilst að skoð-
anakannanir sýni að séu um helming-
ur lesenda Viðskiptablaðsins, vil ég
sérstaklega benda á að læra að nota
líkamann rétt í þessu efni. Konur
þurfa á öllu sínu að halda til að byggja
upp aukna tiltrú í baráttunni til auk-
inna valda og ábyrgðar. Kannanir hafa
sýnt að þegar konur era með kynningu
og nota einvörðungu einn putta fingur
þegar þær benda á töfluna eða sýning-
artjaldið, þá líður karlmönnum af ein-
hverjum ástæðum ekki sérlega vel.
Öðra máli gegnir ef notaðir eru tveir
fmgur eða öll höndin. Einnig er miður
heppilégt þegar komið er of seint inn á
fund að 'sá hinn sami sé að laga hárið
sitt eða snyrta föt sín eftir að hann eða
hún er komin inn á fundinn. Kvenfólki
hættir ífemur til að falla í þessa gildru
a.m.k. er meira eftir því tekið. Sá sem
kemur inn í fundarherbergið á að vera
fullur sjálfstrausts eins og allir hafi
verið að bíða eftir þér.
Áhrifamáttur augnanna
Augun era líffæri sem getur haft
hvað mest áhrif. Ekkert er áhrifaríkara
en að horfa í augu þess sem talað er
við allt þar til hann lítur undan. Þegar
tveir einstaklingar tala saman þá fmnst
þeim sem hlustar að hann þurfi yfir-
leitt að horfa á þann sem talar og ef sá
sem talar lítur oft undan þá finnst
hlustandanum það fremur óþægilegt.
Mörgum finnst einnig erfitt að þurfa
bæði að einbeita sér að því að tala og
veita hlustandanum athygli. Reynslan
er einnig sú að hlustandinn horfir síð-
ur á þann sem talar ef hann hefur mun
meiri völd en hann sjálfur. Gleymið
heldur ekki brosinu þegar slíkt á við.
Verið óspör á það. Það er yfirleitt ódýr
leið til að ná árangri. Þó kann að
henda að bros geti verið til ills. Má
nefha sem dæmi þegar þú kemur inn á
hótel og verið er að úthluta þér her-
bergi. Þeim sem er brosandi og mildur
er fíklegra til að vera úthlutað lélegra
herbergi en tuðaranum. Starfsfólk hót-
elsins er fljótt að sjá út hverjir eru
kröfuharðir og hverjir ekki. Stundum
á það við að vera einbeittur og harður
af sér, jafnvel grimmur.
Þegar karl og kona hittast og tala
saman þá er það oftar konan sem lítur
fyrst undan. Þetta er af mörgum talið
vera eðlislægt og tákn um undirgefni.
Þess vegna ættu konur í stjómunar-
stöðum að temja sér það að horfa í
augu viðmælandans og gefa ekkert
eftir. Þegar þú heilsar einhvetjum þá
skaltu ekki hætta að horfa í augu þess
sem þú heilsar fyrr en hann lítur und-
an. Ef þú ert að flytja ræðu þá skaltu
horfa yfir hópinn og reyna að ná
augnasambandi við sem flesta. Ef þú
heldur augnasambandi þá öðlast þú
bæði meiri völd og einnig sterkari
tengsl við áheyrendur. Eitt ber þó að
varast. Gættu varúðar við að beita
þessari tækni við yfirmanninn. Líta
verður hann öðram augum og yfirleitt
er ekki árangursríkt að stara á hann
með þessum hætti.
JÓN ÓSKAR
m e n n
Sjálfstæðisflokknum hefur
gengið vel, af því að hann hefur
ekki verið upptekinn af öðrum mál-
efnum en eindregnum stuðningi við
kolkrabbann og hefur í stað málefna
lagt áherzlu á foringjann mikla,
sem leiðir hjörðina í þá átt, sem
hann ákveður sjálfur hverju sinni.
Jónas Kristjánsson í leiðara DV.
Væri Alþýðuflokkurinn
einstaklinguryrði hann
úrskurðaður skítsófren.
Fastir liðir eins og venjulega, semsagt Páll Vil-
hjálmsson í tilfinningaríkri umfjöllun um Al-
þýðuflokkinn í leiðara Helgarpóstsins.
Hvort er betra að vera í
litlum flokki sem ræður engu,
en hefur 100 prósent réttar skoðan-
ir, eða vera í stórum flokki sem öllu
ræður, en hefur bara 50
prósent réttar skoðanir?
Paö er Stefán Jón Hafstein sem spyr stórt í
leiðara D-T.
Ég hef líka farið á fund
menntamálaráðherra; sem svaraði
mér með bréfi og sagðist ekki hafa
nein völd. Það finnst mér undar-
legt. Er hann bara eitt af fórnar-
lömbum kerfisins?
Póra Björk Baldursdóttir nemi í hjúkrunarfræði
um viðskipti sín við Björn Bjarnason. Helgar-
pósturinn.
Ég man vel eftir innrás
Pálma í Hagkaup og hvernig
þær breyttu verði og verslunarhátt-
um. í Hagkaup hef ég verslað síðan
ég var níu ára gamall og Pálmi og
ekki síður Jóhannes í Bónus eiga
alla mína aðdáun skilið. Já, og ég
hvet bara alla
til að versla í Hagkaup.
Bubbi Morthens sem á sjónvarpsskjánum
syngur um krásirnar í kjötborði Hagkaups. DT.
Getur mér hafa misheyrst
- nei, þetta kom nú tvisvar í
sjónvarpinu sama kvöldið. Bubbi
orðinn skallapoppari - djöfullinn!
Jæja, skítt með það. Rúni Júl!
Nú ert þú my man. Samt ég
trúi þessu varla enn...
Lesandi DT um auglýsingasöng Bubba.
Vigdís sagðist sjá fyrir
sér að myndaðir yrðu hópar
hugsandi manna í heiminum
sem hittust reglulega tii að ræða
saman um lífið og tilveruna,
trúmál og siðfræði og mundu
síðan miðla þeirri umræðu til fólks
til að minna það á
mikilvægi þessara mála.
Vigdís Finnbogadóttir á Norrænum dögum í
Kaupmannahöfn. Rithöfundurinn Suzanne
Brögger tók undir þessa hugmynd og taldi
Vigdísi sjálfkjörinn fulltrúa í slíkan hóp.
Fréttaskot úr fortíð
Um Reykjavíkur-
stúlkumar
ætlar Guðmundur Kamban rithöfimd-
ur að tala í Nýja Bíó á annan hvíta-
sunnudag kl. 4. - Það er áreiðanlegt
að húsfyllir verður í Nýja Bíó, því
marga mun fýsa að heyra álit Kamb-
ans á blómarósum höfuðstaðarins,
fyrst og fremst mun ungu piltunum
þykja ómissandi að hlusta þegar talað
er um jafnhugj)ekt efhi, og svo munu
ungu stúlkumar reyna að koma í veg
fyrir að Kamban lasti þær nokkuð
með því að fjölsækja í N.B. og ein-
blína á hann meðan hann talar.
Alþýðublaðið 1929
hinumegin
"FarSide” eftir Gary Larson
Stuðningsmenn Ólafs
Ragnars Grímssonar
forseta eru kampakátir
með góða sölu á „opin-
beru útgáfunni" um for-
setaslaginn, sem Karl Th.
Birgisson og Einar Karl
Haraldsson annast út-
gáfu á. Sigurður G. Guð-
jónsson lögmaður segir í
HP í gær að þegar hafi
selst rúmlega tvöþúsund
eintök. En þetta verður
ekki eina forsetabókin,
einsog lesendur Alþýðu-
blaðsins vita. Á næstu
dögum koma Bessastaöa-
bækurnarí búðir, og hefur
Gunnar Smári Egilsson
gengist við því að vera
skrásétjari þeirra. Mikill
áhugi er á bókunum og
hafa þegar verið pöntuð
mörghundruð eintök. Það
stefnir því allt í hörkusam-
keppni á forsetamarkaðin-
um. Lítið hefur hinsvegar
heyrst af bók Pálma Jón-
assonar um Ólaf Ragnar,
en Pálmi kom með hraði
til landsins fyrir fáum vik-
um til að skrifa bókina...
Hörkudeilur hafa verið
milli stjórnarflokkanna
um málefni Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna, og
hefur Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
hvorki komist lönd né
strönd. Óbreyttir þing-
menn Framsóknar leggja
gífurlega áherslu á að ná
sínu fram, enda lofuðu
þeir námsmönnum - ein-
sog flestum öðrum -
miklu fyrir kosningar.
Flokksþing Framsóknar
hefst eftir tíu daga, og þar
er búist við gagnrýni gras-
rótarinnar á framgöngu
flokksins í ríkisstjórn.
Fremstir í námslánamál-
inu fara Hjálmar Árna-
son og Ólafur Örn Har-
aldsson og þeir eru
reiðubúnir að láta sverfa
til stáls...
Engum dylst að Emili-
ana Torrini er orðin
drottning íslenskrar dæg-
urtónlistar og hefur aflað
sér gífurlegra vinsælda.
Allt stefnir í metsölu á
nýjum hljómdiski, og í
fyrrakvöld troðfyllti hún
íslensku óperuna, og þótti
fara á kostum...
fimm á förnum vegi
Hver er eftirlætis söngkona þín?
Fanný Jónmundsdóttir
leiðbeinandi: Það er ópera-
söngkonan Bartolini Cicilana.
ísar Logi Arnarsson rit-
stjóri: Það er Emilíana Torr-
ini. Hún var frábær á tónleik-
unum á miðvikudagskvöld.
Kristín Þóra Egilsdóttir
vegfarandi: Emilíana Torr-
Helgi Pétursson tónlistar-
maður: Rita Coolidge en hún
er mjög fjölhæf söngkona.
Einnig hinn mikli karakter,
Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Einar Örn Benediktsson
erindreki: Marge Simpson.