Alþýðublaðið - 21.02.1997, Side 4

Alþýðublaðið - 21.02.1997, Side 4
ÍSIENSKA AUCIÝSINCASTOFAN NF./SÍA. 4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 ■ Sighvatur Björgvinsson skrifar um leiksýninguna í Perlunni Leikhús fáránleikans Þetta var eins og leikhús fáránleikans. Einkavæðingamefnd, sem heyrir undir forsætisráðherra, boðaði til málþings um einkavæðingu. Málstofan: Perlan í Reykjavík. Það hús var byggt samkvæmt ákvörðun pólitísks borgarstjóra. Bygg- ingakostnaður fór langt fram úr áætlun. Byggt var fyrir opinbert fé. Að fram- kvæmdum loknum var samið við einka- aðila um reksturinn. Leigugjaldið mun lægra en rekstrarkostnaður byggingarinn- ar. Mismunurinn greiddur af skattborgur- um, nánar til tekið viðskiptamönnum Hitaveitu Reykjavíkur. Svona var um- gjörðin, það er sviðsetningin í leikhúsi fáránleikans. Aðalleikendur fyrir hlé: Jónas Haralz, efnahagsráðunautur ríkisstjóma í tíð mestu ríkisafskipta af atvinnumálum, svo bankastjóri ríkisbanka (Landsbankans), síðan bankastjóri fjölþjóðlegs ríkjabanka (Alþjóðabankans). Ræðuefni: Breytingar á viðhotfi um hlutverk opinberra aðila í efnahags- og atvinnumálum frá miðbiki nítjándu aldar til vorra tíma. Gleymdi heimskreppunni og áhrifum hennar. Nið- urstaða: Allur starfsferillinn á misskiln- ingi byggður. Birgitta Kantola, einn af varaforsetum Alþjóðabankans, fyrst kynnt sem banka- stjóri. Ræðuefni: Einkavæðingin í Rú- anda og Chile og meðal Búskmanna. Hlé eftir fyrsta þátt. Hanastél og kran- sakökur í boði skattborgara. Annar þáttur. Sama sviðsmynd. Aðal- leikarar í öðmm þætti: Vaclav Klaus, hámenntaður og ein- staklega viðfelldinn forsætisráðherra Tékklands þar sem öll fyrirtæki, stór og smá, voru í opinberum rekstri fyrir fimm árum en hefur tekist að einkavæða 70 prósent atvinnustarfseminnar á þeim stutta tíma. Davíð Oddsson, sem tilkynnti að nú stæði til að stofna þriðja ríkisbankann á íslandi. Ríkisframkvæmdabanka eins og þann, sem dr. Benjamín Eiríksson veitti forstöðu fyrir bráðum þrjátíu árum síðan. Það kallar Hannes Hólmsteinn einkavæð- ingu. Eins gott að Vaclav Klaus skilur ekki íslensku. Ella hefði þeim góða manni eflaust verið bmgðið því hvað á Eins gott að Vaclav Klaus skllur ekki íslensku. Eila heföi þeim góða manni efiaust verið brugðið því hvað á stofnun þriðja ríkisbankans á íslandi sameiginlegt meö því sem hefur veriö að gerast í heima- landi hans? stofnun þriðja ríkisbankans á íslandi sameiginlegt með því sem hefur verið að gerast í heimalandi hans? Algerlega “absúrd”. Leiksýningu lokið? Ekki alveg. Að málþingi loknu hófst hátíðakvöldverður á sviðinu. Aðgangseyrir fjórtán þúsund krónur. Forstjórar ríkisfyrirtækja og stofnana áberandi í hópi veislugesta. Varla hafa þeir greitt aðgangseyrinn úr eigin vasa? Veislukostnaður sum sé greiddur af opinberu fé. Hápunktur mál- þings um einkavæðingu á íslandi! Undirritaður boðsgestur, sem fór heim til sín í soðninguna, er þeirrar skoðunar, að þeim sem ekki þykir þetta fyndið séu alveg lausir við kímnigáfuna. Honum þykir þetta vera eins og sagan um nýju fötin keisarans. Heyrir enginn hlátur, skellihlátur? Hvar er nú Utvarp Matthildur? Eða Revíuleikhúsið? Svona óperettuþjóðfélag er ekki á hverju strái. Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 13. mars 19971 efri þingsölum Hótels Loftleiða og hefst kl 14.00. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Tiliögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skuiu vera komnar í hendur stjómarinnar eigi síðar en 7 dögum íyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Stjóm Flugleiða hf. Aðgöngumiðar, atkvæðaseölar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins, ReykjavíkurflugvcIIi, hlutabréfadeild á 1. hxðfrá og mcð 6. mars kl. 14.00. Dagana 10. til 12. mars verða gögn afgreidd frá kl. 09:00 til 17:00 og fundardagtil kl. 12:00. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12:00 á fundardegi. FLUGLEIÐIR Traustur íslenskurferðafélagi

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.