Alþýðublaðið - 22.11.1996, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐHD
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
s k o ð a n
MPVDUBIÍDIB
21217. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi
Ritstjóri
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Umbrot
Prentun
Alprent
Hrafn Jökulsson
Jakob Bjarnar Grétarsson
Ámundi Ámundason
Gagarín ehf.
ísafoldarprentsmiðjan hf.
Rrtstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð i lausasölu kr. 100 m/vsk
Bányrkja íslenskra
banka
Ágúst Einarsson þingmaður jafnaðarmanna gagnrýndi íslenska
bankakerfið harkalega á Alþingi í fyrradag. Og ekki að ástæðu-
lausu: í alþjóðlegum samanburði fá íslenskir bankar falleinkunn.
Munur á útláns- og innlánsvöxtum er meiri hérlendis en í ná-
grannalöndum og þjónustugjöld hærri. Rekstrarkostnaður er líka
miklu hærri hérlendis og útlánatöp meiri. Það er því ekki ófyrir-
synju að ein þeirra spuminga sem Ágúst lagði fyrir Finn Ingólfs-
son viðskiptaráðherra var: Hver ber ábyrgð á þessum afleita
rekstri og hyggst ráðherra grípa til aðgerða til að bæta stjómun í
ríkisviðskiptabönkum, til dæmis með því að stuðla að uppsögn-
um bankastjóra?
Á síðasta ári var rekstrarkostnaður bankakerfisins á íslandi um
13 milljarðar króna. Ágúst Einarsson benti á, að ef miðað er við
niðurstöðutölu efnahagsreiknings er rekstrarkostnaður hérlendis
um 5 prósent af eignum en aðeins 2 til 3 prósent á öðmm Norð-
urlöndum. Búnaðarbankinn nýtur þess vafasama heiðurs að tróna
í efsta sæti þegar rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum er
reiknaður, síðan koma íslandsbanki, sparisjóðimir og loks Lands-
bankinn. í þessu samhengi er athyglisvert að Finnur Ingólfsson
taldi töfralausn að breyta ríkisbönkunum í hlutafélög til að bæta
rekstur þeirra. Það dugar bersýnilega skammt: Ríkisbankinn
Landsbanki íslands kemur ekki einasta skást út þegar rekstrar-
kostnaður er skoðaður heldur er vaxtamunur minnstur hjá honum
- en næstmestur hjá Islandsbanka, sem er hlutafélag. Því dugar
skammt, eitt og sér, að breyta ríkisbönkunum í hlutafélög.
Ágúst Einarsson leiðrétti líka þá röngu staðhæfingu, sem einatt
hefur verið sett fram, að þjónustugjöld séu hærri erlendis en á Is-
landi. „Það er rangt,“ sagði Ágúst, „einnig í þjónustugjöldunum
er okrað á landsmönnum og em algeng helmingi hærri gjöld en í
nágrannalöndunum." Skýringar á ömurlegri útkomu íslenskra
banka í alþjóðlegum samanburði em nokkrar. Smæð bankastofn-
ana og mikill fjöldi útibúa skýrir það að hluta, en umfangsmikið
starfsmannahald og miklar afskriftir em skýr vottur um að stjóm-
un er ábótavant, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Afskriftir em
meiri hjá íslenskum bönkum en í nágrannalöndunum, og á þann
hátt hafa milljarðar fuðrað upp síðustu árin.
HH ll.tl.S6
Frekja fjölmiðla
Eru fréttamenn orðnir heilagir
menn? Þeir halda það sjálfir.
Þeir telja sig alltaf í fullum rétti,
sem nú er reyndar orðinn að
hreinum hnefarétti. Stjörnur heim-
sins þurfa að berja niður nokkra
ljósmyndara, bara til að komast á
klóið.
Þessir margfrægu papparassar
eru reyndar enn ekki komnir hin-
gað, ekki full-múnandi, en það er
þó farið að glitta í þá, í boruna
uppúr buxunum. Þeir eru fremur
pappírsrassar en papparassar.
Maður þarf ekki annað en stinga
haus inní samkvæmi nú á dögum
og hann er höggvinn af með flassi
og settur í blöðin. (Ég segi það
ekki. Ég viðurkenni fúslega að ég
á mér þann draum um að komast í
blöðin fyrir það að berja á einum
pappírsrassinum í komusalnum í
Leifsstöð. Þá fyrst er þetta orðið
land.)
Allt er þetta þó saklaust grín og
flemtran miðað við alvöru
fréttaflutning í sjónvarpi. Á
dögunum var háttsettum kven-
presti varpað í drekkingarhyl af
þeim háu herrum uppá Lynghálsi,
sem í framhaldi af Þingvalla-
tengingu er að breytast í einskonar
Lögberg hvar menn á háum hes-
tum kveða upp dauðadóma yfir
hinum og þessum: Þeir hinir sömu
menn og spangóluðu hvað mest er
þeir fundu sig skyndilega í þumal-
putta-síðdegis-pressunni fyrir það
að hafa skotið eða var það að hafa
orðið skotnir í hundi.
Og nú keyrir Ríkissjónvarpið,
hin hressilega gleðifréttastofa, í
sama hjólfar.
Það er nú ekki oft sem menn þar
á bæ fara á virkilega stúfa og búa
til fréttir. Mest eru þetta bara
matreiðingar á tilbúnum réttum úr
ráðuneytum og þjóðhagsstofum
bæjarins eða þýðingar á fram-
haldsmyndaflokknum góða frá
Reuter-films. Þýðingar sem svo
aftur þyrfti helst að texta vegna
þvoglumælsku þýðanda. Það er
ýmist of eða van. Ólöf - skýrmælt
sem höggvin - Rún og svo Ólafur
Siuson og á milli þeirra og yfir
þeim hinn eilífi óspennti Bogi,
ábyrgur og alvarlegur en alltaf þó
eins og að augnlokum kominn í
fréttalestri sínum; framburðinn
alltaf eins og í honum hafi farist
fjórtán manns.
En.
í vikunni söng einhver frétta-
Þrösturinn frétt um handtöku í
Grafarvogi; fíkniefnablandin
slagsmál með kjöthníf, og var
mættur á staðinn með mann og vél
og nema: Fyrir utan blokk í
Vikupiltur
Hallgrímur
Helgason
skrifar
Rimahverfi stóðu þeir heilagir
sjónvarpsmenn og vildu mynda
lögreglu ráðast inn á heimili og
leiða út “hinn seka” og eiginkonu
hans. En börn þeirra handteknu
hjóna voru skiljanlega ekki ánægð
með beina útsendingu af mest trá-
matíserandi viðburði lífs þeirra og
höfðu í frammi ólæti, eins og frét-
tamaður komst að orði, og réðust
með ókvæðum og munnsöfnuði að
tökumanni hins hávirðulega
Ríkissjónvarps; við sáum óvenju
skemmtilega töku af himni og jörð
og bílum og handriðum og sicóm
og buxum á meðan Þröstur
Emilsson setti upp geislabaug í
mál sitt; hversu ótækt það væri að
barnaskríllinn skyldi með slíku
óforskammi ráðast á tökulið sjón-
varps og trufla í sínu helga starfi.
Datt manninum í hug að börn
fagni sjónvarpsvélum á slfkri
stund? Datt manninum í hug að
börn vilji alltaf komast í sjónvarp?
Jafnvel við hlið foreldra sinna
handjárnaðra fyrir hnífsstungur og
fíkniefnamál?
Fréttamaðurinn klykkti út með
því að „greinilega væri mikil ólga
meðal ungmenna í þessu hverfi”.
Rimahverfi varð Rimlahverfi.
Er þetta kóngurinn að heimsækja
þegna sína? Kóngurinn að hirta
þegna sína.
Er það ekki full langt gengið
þegar fréttamenn eru farnir að
skamma fréttaefni sín, fórnarlömb
sín? ■
KO
22. nóvember
Það er sama hvaða mælikvarði er notaður: íslenskar banka-
stofnanir koma á allan hátt illa út í alþjóðlegum samanburði. Arð-
semin er lítil þrátt fyrir ótæpilega gjaldtöku af viðskiptavinum,
bæði í formi vaxta og þjónustugjalda. Samkeppni erlendis frá er
því miður engin. Erlendir bankar sjá ekki ástæðu til að sinna
þessum örsmáa peningamarkaði, en íslensk stórfyrirtæki reyna
hinsvegar að hafa helstu bankaviðskipti sín í útlöndum, hjá ódýr-
ari og betur reknum bönkum.
En þótt stórfyrirtækin geti leitað út fyrir landsteinana eru litlu
fyrirtækin og allur almenningur knúin til að skipta við illa reknu
okurbúllumar. Það er síðan kaldhæðnislegt, að líklega standast ís-
lenskir bankar samanburð við banka í nágrannalöndum í aðeins
einu atriði: Kjörum bankastjóranna. Þannig er ríkisbönkunum
stjómað af milljón króna mönnum sem eiga að heita í þjónustu
fólksins í landinu. Ekkert er ijær sanni. ■
Atburðir dagsins
1718 Enski sjóræninginn Ed-
ward „Svartskeggur" Teach
drepinn. 1907 Giftar konur
fengu kosningarétt og kjör-
gengi til sveitarstjórna á ís-
landi. 1907 Vegalög staðfest
og ákveðið að vinstri umferð
skyldi vera á íslandi. Það var
einkum gert vegna ríðandi
kvenfólks, sem notaði söðla og
sat með báða fætur á vinstri
síðu hestsins. 1916 Bandaríski
rithöfundurinn Jack London
deyr. 1963 John F. Kennedy
Bandaríkjaforseti skotinn til
bana í Dallas. 1980 Mae West,
kynbomba kvikmyndanna á
fjórða áratugnum, deyr. 1989
Forseta Líbanons, René Moa-
wad, grandað með 250 kílóa
sprengju.
Afmælisbörn dagsins
Benjamin Britten 1913,
breskur tónsmiður. Bille Jean
King 1943, bandarísk tennis-
stjarna, vann 20 titla á Wim-
bledonmótum. Boris Becker
1967, þýskur tenniskappi.
Annálsbrot dagsins
Sáust ókennilegir fiskar um
vorið nálægt Jónsmessu fram
undan Sölvahamri sunnan Jök-
ul, einninn undan Fossárdals-
bökkum vestan Jökul. Þeir
voru hvítir að lit, en á vöxt við
hákarl; fóru mikið grunnt,
syntu mjög fljótt, sáust helzt af
landi; varð og vart við þá við
sjóinn annarsstaðar.
Grímsstadaannáll 1744.
Stelpa dagsins
Hvur er þessi stóra stelpa?
Eggert Stefánsson, um frelsisstytt-
una í New York.
Málsháttur dagsins
Auðlærð er ill danska.
Hollráð dagsins
Lífið yrði svo margfalt ham-
ingjuríkara ef við fengjum að
fæðast áttræð og síðan smám
saman nálgast það að verða átj-
án.
Mark Twain.
Orð dagsins
Sumir dagar eru hús
sem við lcesum vandlega
áðuren við kveðjum
og hveifum út á vettvang
áranna.
Þorsteinn frá Hamri.
Skák dagsins
Hvíti riddarinn virðist í mestu
ógöngum þarsein hvíta drottn-
ingin er í skotlínu svarls bisk-
ups ef riddarinn hreyfir sig.
Dedes hefur hvítt og á leik
gegn Makropoulos, og nær að
snúa sig laglega úr þessu klan-
dri - og sigra.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Rf5! og svarti eru bjargir
bannaðar. Drepi hann drottn-
inguna eða riddarann mátar
hvítur með hróki á d8. Selaví.
Góða helgi.