Alþýðublaðið - 17.12.1996, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
m e n n i n a
„Það er alitaf verið að rífast um notkun á vibrato og
skreytingum," segir Laufey Sigurðardóttir. „Við leik-
um á nútímahljóðfæri og reynum að nýta okkur litina
og dýnamíkina sem býðst."
„Við getum ekki nálgast marga stóra klassíkera en við
getum leikið alla tónlist fyrir tölusettan bassa og lag-
línu og Paganini samdi mörg verk fyrir þessi hljóðfæri
en sjálfur lék hann einnig á gítar," segir Páll Eyjólfs-
son.
J ámbrautarstöðin
Koma mín ekki til borgarinnar N.
átti sér stað stundvíslega.
Þú hafðir fengið skilaboð
með ósendu bréfi.
Þú náðir að mæta ekki
á tilteknum tíma.
Lestin nam staðar við brautaipall númer þrjú.
Margir fóru út.
í hóp þeirra sem gengu í áttina að útgöngunni
vantaði sjálfa mig.
Nokkrar konur komu í minn stað
flýttu sér
í asanum.
Mér ókunnur maður
hraðaði sér í móti einni þeirra,
en hún þekkti hann
þegar í stað.
Þau kysstust
ekki okkar kossi,
og á meðan
hvarf ekki taskan mín.
Brautarstöðin í borginni N.
stóðst með prýði
próf í hlutlausri nærveru.
Heildin var á sínum stað
smáatriðin færðu sig
eftir lagðri sporbraut.
■ Geisladiskurinn, ítölsk tónlist, er nýlega komin út
Hér átti sér stað í raun
fastmælum bundið mót.
Við leikum
með okkar
barrokk
nefi
Fjarri
okkar návist.
í líkindanna
týndu paradís.
- segja tónlistarmennirn-
ir Laufey Sigurðardóttir
og Páll Eyjólfsson sem
hafa nýlega sent frá sér
geisladisk með barokk-
tónlist.
Einu sinni festumst við uppá
Fljótsheiði um miðja nótt um há-
vetur. Það var fullt tungl og unaðs-
lega kyrrt veður en mjög kalt. Það
kom góður maður sem bjargaði
okkur úr klípunni. Þá vorum við
búin að reyna að moka frá bílnum
með nótnastatífum en vorum á
leiðinni burt, gangandi á blank-
skóm með hljóðfærakassana,"
segja Laufey Sigurðardóttir fiðlu-
leikari og Páll Eyjólfsson gítar-
leikari en þau hafa spilað saman í
átta ár og haldið marga tónleika,
ekki bara á Norðurlandi um hávet-
ur, heldur líka víðar hér heima og
erlendis.
Þau hafa nú nýlega sent frá sér
geisladisk með barrokktónlist sem
þau tóku upp í Áskirkju síðastliðið
sumar og það verður að segjast
eins og er að hann er yndislega
skemmtilegur.
„Það er mjög góður hljómburður
fyrir þessi hljóðfæri í Áskirkju og
kirkjuvörðurinn var sérstaklega
elskulegur og vildi allt fyrir okkur
gera og þjónaði okkur eins og best
varð á kosið án þess að taka krónu
fyrir. Svo má ekki gleyma upp-
tökustjóranum okkar honum Hall-
dóri Víkingssyni. Við gætum hælt
honum endalaust, hann var svo
hjálpsamur og skapgóður."
En hvernig vildi til að þið fóruð
að vinna saman ?
„Okkar samstarf hófst á þann
veg að ég hitti Pál á tónleikum í
Langholtskirkju og mér fannst
hann spila svo vel að ég bað hann
um að spila með mér. Hann sagði
já,“ segir Laufey og bætir við að
hún hafi verið ansi frökk og hann
hafi kannski ekki þorað að neita.“
Er þetta ekki fremur óvenjuleg
blanda, gítar og fiðla?
„Gítarinn og fiðlan eiga sömu
formóður og eru um margt lík
hljóðfæri," segir Laufey. „Fyrir ut-
an hvað þau hljóma fallega saman
þá erum þau meðfærileg hvað
snertir tónleikahald. Við getum
spilað hvar sem er. Það þarf ekki
að vera stór flygill til staðar eða
orgel, þetta er miklu meira „in-
time,“ og við höfum notfært okkur
það til hins ýtrasta."
Hefur mikið verið skrifað af tón-
listfyrir gítar og fiðlu?
„Við getum ekki nálgast marga
stóra klassíkera en við getum leik-
ið alla tónlist fyrir tölusettan bassa
og laglínu og Paganini santdi mörg
verk fyrir þessi hljóðfæri en sjálfur
lék hann einnig á gítar,“ segir Páll
og bætir við að nú séu mörg tutt-
ugustu aldar tónskáld farin að
semja fyrir þessi hljóðfæri. „Til
dæmis hefur Þorkell Sigurbjörns-
son samið verk sérstaklega fyrir
okkur.“
>i>Páll nam hjá Eyþóri Þorláks-
syni gítarleikara og sneri að því
loknu til Spánar þar sem hann var
við nám í Alcoy hjá gítarmeistar-
anum Jose Luis Gonzalez. Laufey
Sigurðardóttir lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarskóla Reykjavíkur árið
I974 þar sem hún var nemandi
Björns Ólafssonar. Þá tók við sex
ára framhaldsnám í Boston í
Bandaríkjunum. „Eg var líka dálít-
ið á Ítalíu, í heimalandi fiðlunnar
og söngsins, þar voru bestu fiðl-
urnar smíðaðar og mörg bestu tón-
skáldin á barokktímanum."
Þau vinna bæði við kennslu auk
þess sem Laufey spilar með Sin-
fóníuhljómsveit Islands: „Það er
ekki hægt að lifa sem konsertisti á
íslandi, fólk fær kannski tíma-
bundin starfslaun en það hrekkur
ekki til,“ segir Laufey.
En segið nú aðeins frá efnisval-
inu á disknum ?
„Við höfum aðeins verið að
kynna efnið af disknum og lékum
til dæmis hjá Ítalíufélaginu í fyrra-
kvöld sem var vel við hæfi þar sem
þetta er ítolsk tónlist," segir Lauf-
ey.
„Þetta eru allt sónötur, eftir Cor-
elli, Tartini og Paganini," segir
Páll. „Tartini sónatan er skrifuð
fyrir tölusettan bassa þannig að ég
ræð hljómunum sjálfur og hef um-
ritað hana fyrir gítar. Þetta er
skemmtilegt og gefur dálítið frelsi
um leið og ntaður fylgir forskrift-
inni.“
„Það er alltaf verið að rífast um
notkun á vibrato og skreytingum,“
segir Laufey. „Við leikum á nú-
tímahijóðfæri og reynum að nýta
okkur litina og dýnamíkina sem
býðst.“
Þið eruð því tónlistarmenn en
ekki sagnfrœðingar?
„Já, en við reynum þó að nauðga
ekki stílnum en syngjum þetta með
okkar nefi.“
En hvað finnst ykkur skemmti-
legast að fást við?
„Það sem við erurn að spila
hverju sinni. Það er hreinasta
klisja en alveg dagsatt.“
Annarsstaðar,
annarsstaðar.
Svo mörg em þau orð.
Ljóöiö er eftir pólsku skáldkonuna og Nóbelsverölaunahafann Wislöwu Szymborsku og er aö finna
í bókinni Útópía sem nýlega kom út í þýðingu Þóru Jónsdóttur.
f ÚTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í tölvur og uppsetningu fyrir
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Um er að ræða 48 tölv-
ur, netmagnara og stýrikerfi, nethugbúnað, uppsetn-
ingu og efni ásamt fjartengingum. Verkinu á að vera
að fullu lokið 20. janúar 1997. Útboðsgögn fást afhent
á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: fimmtud. 19. desember 1996 kl.
14.00 á sama stað.
bgd 161/6
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík, er óskað eftir til-
boðum í verkið: Götusalt, efniskaup á salti til hálku-
eyðingar. Um er að ræða 7.000 tonn. Fyrsta afhend-
ing verður um miðjan mars 1997 og verklok haustið
1998.
Útboðsgögn verða seld á skrifst. vorri á kr. 1000, - frá
þriðjud. 17. desember n.k.
Opnun tilboða: fimmtud. 6. febrúar 1997, kl.
11:00 á sama stað.
Verk þetta er auglýst á Evrópska efnahags-
svæðinu.
gat 166/6
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavík
Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616