Alþýðublaðið - 21.02.1997, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
ALÞYÐUBLAÐIÐ
m e n n i n
Listakonan Barbara Waltman sýnir verk frá íslandi aö Kjarvalstööum. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir spjallaöi viö hana um verkin.
Leiði*
líeflmk tU
l^eykÍMikuh
Pær myndir Barböru Waltman sem gefur aö iíta á sýningu hennar aö Kjarvalsstöðum sem opnar á laugardaginn
eru tilkomnar vegna hugljómunar sem listakonan fekk á leiöinni frá Keflavík til Reykjavíkur.
“Ég grét þegar ég pakkaði myndun-
um niður og sendi þær til íslands. Það
voru tár yfir missinum, það voru tár
feginleika. Eins og þegar böm vaxa úr
grasi og fara að heiman, þá kemur
gleðin yfir því að þau skuli vera fær
um að standa á eigin fótum en um leið
sorgin yfir að að láta þau frá sér.”
Barbara Waltman var hér á ferðalagi
síðastliðið haust, en maðurinn hennar
Arthur C. Danto, var hér í boði háskól-
ans að flytja fyrirlestur. Hún notaði
tækifærið og skoðaði svæðin í kringum
Reykjavík og Keflavík. Þær myndir
sem gefur að líta á sýningu hennar að
Kjarvalsstöðum sem opnar á laugar-
daginn em tilkomnar vegna hugljóm-
unar sem listakonan fékk á leiðinni frá
Keflavík til Reykjavíkur. Regnið hellt-
ist yfir rútubQinn á leiðinni og henni
fannst að hún væri um borð í skipi.
Eftir fimm daga dvöl á Islandi sneri
listakonan heim, og málaði á hálfum
þriðja sólahring sextán málverk. í ferð-
inni skoðaði hún meðal annars Grinda-
vík og myndir þaðan gefur að líta á
sýningunni. Mig langar að vita hvað
gerist inni í þessum húsum,” segir hún
og bendir á eina myndina. En glugga-
mir em þaktir í sterkrauðum gulum lit.
Ég bendi henni á bækur Guðbergs
Bergssonar sem óx úr grasi í Grinda-
vfk. Hún skrifar nafnið hans hjá sér en
hefur annars verið að lesa íslendinga-
sögumar. Við staðnæmumst hjá Geysi
en ég furða mig á tilveru hans í þessari
myndröð.
“Ég var fjóra tíma að þrífa vinnu-
stofuna eftir að hafa málað Geysi, ég
skvetti villt og galið á pappírinn. Geys-
ir er með í þessari myndaseríu þó hann
sé ekki að finna á leiðinni til Keflavík-
ur, það má segja að hann sé einskonar
fantasía.
Það er fleiri fantasíur að fmna í
þessari myndröð Barböm, einni mynd-
inni em til dæmis himinhá tré. Hún
segist hafa hrifist af ljósinu, en Islend-
ingar eigi stundum bágt með að skilja
það, enda sé ljósið þeim eðlilegur hluti
af umhverfinu. Hraunið með öll sín
skringilegu form, eins og skúlptúra eða
rúnamyndir, em Barböm endalaus
uppspretta hugmynda, skýjafarið og sí-
breytilegt veður. Litlir fiskibátar vagga
á sjónum, sjálf segist Barbara vera
heilluð af hafinu. Faðir hennar átti
fiskibát og hún fór stundum með hon-
um til að veiða útifyrir Rockport í
Massachusetts. Hún segir að húsinu í
sjávarþorpunum á Suðumesjunum séu
máluð í svo björtum og glaðlegum lit-
um, ólíkt því sem hún eigi að venjast
ífá heimkynnum sínum. Ég segist
halda að það sé meiri litadýrð en
venjulega í íslenskum fiskiþorpum,
það sé að hluta til vegna áhrifa frá am-
eríska herþorpinu á Keflavíkurflug-
velli, dálítið væmnir bleikir og grænir
litir í húsamálum, þó sé meira um það
í Keflavík en hinum bæjunum.
Ég bendi á mynd af ljósaskiptunum
og segi hvað hún sé falleg, litanotkun-
in sérstök og skemmtileg. “Já, það
frnnst mér lflía,” segir Barbara kát og
segir í leiðinni að hún nenni ekki að
vera með neitt uppgerðarlítillæti. Hún
elski myndimar sínar og sumar þeirra
finnist henni einfaldlega æðislegar.
Oft hefur verið fjallað um Keflavík-
urveginn, sem ljótan veg og landið setji
niður hjá útlendingum sem þurfa að
hefja ferðina til fslands með því að
keyra þessa flatneskjulegu leið og
trompa sfðan lágkúruna með Alverinu í
Straumsvík. Ég hef alltaf verið ósam-
mála því og fundist þessi leið mjög fal-
leg. f bók fyrir jólin lýsti erlend kona
landslaginu þar sem tunglrænu, gagn-
rýnandi greip það á lofti og sagði það
orð sem ætti enga hliðstæðu í íslensku
máli. En orðið á sér svo sannarlega
hliðstæðu í sjálfu landslaginu, því það
er tunglrænt. “Mér finnst landslagið
magnað á þessari leið og þessi bflferð
inn til borgarinnar klukkan hálf sjö um
morgun, hafði á mig djúp tilfinninga-
leg áhrif,” segir Barbara.
Barbara Westman hefur fýrir löngu
skapað sér nafn í listasögunni fyrir per-
sónulegan stíl en Boston bókin sem er
ein fimm bóka sem hún gaf út á átt-
unda áratugnum, gerði hana að eftir-
læti Boston búa og hafði mikil áhrif á
sjálfsmynd þeirra. “Hún hafði skapað
Boston ímyndunaraflsins,” skrifar
Arthur C. Danto. “og af því að ásýnd
þessarar ímyndunarborgar var nákvæm
eftirmynd þeirrar Bostonborgar sem
menn þekktu þótti hinum fjölmörgu
aðdáendum Barböru ímyndunarborgin
vera til í raun og veru.”
Barbara var aðalteiknari New Yor-
ker á gullaldarárum blaðsins en að
sögn Danto lifðu íbúar borgarinnar sig
inn í þá sýn sem listamenn blaðsins
framreiddu viku eftir viku á forsíðu
blaðsins.
Danto segir annars staðar í þessari
grein að sambúðin með Barböru hafi
breytt viðhorfi hans til lista og segir
um sýninguna núna að Kjarvalsstöð-
um: “Ég þekki engan sem málar með
jafnmiklu fjöri og jafn áreynslulaust.
Hver annar gæti hafa skapað verkin á
þessari sýningu.”
■ Kjarvalsstaðir á laugardag
Ráðgátur
Monory
“Undir niðri er ég rómantískur og það á sér stað í
öllum verkum mínum,” segir Jacques Monory einn
af leiðtogum evrópska frásagnarmálverksins.
Árið 1991 málaði Monory, sem er
einn af frægustu evrópsku frásagnar-
listamönnunum, sitt síðasta verk. Inn í
það skeytti hann myndum af allri fjöl-
skyldunni sinni.
“Ég hélt að þetta væri búið, að nú
væri ég hættur. Það stóð yfir í viku þá
var ég byrjaður að mála aftur.”
Monory opnar sýningu að Kjarvals-
stöðum á laugardaginn þar sem gefur
að líta úrval verka frá síðastliðnum
þremur árum.
La Figuration Narrative eða Evr-
ópska frásagnarmálverkið var meðvit-
að andsvar franskra listamanna við
abstraktmálverki Parísarskólans og
bandarísku popplistinni í byrjun sjö-
unda áratugarins en andstætt henni
voru frásagnarlistamennimir gagnrýnir
á samfélagið og listina.”
“Á hverju ári reyni ég að halda minn
síðasta myndakonsert,” segir hann
hlæjandi. En ég er enn að. En hvað ætti
ég líka að gera ef ég hætti að mála, mig
myndi langa til að verða eins og gömlu
heimspekingamir. En gæti ég lifað
þannig. Ég er ekki frjáls - En ég vildi
óska þess að ég væri frjáls.”
Við staðnæmust við þrjár myndir
Monorys sem fjalla um gærdaginn,
daginn í dag og morgundaginn. Ég
spyr hann afhverju dagurinn í dag sé
svona svartur?
“Öll verk mín em blanda af svart-
sýni og ást á fólki, undir niðri er ég
rómantískur og það á sér stað í öllum
verkum mínum. Ég sé lífið í dag í
svörtum lit en það er löng saga. Ég er
ekki einungis svartsýnn þvf mér finnst
lífið fallegt og ég er fullur af orku.”
Við göngum fram hjá myndröð þar
sem elskendur kyssast á ferhymdum
fleti á öllum myndunum nema einni,
þar er búið að skipta út kossum fyrir
byssu. Byssur era mjög endurtekið
minni í öllum verkunum og hann hefur
sviðsett í myndum sínum margar út-
gáfur af “leynilögreglureyfuram,” sem
gengið hafa undir nafninu ráðgátur.
Myndimar lúta ekki raunveruleikanum
heldur eigin lögmálum, og eru oftast í
Þrjár táknrænar myndir eftir Monory. Fyrsta myndin er í bláum lit og táknar gærdaginn. Onnur myndin táknar
daginn í dag og svartur litur er mest áberandi. Þriöja myndin er sannkölluö litasprengja og stendur tyrir morg-
undaginn.
bláum lit sem kallar fram tilflnninga-
lega fjarlægð. Ráðgátan er grandvall-
aratriði í öllurn verkum listamannsins
og hann hefur sagt að í nýrri verkum
sínum sé merking þeirra ráðgáta fyrir
honum sjálfum meðan þær era að þró-
ast. Hann sækir tilvísanir og frásagnar-
aðferðir ósjaldan í myndskeið kvik-
myndanna og hann nýtur þess að segja
sögur. “Ég fæ ánægju út úr því að taka
virkan þátt í sögunum,” segir hann.
Og það er enginn vafi að það fá gest-
ir Kjarvalsstaða líka.
Við komumst ekki lengra í þessu
viðtali, enda segir Monory. “Þú átt bara
að ímynda þér viðtalið, það er lang best
þannig.”
Opinn stjórnarfundur FUJR
Ákveðið hefur verið að halda stjórnarfund hjá hinu forna félagi
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, sunnudaginn 23. febrúar
klukkan 13.00, í Alþýðuhúsinu í Reykjavík, Hverfisgötu 8-10.
Fundurinn er að vanda opinn öllum félagsmönnum og viljum við
hvetja sem flest ykkar til að mæta á þessu 70 ára afmælisári fé-
lagsins.
Kolbeinn H. Stefánsson, varaformaður FUJR
Fundur á Akureyri
Jafnaðarmannafélag Eyjafjarðar boðar félagsmenn til fundar
næstkomandi laugardag, 22. febrúar, kl. 12.00 á hádegi í veit-
ingasalnum “Stássið” á Akureyri.
Rætt verður um stjórnmálaviðhorfið og flokksmál. Gestir fundar-
ins verða Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins,
og Magnús Norðdahl, formaður framkvæmdastjórnar.
Stjórn félagsins