Alþýðublaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 28.11.1996, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ a FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996 ■ Lottóið á 10 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni fá allir sem kaupa tíu raða seðil elleftu röðina í kaupbæti. Um síðustu helgi vann maður nokkur eina milljón króna á slíka gjafaröð. Vilhjálmur B. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri íslenskrar getspár segir lottóvinningana oft hafa lent þar sem þeirra var mest þörf Enginn veit í hvaða kassa næsti vinningur leynist Vilhjálmur B. Vilhjálmsson: Öll þjóðin vinnur í Lottóinu með einum eða öðrum hætti. Mynd: E. ói. Frá því að Lottóið hóf göngu sína hér á landi fyrir 10 árum hafa 400 manns unnið eina milljón eða meira með þátttöku í Lottóinu. Vinningshaf- ar eru samtals um þtjár milljónir tals- ins og heildarupphæð vinninga liðlega 3,4 milljarðar króna. I tilefni af 10 ára afmælinu fá allir sem kaupa 10 raða seðil elleftu röðina til viðbótar sem af- mælisgjöf. Um síðustu helgi var auka- útdráttur í Lottóinu þar sem tveir vinningshafar fengu eina milljón króna hvor. Annar þeirra vann þá upp- hæð á röðina sem hann fékk gefins með 10 raða seðli og má segja að þar hafi verið um höfðinglega gjöf að ræða. Það er íslensk getspá sem annast rekstur Lottósins, en þeir aðilar sem standa að Lottóinu eru Iþróttasam- bandið, Öryrkjabandalagið og Ung- mennafélag íslands. Vilhjálmur B. Vilhjálmsson hefur verið fram- kvæmdastjóri íslenskrar getspár frá upphafi og í tilefni afmælisins ræddi Alþýðublaðið við Vilhjálm um starf- semi Lottósins. Það lá beinast við að spytja Vilhjálm hvort hann væri einn af þessum 400 milljónamæringum Lottósins. Hugboð skilaði vinningi ,J4ei, nei. Það er af og frá. Ég hef aldrei verið með fleiri en þrjár tölur réttar,“ svaraði Vilhjálmur. Honum var synilega skemmt yfir spuming- unni og bætti við: „Minn túni er ekki kominn!“. Velur fólk sér tölur eftir ein- hverju ákveðnu kerfi þegar það kaupir miða? „Sumir gera það. Til dæmis eru af- mælisdagar mikið notaðir við að velja tölur og aðrir velja tölur sem það dreymir eða samkvæmt hugboði. Þá em dæmi þess að fólk sem búið er að kaupa lottómiða fái sterkt hugboð um að fara og kaupa miða til viðbótar. Ég man eftir dæmi um mann sem var bú- inn að kaupa miða, en fékk það síðan á tilfinninguna að hann ætti að kaupa miða til viðbótar. Hann sneri við, keypti miða og vann dijúga upphæð á hann. Það er sitthvað af þessu tagi sem kemur uppá annað slagið og dæmi um að það hafi haft vinninga í för með sér.“ En er ekki meira um það að fólk láti kylfu ráða kasti og kaupi sjálf- valsmiða? ,JÚ, það er rétt. Það lætur nærri að 70 til 75 prósent af sölunni fari fram með sjálfvali. Engu að síður hafa margir gaman af því að velta fyrir sér tölum. Til dæmis er það ekki óalgengt að fólk biðji um upplýsingar um hvaða tölur hafa oftast komið upp í út- dráttum og við veitum fúslega þær upplýsingar." Svona bara okkar á milli. Er ekki hægt að læra á þetta kerfí með ein- hverjum hætti og krækja í einn stórann? „Nei, það er ekki hægt. Algjör til- viljun ræður hvaða tölur koma upp hveiju sinni. En ég gæti ímyndað mér að stærðfræðingar hugsuðu sem svo, að þær tölur sem sjaldnast hafa komið upp væru hugsanlega þær tölur sem hljóta að fara að koma. En á vissum tímum eru alltaf einhveijar tölur langt fyrir ofan og aðrar langt fyrir neðan meðaltalið. Við erum mjög gætnir með öll okkar gögn sem notuð eru við útdrætti. Dregið er undir eftirhti full- trúa dómsmálaráðuneytis og fulltrúa stjórnar Islenskrar getspár. Allt fer þetta því fram undir nákvæmu eftirliti og fært til bókar." Með fjórðung markaðarins Frá því Lottóið var stofnað hefur orðið mikil breyting á þessum markaði og samkeppni aukist. Hef- ur það ekki bitnað á ykkur? „Fljótt eftir að Lottóið hóf göngu sína byrjuðu skafmiðahappdrætti og sum þeirra vora rekin með góðum ár- angri, en öðram vegnaði miður. Það hafa líka komið sjónvarpsleikir og skjáleikir auk alls annars. Þetta hefur haft einhver áhrif okkar sölu, en engu að síður eram við með um 23 prósent af markaðinum eftir því sem við vit- um best. Það er talið að þessi happ- drættis- og leikjamarkaður velti um frmm milljörðum króna á ári. Lottóið fékk fljúgandi start í upphafi og það forskot hefur dugað okkur vel. Lottóið byijaði með 5/32 en var síðan beytt í 5/38 til að ná hærri fyrsta vinningi. Frá upphafi Lottó 5/38 nemur salan ■ Ákall um hjálp frá Amnesty International um rannsókn á dularfullum dauða í Ástralíu Hvað kom fyrir Stephen Wardle? I júni 1996 lagði þingnefnd til að óhlutdræg rannsókn yrði gerð á óleystum spurningum um dauða Stephen Wardle á meðan hann var í varðhaldi og einnig ásökunum fjöl- skyldu hans um stöðuga áreitni lög- reglunnar í kjölfar dauða hans. Stephen Wardle var handtekinn vegna gruns um ölvun við akstur og var haldið 1. febrúar 1988 yfir nótt í varðhaldi án ákæru í fangaklefa í borginni Perth. Lögreglan tilkynnti enga sjáanlega áverka á honum. Klukkan 5.05 næsta morgun fannst lík hans í klefa með greinilega áverka eftir harkalegar líkamsmeið- ingar, áberandi marbletti, bólgur og skrámur. Amnesty International ótt- ast að Stephen Wardle hafi sætt illri meðferð í varðhaldi og hefur fengið upplýsingar sem vekja efasemdir um nákvæman tíma og orsakir dauða hans. Árið 1989 kom í Ijós eftir réttarrannsókn dánardómstjóra að Stephen Wardle hafi látist af völdum eituráhrifa lyfja sem hann fékk samkvæmt lyfseðli og áfengis, og að honum hafi ekki verið sinnt sem gerði illt verra. Dánardómstjór- inn rakst einnig á þó nokkuð mis- ræmi í sönnunargögnum og sagði að mörgum spurningum væri ósvarað þar sem allir lögreglu- mennirnir, sautján talsins, sem voru á vakt nóttina sem hann dó, neituðu að svara spurningum meðan á rannsókn stóð. Frá því að rannsókn málsins hófst hefur fjölskyldan verið undir smásjá lögreglunnar. Fjölmargar smávægi- legar ákærur hafa verið settar fram á Ray Tilbury, stjúpföður Stephen Wardle, en þær hafa flestar verið dregnar til baka. Frá því í ágúst 1994 hafa vopnaðir óeinkennisklæddir lögreglumenn gert fjórar skyndileg- ar innrásir í húsakynni fjölskyldunn- ar sem hafa allar verið álitnar sem áreitni og ógnun. Vinsamlega skrifið kurteislega orðuð bréf og biðjið um sjálfstæða óhlutdræga rannsókn á dauða Stephen Wardle og á meintri áreitni lögreglunnar á foreldra hans. Bréfið mætti orða með eftirfarandi hætti: „I am supporting calls for an independent judical inquiry into the death of Stephen Wardle and into alleged police harass- ment of his parents." Heimilisfang: The Hon Richard Court, MLA Premier of Western Australia Office of the Premier and Cabinet 197 St George's Terrace Perth 6000 Australía tæplega 8,6 milljörðum króna.“ Hvenær bættist svo Víkingalottó- ið við? „Það var í mars 1993. Það má segja að Víkingalottóið sé í ákveðinni sam- keppni við Lottó 5/38 og höfði meira til hluta þess hóps sem leitar sérstak- lega eftir stóra vinningnum. Heildar- sala í Víkir.glottóinu hér frá 1993 er liðlega einn milljarður króna og rúm- lega 377 milljónir hafa farið í greiðslu vinninga. Vinningar í Lottó og Vík- ingalottó eru 40 prósent af heildar- sölu.“ Þjóðin vinnur öll Þegar dregið er í Lottóinu á laugar- dagskvöldum situr fólk spennt fyrir framan Sjónvarpið og allir vona auð- vitað að hæsti vinningurinp falii þeint í skaut.' En það getá ékki allir iitinið óg því era margir sem sitja uppi með sárt ennið. Þeir geta hins vegar huggað sig við það, að peningum þeim sem varið var til miðakaupa er ekki kastað á glæ. Frá upphafi Lottó 5/38 hefur ÍSf feng- ið nær 1,3 milljarða í sinn hlut, Ör- yrkjabandalagið yftr einn milljarð og UMFÍ 360 milljónir króna. Þessi skipting er í samræmi við eignarhluti samtakanna. Vilhjálmur segir að samstarfið í ís- lenskri getspá hafi verið mjög farsælt. „Tekjur af Lottóinu hafa skilað sér út um allt þjóðfélajgið ög syo sannar- légá geft irtf jsjágn.‘TÍf'd;eihN"éi''Öf- yrkjabandalagið búið að kaupa 259 íbúðir fyrir tekjur af Lottóinu og það munar um minna. Þá gefur auga leið að tekjur íþróttasambands íslands og Ungmennafélags íslands af Lottóinu hefur haft heillavænlega áhrif um land allt. Það má því segja að þjóðin vinni öll í Lottóinu með einum eða öðram hætti,“ sagði Vilhjálmur. Við upphaf Lottósins fékk enginn fyrsta vinning í fyrsta útdrættinum. Þegar tvöfaldur vinningur var dreginn út næsta laugardag hreppti ung ekkja á Akureyri vinninginn og óhætt að full- yrða að hann hafi lent á réttum 'stað. Vinningar era skattftjálsir. Er hægt að treysta því að þið seg- ið ekki frá því hverjir fá vinninga, ef fólk vill halda því leyndu? „Já, það má alveg treysta því. Við gætum þess að halda trúnaði við vinn- ingshafa. Vissulega reynið þið blaða- menn stundum að kreista út upplýs- ingar uni vinningshafa, en þeir sem vinna í Lottóinu ráða því algjörlega hvort þeir vilja koma fram eða ekki. Þetta er eins á öðram Norðurlöndum, en í Bandaríkjunum og víðar er þessu öðru vísi varið. Um leið og vinnings- hafi í Ameríku kvittar aftan á miðann heimilar hann myndatökur og að veitt- ar verði upplýsingar um hann opinber- lega. Vinningar í Lottóinu hér nema ekki þeim rosaupphæðum sem tíðkast hjá stórþjóðum, sem betur fer vil ég segja. Þó hefur vinningshafi í Víkin- glottóinu hér fengið tæpar 40 milljónir króna og það er vissulega dágóð upp- hæð. En þótt við gefum ekki upp hverjir vinna í Lottóinu þá get ég sagt að við vitum ótal dæmi þess að fólk sem þurfti mjög á því að halda hefuf fengið vinning og slíkt er alltaf ánægjulegt." En er eitthvað hæft í því að sama fólkið vinni hvað eftir annað í Lot- tóinu? „Ég veit um eitt dæmi þess að sami maðurinn hafi fengið fyrsta vinning tvisvar sinnum. Hins vegar geta ýmsir verið með þrjár eða íjórar réttar tölur af og til, en vinningar dreifast út urn allt landi. Miðar eru seldir í samtals rúmlega 200 sölustöðum og enginn veit í hvaða kassa næsti vinningur leynist," sagði Vilhjálmur B. Vil- hjálmsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.