Alþýðublaðið - 15.01.1997, Side 1
■ Félagsmálastjóri kannast ekki við munnlegt samkomulag við Jón frá
Pálmholti þess efnis að hann búi leigulaust á vegum borgarinnar
llllíðanlegt að sumir búi
leigulaust en aðrir ekki
- segir Lára Björnsdóttir félags-
málastjóri.
„Ég kannast ekki við það sam-
komulag," segir Lára Bjömsdóttir fé-
lagsmálastjóri Reykjavíkurborgar í
samtali við Alþýðublaðið
f frétt blaðsins í gær segir Jón frá
Pálmholti farir sínar ekki sléttar í við-
skiptum við stofnunina, hann fékk
bréf frá lögfræðingi þess efnis að hann
skuldaði miiljón í leigu og honum gert
að rýma íbúðina ef hann ekki gerði
upp þegar í stað. Jón hefur starfað í
sjálfboðavinnu hjá Leigendasamtök-
unum um langt skeið og taldi sam-
komulag í gildi þess efnis að hann
dveldi í íbúðinni meðan svo væri enda
hefði aldrei verið gengið á eftir leig-
unni.
, J>essi mál hafa tekið lengri tíma en
Jón segir og ég hef hvergi séð neinar
upplýsingar þess efnis að hann ætti að
búa þama leigulaust," segir Lára.
Jón telur að um ólöglegan gjöming
að ræða, í lögum segi að ekki sé stætt
á að vísa mönnum úr félagslegu hús-
næði án þess að annað komi í staðinn.
Lára segir þetta ekki rétt og vitnar í
46. grein um félagsþjónustu. „Al-
mennt séð er ákveðinn fjöldi mála
sem hefur skuld safnast upp hjá fólki
og það hefur verið gerð ákveðin end-
urskipulagning á allri innheimtu og
innheimtureglur hertar. Það er ætlast
til þess að þeir sem búi í félagslegum
íbúðum borgi leiguna eða hún sé felld
niður teljist ástæða til. Fólk hefur tök
á að semja um þetta og það verður að
taka fram að þessar íbúðir eru allar
niðurgreiddar af borginni. Það er ill-
Kðanlegt að sumir borgi sína leigu en
aðrir komist undan því. Það er einfald-
lega brot á jafnræðisreglu," segir Lára.
Hún segist ekki kannast við að ekki
hafi verið gengið á eftir greiðslum hjá
Jóni, þetta sé örþrifaráð. „Það kemur
mér á óvart ef hann hefur ekki fengið
innheimtubréf eða rætt við hann. Jón
hefur kost á því að setja sig í samband
við starfsmenn okkar og ræða þessi
mál.“
Lára segir þetta ekki tengjast því að
umsýsla félagslegra íbúða á vegum
borgarinnar séu komnar í hlutafélag.
„Neinei, það er búið að taka ákvörðun
þar um en kerfið ekki komið í þann
farveg enn,“ segir Lára Bjömsdóttir.
■ Kalli í Pelsinum kaupir Laugaveg 16
„Man ekki kaupverðið"
„Þetta fer allt í leigu,“ segir Karl Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli
í Pelsinum, í samtali við Alþýðublaðið. Nýlega festi hann kaup á húsinu sem
stendur við Laugaveg 16 þar sem Laugavegsapótek hefur haft starfsemi um
árabil. Karl keypti húsið af Oddi C S Thorarensen apótekara og segir að
það eigi eftir að koma í ljós hver tekur við rekstri Laugavegsapóteks, en
ekki er fyrirhugað að nýta húsnæðið undir aðra og nýja starfsemi.
Að sögn Karls er verið að laga efri hluta hússins sem síðar verður leigð-
ur. „Ég er í útleigu á fasteignum og þetta er bara hluti af því.“ Húsið er
rúmlega fimmtán hundruð fermetrar og aðspurður um kaupverðið sagði
Karl: „Ég bara man það ekki.“
■ LR og borgaryfirvöld
Mönnum í
mun að þjóna
sinni lund
- segir Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir um kaldar kveðjur Leikfé-
lagsmanna á afmælishátíðinni.
„Það er auðvitað alveg ljóst að
Reykjavíkurborg hefur verið aðal-
bakhjarl Leikfélags Reykjavíkur og
hefur hækkað framlag sitt til félags-
ins umtalsvert á síðastliðnum tveim-
ur árum. Þegar R-listinn tók við var
árlegt framlag til LR um 119 millj-
ónir en er nú komið uppí 140 millj-
ónir. Þær staðreyndir tala auðvitað
sínu máli,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri í samtali við
Alþýðublaðið.
Á hundrað ára afmælishátíð Leik-
félags Reykjavíkur vakti það athygli
gesta að leikhúsmennimir Sigurður
Karlsson, Pétur Einarsson og Sveinn
Einarsson agnúuðust útí borgaryfir-
völd fyrir rýran stuðning til LR í
ræðum sínum. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra var einnig í þeim hópi
en að sögn Ingibjargar Sólrúnar var
augljóslega um pólitískt útspil að
ræða af hans hálfu.
Aðspurð hvort hér væri ekki um
ómaklega aðför að ræða sagði Ingi-
björg Sólrún: „Sumum mönnum
virðist í mun að þjóna sinni lund.
Annað er ekki um það að segja.“
Samningur milli Reykjavíkurborg-
ar og LR er nú í endurskoðun en
óvíst er hvenær niðurstaða er að
vænta.
Hafsteinn Austmann og
Guðrún Þ. Stephensen
Heiðurshjónin Hafsteinn Austmann og Guðrún Þ. Stephensen eru í við-
tali við blaðið í dag um líf sitt og list en þau hafa starfað hvort í sinni list-
grein í hálfa öld. í viðtalinu bar margt á góma, allt frá Jeppa á fjalli,
magaveikum íslenskum bóhemum í Parísarborg til byggingafram-
kvæmda í Kópavogi og Soffíu frænku í Kardimommubænum. Guðrún
er leikkona hjá Þjóðleikhúsinu frá 1975 en Hafsteinn starfar að kappi í
myndlistinni og er nú með vatnslitamyndir á sýningu hjá Listþjónust-
unni viö Hverfisgötu en hann hélt Sjónþing í Gerðubergi í fyrra við mikla
aðsókn.
ekki sjálfrátt
- segir Sigurður T. Sigurðsson
formaður Hlífar og telur fram-
komu vinnuveitenda einkenn-
ast af fádæma frekju, óbilgirni
og hörku.
„Þessu verður öllu vísað til sátta-
semjara enda hefur ekkert þokast í
sámkomulagsátt til þessa. Þórarinn
Viðar er að bjóða samning til
tveggja ára með hækkun lægstu
launa um eitt og hálft prósent hvort
ár. Það þýddi um 1500 króna launa-
hækkun. Ég tel að Þórami sé hrein-
lega ekki sjálfrátt að koma með svo
svívirðilegt tilboð,“ sagði Sigurður
T. Sigurðsson formaður Hlífar í
Hafnarfirði í samtali við Alþýðu-
blaðið.
„Það er ekki annað en þetta í
boði. Framkoma vinnuveitenda ein-
kennist af fádæma frekju, óbilgirni
og hörku. Þessi framkoma er svo
fyrir neðan allar hellur að mig
skortir bara orð til að lýsa henni.
Við förum fram á að lægstu laun
hækki upp í 70 þúsund krónur á
mánuði á næstu tveimur árum. Ég
hef ekki hitt neinn mann með fulle
fem sem þykir þetta ósanngjamar
kröfur. Enda er varla hægt að
leggja fram betri sáttahönd en
þetta,“ sagði Sigurður ennfremur.
Hann sagði að það væri landg-
lundargeð og þolinmæði verkafólks
sem hefði gert okkur kleift að ná
niður verðbólgunni. Því væri óskilj-
anlegt að hóflegum kröfum þess um
kjarabætur nú væri hafnað.
„Ég set það sem úrslitaskilyrði og
vona að önnur félög láglaunafólks
geri það sama, að í samninginn
verði sett ákvæði um að hann opnist
strax ef aðrir fá kauphækkun á
tímabilinu sem er hærri í krónutölu
en okkar samningur segir til um,“
sagði Sigurður T. Sigurðsson.
Sigurður T. Sigurðsson formaður
Hlífar: „Ég hef ekki hitt neinn mann
með fulle fem sem þykir þetta
ósanngjarnar kröfur."
■ Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði vísar kjaraviðræðum til sáttasemjara
Þórarni er hreinlega