Alþýðublaðið - 17.12.1996, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
otorhjolaamman, asatruar-
maðurinn og rithöfundurinn
Guðrún Kristín Magnúsdóttir er á
ferð og flugi um borgina um þessar
mundir og kynnir bókina Ódsmál.
Bókin er, einsog gera má ráð fyrir,
um hina fornu æsi og Guðrún lofar
að í henni megi finna nýjustu og
byltingarkenndustu rannsóknarnið-
urstöðurnar um menningararfinn
okkar...
Forsíðumynd jólablaðs Séð og
heyrt mun vafalítið vekja athygli
en blaðið er væntanlegt í búðir nú í
vikunni. Þar má berja augum fjöl-
miðlahetjuna Gaua litla í öllu sínu
veldi, holdi klæddan í orðsins fyllstu
merkingu, með jólasveinahúfu eina
fata. Þá munu þeir Séð og heyrt-
menn Ijóstra upp um margumtöluð
íbúðakaup popparans Damon Al-
barn úr hljómsveitinni Blur hér á
landi. Hann mun hafa fest kaup á lít-
illi íbúð í hjarta borgarinnar. Þó að
ekki sé um stórt húsnæði að ræða
mun þar hægt að finna öll hugsan-
leg þægindi. Auk þess kemur fram í
blaðinu að Elínu Hirst dauðlangi í
slaginn aftur...
Kvikmyndagerðarmaðurinn Ás-
grímur Sverrisson er allt að því
dottinn í lukkupottinn því að breskur
framleiðandi Lynda Myles, fékk
handrit eftir Ásgrím og skólafélaga
hans John Mylarky sent og óstað-
festarfréttir herma að hún hafi orðið
mjög hrifin og vilji nú óð og uppvæg
fjármagna myndina. Lynda þessi er
enginn smáskvísa því hún hefur
framleitt ekki ómerkari myndir en
The Commitments, sem Alan Par-
ker leikstýrði og The Snapper sem
Steven Frears leikstýrði en hann er
einnig leikstjóri nýjustu myndarinnar
sem Linda framleiðir og er nýkomin
á Bretlandsmarkað, The Van. Ef af
samningum verður mun Ásgrímur
leikstýra myndinni sem er svört kó-
medía og gerist á eyju utan við
strendur Skotlands í svartasta
skammdeginu. Eyjabúar sem eru
hundrað talsins eru að bíða eftir að
sólin komi upp því þá ætla þeir að
halda hátíð. Þorpið er að fara á
hausinn en myndin fjallar um vænt-
ingar þorsbúa tii sólaruppkomunnar.
Nú bíða menn bara og vona að sól
Ásgríms rísi og sendi geisla sína yfir
íslenska kvikmyndagerð sem er þó í
alveg ágætum málum...
Margir innan fjölmiðlageirans
hafa velt því fyrir sér hvað orð-
ið hafi um Þorbjörn Tjörva Stef-
ánsson sem rak Helgarpóstínn af
miklu harðfylgi fyrirskömmu, eða
allt þartil fyrirtækið Miðill hf. var lýst
gjaldþrota. Nú lítur út fyrir að Þor-
björn Tjörvi hafi gefið fjölmiðlaheim-
inum uppá bátinn því síðast þegar
fréttist af honum var hann farinn að
starfa í úraversluninni Leonard í
Kringlunni. Eigandi úrabúðarinnar er
enginn annar en Valsarinn Sævar
Jónsson sem eflaust hefur séð sér
akk í reynslu Tjörva úr fjölmiðlunum,
því ekki er hann ráðinn í gegnum
íþróttaklíku; Tjörvi er Þróttari...
Athygli vakti að í sjónvarpsþætti
um jólabókaflóðið var rætt við
þrjá höfunda jólabóka og var komið
inn á bókaverslun í Bónus og var þá
aðallega rætt um það frá þeim bæj-
ardyrum að sumir höfundar yrðu
undir hjá versluninni og hvort að
það ætti við að selja bækur með
þessum hætti. Enginn þeirra kom
inn á það sem þó hlýtur að vera
hagsmunamál rithöfunda að þeir
hafa sjálfir ekkert að segja um heild-
söluverð bókanna en af því ráðast
þó laun höfunda en samkvæmt
samingum Rithöfundasambandsins
fá þeir 16 prósent af heildsöluverði
bóka...
Alþýðublaðið
á Alnetinu
sendið okkur línu
alprent@itn.is
KRiNGWN
Næg bílastæði - öll ókeypis
Bak við Sjóvá-Almennar.
Við Verslunarskólann.
Á grassvæðinu fyrir norðan Hús verslunarinnar.
Á bílastæði starfsmanna fyrir austan Kringluna
og á bílastæði norðan við Útvarpsluisið í Efstaleiti.
lólasveinar Koma
heimsókn ogskemi
Kringlugestum
frd morgni til kvöids
Opið verður lengur m m
Laugardaginn 14. des. kl.10- 22 Laugardaginn 21. des. kl.10 - 22
Miðvikudaginn 18. des. kl.10 - 22 Sunnudaginn 22. des. kl.10 - 22
Fimmtudaginn 19. des. kl.10 - 22 Þorláksmessu 23. des. kl.10 - 23
Föstudaginn 20. des. kl.10 - 22 Aðfangadag 24. des. kl .09 - 12