Alþýðublaðið - 21.02.1997, Page 1
■ Ólga í stjórnarliðinu vegna yfirlýsingar Davíðs
Það er verið að selja
kolkrabbanum bankana
- segir Gunnlaugur Sigmundsson, formaður nefndar sem undirbjó breytingar á bönkunum: Með
aðferð ríkisstjórnarinnar getur enginn keypt þá nema kvótakóngarnir. Vissi ekkert um niðurstöðuna.
“Hverjir eru það sem geta keypt
hlutina í ríkisbönkunum þegar svona
er staðið að sölunni? Auðvitað engir
nema kvótakóngamir. Það er verið að
selja kolkrabbanum bankana. Út á
það virðist þetta ganga. Þetta er allt
annað en var rætt um á fyrri stigum
málsins, þegar ég vann að málinu fyr-
ir ríkisstjómina. Eg get ekki séð á
þessari stundu að ég geti samþykkt
þetta.”
Þetta vom viðbrögð Gunnlaugs
Sigmundssonar, alþingismanns Fram-
sóknarflokksins, við þeim hugmynd-
um sem Davíð Oddsson kynnti á
einkavæðingaráðstefnu í Perlunni í
fyrradag. Gunnlaugur var formaður
nefndarinnar, sem undirbjó málið fyr-
ir Finn Ingólfsson, bankamálaráð-
herra, en sagði að ekkert samráð hefði
verið haft við sig um niðurstöðuna.
“Hún er satt að segja fjarri því að
vera það sem við ræddum um í nefnd-
inni. Mér finnst líka makalaust að
fréttamenn skuli hafa í höndum tfum-
varpsdrög dagsett 17. febrúar, sem ég,
formaður nefndarinnar, hef ekki einu
sinni séð. Ég les það líka í Morgun-
blaðinu að það eigi að selja 49 prósent
af bönkunum. Þessar hugmyndir em
langt frá þeim anda sem ég vann eftir.
Ég hafði ekki hugmynd um þessa nið-
urstöðu,” sagði Gunnlaugur.
Hann kvaðst hafa haldið að það
væri samkomulag um að gera bank-
ana fyrst að hlutafélögum til að laga
rekstrarafkomu þeirra og lækka
kostnað á þjónustu gagnvart neytend-
um. “Síðan átti að koma þeim á mark-
að með þeim hætti sem tryggði mjög
dreifða eignaraðild. Það átti að forð-
ast að bankamir lentu í höndum há-
karla. Vissulega var talað um að
styrkja eiginfjárstöðu þeirra með því
að fá inn einhverja nýja aðila, en
aldrei í þeim mæli sem forsætisráð-
herra talar um.”
■ Urgur á stjórnarheimil-
inu vegna heilbrigðismála
Vantraust á
Ingibjörgu
- segir Siv Friöleifsdóttir um
málflutning Sjálfstæðismanna
Þessi tillaga Sjálfstæðismanna er
ekkert annað en vantraust á heil-
brigðisráðherrann, sagði Siv Frið-
leifsdóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins, við umræður um tillögu
sem sex þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins flytja um könnun á biðlistum í
heilbrigðisþjónustunni. En óánægja
ríkir í herbúðum Framsóknar með til-
löguna og litið á hana sem beina að-
för að Ingibjörgu Pálmadóttur, sem
lítil ánægja ríkir með innan Sjálf-
stæðisflokksins.
Össur Skarphéðinsson, formaður
heilbrigðis- og trygginganefndar
krafðist þess að umræðunni yrði þeg-
ar í stað frestað, uns heilbrigðisráð-
herra kæmi á staðinn og tæki þátt í
umræðunni. Ásta R. Jóhannesdóttir
ásamt fleiri þingmönnum úr stjómar-
andstöðu kvað tillöguna fuðurlega
sýndarmennsku. Hún væri flutt af
þingmönnum, sem sjálfir hefðu stað-
ið að blóðugum niðurskurði í heil-
brigðiskerfinu, En nú kæmu þeir
ffam með þingmál, bersýnilega í
þeim tilgangi að sýna þjóðinni andúð
sína á Ingibjörgu Pálmadóttur.
Brosað í bálið
”/Etli þaö veröi líkt og meö nornina í Hans og Grétu, aö mér verði
sparkað inn í ofninn og skellt á eftir mér,” sagöi Björn Bjarnason menntamálaráðherra þegar hann
leit inn (keramikofninn í Myndlista og Handíöaskólanum í morgun en hann skoöaöi allar deildir skól-
ans en aöstöðuleysi hans hefur mikiö veriö til umræöu. Óánægjan kraumar í nemendum sem eru aö
berjast fyrir bættri aöstööu en þeir kæröu skólahúsnæöiö í Lauganesi til heilbrigöiseftirlitsins ekki
alls fyrir löngu.
■ Stórsigur Röskvu
Mesta afhroð Vöku í 60 ár
- segir Vilhjálmur h. Vilhjálmsson.
“Við höfum unnið sjö ár í röð, en
þetta er stærsti sigurinn til þessa,”
segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
formaður Stúdentaráðs. “Þetta er
mesti ósigur Vöku síðan félagið var
stofnað 1935. Ungt fólk í dag vill sjá
sameiningu jafnaðarmanna. Röskva
hefur sigrað sjöunda árið í röð og í
því eru fólgin skilaboð um þetta auk
þess sem þeir eru einfaldlega ánægð-
ir með okkar störf.”
Röskva vann stórsigur í kosning-
um til Stúdentaráðs en talningu lauk
skömmu eftir miðnætti á miðviku-
dag.
Kosið var um tvö sæti til Háskól-
arráðs og níu sæti til stúdentaráðs. Á
kjörskrá voru 5772 stúdentar en 2669
kusu eða rúmlega 46 prósent.
Röskva, hlaut 1499 atkvæði eða 54,8
prósent og fimm fulltrúa kjöma.
Vaka hlaut 815 atkvæði, eða 30,8
prósent og þrjá fulltrúa kjöma. Haki,
félag öfgasinnaðra stúdenta, fékk
286 atkvæði eða 9,9 prósent og einn
fulltrúa. Auðir seðlar og ógildir vora
96 eða 3,6 prósent.
“Vaka lagði upp í baráttuna með
algera sátt um störf meirihlutans í
veganesti,” segir Vilhjálmur. “Það
eina sem hefur skilið fylkingamar að
er ágreiningur um frjálsa aðild að
Stúdentaráði. Daginn fyrir kosningar
greip þá örvænting og þeir betrekktu
skólann með spillingarplakati og
sendu tölvupóst um Röskvu í gegn-
um netið. Það hefur haft neikvæð
áhrif ef einhver,” segir Vilhjálmur.
Röskva og Vaka fengu hvor um sig
einn fulltrúa í Háskólaráðs en fulltrú-
ar þess eiga einnig sæti í Stúdenta-
ráði.
Staðan í Stúdentaráði er því sú að
afloknum kosningum að Röskva er
með tólf fulltrúa af 22, Vaka með átta
og Haki með tvo.
Sjá viðtal vib Vilhjálm H. Viihjálmsson
á sibu 6.
Jón Baldvin
í Oxford
Jón Baldvin Hannibalsson,
fyrrarn formaður Alþýðuflokks-
ins, er um þessar mundir stadd-
ur í Englandi í boði hins virta
háskóla í Oxford, til að ræða
Evrópumál við stúdenta og
fræðimenn.
í gærkvöldi hélt hann erindi
við viðskiptadeild háskólans á
vegum European Affairs Soci-
ety, en kemur aftur heim í næstu
viku.
Þess má geta að í dag verður
hinn ástsæli leiðtogi 58 ára
gamall.
Kosningar í Alþýðuflokks-
félagi Reykjavíkur
Rúnar býöur
sig til for-
manns
“Það hefur mjög verið þrýst á mig
að gefa kost á mér til formanns í Al-
þýðuflokksfélagi Reykjavíkur og ég
hef ákveðið að verða við þeim til-
mælum,” sagði Rúnar Geirmundson,
formaður samstarfsráðs heilsugæsl-
unnar í Reykjavík í samtali við Al-
þýðublaðið. Kosningar til félagsins
fara fram 27. febrúar en núverandi
formaður er Gunnar Ingi Gunnars-
son, heilsugæslulæknir.
Rúnar segir að það haft ekki áhrif
á framboð sitt þó aðrir verði í kjöri.
“Drengileg keppni er bara af hinu
góða. Ég hef brennandi áhuga á jafn-
aðarstefnunni, og Alþýðuflokknum.
Ég hef áður setið í stjóm Reykjavík-
urfélagsins, og gegnt trúnaðarstörf-
um fyrir flokkinn í borginni, meðal
annars sem formaður stjómar heilsu-
gæslustöðvar Árbæjar og Grafar-
vogs. Það er skriður á jafnaðarmönn-
um þessa dagana, einsog skoðana-
kannanir gefa til kynna, og það era
nýtt, ungt fólk að koma til starfa fyr-
ir flokkinn sem er reiðubúið að taka
til hendinni, meðal annars við að
undirbúa næstu borgarstjómarkosn-
ingar og uppbyggingu nýs Reykja-
víkurlista. Þar vil ég leggja mitt af
mörkum.”
Rúnar sagði að það væra spenn-
andi tímar framundan í stjómmálun-
um. “Ég hef reynslu, mig langar til
að taka til hendinni í flokksstarfinu
og leggja mitt af mörkum til að rífa
það upp til að styrkja okkar fólk sem
best við komandi kosningar. Þess
vegna býð ég mig fram,” sagði Rún-
ar. “Ef það verða fleiri í kjöri, þá veit
ég að hvemig sem niðurstaðan verð-
ur munu menn taka henni eins og
sannir jafnaðarmenn. Ég mun að
minnsta kosti gera það.”