Alþýðublaðið - 22.11.1996, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
s a g a n
Alþýðublaðið birtir nú annan kafla úr endurminningum dr. Benjamíns H.J. Eiríkssonar sem Hannes
Hólmsteinn Gissurarson skráir. Hér segir Benjamín frá hörðum deilum í Sósíalistaflokknum um utanríkis-
mál, sem lauk með því að hann sagði sig úrflokknum
Skrifaðu! Við lesum það ekki
Ágreiningur um utanríkismál
I hyrjun hafði sambúð jafnaðar-
manna og kommúnista innan Sósíal-
istaflokksins verið góð. En vorið 1939
tók að ^gæta ágreinings um utannkis-
málin. I málgagni jafnaðarmanna, Nýju
landi, sem Arnór Sigurjónsson rit-
stýrði, birtist 8. maí 1939 frétt um það,
að Molotoff hefði tekið við af Litvinoff
sem utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
en það kynni að stafa af skoðanamun á
milli þeirra um það, hvort Sovétríkin
ættu að halla sér að vesturveldunum
eða standa utan fyrirsjáanlegra átaka
við Hitlers-Þýzkaland. Fyrir þetta fékk
Amór Siguijónsson ákúrur hjá Brynj-
ólfi Bjamasyni. Hin rétta lína var, að
Litvinoff hefði látið af störfum vegna
heilsubrests. En í ágústlok 1939, á
meðan ég var enn á ferð norður í landi,
varð ágreiningurinn alvarlegri. Tilefnið
var griðasáttmáli Hitlers og Stalíns.
Kvöldið, þegar fréttist af sáttmálanum,
átti að fara að prenta Þjóðviljann fyrir
næsta dag með risafyrirsögn: „Sovét-
ríkin bjarga friðnum í Norðurálfu."
Arnór Sigurjónsson átti þá erindi í
prentsmiðjuna og sá fyrirsögnina. Hann
fékk Sigfús Sigurhjartarson til að
breyta henni, svo að hún varð: „Stór-
veldin í kapphlaupi um að ná samning-
um við Sovétríkin. Þorir þýzka stjómin
ekki annað en gera ekki-árásarsamning
við Sovétríkin?" Þegar Amór ætlaði að
skrifa gegn bandalagi við fasista, var
útkoma Nýs lands stöðvuð. Sagt var,
að pappír vantaði. En uppgjörið á milli
hinna tveggja arma beið.
Sérkennilegt ástand
Ástandið í Sósíalistaflokknum í sept-
emberbyrjun 1939 var sérkennilegt.
Sigíús Sigurhjartarson, sem var fulltrúi
jafnaðarmanna í ritstjóm Þjóðviljans,
tók sér leyfi frá störfum. Brynjólfur
Bjamason var norður á Siglufirði. Héð-
inn Valdimarsson var erlendis. Öll blöð
flokksins voru í höndum kommúnista.
Línan var: Skilyrðislaus stuðningur við
Sovétríkin! Allir atburðir gerðust mjög
hratt. Strax og ég kom suður, settist ég
niður og skrifaði grein í Þjóðviljann um
hin nýju viðhorf. Hún birtist 16. sept-
ember. Þar sagði ég, að Sovétríkin yrðu
vitaskuld að gæta hagsmuna sinna sem
stórveldis. Það væri eðlilegt og skiljan-
legt. En íslenzkir sósíalistar ættu ekki
að láta stórveldishagsmuni Sovétríkj-
anna móta stefnu sína, heldur verka-
lýðsbaráttuna innanlands. Þar væru
næg verkefni. Sósíalistaflokkurinn ætti
að reyna að sameina alla íslenzka sósí-
alista. Þess vegna ætti hann að halda
sig utan átaka og illdeilna á vinstri
væng erlendis.
„Skrifin sefa fólkið"
Brynjólfur Bjarnason tók grein
minni ekki illa. „Skrifin sefa fólkið,“
sagði hann við mig. Líklega varð hann
fyrir miklu aðkasti vegna griðasáttmál-
ans. Margir einlægir sósíalistar vom í
uppnámi yfir því, að Stalín og Hitler
hefðu fallizt í faðma. Sigfús Sigurhjart-
arson kom úr leyfinu og skrifaði for-
ystugrein í Þjóðviljann, sem átti að vera
til sátta. Þar sagði, að gera ætti ólíkum
skoðunum flokksmanna á heimsvið-
burðunum jafnhátt undir höfði. Þessi
grein Sigfúsar var samþykkt í mið-
stjóm flokksins og birt 19. september.
Héðinn ekki ánægður
Héðinn Valdimarsson kom heim frá
Danmörku 22. september. Hann var
ekki ánægður með, hvaða stefnu mál-
gögn flokksins höfðu tekið. Ég settist
niður og skrifaði grein, þar sem ég
gerði athugasemdir við ræðu, sem Mo-
lotoff hafði haldið við undirskrift griða-
sáttmálans. Þar sagði hann: „Er svona
erfitt að skilja, að Sovétríkin hafa og
Brynjólfur Bjarnason heimtaði að
Benjamín yrði rekinn úr flokknum.
Á fundi í Sósíalistaflokknum voru
samþykktar vítur á Benjamín fyrir
„stórkostlegt agabrot", en hann
hafði aðrar skoðanir á utanríkis-
málum en kommúnistarnir.
munu hafa eigin, sjálfstæða stefnu, sem
miðast við hagsmuni þjóða Sovétríkj-
anna og aðeins við þeirra hagsmuni?"
Ennfremur sagði Molotoff: „Maður
hlýtur að spyija: Hvers vegna geta Sov-
étríkin ekki leyft sér það, sem Pólland
og England hafa leyft sér fyrir löngu
síðan?“ Ég sagði, að grundvallarskoð-
anir okkar sósíalista mættu ekki verða
að fótaþurrku breytilegrar stórveldapól-
itíkur. Brynjólfur Bjarnason reiddist.
„Við eigum ekki að vera fótaþurrka
fyrir neinn!“ sagði hann við mig. Eftir
nokkurt þóf neitaði Þjóðviljinn að birta
greinina. Ég veit ekki, nema einhver
hafi hnippt í Brynjólf Bjarnason. En
mér finnst ekki ólíklegt, að Ársæll Sig-
urðsson hafi fengið ný og ákveðin fyr-
innæli. Afstaða Brynjólfs gagnvart mér
ULSTEIN
VLSTUN LIAAJtM
o
TJENFJORÐ
ULSljEIN
Samstarf Héðins við hið heímsþekkta skipasmíða- og
vélbúnaðarfyrirtæki ULSTEIN er mikilvægur þáttur
í þjónustunni við íslenska útgerð.
* Bergen dísilvélar
• Brattvaag • Norwínch spilkerfi
Tenfjord»Frydenbö stýrisvélar
Propeller • Liaaen * Hjelset skrúfur og gírar
Ulstein Marine Eletronic pælí- og viðvörunarkerfí
Ulstein stýrí
= HÉÐINN =
SMIÐJA
STÓRÁSI 6 ♦ GARÐABÆ • SÍMI 565 2921 » FAX 565 2927
Hönnun • smíði • viðgerðir • þjónusta